NT - 26.07.1985, Qupperneq 5
Föstudagur 26. júlí 1985
Verðbréfamarkaður:
Ekki umfangsmikill
til að byrja með
„Það er orðið tímabært og
nauðsynlegt að betra skipulag
komist á verðbréfamarkaðinn
þannig að hann geti þróast örar
en hann hefur gert hingað til og
öðlast sem víðtækast traust
fjármagnseigenda," sagði Jó-
hannes Nordal bankastjóri
Seðlabankans m.a. á fundi
vegna stofnunar Verðbréfa-
þings íslands. Hann kvað nú
talið að skilyrði væru fyrir hendi
til þess að verðbréfaviðskipti
geti farið ört vaxandi á næstu
árum og brátt orðið mikilvægur
þáttur í fjármögnun atvinnu-
rekstrar í landinu.
Jafnframt því að vera vett-
vangur verðbréfaviðskipta er
Verðbréfaþinginu ætlað að sjá
um að nauðsynlegt eftirlit með
verðbréfamarkaðnum sé til
staðar í samvinnu við bankaeft-
irlit Seðlabankans til þess að
tryggja að settar reglur verði
haldnar.
Ein helsta breytingin með
tilkomu Viðskiptaþingsins verð-
ur sú að skráð bréf verða á
sama verði hjá öllum verðbréfa-
sölum. Ekki er þó reiknað með
að markaður Verðbréfaþings
verði umfangsmikill til að byrja
með, þar sem bréf þurfa að
uppfylla ákveðin skilyrði til að
teljast skráningarhæf, m.a. að
nafnverð heildarútboðs sé
ákveðin upphæð - rætt um 50
milij. króna lágmark - þau séu
í stöðluðu formi og í nægilega
mörgum einingum. Eins og nú
er munu það aðeins vera spari-
skírteini ríkissjóðs, SÍS-bréfin
og Iðnaðarbankabréfin sem
teljast skráningarhæf.
Síðar er búist við að einhvers-
konar samband komist á á milli
þeirra aðila sem þátt taka í
Verðbréfaþingi um að bjóða öll
sín bréf á sameiginlegum mark-
aði - B-markaði.
■ Hljómsveitin Með nöktum. Frá vinstri Ágúst Karlsson, Halldór Lárusson og Magnús Guðmundsson.
Útitónleikará Lækjartorgi
■ Hljómplötu útgáfufyrir-
tækið Mjöt stendur fyrir úti-
tónleikum á Lækjartorgi í dag
klukkan 16.30.
Landsvirkjun:
Stjórnin sam-
þykkti Kröflu-
kaupin í gær
■ Stjórn Landsvirkjunar
samþykkti á fundi sínum í gær
að kaupa Kröfluvirkjun, sam-
kvæmt samningsdrögum, sem
allir eigendur Landsvirkjunar
hafa samþykkt.
Kaupsamningurinn verður
undirritaður í dag, og að feng-
inni staðfestingu Alþingis, tek-
ur hann gildi 1. janúar 1986.
Þá mun Landsvirkjun yfirtaka
allar eignir og rekstur Kröflu-
virkjunar.
Fram koma hljómsveitirnar
Fásinna og Með nöktum.
Munu þær kynna efni af nýút-
komnum hljómplötum sínum.
Það er Mjöt sem gefur út
báðar þessar plötur.
Bæði kaupendur og seljendur
bréfa geti þá fengið upplýsingar
um verðbréfamarkaðinn allan á
einum og sama stað í stað þess
að hver verðbréfasala sé ein um
að selja sín bréf, ellegar að
sömu bréfin séu á mismunandi
verði frá einni verðbréfasölu til
annarrar.
Seðlabankinn hefur tilnefnt
tvo menn í fyrstu stjórn Verð-
bréfaþingsins og jafnframt boð-
ið Landsbankanum, Fjárfest-
ingarfélaginu hf. og Kaupþingi
hf. að tilnefna hver einn mann.
Stjórnin á að undirbúa hið eigin-
lega starf þingsins. Stefnt er að
því að regluleg skráning verð-
bréfa hefjist nú í haust.
Aðild annarra verðbréfamiðl-
ara að þinginu verður að hljóta
samþykki stjórnarinnar, sem
m.a. mun setja skilyrði um næga
menntun og reynslu, verð-
tryggða bankaábyrgð og undir-
ritun drengskaparyfirlýsingar.
Stjórnin getur veitt einstökum
þingaðilum áminningu eða svipt
þá aðild.
Uppskeru-
hátíð
Vinnuskóla
Reykjavíkur
■ í dag er lokahátíö
Vinnuskóla Reykjavíkur. í
viðurkenningarskyni fyrir
vel unnin störf býður borgin
unglingunum, um það bil
600 manns, í heljarmikið
ferðalag.
