NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 26.07.1985, Qupperneq 2

NT - 26.07.1985, Qupperneq 2
Föstudagur 26. júlí 1985 2 Úrslit uppskriftasamkeppni Osta- og smjörsölunnar: Rúmar f immhundruð uppskriftir bárust ■ Yfir fímmhundruð upp- skriftir bárust í uppskriftasam- keppni Osta- og smjörsölunnar sem fram fór í vor en úrslit liggja nú fyrir úr henni. Fyrstu verðlaun fengu Þór- laug Guðbjörnsdóttir og Ólafur Jónsson frá Seltjarnarnesi. Þau bjuggu til fískrétt sem beitir Sælkerabollur og fyrir það fá þau aðalverðlaunin, ferð til Kaupmannahafnar og að sjálf- sögðu kóngamáltíð þar. Önnur verðlaun fékk Ólafur Guðmundsson frá ísafirði fyrir ábætisrétt, en alls var um þrjár tegundir rétta að ræða, auk tveggja fyrrnefndra voru einnig bakaðir réttir, aðallega brauð og kökur. En réttur Ólafs heitir Suðrænir ávextir með rifnum gráðaosti og sérríbættri rjóma- ostasósu. Ingibjörg Jónsdóttir frá Vest- mannaeyjum hlaut þriðju verð- laun fyrir fiskréttinn Fróma. Aukaverðlaun fengu síðan Sig- rún Magnúsdóttir og Jóns Jó- hannesson frá Isafirði fyrir Ostavöfflur sínar og einnig Bogi Þór Siguroddsson frá Reykjavík fyrir Endapunkta, sem eru makkaronutoppar. í dómnefnd samkeppninnar sátu Hilmar B. Jónsson, Gest- gjafamaður, Jóhanna Sveins- dóttir, matkráka og Dómhildur Sigfúsdóttir, uppskrifta- og matreiðslusérfræðingur Osta- og smjörsölunnar. Ætlunin mun var að nota eitthvað af þeim hugmyndum sem komu fram í samkeppninni í uppskriftabæklinga sem Osta- og smjörsalan gefur út. ■ Ólafur Guðmundsson, sem fékk önnur verðlaun í samkeppni Osta- og smjörsölunnar, heldur hér á rétti sínum Suðrænir ávextir með rifnum gráðaosti og sérríbættri rjómaostasósu. Könnun Neytendafélags Reykjavíkur og nágrennis: Skilmálareruekki nægilega kynntir Wild Thing í Broadway ■ Hin þekkta hljómsveit The Troggs leikur í Broadway í kvöld og annað kvöld. Hljómsveitin er ein sérstak- asta hljómsveit bítlatímans. Þekktustu lög The Troggs eru Wild Thing, Anyway You Want Me og Love Is All Around. Hljómsveitina skipa söngvar- inn Reg Presley, gítarleikarinn Ronald Bullis, bassaleikarinn Charles Britton og trommarinn Anthony Murray. ■ Ýmsir hafa eflaust velt því fyrir sér hvort verið sé að setja möl í stað malbiks á sumar götur borgarinnar. Á þetta við um Sogaveg, Stckkjahvcrfíð og víðar en að sögn Sigurðar Skarphéðinssonar verkfræðings hjá gatnamálastjóra, þá á þessi möl eftir að fcstast ofan í límefni sem sprautað var áður á malhikið. Mölin hefur verið völtuð ofan í, en umferð bíla þarf til að hún festist endanlcga. í borginni er verið að leggja svona lög á tæpa tvo kílómctra en Sigurður sagði að þetta kostaði einungis þriðjung eða helming á við malbikun. Á myndinni sjást Gunnar Birgisson og Guðmundur Gunnars- son, hjá Gunnari og Guðmundi, sem hafa umsjón með framkvæmdunum. MT-mynd: Róbert ■ Tæplega helmingur þeirra sem skrifa undir kaupsamninga og skuldabréf kynna sér ekki skilmála þeirra. Áfleiðing þessa verður sú að hagsmunir seljenda eru tryggðir í bak og fyrir en réttur kaupandans er lítill. Þetta kom fram í könnun Neytcndafélags Reykjavíkur og nágrennis á afborgunarkaupum og greiðslukortanotkun. Til- gangur könnunarinnar var sá að afla upplýsinga um umfang og eðli slíkra viðskipta. í Ijós kom í könnuninni að þróun