NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 07.08.1985, Qupperneq 14

NT - 07.08.1985, Qupperneq 14
Sjónvarp kl. 20.35: Trúarbrögð í Kyrrahafslöndum Miðvikudagur 7. ágúst 1985 14 ■ Þeir Mikael Lamb og Owen Kane flýja einstrengingslegt líf Hcirnilisins á írlandi til London. Þar reka þeir sig á skuggahliðar stórborgarlífsins. Ný framhaldssaga „LAMB“ eftir Bernard MacLaverty dag kl. 14 hefst í útvarpi lestur nýrrar frmahaldssögu. Það er sagan „Lamb“ eftir Bernard MacLaverty í þýðingu Erlings Halldórssonar og les hann sjálfur þýðingu sína. Bernard MacLaverty fædd- ist í Belfast 1942. Hann starf- aði um tíu ára skcið sem meinatæknir við læknadeildina í Queen's University í Belfast. Þá flutti hann til Edinborgar og hóf kennSlu sem hann stundar enn þann dag í dag Bernard MacLaverty fékk verðlaun hjá Scottish Arts Co- uncil Book Avvard árið 1977. Efni sögunnar er á þessa leið: A höfða sem skagar út í Atlantshafið á norðanverðu írlandi stendur Heimilið, fyrir syni hinna snauðu í borgunum. Það er rekið af reglubræðrum innan kaþólsku kirkjunnar, og forstöðumaðurinn, bróðir Benedikt, telur hlutverk þess að kcnna drengjunum dálítið um Guð en mikið um ótta. Einum af yngri bræðrunum, Mikael Lamb, þykir mjög að sér kreppt og eygir litla von um árangur. Þegar hann erfir álit- lega fjárhæð eftir fööur sinn strýkur hann og tekur með sér tólf ára gamlan dreng, Owen Kane. Þeir flýja til London. Útvarp Eireann talar um mannrán, og lögreglan hefur þegar leit, en þeir félagar njóta lífsins í London. Mikael álítur að eina leiðin til að bjarga Owen sé að forða honum frá því aðþrengda lífi sem hefur verið hlutskipti hans til þess; Hann leitast við að uppfyll allar hans óskir, þó af var; semi. Þeir hegða sér eins o faðir og sonur, og einbeita sé að því að skapa hvor öðrum þ hamingju sem þeir hafa farið mis. En freistingar Owens er margar, vellíðanin er hans ein keppikefli, og Mikael stendu ekki traustum fótum. Smán saman þrengist hringurinn tíminn líður frá þeim o: peningarnir ganga til þurrðar Þegar Mikael sér hve hann e auðveld bráð eiturlyfjaprang ara sér liann að engin mála miðlun er til, og hann velur þ; leið sem sannarlega ber um hyggju hans vitni. Maður er nefndur Sigurbjörn Þorkelsson ■ í kvöld kl. 20.35* verður sýndur í sjónvarpi 5. þáttur myndaflokksins Kyrrahafs- lönd og ber hann heitið Guð hefur ótal andlit. Eins og nærri má geta eru trúarbrögð fjölskrúðug í hin- um fjölbreytilegu löndum, sem liggja að Kyrrahafi. Og það er sömuleiðis augljóst mál, að þar er rekiö trúboð af ýmsu tagi og hefur verið gert lengi. í Austurlöndum fjær er t.d. rekin útvarpsstöð þar sem fagnaðarerindið er boðað á 60 tungumálum. Það eru heittrú- uð evangelisk kirkjusamtök sem að þessum útvarpssend- ingum standa, og þcim erbeint víða um Kyrrahafið. Þá er rakið trúboð á Nýju- Gíneu og lýst áhrifum trúboð- anna á ýmsum sviðum. Sam- liiða er ýmsurn siöum eyja- skeggja lýst. scm lítið ciga skylt viö kristni! Á Samóa er starfandi öflugt trúboð mormóna, eins og reyndar víðar um Kyrrahafs- lönd, og fá sjónvarpsáhoi i'end- ur að sjá árangur starfs þeirra þar. Búddhatrú á mikil ítök í íbúum Kyrrahafslanda. Innan þeirra trúarbragða eru ýmsir flokkar sem iðka sín eigin afbrigði af búddhatrú og er þar deilt um hreinleika trúarinnar ekki síöur en meðal kristinna manna. 