NT - 26.07.1985, Side 9
QD
Föstudagur 26. júlí 1985 9
ÖRBYLGJUTALSTÖÐVAR FYRIR BIFREIÐAR
Sendiorka 25W
Rásir 16.
Ðandbreidd 12MH2
Tölvustýrð
Engir kristallar
AFGREIÐSLA STRAX
LEIGUBÍLA - VÖRUBÍLA - FYRIRTÆKI
Sónar hf. Baldursgata 14, Keflavík. Sími 1775.
maður markað sín spor. Af popp-
tónlist að vera er þetta vel unnin og
góð tónlist. Green og Scritti Politti
falla í þann flokk hljómsveita sem
eru hvorki átakanlega léttar eða
hörmulega þungar, heldur fara
milliveginn í tónsköpun sinni, eru
semsagt sæmilega áheyrilegar
þroskuðu fólki, en höfða jafnframt
til vinsældalistanna. Pví miður höf-
um vér íslendingar átt sorglega fáar
hljómsveitir af þessu tagi, mér dett-
ur helst í hug að nefna Oxsmá af
nýlegum hljómsveitum (án þess að
þeirra tónlist sé neitt skyld Scritti
Politti).
En hvað með það, tónlist Scritti
Politti er mikið til framin á hljóð-
gervla, einnig kemur fönkí bassi
töluvert við sögu og svo er rödd
Greens sem liggur hátt og líkist
nokkuð Bo^ George, er nærri því
stelpuleg. A stundum minna flókin
taktskipti og hljóðfæranotkun á
hljómsveitina Japan, tónlist Scritti
Politti er mjög „percussive". Ég tel
að þessi tónlist geti haft margskonar
notagildi og platan er mjög eiguleg,
þótt ekki sé nema vegna þcss að það
tekur töluverðan tíma að botna vel
í henni, en þolinmæðin borgar sig
vel. Takturinn cr yfirleitt afslappað-
ur.
Ég á varla vön á því að Scritti
Politti nái miklum vinsældum hér á
landi. Það borgar sig samt að athuga
málið, hljómsveitin á vinsældirnar
skilið fremur en margar aðrar sem
nú gala hæst.
ÁDJ
(7 af 10)
Sálarsjónvarp
Psychic TV - Those Who Do Not
■ Það sem Duran Duran gera
ónreðvitað gera Psychic TV markvisst
og meðvitað. Það er helsta niðurstað-
an eftir að hafa hlustað á tvöfalt albúm
Psychic TV, Tliose Who Do Not, sem
tckin var upp á íslandi haustið 1983,
og Grammið gefur út.
Á umslaginu standa m.a. þessi orð:
„Not-Doing in its true formlessness is
a path that mirrors every stcp of
attainment: The Reflection may be
cruel or beautiful but that is only.“
Lykilorðið hér er „formlessness".
Psychic TV leggja aðaláherslu á að
leysa hömlur í sálarlífi manna og hér
birtist þessi viðleitni í að nota sem
allra mesta andlega orku, cn sem
allra minnsta líkamlega orku, að
sögn. „Spontaneity" er annað lykil-
hugtak.
Þeir sem urðu vitni að tónleikum
hljómsveitarinnar í Hamrahlíð hafa
væntanlega tekið cftir þessari form-
leysu og spontaníteti, þau tvö orð lýsa
mjög vel þvi sem þar gerðist. Tónlist-
in er meira og minna hrcinn
óskapnaður, sem byggist annars veg-
ar á mikilli endurtekningu og hins
vegar á hrærigraut ýmiss konar
hljóða. Yfir öllu tónar síðan æðsti-
presturinn, Genesis P. Orridge.
Því er ekki að leyna að krafturinn
er mikill. Út úr öllunr óskapnaðinum
skín hrár lífskraftur.
Líklega er nauðsynlegt að vera
nokkuð kunnugur þeim hugmyndum
sem hljómsveitin byggir á til að geta
notið tónlistarinnar til fulls.Psycic TV
byggði mikið á alls kyns sjokkáhrifum
á þessum tíma, notaði kynlíf og
ofbclti til að sjokkera fólk til vitundar
um stöðu sína. Eins og Hilmar Örn
Hilmarsson, aðalskipuleggjandi tón-
leikanna og núverandi meðiimur
Psychic TV sagði í viðtali nýlega geta
þess kyns sjokkeífektar haft öfug
áhrif, hrakið fólk frá frcmur cn að
valda breytingu.
Víst er að á þessari plötu hljómar
Psychic TV cins og tíijómsveit sem er
komin á enda ákveðinnar þróunar.
Tónlistin er oröin upplcyst í slíka
formleysu að hún cr nánast hávaði á
köflum. En, cins og áður sagði, þá
skín krafturinn í gegn. Psychic TV
hefur nú breytt nokkuð um stíl og
leggur áherslu á lúmskarj aðferðir til
að breyta vitund fólks. Þessi plata er
þá fyrst og fremst minnisvarði um
ákveðið tímabil í sögu Psychic TV og
skemmtilcga tónlistaruppákomu í
Menntaskólanum við Hamrahlíð.