viðskiptahátta er sú að afborgunarviðskipti eru algeng- ari en staðgreiðsla, sem talið er að feli í sér einhver afsláttar- kjör. I könnuninni kom skýrt fram að þeir, sem nýta sér afborganir í viðskiptum, notfæra sér einnig greiðslukort. Ef til vill sýnir það að versnandi efnahagur heimila dregur ekki úr kaupum á dýrum heimilisvörum, heldur lifi þeir, sem könnunin náði til, um efni fram og velti skuldunum á und- an sér. Langflestir þeirra sem velja afborgunarviðskipti gera það vegna þess að annars hefði verið ómögulegt að gera kaupin. Þeir sem hins vegar völdu stað- greiðsluviðskipti gerðu það vegna þess að það væri ódýrara, vegna þess að þeir vilja ekki skulda en tæpt 21% staðgreiddi því peningarnir voru handbærir. Doktors- vörn ■ Séra Bjarni Sigurðs- I son varði doktorsritgerð við lagadeild Kölnarhá- skóla í Vestur-Þýskalandi hinn 3. júlí sl. Ritgerð Bjarna fjallar um íslensk- an kirkjurétt. Hefur Bjarni unnið að henni undanfarin ár samfara kennslu sinni við guð- fræðideild Háskóla íslands. SéraBjarni Sigurðsson er fæddur að Hnausi í Flóa árið 1920, sonur hjónanna Vilhelmínu Eiríksdóttur og Sigurðar Þorgilssonar bónda, lengst af í Straumi sunnan Hafnarfjarðar. Bjarni lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1942, lagaprófi frá H.I 1949 og embættis- pófi í guðfræði árið 1954. Strax að loknu guðfræði- prófi vígðist hann sem prestur að Mosfelli í Mos- fellssveit og sat þar í 22 ár. Árið 1976 var hann skipaður lektor við guð- fræðideild H.í og er núna dósent við sömu deild. Séra Bjarni hefur alla tíð tekið drjúgan þátt í félagsmálum. Hann kvæntist árið 1950 Aðal- björgu Guðmundsdóttur frá Kirkjubóli í Norðfirði. Þau eignuðust fimm börn. Bílvelta á Þrengslavegi ■ Bílvelta varð á Þrengslavegi rétt eftir hádegi í gær. Toyota fólksbifreið fór út áf veginum rétt við Sandfell. Okumaður meiddist talsvert og var fluttur á slysadeild Borgarspítalans. ■ Tvenn hjón eru nú á leið til starfa í Afríku á vegum Sam- bands íslensku kristniboðsfé- laganna, eftir frí hér heima. Það eru þau Ingibjörg Ing- varsdóttir og Jónas Þórisson sem koma til með að starfa í Awasa næstu tvö árin, og þau sr. Kjartan Jónsson og Valdís Magnúsdóttir sem verða í Diana í Kenya næstu fímm árin. Þá starfa í Afríku fern hjón á vegum S.Í.K. við trúboð, skóla- starf og hjúkrunarstörf. Auk þeirra Valdísar og Kjartans Tvenn hjón til Kenya og Eþíópíu starfs í Kenya Hrönn Sigurðar- dóttir og Ragnar Gunnarsson og í Eþíópíu starfa hjónin Guð- laugur Gunnarsson og Valgerð- ur Gísladóttir. Trúboðarnir í Eþíópíu flytja í haust í stöðina í Konsó, en hafa starfað sl. ár stöð er nefnist Sollmó. 1 Konsó hafa verið íslendingar sl. 30 ár að meira eða minna leyti. Þar er skóla- starf í tengslum við stöðina og einnig sjúkraskýli. Valdís og Kjartan munu starfa í Diana, við strönd Ind- landshafsins, en þar búa aðal- lega múhameðstrúarmenn. Ragnar og Hrönn, sem einnig eru í Eþíópíu, eru í kristniboðs- stöð í Chepareria, þar sem Pók- ot-menn búa, en þeir stunda aðallega akuryrkju. Starfsemi S.Í.K. kostar árlega um 5 milljónir króna og er fénu aflað með frjálsum framlögum. Trúboðarnir sem nú eru á förum verða kvaddir á sérstakri samkomu nk. sunnudag kl. 20:30 í húsi KFUM og-K við Amtmannsstíg.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.