NT - 26.07.1985, Page 7

NT - 26.07.1985, Page 7
Föstudagur 26. júlí 1985 7 ■ Allir sem einn hvika þeir ekki frá áætlanabúskap né öðru. en u.þ.b. 45% slíks varnings sé úthlutað á meðal forréttinda- stéttarinnar. Og þar sem sölu- verð nýlegrar bifreiðar cr meira en tvöfalt meira en frá verksmiðjunum þá þjónar þetta tvöfalda kerfi flokks- gæðingum „no'menklatura" kerfisins einkar vel. Ólíktþví semgerist hjáþeim sern hafa fengið störf sín eftir „nomenklatura" kerfinu, þá byggja háttsettir foringjar í hernum og KGB ekki afkornu sína á svartamarkaðsbraski í sama mæli, því þessir aðilar fá sína starfslegu fyllingu í formi 10% hærra hlutfalls þjóðar- framleiðslu til starfsemi sinnar en þekkist nokkurs staðar. Sá sérfræðingunum yfirsást. Pví er það svo að um miðbik fimm-ára áætlananna kemur skipun um að hægja á fjárfest- ingunum. Austur-Evrópa reyndi að komast hjá því að minnka fjárfestingar í áætlun- um fyrir árin 1976-80 með því að taka mikil erlend lán. Þessi aukning á peningamagni í hag- kerfurn með fulla atvinnu varð einungis til að gera ástandið enn alvarlegra. Frá því um miðjan sjöunda áratuginn og fram til 1984 lengdist biðtími Austur-Pjóð- verja eftir að fá bifreið úr 6-7 árum í 11-12 ár. Á sama tíma jókst biðtími Pólverja eftir ódýru fjölskylduhúsnæði úr 8- 12 ár í 16-20 ár, sem í raun merkti að þau börn, sem gerðu Pólverjanum fært að komast á biðlistann voru farin að heim- an. Nomenklaturakerfið stendur í vegi fyrir framförum Hví flýtir þetta menntaða fólk í Sovétríkjunum og Aust- ur-Evrópu sér ekki að taka upp frjálsari markaðskerfi til þess að forðast þetta óstand? Meginskýringin liggur í hinu svonefnda „nomenklatura" kerfi. Petta kerfi felst í því að öllum nreiri háttar stöðum, s.s. stöðum verksmiðjustjóra, er úthlutað af flokknum. Fyrir- komulag þetta hefur skapað kerfi þar sem í raun 2% íbú- anna úthlutar sjálfum sér öll- um betri stöðum í ríkiskerfinu með tilheyrandi mútum. Pólskt dagblað hefur til dæmis greint frá því að einung- is helmingur varanlegs neyslu- varnings, s.s. heimilistæki og bílar, fari á almennan markað í borginni Krakow í Póllandi, ■ Ofgnótt af stáli en hvert kfló nýtt fjórum sinnum verr en í Bretlandi. dagur gæti komið að ráða- mönnum hers og KGB ásamt meðlimum valdahóps Gorbac- hevs yrði ljóst að andstaða flokksgæðinga gegn frjálsum nrörkuðum minnki þjóðar- framleiðsluna um a.m.ít. tvo þriðju. Hins vegar er ekki mikils að vænta af efnahagslegum um- bótum í anda þeirra aðgerða er hinn látni leiðtogi. Yuri Andropov, greip til og fólust einkum í að fangelsa nokkra svartamarkaðsbraskara og samt halda áætlunargerðar- ruglinu áfram. Einnig er varlegt að binda of miklar vonir við endurbætur í þeim dúr sem Ungverjaland og Kína hafa framkvænrt og felast í takmörkuðu markaðs- frelsi. Ungverjaland hefurgert það gott miðað við önnur kommúnistaríki, en á vestræn- an mælikvarða er frammistað- an ekki merkileg. Samvinna Kínverja og vestrænna fyrir- tækja mun vart skila því sem til var ætlast því þau stóru verkefni, sem samvinnan hefur tekist um eru ólíkleg til að gefa Kína nægilegar gjaldeyristekj- ur til að standa skil á hinum erlendu lánum, þannig að sama staðan gæti komið upp og í Póllandi 1982, þegar vest- rænir bankar hættu að lána Pólverjum. Forréttindakerfið gengur fyrir Sovétríkin eru hins vegar í allt öðrum gæðaflokki. Pau hafa mun betur menntað vinnuafl en Vestur-Þýskaland hafði þegar hagkerfi þess var nær lagt í rúst af svartamark- aðsstarfsemi árið 1947. Ef Gorbachev tæki sig til og af- næmi nær alla stjórnun á efna- hagslífinu, eins og Ludwig Erhard, þáverandi fjármála- ráðherra Vestur-Þýskalands gerði 1949, þá gæti átt sér stað í Sovétríkjunum viðlíka efna- hagslegt kraftaverk og varð í Vestur-Þýskalandi eftir 1948. Slíkt stökk í átt til aukins frelsis mundi mjög líklega hafa í för með sér svipaða stökk- breytingu til hins betra í sam- skiptum Austurs og Vesturs. Ef Gorbachev yrði þetta Ijóst. þá gæti það orðið merkasti viðburður samtímans. Hitt er líka ljóst að flokksgæðinga- kerfið, „nomenklatura", mun gera allt til þess að tryggja að Gorbachev grípi ekki til slíkra aðgerða, því það yrðu endalok þess forréttindakerfis. Málsvari frjálslyndís, samvinnu og télagshyggju Útgefandi: Nútiminn h.f. Ritstj.: Helgi