ÁDJ
(7,5 af 10)
Ekki
svo grænt
Scritti Politti
- Cupid & Psyche 85
■ Scritti Politti er ensk hljómsveit,
sem söngvarinn og lagasmiðurinn
Green Wakefild stofnaði 1977 sem
laust samsetta spunahljómsveit.
Aðrir meðlimir virðast ekki vera
fastir, hafa a.m.k. ekki verið þeir
sömu frá upphafi, en David
Gamson, Fred Maher og B.J. Nel-
son virðast vera helstu aðstoðar-
menn Greens á nýju plötunni, sem
nefnist Cupid & Psyche 85. Þessi
plata er gefin út á Virgin-merkinu.
en áður var hljómsveitin hjá óháða
fyrirtækinu Rough Trade.
Mikil breyting varð á tónlist
Greens og þar með Scritti Politti um
1980. Um 1983/4 höfðu mál þróast
Vönduð glanstónlist
það langt, að Green var orðinn
poppstjarna og myndir teknar að
birtast af honum í ýmsum popprit-
um af léttara taginu, s.s. Smash Hits
og No. 1. Lagið sem hann er einna
þekktastur fyrir heitir Wood Beez,
og það er tekið með á þessa plötu.
Ég verð að játa það að ég hef
töluvert gaman af þessari plötu.
Þótt Green teljist í hópi með þeim
Nick Kershaw og Howard Jones
sem átrúnaðargoð táningsstelpna, þá
hafa þau ár sem hann varði sem
framsækinn og skapandi tónlistar-
Bryan Ferry - Boys and Girls
■ Bryan Ferry varð fyrst þekktur
sem söngvari hljómsveitarinnar Roxy
Music, sem fram kom um 1972. Sú
hljómsveit vakti mikla athygli á sínum
tíma og þótti koma fram með nýja
stefnu bæði í tónlist og útliti. Þeir
lögðu meiri áherslu á að stíll og
glæsileiki væri yfir tónlist og fatnaði
en aðrar rokksveitir á þeim tíma.
Bryan Ferry varð frægur í tískuheim-
inum fyrir þennan áhuga á tískunni,
og hefur síðan verið ímynd hins vel
klædda enska séntilmanns.
Þegar kom fram um 1975 var
heldur farið að draga úr gengi Roxy
Music, m.a. vegna þess að annar
höfuðpaur hljómsveitarinnar, Eno,
hafði þá yfirgefið hljómsveitina.
Hljómsveitin hefur þó öðru hvoru
vakið athygli fyrir vandaða tónlist,
síðast með plötunni Avalon, sem út
kom 1982. Nú virðist Roxy Music
vera hætt og Bryan Ferry hefur alfarið
snúið sér að sóíóferlinum.
Þessi nýja plata hans, Boys and
Girls, fer svipaðar slóðir og það sem
áður hefur komið frá honum. Um- ,
fjöllunarefnið er ást í ýmsum
myndum, en um hana er fjallað á
„elegant“ hátt, það er stíll yfir plöt-
unni. Það er þó ekkert ódýrt eða
klisjukennt við umfjöllun Bryans
Ferry, heldur má segja að það sé ekta
glans yfir þessu hjá honum.
Platan minnir stundum á plötu
David Sylvian, Brilliant Trees, hvað
varðar áferð tónlistarinnar. Þetta er
róleg og hægfara tónlist með undir-
öldu. Ferry semur öll lög og texta
sjálfur. Tónlistin einkennist af hefð-
bundnum hljóðfærum fremur en
hljóðgervlum, og líður áfram í hægum
takti, örlílið fönkkenndum. Fyrri
hliðin er ekki eins pottþétt og sú
seinni, þó eru þar tvö mjög góð lög,
Sensation og Windswept. Seinni hlið-
in er hins vegar mjög áheyrileg frá
upphafi til enda, og byrjar á rokkað-
asta lagi plötunnar, The Chosen One.
Það lag minnir nokkuð á Roxy Music,
en annars er fátt sem minnir á þá
hljómsveit annað en röddin.
Sér til aðstoðar hefur Ferry fjölda
tónlistarmanna, suma þekkta, aðra
óþekkta. Nefna má David Gilmour,
Mark Knopfler, Nile Rodgers og
David Sanborn. Þessi plata lyktar af
peningum, hún er tekin upp í mörgum
stúdíóum á löngum tíma og er tilvalin
tónlist sem bakgrunnur fyrir líf frem-
ur efnaðs fólks. Ég segi ekki að hinir.
þessir óheppnu, geti ekki haft gaman
af þessu, en mér finnst þó að tónlistin
njóti sín best í dýrum græjum í stóru
einbýlishúsi. Ef þið kaupið plötuna,
prófið hana þá endilega í svoleiðis
umhverfi.
ÁDJ
(7 af 10)