Farið verður í Fjórsár-
dalinn, þar sem unglingarn-
ir verða við ýmsa leiki fram
eftir degi. Farið verður í
sund, Búrfellsvirkjun verð-
ur skoðuð, svo og söguald-
arbærinn. Áður en lagt
verður af stað heim verður
efnt til allsherjar'grillveislu.
Áætluð heimkoma er um
klukkan 5 í dag.
Með sól í hjarta:
Skátarog fjölskyld
ur við Úlfljótsvatn
■ „Með sól í hjarta" er
yfirskrift skáta- og fjöl-
skyldumótsins sem haldið
verður við IJlfljótsvatn nú
um helgina. Tjaldstæði opna
í dag, en setning mótsins
verður á morgun klukkan
14. Dagskrá mótsins er snið-
in fyrir fjölskyldur jafnt sem
skáta. Boðið verður upp á
hressileg skátaverkefni svo
sem „hike“-ferðir og nætur-
leiki, jafnframt varðelda,
bátsferðir, fjölskylduleiki og
stuttar gönguferðir.
Úlfljótsvatn er í Grafn-
ingshreppi, og er öll aðstaða
mjög ákjósanleg. Við Borg-
arvík og Fossá eru tjaldstæði
án nútíma þæginda, en nátt-
úrufegurð þess meiri. Á túni
við DSÚ er einnig hægt að
tjalda, og eru þar fyrir hendi
öll nútímaþægindi. Fólk get-
ur þarna valið milli villi-
mennskunnar og siðmenn-
ingarinnar. Mótsgjald ber
ekki að greiða í peningum,
en þar sem staðurinn er í
uppvexti, telja forráðamenn
að æskilegt sé að mótsgestir
aðstoði við uppbyggingu ein-
hverja stund.
Frá BSÍ eru ferðir klukkan
20 í dag og aukaferð verður
á laugardag klukkan 13.
Lögreglan:
Fundu byssu,
skiluðu byssu
og tóku byssu
- ætlaað halda henni núna
■ Byssa sú sem notuð var
til þess að skjóta með gat á
glugga starfsmannabústaðs
bandaríska sendiráðsins um
síðustu helgi, var í vörslu
lögreglu hluta þess tíma sem
leit stóð yfir að skotmannin-
um. Kópavogslögreglan sem
er til húsa við Auðbrekku 6 í
Kópavogi hafði lagt hald á
byssuna nóttina sem skotið
var á gluggann. Rannsóknar-
lögreglan sem er næsti ná-
granni Kópavogslögreglunn-
ar, þeir eru í Auðbrekku 10,
hafði ekki hugmynd um að
byssan var í vörslu nágranna
þeirra, og urðu því að fara
aðrar leiðir í leit sinni að
skotmanninum.
Málsatvik eru þau að lög-
reglan í Kópavogi hafði af-
skipti af manni sem var undir
áhrifum áfengis, þar sem
hann var í kyrrstæðum bíl,
sömu nótt og skotárásin var
framkvæmd. Maðurinn var
með haglabyssu og riffil í
bílnum, og lagði Kópavogs-
lögreglan hald á byssurnar.
Maðurinn endurheimti síðan
byssurnar úr vörslu lögregl-
unnar. Á meðan leitaði
Rannsóknarlögreglan log-
andi ljósi að manninum. Þór-
ir Oddsson aðstoðarrann-
sóknarlögreglustjóri var
inntur eftir því hvort hér
væri um að ræða skort á
samstarfi milli deilda lögregl-
unnar. „Ég veit ekki hvenær
þeim barst fyrst vitneskja um
þetta mál. Við fengum síð-
astir allra að vita um þessi
afskipti þeirra. Hinsvegar
vorum við á slóðinni eftir
öðrum leiðum. Þó vitneskjan
bærist seint um þetta, er ekki
hægt að neita því að það
flýtti fyrir lausn málsins,“
sagði Þórir.
Maðurinn játaði verknað-
inn, og var síðan sleppt laus-
um. Málið verður fljótlega
sent til ríkissaksóknara til
ákvörðunar.
r
Vinnuskóli Hafnarfjarðar:
Jón Páll kepp-
ir í reiptogi
■ Árleg lokahátíð vinnuskóla
Hafnarfjarðar verður í dag og
hefst með skrúðgöngu frá Lækj-
arskóla niður að Thorsplani.
Þar verður haldið kassabíla-
rally og mun kraftajötuninn Jón
Páll Sigmarsson ræsa keppend-
ur. Að lokinni verðlaunaaf-
hendingu keppir Jón Páll í reip-
togi við lið vinnuskólans. Einnig
verður keppt í hjólbörurally og
pokahlaupi.
Kynnir á hátíðinni er Rósa
Þórisdóttir leikari.