NT


NT - 26.07.1985, Síða 22

NT - 26.07.1985, Síða 22
udagur 26. júlí 1985 22 ■ Drengjalandsliðspiltarnir 16 sem taka þátt í NIM ásamt Lárusi þjálfara og Sveini Sveinssyni. NT-mynd: Sverrir Drengjalandslið fslands: Á Norðurlandamót í Bergen „Þetta er alveg nýtt lið og óreynt“ segir Sveinn Sveinsson ■ Eins og greint var frá í NT í gær þá er íslcnska drengjalands- liðið í knattspyrnu á förum til Noregs til að taka þátt í Norður- landamóti drengjalandsliða. Mótið hefst á mánudaginn kemur og þá leika íslensku pilt- arnir gegn þeim sænsku. Síðan rekur hver leikurinn annan og verður m.a. keppt gegn Eng- lendingum sem eru gestir á mót- inu. Mótinu lýkur síðan á laugar- daginn 3. ágúst. Lárus Loftsson, þjálfari ís- lenska landsliðsins, hefur valið 16 pilta til fararinnar og koma þeir frá 9 félögum. Hópurinn er skipaður eftirtöldum strákum: Markverðir Karl Jónsson............... Þrótti R Orri Ýrar Smárason........ Selfossi Aðrir leikmenn: Gísli Björnsson........... Selfossi Haraldur Ingólfsson ...........Í.A. Tryggvi Tryggvason.............Í.A. Liverpool: Tvöfaldurhagnaður - þrátt fyrir að launagreiðslur hafi aukist verulega Bjarni Benediktsson .....Stjörnunni Sigurður Bjarnason.......Stjörnunni Árni Þ. Árnason................. Þór Ak. Páll V. Gíslason................ Þór Ak. Steinar Adolfsson ...... Víkingi ól. Rúnar Kristinsson.............. K.R. Þormóður Egilsson ............. K.R. Haraldur Haraldsson......Víkingi R. Egill örn Einarsson......Þrótti R. Gunnlaugur Einarsson.............Val Ólafur Viggósson.........Þrótti Nes. „Þetta er alveg nýtt lið og lítið reynt“ sagði Sveinn Sveins- son sem sæti á í Unglinganefnd KSÍ ásamt Lárusi og Helga Þor- valdssyni. Það er óhætt að taka undir orð Sveins þetta er mjög óreynt lið. Hópurinn sem fer út var ekki valinn fyrr en á mánu- dagskvöld og lítill tími gefst því til æfinga fyrir mótið. „Nú okk- ur hefur gengið svona þokka- lega á síðustu Norðurlandamót- um - vorum mjög nálægt sigri í fyrra - svo vonandi er nú að nú smelli þetta saman hjá strákun- um“ bætti Sveinn við. Mótið fer fram í Bergen í Noregi og eins og fyrr segir, þá verður fyrst spilað við Svía á mánudag. Á þriðjudag verður leikur gegn Dönum og á mið- vikudag gegn Englendingum sem eru gestir á mótinu. Á fimmtudaginn verður att kappi gegn gestgjöfunum Norðmönn- um en á föstudaginn verður frí. Síðasti leikurinn verður síðan á laugardag gegn Finnum. Leiknir vann ■ Leiknir sigraði Hug- inn 2-1 í frestuðum leik á Fáskrúðsfírði á miðviku- dagkvöld. Leikurinn átti upphaflega að fara fram 12. júlí. í hálfleik var staðan 2-0, en Leiknir lék undan vindi í fyrri hálfleik. Svanur Kárason skoraði fyrra markið með skoti af stuttu færi eftir fyrirgjöf og Steinþór Pétursson hið síðara með góðu skoti utan úr teignum. í síðari hálfleik náði Huginn betri tökum á leiknum og þá gerði Kristján Jónsson eina mark liðsins. Óð upp völlinn lék á tvo varnar- menn og skoraði. Krist- ján átti að auki skot í slána úr hjólhestaspyrnu. Tveir leikmenn voru reknir út af í leiknum. Sigurður Víðisson úr liði gestanna og Svanur Kára- son úr Leikni. 4. deild F-riðill ■ Úrslit í F-riðli 4. deildar í fyrrakvöld urðu þessi: Egill rauði-Súlan ......... 1-2 Neisti-Sindri.............. l-i Höttur-Hrafnkell .......... 0-2 Staðan í F-riðli er þá þessi: Sindri 9 5 4 0 28-9 9 Neisti 9 6 1 2 27-13 19 Hrafnkell 9 5 3 1 19-13 18 Höttur 9 4 14 13-14 13 Súlan 9 2 16 16-18 7 Egill 9 0 0 9 10-46 0 ■ Enska félagið Liverpool greiddi meira en tvær milljónir sterlingspunda (rúmlega 102 MOLAR ...Framhcrjinn knái, Pet- er Weir, var rekinn af lcikvelli er lið hans, Aberdeen, tapaði 1-0 fyr- ir Neuchatel í Sviss á inið- vikudag. Weir braut illa á varnarmanninum Andy Egli og sá rautt. Jean- Paul Brigger skoraði sigurmark leiksins í síðari hálfleik... ...