1 Suður-Kóreu er ein- mitt fjölmennur flokkur sem aðhyllist sérstakt afbrigði búddhatrúar, sem fær þá um- sögn aö hún sé ekki „hrein" búddhatrú. Þá víkur sögunni til Banda- ríkjanna. í ríkinu Oregon hef- ur Indverji nokkur safnað um sig allstórum söfnuði, sem hef- ur stofnað sitt eigið bæjarfélag. Þar ægir saman ólíku fólki víða að, sem helst virðist eiga það sameiginlegt að vera á flótta undan margvíslegum vandamálum lífs 20. aldarinn- ar. Þareraðfinnat.d.gyðinga, kristna menn, múhameðstrú- armenn.hindúa, allt sem nöfn- um tjáir að nefna, og er erfitt að finna eitt samheiti yfir þau trúarbrögð sem þetta fólk iðkar. Þau eru nánast eins og deigla ntargra þekktra trúar- bragaða. Þýðandi og þulur er Óskar Ingimarsson. ■ Búddhamunkur í hofi í Shanghai. ■ í kvöld kl. 22.30 verður dreginn fram úr safni sjón- varpsins þátturinn Maður er nefndur Sigurbjörn Þorkelsson sem áður var sýndur 1970. Þar ræðir Sverrir Þórðarson við kempuna Sigurbjörn Þor- kelsson, sem kenndur var við verslunina Vísi, en hann var einn af þeim Reykvíkingum sem um langt árabil settu svip á bæinn. Sigurbjörn var fæddur 25. ágúst 1885 og því ekki langt í 100 ára afmælið. Mestan hluta ævinnar vann hann verslunar- störf, þar af lengst við eigin verslun, Vísi á Laugavegi 1. En Sigurbjörn var kunnur fyrir fleira. Hann tók mikinn þátt í félagsmálum, var. t.d. einn af stofnendum KFUM 1899, einn af stofnendum Skilnaðarfélags íslands 1903, einn af stofnendum stjórn- málafélagsins Landvarnar 1903, einn af stofnendum Ferðafélagsins Hvats 1906, einn af stofnendum vikublaðs- ins Bjarma 1906, einn af stofn- endum ÍR 1907, einn af stofn- endum stjórnmálafélagsins Sjálfstjórnar (eldra) 1909, einn af stofnendum stjórnmálafé- lagsins Sjálfstjórnar 1917. Af þessari upptalningu má sjá að Sigurbjörn Iét snemma víða til sín taka og er þó engan veginn allt tínt til. Sigurbjörn lét að sér kveða í ■ Sigurbjörn Þorkelsson í Vísi lét víða til sín taka í lifanda lífi. bindindismálum og var t.d. einn af stofnendum stúkunnar Drafnar nr. 55, og í stjórnmál- um hafði hann mjög eindregn- ar skoðanir. Þannig var hann einn af stofnendum stjórn- málafélagsins Varðar og gekkst fyrir stofnun Heimdall- ar. Hann var einn af stofnend- um Kristilegs bókmenntafé- lags, meðal stofnenda Félags matvörukaupmanna og Gíde- onfélagsins. Auk allra áður- nefndra félaga, sem hann starf- aði mikið í, sat hann í ýmsum nefndum og ráðum. Sigur- björn er látinn fyrir nokkrum árum. Sjónvarp kl. 22.30: Miðvikudagur 7. ágúst 07.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. Morgunútvarpið. 7.20 Leikfimi. Til- kynningar 7.55 Daglegt mál. Endurt. þáttur Siguröar G. Tómassonar frá kvöld- inu áöur 8.00 Fréttir. Tilkynningar. Dagskrá. 8.15 Veöurtregnir Morgunorð - Vilborg Schram talar. 9.00 Fréttir 9.05 Morgunstund barnanna: „Matthias" eftir Barbro Lind- gren Sigríöur Siguröardóttir les þýöingu sína (3). 9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar. Tónleikar. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. For- ustugreinar dagblaðanna (útdr.) Tónleikar. 10.45 Islenskar skáldkonur - Drifa Viðar Umsjón Margrét Blöndal og Sigríður Pétursdóttir. RURAK 11.15 Morguntónleikar Tónlist eftir Marcello, Mozarl og Beethoven. