NT - 28.08.1985, Qupperneq 3
■ Gestur Ólafsson framkvxmdastjóri Skipulagsstofu höfuðborg-
arsvæðisins kynnti fjölmiðlum tillögurnar að átaki í trjárækt á
höfuðborgarsvæðinu.
Miðvikudagur 28. ágúst 1985 3
SKYRINGAR
Á kortinu má sjá tillögurnar að átaki í trjárækt á höfuðborgarsvæðinu.
Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu:
Græna bylting Spilverks-
ins loksins að veruleika?
Skipulagt átak í trjárækt á öllu höfuðborgarsvæðinu
■ Hugsið ykkur, eftir 25-30 ár
á höfuðborgarsvæðið að vera
orðið skógi vaxið og iðjagrænt
og vonandi mun höfugur gróð-
urilmur fylla vit höfuðborgar-
búa í stað bílabrælu og verk-
smiðjureyks. Er græna bylting
Spilverksins loksins að verða að
veruleika?
Vorið 1982 stofnuðu Samtök
sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu vinnuhóp sem gengið
hefur undir nafninu trjáræktar-
nefndin. Nefndin hefur unnið
tillögur um „átak í trjárækt á
höfuðborgarsvæðinu" sem fela
meðal annars í sér að gróðursett
verði árlega a.m.k. eitt tré á
hvern íbúa höfuðborgarsvæðis-
ins, þ.e. íbúa allra sveitarfélaga
höfuðborgarsvæðisins: Reykja-
víkur, Seltjarnarness, Kópa-
vogs, Garðabæjar, Hafnarfjarð-
ar, Bessastaða-, Mosfells-, Kjal-
arness- og Kjósarhrepps. Um
131 þúsund manns búa í þessum
sveitarfélögum.
Trjáræktarnefndin sem vann
að skipulagningu átaksins legg-
ur áherslu á að tré og runnar
verði gróursett inni í byggðinni
og hvert sveitarfélag geri áætlun
til 5 ára um þessar framkvæmd-
ir. Ræktun trjáa og runna verði
gerð ítarleg skil í öllum skipu-
lagsáætlunum og byggingarleyf-
um og skipuleg trjávernd verði
tekin upp.
Mönnum er kannski spurn,
af hverju samræmd stefna allra
þessara sveitarfélaga? í glæsi-
legu riti sem Skipulagsstofa
höfuðborgarsvæðisins hefur
unnið, en Skipulagsstofa er
framkvæmdaraðili Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgar-
svæðinu, segir að hafa verði í
huga að verulegur hluti höfuð-
borgarsvæðisins er í raun ein
samstæð heils og heildarstefna
til 25-30 ára sé rökrétt þó ekki
sé vegna annars en á þessum
tíma muni þéttbýli á höfuðborg-
arsvæðinu renna saman í eina
heild.
Fjármagnið til verksins kem-
ur að stórum hluta frá sveitarfé-
lögunum enda munu útgjöld til
þessa verkefnis efla atvinnu og
viðskipti og fjölga störfum á
tiltölulega ódýran hátt svo að
fjármagnið komi til baka í sveit-
arsjóðina.
Á næstu 15-20 árum á einkum
að gróðursetja á ýmsum svæð-
um innan byggðar- á óbyggðum
svæðum inni í skipulögðu þétt-
býli við umferðarmannvirki, á
lóðum opinberra stofnana svo
sem skóla, sjúkrahúsa og vistun-
arheimila en einnig við iðnað-
argötur, íþrótta- og miðbæjar-
svæði, vistgötur og fleira. Síðar
mun ræktunin beinast meira að
jaðarlöndum sem eru utan við
skipulagða byggð en tengjast
henni þó með stígum, vegum
eða vegna þess hvernig landslagi
er háttað.
Til greina kemur að bjóða
verkin út en einnig verður haft
náið samband við skógræktarfé-
lögin á höfuðborgarsvæðinu og
ýmis áhugamannafélög.
í riti Skipulagsstofnunar segir
cnnfremur að með trjáræktinni
sé átt við gróðursetningu og
ræktun stálpaðra trjáa öðru
fremur. Undanfarna áratugi
liafi trjárækt víða á höfuöborg-
arsvæðinu sýnt að það ber ágæt-
an árangur aö gróðursetja tré
þar og skógrækt ríkisins hafi
gert sérstaka könnun á trjárækt-
arskilyrðum á höfuðborgar-
svæðinu og flokkað land með
tilliti til þess. Að því leyti sé
fyrir hendi grundvöllur að sam-
ræmdri trjáræktarstefnu.
