NT - 26.07.1985, Qupperneq 4
■ Víglundur Möller er
meölimur Stangaveiðifé-
lagsins númer 57. Það
þýðir að hann er með elstu
félögum félagsins. Víg-
lundur var við veiðar í
Elliðaánum í gærmorgun,
en heppnin var ekki með
honum. IST-mynd: Kóberl
Föstudagur 26. júlí 1985 4
Mikilllaxí
Meðalfellsvatni
Tuttugu laxar hafa veiðst í
Meðalfellsvatni, þar af einn
sem vó sextán pund. Allir
laxar sem ganga í vatnið eru
merktir. Alls hafa þrjú
hundruð laxar verið merktir
og sleppt í vatnið. Gísli
bóndi á Meðalfelli sagði í
samtali við Veiðihornið í gær
að síðastliðinn sunnudag
hefði hann merkt nfu punda
lax og sleppt honum í vatnið.
Klukkan tvö veiddist síðan
fiskurinn, um kílómetra frá
afrennsli Bugðu. Þá sagði
Gísli að urriðaveiði í vatninu
hefði verið betri en gengur
og gerist. „Fiskurinn er bæði
feitari og stærri, og vilja
menn þakka það hlýindum
og óhemju æti í vatninu,"
sagði Gísli.
Umsjjón:
Eggert Skúlason
SVFR:
Meðlimurnúmer57
veiðir í Elliðaánum
Sól og vestanátt afleitt veiðiveður
■ Meðlimur SVFR númer 57
var við veiðar í Elliðaánum í
gærmorgun. Hann gekk í félag-
ið árið 1946, og hefur síðan
farið í ána við öll tækifæri. Það
er Víglundur Möller ritstjóri
tímaritsins Veiðiinaðurinn sem
hér er á ferðinni. Víglundur,
sem var að veiðum ásamt Jör-
undi Guðmundssyni, sagði að
morguninn hcfði ekki vcriö
þeini félögum hagstæður. „Þeg-
ar við byrjuðum, þá var logn.
Síðan fór að gola af vestri. Sú
átt er alltaf alleit hér við ána,“
sagði Víglundur.
Eftirtekjan varð heldur rýr
hjá þeim félögum. Klukkan
hálfeitt hafði ekki kvikindi kom-
ið úr ánni. „Það er nóg af fiski.
Hann tekur bara ekki,“ eins og
Víglundur orðaði það.
„Það hefur margt breyst hér
við ána, frá því ég fyrst hóf
veiðar. Nú er búið að fjölga
stöngunum í fimm,“ sagði
hann. Samdóma álit þeirra fé-
laga var að fintm stangir væri of
mikið fyrir ána. Áður fyrr voru
þrjár stangir í ánni. Ástæður
fyrir þessari aukningu eru fyrst
og fremst að ásókn í ána hefur
aukist gífurlega síðustu ár, enda
mun verð á leyfum teljast skap-
legt miðað við það sem gerist í
öðrum ám.
Víglundur lýsti mikilli óá-
nægju með þróunina á verði á
veiðileyfum í landinu. „Verðið
er komið upp úr öllu valdi, og
menn hreinlega ráða ekki leng-
ur við þessar upphæðir. Meira
að segja útlendingarnir eru farn-
ir að hiksta.“
Laus veiðileyfi
Sala á síðsumarsleyfum í
laxveiði er nú í óða önn að
verða lokið SVFR hafði sam-
band við Veiðihornið í gær,
vegna fyrirspurnar um óseld
veiðileyfi.
Gljúfurá - Borgarfirði
3 stangir í ánni. Dagar á víð
og dreif í ágúst. Verð á bilinu
2800-6200 kr.
Miðá - Dölum 3 stangir í
ánni. Laus veiðileyfi í ágúst.
Verð á bilinu 2900-4900 kr.
Langá - Borgarfirði Neðsta
svæðið. Laus veiðileyfi frá
miðjum ágúst og fram til
miðs septembers. Verð 1900-
5300 kr.
Brynjudalsá - Hvalfirði
2 stangir í ánni. Stöng og
stöng á stangli laus eftir miðj-
an ágúst. Verð 3900 kr.
Leirvogsá - Uppselt
Grímsá 2-3 stangir lausar í
ágúst
Svartá Eitt holl laust um
miðjan ágúst. Verð 6400
krónur á stöngina.
Blanda Reitingur af stöngum
í ágúst. Þá er verðið 2500 kr.
í september er nóg af lausum
stöngum á 800 kr.
Stóra Laxá Á svæði 3 og 4
eru lausareitthverjarstangir.
Verð á þriðja svæði er 5000
kr. stöngin. Á fjórða svæði
er verðið 3-5000 kr. á tíma-
bilinu ágúst-september
Hvítá - Snæfoksstaðir Nóg
af veiðileyfum. Stöngin kost-
ar 2400 krónur.
