NT - 28.08.1985, Side 6
Singapore:
Ríkisspilavíti í
stórverslunum?
Singupore-Rcuter
■ Stjórnin í Singapore hefur
gefist upp á að berjast við
spilafíkn almennings. Pess í stað
hefur stjórnin ákveðið að virkja
spilafíknina í þágu ríkisins með
því að setja upp tölvuútstöðvar
fyrir nokkurs konar ríkisspila-
víti í kjörbúðum, stórmörkuð-
um og við stórar húsasamstæð-
ur.
Stjórnvöld halda því fram að
spilafíkn sé eðlileg mannleg ár-
átta. Það sé æskilegt að ríkið
hafi eftirlit með því hvaða far-
veg þessi árátta fái frekar en að
láta ólöglega veðmungara lokka
almenning út á braut lögbrot-
anna.
Hægt verður að spila í happ-
drætti og taka þátt í ýmsum
veðleikjum með aðstoð tölvu-
veðstöðvanna. Hvert veðmál
mun kosta um tvo Singapore-
dollara (35 ísl. kr.) ogvinningar
geta orðið allt að 200.000 Singa-
pore-dollarar (3,5 milljónir ísl.
kr.).
Stefnt er að því að taka
tölvuveöstöðvarnar í notkun í
byrjun næsta árs þegar 150
tölvuútstöðvum hefur verið
komið fyrir. Heildarkojtnaður
við tölvubúnaðinn er áætlaður
um þrjár milljónir Bandaríkja-
dala (120 milljón ísl. kr.).
Ekki eru allir jafn ánægðir
með þessa spilavítisáætlun
stjórnarinnar. Kaþólska kirkjan
hefur þegar lýst yfir eindreginni
andstöðu við tölvuveðmálin. í
málgagni kaþólika sem eru um
100.000 af 2,5 milljónum íbúa
ríkisins, segir að nú geti ekkert
stöðvað veðmangarana. Ríkis-
stjórnin klappi spilasjúklingun-
um vinalega á bakið og segi
þeim að halda áfram að leggja
undir. Nú verði heil kynslóð
alin upp í þeim anda að það sé
allt í lagi að sóa fjármunum svo
lengi sem ríkið græði á því.
En ríkisstjórn Lee Kwan Yew
forsætisráðherra hefur ekki get-
ið sér orð fyrir að hlusta um of
á raddir andstæðinga. Flest
bendir til þess að stjórnin haldi
ótrauð sínu striki og hefji veð-
starfsemina á settum tíma.
Sérstakt ríkisrekið fyrirtæki
mun sjá um rekstur happ-
drættisins og veðmálanna. Tals-
menn þess segjast reikna með
um 10 milljónum dollara (400
milljónir ísl. kr.) af „Toto“-veð-
málum einum saman en þau felast
í því að valin eru fímm númer. Það
tekur spilamanninn aðeins örfá-
ar sekúndur að fá að vita hvort
hann hefur unnið. Hafi hann
tapað getur hann veðjað strax
aftur.
Mikill samdráttur er nú í
efnahagslífi Singapore svo að
tekjurnar af veömálunum verða
sérstaklega vel þegnar af stjórn-
völdum.
Argentína:
Peronistar
boða til
allsherjar-
verkfalls
Vonast til að vinna fylgi
Rucnos Aires-Reuter.
■ Verkalýðssamband Argent-
ínu, sem er undir stjórn peron-
ista, hefur boðað til verkfalls nú
á morgun til að mótmæla að-
haldsstefnu stjórnar Rauls Al-
fonsins. Verkfallið markarupp-
hafið af kosningabaráttu peron-
ista fyrir þingkosningar sem
verða haldnar í nóvember.
Embættismenn stjórnarinnar
spá því að þátttaka í verkfallinu
verði dræm þar sem skoðana-
kannanir sýna að Raul Alfonsin
er mjög vinsæll meðal almenn-
ings og að efnahagsaðgerðir
hans njóta mikils stuðnings.
Verðbólguhraðinn í Argent-
ínu var kominn upp í meira en
þúsund prósent á ári fyrir
nokkrum mánuðum. Verðlag
hækkaði um 30,5% í júnímán-
uði einum saman. En þá fyrir-
skipaði Alfonsins verðstöðvun
og bannaði launahækkanir sem
leiddi til þess að verðbólgan
snarhjaðnaði og í júlí hækkaði
verðlag aðeins um 6,2%.
Efnahagsaðgerðir stjórnar-
innar hafa leitt til lækkunar
raunlauna og aukins atvinnu-
leysis en meirihluti almennings
styður þær samt þar sem verð-
bólgan hefur greinilega
minnkað.
Samkvæmt skoðanakönnun,
sem var birt fyrir skömmu, nýt-
ur flokkur Alfonsins stuðnings
meirihluta kjósenda og peron-
istar ná því ekki einu sinni að
vera næst stærsti flokkurinn sé
miðað við kjörfylgi.
Peronistar hafa að undan-
förnu átt við klofning og innan-
flokkserjur að stríða og er það
talin helsta orsökin fyrir því
hvað vinsældir þeirra hafa
minnkað mikið. í kosningunum
í nóvember verður kosið um
helming þingsæta í 254 sæta
fuiltrúaþingi Argentínu. Al-
fonsin leggur mikla áherslu á að
halda meirihluta sínum í þing-
inu og flest bendir til þess að
honum takist það þrátt fyrir
verkfallshótanir peronista sem
dreymir um að ná aftur þeim
völdum sem þeir höfðu í Arg-
entínu um næstum fjörutíu ára
skeið.
