NT - 28.08.1985, Síða 7
Miðvikudagur 28. ágúst 1985
Fátæklingafækkun U
í Bandaríkjunum ts
NEWSIN BRIEF-]
■ Indverski herinn er nú í viðbragðsstöðu ef öfgasinnar úr röðum
sikha skyldu reyna að efna tii óeirða eða fremja hryðjuverk. Herinn
hefur nú lokað landamærunum við Pakistan en þar er taiið að
harðsnúnustu hryðjuverkamennirnir haldi sig.
Washington-Reuler.
■ Bandaríkjamönnum, sem
hafa tekjur undir fátækramörk-
um, fækkaði nokkuð á seinasta
ári. Þeir töldust þá vera 33,7
milljónir talsins en árið 1983 voru
þeir 35,5 milljónir. Þetta er í
fyrsta skiptið frá því árið 1976
að fólki undir fátækramörkum
fjölgar frá ári til árs.
Gordon Green aðstoðaryfir-
maður manntalsskrifstofu
Bandaríkjanna sagði á blaða-
mannafundi í gær að orsökin
fyrir fækkun fátæklinga væri
efnahagsbatinn sem orðið hefði
í fyrra og árið þar á undan.
Fátækramörkin fyrir árið
1984 eru 10.609 dollara árstekj-
ur (um 430 þúsund ísl.kr.) fyrir
fjögurra manna fjölskyldu. Þá
er miðað við beinar tekjur en
niðurgreiðslur á læknisþjónustu
eða við húsnæðiskaup ekki
teknar með.
Stjórn Reagans hefur verið
gagnrýnd fyrir niðurskurð á
stuðningi við fátæklinga. Er tal-
ið að þessar upplýsingar um
fækkun fátæks fólks á seinasta
ári verði til þess að styrkja stöðu
Reagans.
Meðalfjölskyldutekjur voru
26.430 dollarar (tæpl. 1,1 millj-
ón ísl.kr.) í Bandaríkjunum
árið 1984 sem er 3,3 prósent
aukning frá því árið áður. Með-
Indverjar loka landa-
mærunum við Pakistan
Óttast heimsóknir hryðjuverkamanna
Nýja Delhi-Reuter
■ Indverjar hafa lokað landa-
mærum sínum við Pakistan og
eflt mjög öryggisvörslu við þau
af ótta við að öfgasinnaðir
hryðjuverkamenn af þjóðar-
broti sikha komi yfir landamær-
in frá Pakistan til að vinna
hermdarverk í Indlandi.
Indverjar ásaka Pakistani um
að láta indverskum hermdar-
verkamönnum í té vopn og
aðstoða við þjálfun þeirra.
Starfsemi öfgasinna hefur á
undanförnum árum verið sér-
staklega mikil í landamærafylkj-
unum Punjab, Rajasthan og
Jammu og Kashmir sem eru 550
kílómetra löng landamæri við
Pakistan. Landamæravarsla er
mjög erfið á mörgum stöðum
þar sem landamærin liggja um
miðja akra og eru oft frekar
óskýr. Talið er fullvíst að
hryðjuverkamennirnir sem
skutu Harchand Singh leiðtoga
Akali Dal flokksins í Punjab
hafi komið yfir landamærin frá
Pakistan.
Þrátt fyrir morðið á Harchand
Singh, sem var heisti leiðtogi
hófsamra sikha, hefur sam-
bandsstjórnin í Nýju Delhi
ákveðið að hætta ekíci við áður
fyrirhugaðar kosningar í Punjab
í næsta mánuði.
Indverska stjórnin óttast að
öfgamenn reyni að hindra kosn-
ingarnar með hryðjuverkaöldu.
Vopnaðir lífverðir fylgja nú öll-
um frambjóðendum Akali Dal
flokksins og verðir verði einnig
við kosningafundi allra annarra
frambjóðenda og fyrir utan
heimili þeirra á meðan kosn-
ingabaráttan stendur yfir.
Lögregluyfirvöld í Punjab
hafa beðið um a.m.k. 60.000
manna liðsauka til að halda
uppi lögum og reglu í kosning-
unum.