Sogið Allt upppantað, nema
nokkrar stangir í landi
Ásgarðs. Verð 4400 kr.
Norðurá Reitingur af stöng-
um í ágúst. Verðið 3800 kr.
eftir 17. ágúst.
Áfengisvarnarnefnd á móti vínleyfum:
„Viðskiptin minnka ef við
missum vínveitingaleyf ið
■' „Ég er alveg fullviss um, að
viðskiptin minnka, ef við miss-
um vínveitingaleyfið. En ég er
bjartsýnn á, að við höldum því,
þar sem ekkert hefur komið
upp á hjá okkur. Við framfylgj-
um öllum lögum um veitinga-
rekstur."
Þetta sagði Egill Kristjánsson
veitingamaður í Við sjávarsíð-
una, þegar hann var spurður um
andstöðu áfengisvarnarnefndar
Reykjavíkur við endurnýjun
vínveitingaleyfis staðarins og
tveggja annarra, Sælkerans og
Hellisins.
Umsóknirnar um endurnýjun
leyfisins eru nú í höndum dóms-
málaráðuneytisins og verður
fjallað um þæránæstunni. Ólaf-
ur Walter Stefánsson skrifstofu-
stjóri þar sagði í samtali við NT,
að nýjar reglur um útgáfu vín-
veitingaleyfa, þar sem fullt tillit
á að taka til álits áfengisvarnar-
nefnda, giltu ekki fyrir staði,
sem sækja um endurnýjun,
“ segír Eglff
Knstjánsson
í Við sjávar-
síðuna
heldur einungis um ný leyfi.
Áfengisvarnarnefnd Reykja-
víkur hefur þegar gerfið grænt
ljós á endurnýjun leyfis Oðins-
véa á þeirri forsendu, að þar sé
rekið gistihús.
—
Danskir sjóliðar af Hvífabirninum:
Veltu bifreið
inn í húsagarð
- leituðu griða á þaki Norræna hússins
■ Sjö ölvaðir sjóliðar af
danska hcrskipinu Ilvíta-
birninum vor handteknir að-
faranótt flmmtudags, eftir að
hafa velt bíl á undan sér inn
í garð við Þjórsárgötu í
Reykjavík.
Bíllinn mun vera talsvert
skemmdur eftir aðför sjólið-
anna. Þegar afskipti lögreglu
voru yfirvofandi flúðu tveir
sjóliðanna, þangað sem
þeir töldu sér öruggastan
griðastað. Norræna húsið
varð fyrir valinu. Til að
tryggja sig enn frekar frá
afskiptum lögreglu klifruðu
þeir upp á húsið. Þar náði
lögregla til þeirra og voru
þeir færðir í fangageymslur
lögreglunnar í Hverfisgötu,
þar sem þeir máttu dúsa
fram undir kvöld í gærdag.
Danskir sjóliðar hafa áður
gerst ágengir við eigur ís-
lendinga, í ölæði, í landvist-
arleyfi. Skemmst er að minn-
ast sjóliðans sem eyðilagði
bát Einars Hákonarsonar
listmálara í fyrra.
■ Hvítabjöminn við bryggju og nokkrir skipverjar ganga frá
borði. Þessir munu vera saklausir af bðaleikjum því þegar
myndin var tekin sátu hinir seku í steininum. NT-mynd: Róbert
Reykjavík:
Skátarnir með
íþróttahátíð
■ Skátafélagið Árbúar heldur
Reykjavíkurmót Barnanna
næstkomandi sunnudag í
Hljómskálagarðinum í Reykja-
vík og þá fá krakkar sjö til tólf
ára að reyna með sér í tíu
keppnisgreinum: sippi, húlla,
snú-snú, kassabðaralli, skjóta
og skalla bolta í mark, sprett-
hlaupi, labba á grindverki og
halda bolta á lofti auk körfu-
hittni. Þá verða rokktónleikar í
garðinum og ýmis skemmti-
atriði sýnd. Mótið hefst klukkan
tvö en skráning í keppni byrjar
hálftíma áður.
Keppt verður í tveimur flokk-
um í öllum greinum, en allar
greinarnar eru einstaklings-
keppni nema kassabílarallið og
skallabolti þar sem tveir keppa
saman. 20-40 krakkar geta tekið
þátt í hverjum flokki; yngri
flokki 7-9 ára og eldri flokki
10-12 ára.
Mótsgestir geta tekið þátt í
fimmtar- og tugþrautum, farið í
róðrartúra, tekið þátt í krafta-
keppni, útieldun, frisbí og svo
mætti lengi telja.
Auk alls þessa verða svo
haldnir rokktónleikar í Hljóm-
skálagarðinum á sama tíma og
keppnin er. Hljómsveitirnar
The Voice, Twilight toy’s, No
Time, Fítus, Quadro og Aliter
Theatrum munu spila og Sverrir
Stormsker lætur í sér heyra.
Aðgangseyrir er enginn í
Hljómskálagarðinn þennan
dag.