NT - 28.08.1985, Qupperneq 10
Ný tækni við að renna
bremsuskífur
ffi Miðvikudagur 28. ágúst 1985 10
1 y wr Framtíðarsýn
Með VBG rennibekk er hægt að renna skífur
hvort sem er með því að setja tækið beint á
bílinn, eða renna skífurnar lausar.
Upplýsingar hjá AMOS HF.
Síðumúla 3-5 S: 84435
J.R.J. hf. bifreiðasmiðja
Varmahl íð - Sími 95-6119
Klæðningar í jeppa og fólksbíla.
Klæðningar í fólksflutningabíla.
Yfirbyggingar á:
Zuzuki, Pick-up, Nissan Patrol, Toyota Haylux
og aðra pick-up bíia og jeppa.
Almálanir og skreytingar.
Réttingar, stór tjón (ítil tjón.
I
Vanir menn - vönduð vinna.
ATH. - ATH. - ATH.
Þak-, glugga-, múr- og sprunguviðgerðir.
Háþrýstiþvottur - sílanböðun. Pípulagnir
- viðgerðir - viðhald o.fl.
Nota aðeins viðurkennd efni.
Skoða verkið samdægurs og geri tilboð.
Upplýsingar í síma 64-12-74.
Tökum að okkur
Kjarnaborun
Steinsögun
Malbikssögun
Raufarsögun
Förum um allt land
Sími 37461
Skagfirðingar
Hið árlega héraðsmót framsóknarmanna í
Skagafirði verður haldið í Miðgarði laugardaginn
31. ágúst og hefst kl. 21. Ávarp flytur Haraldur
Ólafsson, alþingismaður. Páll Jóhannesson,
óperusöngvari syngur við undirleik Ólafs Vignis
Albertssonar. Signý Sæmundsdóttir syngur létt
Vínarlög við undirleik Þóru Fríðu Sæmundsdótt-
ur. Að skemmtiatriðum loknum leikur hin vinsæla
hljómsveit Geirmundar Valtýssonar fyrir dansi.
Undirbúningsnefnd
Miðstýringin á undanhaldi:
Fjöldasamtök hrynja
saman en minni og
sérhæfðari samtök taka við
■ Efni fimmta kafla bókar
John Naisbitt, „Megatrends" á
við hér á landi sem í Bandaríkj-
unum, þrátt fyrir að áhrif um-
ræddrar meginbreytingar séu
mun merkjanlegri í Bandaríkj-
unum. í kafjanum, sem hann
ncfnir „Frá miðstýringu til vald-
dreifingar", fjallar hann um
endalok Bandaríkjanna sem
eins risastórs massaþjóðfélags,
þar sem allir hugsuðu eins og
höfðu sömu þarfir.
Á sama tíma hverfur raun-
verulegt vald frá þjóðþinginu í
Washington og til fylkisþing-
anna og bæjar- og borgarstjórna
víðs vegar um Bandaríkin.
Fjölmiðlar og
massinn
■ Læknar virðast ekki kæra sig um að vera í heildarsamtökum.
sérfræðinga.
Stærstan hluta þessarar aldar
hafa Bandaríkjamenn verið ein
heild „eins fólks“. í raun hefur
ekki skipt máli hvar í Banda-
ríkjunum fólk er statt - matur-
inn bragðast cins, og er eins,
húsin eru hin sömu, sömu vör-
urnar fást í verslunum og lifnað-
ar- og hugsunarháttur fólksins
er sá sami.
Til viðhalds þessu massasam-
félagi cru „massafjölmiðlar"
nauðsynlegir. Tímaritin Look
og Life seldust í milljónaeintök-
um, ABC, CBS, NBC sýna
sömu sápuóperurnar og í sér-
hverju af bíóum Bandaríkjanna
má líta sömu myndirnar.
Þetta er að breytast. Dagar
risatímaritanna eru liðnir.
í þeirra stað komu sérrit og
fagtímarit. í Bandaríkjunum
eru nú yfir 13.000 sértímarit og
ekkert almennt massatímarit.
Á sama hátt færa sjónvarps-
áhorfendur sig frá stóru sjón-
varpsrásununr yfir til heima-
stöðva og kapalkerfa. Naisbitt
giskar á að um árið 1990 hafi
áhorfendunr stóru sjónvarps-
stöðvanna fækkað um helming
frá því sem nú er.
Og hérna líka
Þessi þróun er merkjanleg
hér á landi einnig. Á síðustu
árum hefur ýmiskonar sértíma-
Vilja heldur minni samtök
ritum fjölgað mjög og virðast
þau flest þrífast ágætlega. Þá
dafna ýmiskonar héraðsblöð
vel.
í fréttum nýlega mátti lesa að
í einum smábæ hérlendis eru
til leigu á videoleigu staðarins,
spólur með heimaunnu efni af
staðnum, og þóttu þær spólur
vinsælar.
Þetta og margt annað er að-
eins vísbending um aukinn
áhuga fólks á sínu næsta um-
hverfi og nrinnkandi áhuga á
valdamiðstýringunni sem hjá
okkur er í Reykjavík, en hjá
þeim í Bandaríkjunum í Wash-
ington.
Þá eru kröfur landsbyggða-
fólks um aukna hlutdeild í
stjórnunarstörfum sífellt að
aukast og stofnuð hafa verið
samtök sem berjast fyrir réttind-
um ákveðinna landshluta. Og
nú nýverið var nriðstýringar-
stofnuninni, Framkvæmda-
stofnun, breytt eða hún öllu
heldur lögð niður. En í staðinn
komu ný miðstýringartæki.
Að öllum Ííkindum munu
kröfur landsbyggðarinnar ekki
hljóðna. Heimamenn vilja
aukna hlutdeild í ráðstöfun
þjóðartekna - og um leið taka
fleiri mál í sínar hendur.
Breyting á
stefnumörkun
■ 42 milljónir kjósenda kusu á móti Reagan. 53% atkvæðisbærra manna kusu í síðustu
forsetakosningum, en 75-80 kjósa í sveitarstjórnarkosningum í Bandaríkjunum.
í Bandaríkjunum segir Nais-
bitt að stefnumótun sé ekki
lengur frá toppi og niður, eða
að Washington gefi út stefnu-
yfirlýsingar senr síðan eigi að
hafa áhrif á fjöldann. Mikið
vald hefur verið flutt til fylkja
og borga, og þaðan kemur
stefnumótunin. En í stað þess
að ein heildarstefna sé látin
móta ákvarðanatöku fyrir alla
heildina. þá verður sú stefna
ofan á á hverjum stað, sem
hentar aðstæðum hverju sinni.
í síðustu forsetakosningum í
Bandaríkjunum, greiddu fjöru-
tíu og tvær milljónir manna
atkvæði gegn Reagan. Fjörutíi/
og þrjár nrilljónir með. Alls
kusu 53% atkvæðisbærra