Hallarbylting í Nígeríu:
Frá herstjórn
til herstjórnar
■ Filippseyskur herflokkur leitar skæruliða. Hernum hefur ekki
tekist að bæla niður uppreisn kommúnista og því hefur Marcos
ákveðið að múta þeim til að leggja niður vopnin.
Filippseyjar:
Abidjan-Reutcr
■ Ibrahim Babangida yfir-
hershöfðingi var gerður að
æðsta yfirmanni ríkisins í Níger-
íu eftir að hópur herforingja
steypti Mohammed Buhari yfir-
hershöfðingja úr stóli í blóð-
lausri hallarbyltingu í gærmorg-
un.
Babangida var áður þriðji
valdamesti herforinginn í stjórn
Buharis sem komst til valda í
byltingu hersins fyrir tuttugu
mánuðum. Buhari hafði heitið
því að binda enda á „spillta og
klunnalaga stjórn Shehu Shag-
ari sem væri ónæm fyrir óskum
Marcos býður fé
til kommúnista
almennings". Shagari hafði þá
verið forseti fyrir borgaralegri
ríkisstjórn í fjögur ár.
Ríkisútvarpið í Lagos sagði
eftir hallarbyltinguna í gær að
Buhari hefði brugðist vonum
fólks og að hann hefði sóað
auðæfum landsins í óframleiðin
verkefni. Herforingjarnir sem
steyptu honum úr stóli segjast
ekki hafa getað setið aðgerðar-
lausir hjá og horft á það hvernig
lítill hópur einstaklinga hefði
misbeitt valdi sínu.
Svo virðist sem hallarbylting-
in hafi farið friðsamlega fram og
að er.gin vopnaátök hafi átt sér
stað í kjölfar hennar.Útgöngu-
bann var fyrirskipað í borgum
landsins í gærkvöldi þar til í
morgun, símasamband við út-
lönd var rofið og öllum höfnum
lokað. Landamæri Nígeríu hafa
verið lokuð frá því í apríl 1984
til að hindra smygl og komu
ólöglegra innflytjenda frá ná-
grannaríkjum.
Nígeríumenn eiga við mikinn
efnahagsvanda að stríða þar
sem þeir fá 95% af útflutnings-
tekjum sínum af olíu og
olíuverð hefur verið mun lægra
á undanförnum árum en þeir
höfðu reiknað með. Ofbeldis-
glæpir.og spilling í valdkerfinu
eru líka alvarleg vandamál.
- ef þeir gefast upp
Manila-Rcutcr.
■ Ferdinand Marcos forseti á
Filippseyjum skýrði frá því í
gær að hann hefði ákveðið að
bjóða skæruliðum kommúnista,
sem berjast gegn stjórn hans,
reiðufé og sakaruppgjöf ef þeir
leggi niður vopn sín og gefi sig
fram við stjórnvöld á hverjum
stað.
Skæruliðar eru taldir hafa
fleiri en 12.000 menn undir
vopnum auk þess sem þeir njóta
mikils stuðnings almennings í
sumum sveitahéruðum. Starf-
semi þeirra hefur aukist jafnt og
þétt á síðustu árum.
í yfirlýsingu frá forsetahöll-
inni segir að 50 milljón pesosar
(110 milljón ísl. kr.) séu ætlaðir
til þessa verkefnis. Auk þess
sem skæruliðarnir fá greiðslu í
reiðufé þegar þeir skila vopnum
sínum munu þeir einnig fá að-
stoð við að koma undir sig
fótunum í löglegum starfsgrein-
Heimþrá:
Afganskur flóttamaður
aftur til Afganistan
London-Rcuter
■ Háttsettur afganskur
diplómat, sem flúði ásamt
tjölskyldu sinni til Bret-
lands árið 1983, hefur nú
snúið aftur til heimalands
síns eftir að hafa ráðfært sig
við breskan þingmann sem
er þekktur fyrir stuðning við
stjórn Afganistans.
Mohammed Azar Shahe-
em var æðsti maður í sendi-
ráði Afganistans í Bretlandi
þar til hann bað um hæli sem
pólitískur flóttamaður í júní
1983.
Ritari breska félagsins,
Vinir Afganistans, segir að
Shaheem hafi orðið fyrir
vonbrigðum með líf sitt á
Vesturlöndum og því hafi
hann ákveðið að snúa aftur
heim.