Pétursson. Framkvstj.: Guðmundur Karlsson Markaðsstj.: Haukur Haraldsson Auglýsingastj.: Steingrímur Gíslason Innblaðsstj.: Oddur Ólafsson Tæknistj.: Gunnar Trausti Guðbjörnsson Skrifstofur: Siðumúli 15, Reykjavik. Simi: 686300. Auglýsingasími: 18300 Kvöldsimar: Áskrift og dreifing 686300, ritstjórn 686392 og 687695, íþróttir 686495, tæknideild 686538. Setning og umbrot: Tæknideild NT. Prentun: Btaðaprent h.f. Kvöldsímar: 686387 og 686306 Verð í lausasölu 35 kr. og 40 kr. um helgar. Askrift 360 kr. Aukinn sparn- aður landsmanna ■ Skuldasöfnun landsmanna erlendis er tví- mælalaust eitt mesta vandamál, sem hér er við að glíma í efnahagslífi. Erlendar skuldir nema nú meira en sextíu af hundraði þjóðarframleiðslu, hvernig sem menn hafa reynt að finna nýjar leiðir til þess að reikna þær út, og framhjá því verður ekki litið. Frétt NT í gær af auknum sparnaði lands- manna er því tilefni til bjartsýni. Heildarinnlán í banka og sparisjóði hafa aukist á fyrri helmingi ársins um rúm tuttugu og átta prósent og svo virðist, sem landsmenn leggi nú um einn milljarð króna inn á bankareikninga á mánuði. Ekki þarf að fjölyrða um jákvæð áhrif þessarar þróunar ef framhald verður á. Innlendur lána- markaður hefur lengi verið afar pasturslítill og því hefur fjármagn til framkvæmda verið sótt á erlenda markaði þar sem hagnaður af þeirri lánastarfsemi hefur runnið í vasa erlendra spari- fjáreigenda. Og þetta hefur verið að vonum. Menn hafa oft brennt sig á verðbólgubálinu hér á landi og víst er, að enn rýkur úr þeim bálkesti, þótt gerð hafi verið tilraun til þess að slökkva í honum. Eað er því ljóst, að fólk mun fylgjast grannt með því hvort verðbólga muni fara af stað hér að nýju í fyrri farveg með suður-amerískum stfl. En margt bendir til þess, að fólk haldi skynsamlegar á peningamálum en fyrr og mætti margur efnahagsráðgjafinn læra á því. Það læra börnin sem fyrir þeim er haft og hið opinbera og mörg fyrirtæki í einkaeign hér á landi hafa farið offari í fjárfestingum og bruðli. Innlendir og erlendir peningamenn Þróunin gæti orðið sú að innlendir og erlendir peninga- menn tækju heilu árnar upp á sína arma, og deildu síðan út leyfum til vina og vanda- manna, eða myndu sjálfir fara út í sölu á veiðileyfum. Hver svo sem þróunin verður, er ljóst að verð veiðileyfa lækkar ekki á næstu árum. Kraftaverk þarf tii. Þjóðnýtum árnar Lang eðlilegast væri að svo yrði búið um hnútana að sala á veiðileyfum væri háð vissum skilyrðum, og einhverskonar eftirlit yrði liaft með verði á veiðileyfum, og einnig yrði það tryggt að sem flestir kæmust að. En eins og markaðurinn hefur þróast síðastliðin tuttugu ár er viðbúið að enn meiri peningar verði í spilinu, og spillingin á eftir að aukast. Eina raunhæfa ráðið er að þjóðnýta hverja einustu sprænu sem lax hefur nokkurn tíma sést í. Verðákvarðanirog sala veiðileyfa þyrfti að vera í höndum ríkisvaldsins og væri þá hægt að fylgjast með hverjir eyddu hverju í kaup á veiði- leyfum. Eggert Skúlason Iburður landsmanna í íbúðarhúsnæði, fatnaði og bifreiðum er á heimsmetastigi og krafan um fyrsta flokks þjónustu og aðbúnað er alltaf á lofti. Ríkisstjórnin hefur reynt að draga úr útgjöldum, en ekki verður séð, að það hafi tekist svo nokkru nemi. í mörgum tilfellum er það um innbyggða tregðu að ræða, en einnig er þar við að fást almenning, sem ekki slakar á kröfum í heilbrigðismálum og opinberri þjónustu á hverju sviði, jafnvel eins og einhver borgi reikninginn fyrir það annar en almenningur sjálfur. En í frétt NT í gær er haft eftir Sigurði Þórðarsyni, skrifstofustjóra í fjármálaráðuneyt- inu, að fólk sé farið að sjá kostina við það að leggja fjármuni fyrir í stað þess að kaupa fyrir þá hús - enda skilst manni að það sé mikil lægð í þeim málum um þessar mundir - segir Sigurður í NT í gær. Þarna er skrifstofustjóri fjármála- ráðuneytisins að lýsa hugarfarsbreytingu hjá almenningi, samfara ýmsum breytingum í efna- hagsmálum, sem fólk virðist treysta. Verðbréfa- markaður er að styrkjast, en þyngst mun það vega, ef almenningur sjálfur gerir sér grein fyrir því, að hann hefur eytt um efni fram og ekki rekið af höndum sér stjórnmála- og embættis- menn, sem hafa eytt um efni fram á þeirra kostnað.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.