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar 12.20 Fréttir. 12.45 Veöurfregnir. Til- kynningar. Tónleikar. 13.30 Inn og út um qluggann Umsión: Heiödis Noröfjörö RÚVAK 13.40 Létt lög 14.00 „Lamb“ eftir Bernard Mac- Laverty Erlingur E. Halldórsson byrjar lestur þýöingar sinnar. 14.30 Islensk tónlist a. Sellókonsert eftir Jón Nordal. Erling Blöndal Bengtson leikur meö Sinfóniu- hljómsveit Islands; Jean-Pierre Jacquillat stjórnar. b. „Ulisse Rit- orno“, sellókonsert eftir Þorkel Sig- urbjörnsson. Hafliöi Hallgrímsson og Sinfóníuhljómsveit islands leika; Guðmundur Emilsson stjórnar. 15.15 Staður og stund - Þóröur Kárason. RÚVAK. 15.40 Tilkynningar. Tónleikar 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður- fregnir 16.20 Popphólfið - Bryndís Jóns- dóttir. 17.00 Fréttir á ensku. 17.05 Barnaútvarpið Stjórnandi: Ragnheiöur Gyöa Jónsdóttir. 17.45 Síðdegisútvarp - Sverrir Gauti Diego. Tónleikar. Tilkynning- ar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvölds- ins 19.00 Kvöldfréttir. 19.40 Tilkynning- ar Málræktarþáttur Ólafur Oddsson flytur. 20.00 Sprotar Þættir af unglingum fyrr og nú. Umsjón: Símon Jón Jóhannsson og Þórdís Mósesdótt- ir 20.40 Sumartónleikar í Skálholti Laurence Dreyfus og Ketil Haugs- and leika Sónötu eftir Jóhann Se- bastian Bach á víólu da gamba og sembal. 21.30 Ebenezer Henderson á ferð um ísland sumarið 1814 Fimmti þáttur: Á leiö til Snæfellsness. Umsjón: Tómas Einarsson. Lesari með honum: Valtýr Óskarsson. 22.05 Tónleikar 22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð kvöldsins. 22.35 Svipmynd Þáttur Jónasar Jón- assonar RÚVAK 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. Miðvikudagur 7. ágúst 10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn- andi: Kristján Sigurjónsson 14.00-15.00 Eftir tvö Stjórnandi: Jón Axel Ólafsson 15.00-16.00 Nú er lag Gömul og ný úrvalslög aö hætti hússins. Stjórn- andi: Gunnar Salvarsson 16.00-17.00 Bræðingur Stjórnandi: Eirikur Ingólfsson 17.00-18.00 Úr kvennabúrinu Hljómlist flutt og/eða samin af konum. Stjórandi: Andrea Jóns - dóttir. Þriggja mínútna fréttir sagðar klukkan: 11.00,15.00,16.00 og 17.00 Miðvikudagur 7. ágúst 19.25 Aftanstund Barnaþáttur með innlendu og erlendu efni. í sögu- horni segir Kristin Steinsdóttir söguna um Pylsurnar tíu i þýö- ingu Vilbergs Júlíussonar. Kanín- an með köflóttu eyrun, Dæmi- sögur og nýr teiknimyndaflokkur frá Tékkóslóvakiu, Maður er manns gaman, um vinina Hlyn og Hlunk. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veður. 20.30 Auglýsingar og dagskrá. 20.35 Kyrrahafslönd (The New Pacific). 5. Guð hefur ótal andlit. Breskur heimildamyndaflokkur í átta þáttum. í Kyrrahafslöndum tiökast margvisleg trúarbrögö. Kristnir trúboöar ýmissa safnaöa vinna þar mikiö starf og verða hin austrænu trúarbrögð fyrir áhrifum vestrænna siða. Þýöandi og þulur: Óskar Ingimarsson. 21.40 Dallas. Erfðaskrá Jocks Bandarískur framhaldsmynda- flokkur. Þýöandi: Björn Baldurs- son. 23.30 Úr safni sjónvarpsins. Maður er nefndur Sigurbjörn Þorkels- son Sverrir Þórðarson ræöir við Sigurbjörn Þorkelsson í Vísi. Áður á dagskrá 25. ágúst 1970. 23.10 Fréttir i dagskrárlok.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.