Óháður dómstóll ákvað á miðvikudag að Everton skyldi greiða Leicester City 800 þús- und pund fyrir enska landsliðsmanninn Gary Lineker. Everton hafði boðið 400 þúsund pund í framherjann, en Leicest- er vildi fá 1250 þúsund pund fyrir hann... ...Finnski spjótkastarinn Matti Járvinen, einn mesti spjótkastari allra tíma er látinn, 76 ára gamall. Járvincn setti hvorki fleiri né færri en 10 heimsmet á fjórða ára- tugnum. milljónir kr.) í laun s.l. keppn- istímabil, hæstu launagreiðslur í sögu félagsins. Eigi að síður tvöfaldaði félagið hagnað sinn frá árinu áður. Hagnaðurinn nú reyndist vera 422 þúsund pund (rúmlega 20 milljónir kr.) en var á keppn- istímabilinu á undan 160 þúsund pund. Athyglisvert er að hagnaður félagsins skyldi vaxa svo mjög, því Liverpool vann ekki einn einasta titil í fyrra. Var það lélegasti árangur liðsins í 10 ár. Liverpool kemur ekki til með að veita af þessum varasjóði á næstu árum, því framundan eru erfiðir tímar hjá liðinu sem og öðrum enskum liðum, vegna bannsins á þátttöku þeirra í Evrópukeppnunum þremur. Frá aganefnd: Bakvarðabönn - hjá Víkingum og tveir í bann hjá Víði ■ Tveir leikmenn úr Víði og tveir úr Víkingi voru dæmdir í eins leiks bann á fundi aga- nefndar KSÍ á þriðjudag. Að auki voru tveir leikmenn úr 3. og 4. deild bannfærðir. Víðismennirnir Sigurður Magnússon og Rúnar Georgs- son fengu báðir að sjá rauða spjaldið nýlega og fara því í bann. Einar Einarsson, sem var rekinn út af á síðustu mínútu leiksins við Val, fór sömuleiðis í bann, sem og hinn bakvörður- inn hjá Víkingi, Gylfi Rútsson. Hann var kominn meö ot mörg gul spjöld. Bryngeir Torfason Ármanni og Bjarni Kristjánsson hjá Austra fóru einnig í bann í gær. Þeir leika í 3. deild. Amoros er meiddur ■ Vafasamt er nú talið að bakvörðurinn Manuel Amoros geti leikið með landsliði Frakka gegn Austur-Þjóðverjum í leik liðanna í undankeppni HM 11. september næstkomandi. Am- oros meiddist illa á vinstra hnéi í leik liðs síns Monaco gegn Nantes í frönsku 1. deildinni á föstudag. Leiknum lauk með jafntefli 1-1, en leiksins verður vart minnst fyrir úrslitin heldur hins að tveir leikmenn voru reknir af leikvelli í honum. Jean-LucEtt- ori, fyrirliði Monaco og mark- vörður Frakka í HM á Spáni 1982 og Vahid Halilhodzig, jug- óslavneski landsliðsmaðurinn hjá Nantes létu hnefana tala inni á vellinum og fóru báðir út af. Lens, Paris St. Germain og Bordeaux eru efst í deildinni með fjögur stig eftir tvo leiki. 2. deild: Tryggvi er markahæstur ■ Staöan í 2. deild fyrir leiki 11. umferðar er þessi: KA Breiðablik ÍBV Völsungur ÍBÍ Skallagr. KS Njarðvík Leiftur Fylkir 10 6 2 2 20-8 20 10 6 2 2 21-12 20 10 5 1 3 22-9 19 10 4 3 3 17-14 15 10 3 4 3 12-12 13 10 3 4 3 13-18 13 10 3 3 4 13-15 12 10 2 3 5 5-16 9 10 2 2 6 8-20 8 10 1 3 6 6-12 6 menn Markahæstu þessir: Tryggvi Gunnarss., KA .. Tómas Pálsson, ÍBV..... Jón Þórir Jónsson, UBK . Jóhann Grétarsson, UBK Jónas Hallgrímsson, Völs. Hlynur Stefánsson, ÍBV . Kristján Olgeirsson, Völs. Mark Duffield, KS ..... eru nu 10 mörk . 7 mörk . 6 mörk . 5 mörk . 5 mörk . 4 mörk . 4 mörk . 4 mörk ■ Aðalsteinn Bemharðsson er líklegur til afreka í bikarkeppninni um helgina. Bikarkeppni FRÍ: SigraÍR-ingarenn? Hafa unnið Bikarinn síðustu 13 skipti ■ Tekst einhverju félagi að rjúfa sigurgöngu ÍR-inga í Bik- arkeppni FRÍ nú um helgina? ÍR hefur unnið þessa keppni síð- ustu þréttán árin og samkvæmt spám fróðra manna lítur út fyrir að þeir taki við bikarnum nú á sunnudaginn líka. Keppnin hefst á Laugardals- velli kl. 14álaugardagogverður fram haldið á sama tíma á sunnudag. Auk ÍR keppa lið HSK, UMSE, Ármanns, og UIA í fyrstu deildinni. .Meðal þess íþróttafólks sem verður með er Aðalsteinn Bernharðs- son, Oddný Árnadóttir, Jón Diðriksson, Sigurður Einarsson o.fl. afokkarbestafrjálsíþrótta- fólki. Á sama tíma fer fram keppni í 2. deild í Keflavík. Þar verða lið frá UMFK, KR, UMSB, UMSS og USVH. Á laugardag fer einnig fram keppni í þriðju deild á Blönduósi og keppa þar 11 héraðssambönd. Leikir í kvöld: ■ Tveir stórleikir verða í 2. deildinni í kvöld. Á Kópavogsvelli leika Breiðablik og Vest- mannaeyjar, sem eru í 2. og 3.sæti deildarinnar. I Árbænum keppa svo Fylkir og KÁ. Báðir leikirnir byrja kl. 20.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.