NT - 26.07.1985, Side 21
cs
Föstudagur 26. júlí 1985 21
Útlönd
Tutu biskup:
„Reagan góður maður
en stefna hans slæm“
Passar stefna Reagans í Nicaragua við S-Afríku?
New York-Reuter
■ Suður-afríski biskupinn
Desmond Tutu, sem fékk frið-
arverðlaun Nóbels í fyrra, sagði
í viðtali við bandaríska sjón-
varpsstöð í gær að hann teldi
Reagan góðan mann en
stefnu hans slæma í málefnum
Suður-Afríku, þar sem baráttu-
menn fyrir mannréttindum eru
níu handteknir hundruðum
saman í skjóli neyðariaga.
Bandarísk stjórnvöld hafa
lýst því yfir að þau muni ekki
fylgja fordæmi Frakka sem hafa
bannað allar nýjar fjárfestingar
í Suður-Afríku vegna mannrétt-
indabrota hvítu minnihluta-
stjórnarinnar að undanförnu og
kynþáttastefnu hennar. Banda-
ríkjamenn halda því fram að
Sri Lanka:
Lestarrán á
óeirðaafmæli
Colombo-Reuter
■ Skæruiiðar Tamila á Sri
Lanka héldu í gær upp á tveggja
ára afmæli kynþáttaóeirða á Sri
Lanka með því að ræna lestar-
stjóra og lestarverði í borginni
Jaffna sem er norðarlega á Sri
Lanka.
Hópur tíu skæruliða réðst inn
í járnbrautarstöðina, tóku lykla
úr eimvagni járnbrautarlestar-
innar og höfðu lestarstjóra
hennar og vörð á brott með sér
í bíl. Þeir sögðu að lestinni
mætti ekki aka næstu tvo daga
vegna allsherjarverkfalls Ta-
mila í tilefni þess að nú eru tvö
ár liðin frá því að skæruliðar
hófu baráttuna fyrir sjálfstæði
Tamila og í minningu leiðtoga
Tamila sem voru drepnir í fang-
elsi í óeirðum í júlí árið 1983
Óeirðirnar hófust með þ ví að
tamilskir skæruliðar réðust á
herflokk úr launsátri. Um fjög-
ur hundruð manns létu lífið í
átökunum þá og 100.000 manns
misstu heimili sín.
Stjórnvöld á Sri Lanka hafa að
undanförnu reynt að komast að
samkomulagi við skæruliða og
þann 12. ágúst næstkomandi
hefst nýr sáttafundur leiðtoga
skæruliða og fulltrúa stjórnar-
innar.
slíkar aðgerðir bitni fyrst og
fremst á svörtum íbúum landsins
og stuðli ekki að því að stjórn
Suður-Afríku breyti stefnu
sinni.
En Tutu biskup segir þetta
alrangt hjá Bandaríkjastjórn.
Hann segist ekki vita um nein
samtök blökkumanna í Suður-
Afríku sem væru á móti efna-
hagslegum refsiaðgerðum gegn
ríkinu.
Tutu benti á að Bandaríkja-
menn fylgdu ákveðinni stefnu í
málefnum Nicaragua. „Hvers
vegna notið þið ekki þessa
stefnu í Suður-Afríku?“ spurði
hann. Stjórn Reagans beitti
efnahagslegum refsiaðgerðum
gegn Póllandi og gegn Nicara-
gua og þá væri ekki deilt um það
hvort aðgerðirnar væru upp-
byggilegar eða ekki.
Hann spurði: „Hvað hefði
Reagan gert ef fjöldanum í
þessu landi væri snúið við? Ef
svartir væru í minnihluta og
hvítir væru drepnir. Myndu þeir
þá taka þátt í samningaum-
leitunum eða væri þá rætt um
möguleika á innrás?"
Tutu sagði að blökkumenn
vildu Suður-Afríku þar sem þeir
gætu gengið hönd í hönd með
hvítum bræðrum sínum og
systrum.
Lögreglan í Suður-Afríku
hefður nú handtekið um átta
hundruð mannssíðan neyðarlög
gengu í gildi um seinustu helgi
og enn er ekkert lát á fréttum um
nýjar handtökur. í gær höfðu að
minnsta kosti sextán blökku-
menn látist í átökum frá því að
neyðarlögin voru sett.
Gandhi:
Iðnríkjum sama
um þróunarríkin
Nýja Delhi-Rcuter
■ Rajiv Gandhi forsætis-
ráðherra Indverja ásakaði í
gær rík iðnríki um að þeim
stæði á sama um þróunarríki
í þriðja heiminum.
Gandhi sagði á fundi ráð-
herra frá þrjátíu þróunarríkj-
um í Nýju Delhi að í stað
þess að sýna aukinn skilning
á vandamálum þróunarríkj-
anna hefðu iðnríkin tekið
upp ósveigjanlegri stefnu
gagnvart þeim að undan-
förnu og takmörkuðu inn-
■ Tutu biskup við jarð-
arför fórnarlamha kyn-
þáttastríðsins í Suður-Afr-
íku.
flutning frá þeim
Gandhi sagði að verndar-
stefna iðnríkjanna ógnaði
viðskiptakerfi heimsins.