Og þá er bara að láta hendur
standa fram úr erntum og láta
sitt ekki eftir liggja svo aö þetta
átak verði að veruleika.
J
■ Jón Böðvarsson og Kjalnesingasaga. Ef kennarar hafa áhuga á leiðsögn Jóns um sögusvið Kjalnesingasögu er þeim bent á að snúa
sér til Iðnskólaútgáfunnar. NT-mynd: Svcrrir.
Sögustaðir Kjalnesinga
- í útgáfu Iðnskólaútgáfunnar
■ Hvert eigum við að fara?
Þetta er spurning sem oft heyrist
þegar sunnudagsbíltúrinn er
undirbúinn. Þingvallahringur-
inn stendur alltaf fyrir sínu, en
heldur er hann leiðigjarn ef
ekinn er helgi eftir helgi.
Ef ykkur vantar hugmyndir,
má benda á bíltúr um sögustaði
Kjalnesingasögu, 3-4 klukku-
tíma ferð umhverfis Esjuna.
Kjalnesingasögu er nú hægt
að lesa í aðgengilegri útgáfu
Iðnskólaútgáfunnar- og aftast í
bókinni er kort af Kjalarnesi,
þar sem þéttbýlisstaðirnir og
þjóðvegurinn er merktur inná,
auk allra sögustaða Kjalnes-
ingasögu.
Þetta kom fram á blaða-
mannafundi sem Iðnskólaútgáf-
an boðaði til vegna útgáfu nýrra
bóka. Um árabil hefur íðn-
skólaútgáfan einkum gefið út
efni til iðnfræðslu, efni sem
bókaútgáfur hafa ekki treyst sér
til að gefa út, því fyrirsjáanlegt
tap er á þeirri útgáfu, enda
upplagið lítið eða 50 til 500
eintök af hverri bók.
Nú hefur Iðnskólaútgáfan snú-
ið sér að útgáfu bóka sem nýtast
fleirum en iðnnemum og standa
vonir til að sú útgáfa geti að
einhverju leyti staðið straum af
útgáfu iðnfræðsluefnisins.
Á síðasta ári gaf Iðnskóla-
útgáfan út tvær slíkar bækur,
Áfengi eftir Hrafn Pálsson og
Ritgerðir eftir Hjálmar Árna-
son og Baldur Sigurðsson. Nýju
bækurnar eru þrjár, tvær út-
komnar og ein rétt óútkomin.
Báðar bækurnar sem komnar
eru út, eru íslendingasögur,
Kjalnesingasaga í umsjón Jóns
Böðvarssonar og Gísla saga
Súrssonar í umsjón Jóhönnu
Sveinsdóttur.
Jón Böðvarsson sagði fræði-
menn hafa lítið álit á Kjalnes-
ingasögu, einkanlega vegna
þess að hún er ævintýraleg og
hefur lítið sagnfræðilegt gildi,
auk þess sem hún brýtur í bága
við Landnámu og gerir lítið úr
Ingólfi Arnarsyni til framdráttar
Helga bjólu og afkomendum
hans. Jón sagði söguna
skemmtilega og taldi Itana
kveikja áhuga lesenda á íslend-
ingasögunum.
Gísla saga Súrssonar hefur
áður verið gefin út í skólaút-
gáfu, en Jóhanna Sveinsdóttir
sagðist ekki túlka söguna í for-
mála sínum. Hún sagði útgef-
endur því miður oft koma fram
með sína túlkun á þeim sögum
er þeir gefa út og hefur hún sem
kennari oft þurft að rakka niður
þær skoðanir sem koma fram í
formálum slíkra bóka, enda seg-
ir hún að ekki sé til nein ein
túlkun á bókmenntaverki, sér-
staklcga ekki sakamálasögu eins
og Gísla sögu, þar sem óljóst er
hver er morðinginn.
Um miðjan næsta mánuð gef-
ur Iðnskólaútgáfan síðan út Nú-
tímasögu eftir Asgeir Asgeirs-
son. Þetta er tilraunaútgáfa á
frumsaminni kennslubók í ver-
aldarsögu síðustu ára. Þessi
fyrsti hluti bókarinnar fjallar
um tímabilið 1945-‘84; kalda
stríðið, vígbúnaðarkapp-
hlaupið, fall nýlenduveldanna og
hinn mikla hagvöxt í Bandaríkj-
unum og Vestur
Evrópu og nútímann, fólks-
fjölgun, mengun og fleira.
Síðar er gerl ráð fyrir því að
bókin verði aukin svo hún taki
til tímabilsins 1914-1984.