S
altekjur hvítra fjölskyldna voru
27.690 dollarar. Svartar fjöl-
skyldur höfðu hins vegar aðeins
15.430 dollara (um 620 þúsund
ísl.kr.) Meðaltekjur
„spænskra" fjölskyldna í
Bandaríkjunum voru 18.830
dollarar.
Aukin við-
skiptatengsl
Pólverja og
Ungverja
Vanjá-Rcutcr.
■ PólverjarogUngverjarhafa
undirritað samkomulag um að
auka viðskipti sín í milli á næstu
fimm árum. Með þessu vilja
þeir m.a. minnka mikilvægi við-
skipta við vestræn ríki fyrir
efnahag sinn.
Að sögn pólskra dagblaða er
gert ráð fyrir því að viðskipti
Pólverja og Ungverja muni auk-
ast um þriðjung á árunum 1985
til 1990 miðað við síðustu fimm
ár. Heildarverðmæti viðskipt-
anna á þessu tímabili er áætlað
um 6,3 milljarðar rúblna (200
milljarðar ísl. kr.).
Mikil áhersla verður lögð á
samvinnu við bílaframleiðslu, í
rafeindaiðnaði, vefnaðariðnaði,
við vélaframleiðslu og við fram-
leiðslu á tækjum fyrir sjúkrahús.
August 27 Rcutcr
LONDON - Major-Gen-
eral Ibrahim Babangida
been named Prcsident
Nigeria folhming a re-
ported military coup,
Western diplomatic sourc-
es said. Babangida was
Chief of ArmyStaff under
former military leader Mo-
5 hammed Buhari, who acc-
(/j ording to Lagos Radio has
been oustcd for not fulfill-
Ul ing Nigerians' hopes.
^ •
CAPE TOWN - South
African police have arrest-
ed anti-apartheid campa-
igner Allan Boesak under
the internal security act
but his lawyer said this
would not deter a mass
march he had planned to
lead tomorrow.
•
PARIS - Prime Minister
Laurent Fabius said
France would ask New
Zealand for more inforin-
Ij, ation on the sinking of the
UJ anti-nuclear protest ship
QC Rainhow Warrior and
promised that those resp-
^ onsiblc could be tried in
I/) France if edentificd. The
ship’s owners, the environ-
5 mentalist group Greenpe-
^ ace, said an ofticial report
on the affair showed
France was readv to use
deceit to defend its nuclear
tests in the Pacific.
•
BONN - Chancellor Kohl
criticised West Germany’s
counter-cspionagc service
over the defection of a top
spy-hunter, and govern-
ment sources said the co-
untry’s intelligence chief
was likely to be dismissed.
! •
1*. NEW DELHI - The Sovi-
$ et Union abruptly closed
QC airspace near the Afghan
border in a move coincid-
^ ing with reports of a major
t/j anti-guerriíla offensive in
Afghanistan. The tempor-
Uj ary ban on international
^ airline tralfic forced a Thai
airliner to turn back to
New Delhi.
CAPE CANAVERAL,
FLORIDA - The U.S.
space shuttlc Discovery
delayed twice by bad weat-
her and a computer
problcm, linally blastcd
off but immcdiately devei-
oped a problem with a sun
shield.
•
GENEVA - U.N. Secret-
ary General Javier Perez
de Cuellar delivercd a
stinging rebuke to the
I*. world’s major nuclear we-
iJJ apons states at the start of
CC a non-proliferation treaty
review conference.
^ •
NAIROBI -The Ugandan
^ rebel National Resistance
ÍU Army (NRA) continued
^ peace talks with the coun-
try’s new military leaders,
but little was disclosed
about their progress.
•
BRUSSELS - The Eur-
| opean Coinmunity put the
. onus on South Africa to
1 decide whether a contro-
| versial visit by three Eur-
opean Foreign Ministers
^ should go ahead later this
| week.
I MUNICH, WEST
GERMANY - A Soviet
soldier dodged gunfire
from Czechoslovak border
I guards and fled into West
Germany a few days ago,
1 W'est German border pol-
| ice said. The said he was
! seeking political asylum.
NEWSINBRIEF