Hann benti einnig á að fjár-
streymi frá iðnríkjum til þró-
unarríkja hefði minnkað að
undanförnu. Hann sagði að
ríkin þrjátíu, sem tækju þátt
í þessum tveggja daga fundi
þróunarríkja í Delhi, yrðu
að efla baráttuna fyrir heims-
viðskiptakerfi sem styddi öra
viðskiptaþróun ríkja í þriðja
heiminum.
Heimsfund
ur íhalds-
flokka
Washington-Reuter
■ Meira en þrátíu scndinefnd-
ir frá íhaldsflokkum víðsvegar
úr heiminum hittust á fundi
Alþjóðasamtaka lýðræðissinna
í Washington í gær.
íhaldsmennirnir ræða rneðal
annars leiðir til að berjast gegn
hryðjuverkunt, eiturlyfjavand-
anum og atvinnuleysi ung-
menna. Margir þeirra íhalds-
leiðtoga, sem sækja fundinn
þekkja þessi vandamál vel enda
mun Margrét Thatcher forsætis-
ráðherra Breta vera meðal ráð-
stefnugesta.
Alþjóðasamtök lýðræðis-
sinna voru stofnuð árið 1983
með það að markmiði að efla
frjálst markaðskerfi og fjöl-
flokka lýðræði í heiminum.
Perú:
sprengjur
í Lima
Lima-Reuter
■ Sex bílasprengjur
sprungu fyrir framan skrif-
stofur innanríkisráðuneyt-
is Perú í Lima í gær aðeins
fjórum dögum áður en
sósíaldemókratinn Alan
Garcia tekur formlega við
embætti forseta.
Þetta er í annað skiptið
á stuttum tíma að bíla-
sprengjur springa í Lima.
Gífurlegar öryggisráðstaf-
anir eru nú í borginni
vegna forsetaskiptanna og
hafa að minnsta kosti
50.000 lögreglumenn og
hermenn verið fengnir til
löggæslu.
Ekki er vitað til þess að
neirtn hafi slasast alvarlega
í sprengingunum sem
mölvuðu rúður í húsum á
stóru svæði og þeyttu bíl-
um allt að sextíu metrum.
c 1 Uajtclq 1 pláhmoi 1
Austurrísk eitur
vín í Frakklandi
■ Austurríska vínid
er ekki bara hægt að
drekka, það má líka
nota á bílinn. Sértu í
vafa um gæði vínsins
prófaðu þá að láta það
frjósa, ef það frýs ekki
skaltu ekki drekka
það.
Marseilles-Vín-W'iesbaden-Reuler
■ Lögreglan í Marseilles gerði
í gær upptækar 90 þúsund flösk-
ur af austurrísku léttvíni eftir að
athuganir höfðu leitt í Ijós að
vínið innihélt efni sem notað er
í frostlög. Á milli 0,05 og 1,8
grömm af efninu fundust í
flöskunum, en frönsk lög banna
notkun þess í vín. Lífshættulegt
er talið að neyta um 30 gr. af
efninu, en neysla allt að 30
milligramma er talin skaðlaus.
Austurríska heilbrigðisráðu-
neytið gaf á miðvikudagskvöld
út lista með nöfnum 136 létt-
víntegunda frá 46 fyrirtækjum,
sem frostlögurinn hefur fundist
í. Talið er að frostlögurinn hafi
verið settur í vínin til að auka
áfengismagn þeirra og gera þau
sætari á bragðið.
Mótmæla mengun í ám:
Gefa járnf rúnni lax
Osló-Reuter
■ Odd Einar Doerum, for-
maður Frjálslynda flokksins í
Noregi, og David Steel, formað-
ur frjálslyndra í Bretlandi hyggj-
ast færa Margréti Thatcher,
forsætisráðherra Breta, að gjöf
annan tveggja laxa sem veiðst
hafa í sumar í á einni í Vestur-
Noregi. Fyrrum var áin svört af
laxi, en fískgengd hefur mjög
minnkað vegna mengunar frá
Bretlandi.
Norðmenn hafa kvartað yfir
því við Breta að súrt regn frá
þeim sé að drepa allt líf í
landinu, en það mun einkum
vera brennisteinstvíildi, sem
spillt hefur laxveiðiánni í Vest-
ur-Noregi. Bretar hafa ekki
fengist til að undirrita sam-
komulag nokkurra þjóða, um
að minnka brennisteinstvíildis-
úrgang um tæpan þriðjung fyrir
1995.
Þá handtók lögreglan í Aust-
urríki mann sem grunaður er
um að hafa blandað efninu í
léttvín. Þetta er fimmti maður-
inn sem lögreglan þar hefur
handtekið í tengslum við vín-
svindlið.
I Þýskalandi var á miðviku-
dag gefin út handtökuskipan á
víninnflytjanda, sem grunaður
er um að hafa smyglað 400
þúsund lítrum af austurrísku
léttvíni með því að nota fölsuð
tollskjöl.
Lögreglan í Þýskalandi íhug-
ar nú að taka aftur til meðferðar
tvö dularfull dauðsföll í landinu
árið 1981. Ekki ertalið ólíklegt
að mennirnir tveir sem þá létust
hafi dáið vegna eitrunar.
Milljónir lítra af austurrísku
víni hafa nú verið gerðir upp-
tækir í Þýskalandi, en auk þess
hefur frostlögur fundist í vínum
í Englandi, Sviss, Belgíu, Hol-
landi, Póllandi, Grikklandi og
Norður-Ameríku,