Miðvikudagur 28. ágúst 1985 6
Útlönd
■ Lee Kuan Yew forsætisráðherra í Singapore er ákaflega hrifínn
af tölvum. Nú hefur hann komist að þeirri niðurstöu að með tölvum
megi stjórna spilafíkn almennings þannig að ríkið geti grætt á henni.
■ Raul Alfonsin forseti Argentínu er vinsæll þrátt fyrir harkalegar
efnahagsaðgerðir. Stuðningsmenn hans telja hann ekki þurfa að
hafa áhyggjur af allsherjarverkfalli verkalýðsfélaganna.
Ghana:
Ný kakótegund
sögð tvöfalda
uppskeru
Accra-Reuter.
■ Kakórannsóknarstöð
Ghana er nú að gera tilraunir
með nýja tegund kakós sem
sögð er geta tvöfaldað kakó-
uppskeru landsmanna á
næstu sex árum.
Vikublaðið „Spegillinn" í
Ghana segir að hinar nýju
kakóplöntur þoli þurrka mun
betur en eldri tegundir og
hafi mikið mótstöðuafl gegn
sjúkdómum.
Tilraunum Kakórann-
sóknarstöðvarinnar með
kakóplönturnar lýkur á
næsta ári og munu bændur
þá væntanlega geta fengið
þær til kakóræktunar.
Yaw Ampomah yfirmaður
tilraunanna segir að líkur
séu á að þessi nýja kakóteg-
und geri Ghanamönnum
kleift að ná aftur sæti sínu
sem mesta kakó-
framleiðsluþjóð í heimi inn-
an sex ára. Kakóuppskera
Ghanamanna varð mest árið
1965 eða560.000 tonn. Síðan
hefur uppskeran minnkað
stöðugt og í fyrra var hún
aðeins 159.000 tonn.
200 Lada-bílar
undir leiðtoga
óháðra ríkja
Moskva-Reuter
■ Sovétmenn hafa gefið Ang-
ólamönnum 200 Lada-bíla af
lúxusgerð til að aka ráðherrum
óháðra ríkja sem munu funda í
Luanda höfuðborg Angóla í
næstu viku.
Sovéska dagblaðið Pravda
segir að bílarnir hafi verið af-
hentir við hátíðlega athöfn í
Luanda og að tveggja metra
langur „lykill" hafi verið látinn
fylgja sem tákn um gjöfina.
Stjórnin í Angola var sögð
hafa tekið við gjöfinni með
mikilli ánægju. Stjórnin lýsti
henni sem stuðningi við alþýðu
Angóla og hreyfingu óháðra
ríkja.
Kínverjar huga
aðsímavæðingu
Peking-Reuter
■ Samkvæmt Dagblaði Al-
þýðunnar í Kína hafa þúsund
milljónir íbúa Kínaveldis aðeins
aðgang að um tveim milljónum
símaviðtækja. En nú hafa
stjórnvöld ákveðið að síma-
væða landið eins hratt og mögu-
legt er svo að lélegt símasam-
band tefji ekki efnahagsupp-
bygginguna.
Símamálaráðherra Kína,
Yang Taifang segir að á þessu
ári verði um 500.000 nýir símar
teknir í notkun og að stefnt sé
að því að fjölga símaviðtækjum
upp í fleiri en 13 milljónir á
næstu fimm árum.
Kínverska stjórnin lítur á
uppbyggingu símakerfisins sem
algjört forgangsverkefni sem sé
jafnmikilvægt og efling orku-
veitna og flutningakerfis. Kín-
verjar hafa nú þegar pantað
fullkomin símakerfi erlendis frá
fyrir nokkrar helstu stórborgir
sínar.
Astralía:
Sekt við að smita
með ónæmistæringu
Sydney-Reuter
■ Fylkisstjórnin í New South
Wales í Ástralíu hefur sam-
þykkt lagafrumvarp sem m.a.
felur í sér að fólk, sem veit að
það er með ónæmistæringu,
verður sektað um 5000 ástralska
dollara (140.000 ísl. kr.) ef það
smitar aðra með þessum ban-
væna sjúkdómi.
Stjórnin mun leggja laga-
frumvarpið fyrir fylkisþingið í
næsta mánuði. 1 frumvarpinu er
einnig gert ráð fyrir 1000 dollara
sekt (28.000 ísl. kr.) fyrir lækna
ef þeir láta undir höfuð leggjast
að tilkynna heilbrigðisyfirvöld-
um um einstaklinga sem eru
sýktir af ónæmistæringu.
Svipuð lög eru nú þegar í gildi
í ástralska fylkinu Queensland.
Par getur smitberi valið á milli
10.000 dollara sektar (280.000
ísl. kr.) og tveggja ára fangelsis
ef hann smitar fólk vitandi vits
með ónæmistæringu við samfar-
ir eða með blóðgjöf.
Samtök homma í Ástralíu og
baráttunefnd ástralska sam-
bandsríkisins gegn ónæmistær-
ingu hafa gagnrýnt þessa laga-
setningu sem sögð er auka ótta
fólks með ónæmistæringu við
að leita sér lækninga.
Hermaður
skýst yfir
landamæri
Miinchen-Reuter
■ Vestur-þýska landa-
mæralögreglan skýrði frá
því í gær að sovéskur
hermaður hefði flúið yfir
landamærin frá Tékkó-
slóvakíu fyrir nokkrum
dögum.
Hermaðurinn, sem var
óeinkennisklæddur, .
hljóp sem fætur toguðu á
undan tékkneskum
landamæravörðum sem
létu kúlum rigna allt í
kringum hann. Hann hef-
ur nú beðið um hæli í
Vestur-Þýskalandi sem
pólitískur flóttamaður.