NT - 28.08.1985, Page 18

NT - 28.08.1985, Page 18
■ Stofnfélagarnir fjórir sem veittu viðtöku heiðursskjölum sínum. Kristinn Þorsteinsson, Jón Benediktsson, Jóhann Frímann og ■'Jóhann Kröyer. Myndirgk GA 50 ára - veglegt afmælishóf að Jaðri Frá Gylfa Kristjánssyni á Akurcyri: ■ Golfklúbbur Akureyrar varð 50 ára hinn 19. ágúst s.l. og var af því tilefni efnt til veglegs afmælishófs í skála klúbbsins að Jaðri. í hófið mættu um 150 manns, og voru í þeirra hópi fjórir af þeint átta stofnendum klúbbsins sem eru á lífi, fjölmargir eldri félagar GA sem eru hættir að leika golf, fulltrúar íþrótta- sambands íslands, Golfsam- bands íslands, golfkúbba víðs- vegar um land og margir núver- andi félagar klúbbsins. í hófinu var Jóni Sólnes af- hent æðsta heiðursmerki íþróttasambands íslands, pg þeir Frímann Gunnlaugsson og Gunnar Sólnes fengu gullmerki ÍSf. Gullmerki Golfsambands Is- lands hlutu Jón G. Sólnes, Jón Guðmundsson, Sigtryggur Jú- líusson og Frímann Gunnlaugs- son og silfurmerki golfsam- bandsins hlutu Sigurður Stefánsson, GunnarSólnes, Sig- urbjörn • Bjarnason, Gunnar Þórðarson, Árni Jónsson, Gísli Bragi Hjartarson, Magnús Guðmundsson, Inga Magnús- dóttir, Birgir Björnsson, Gylfi Kristjánsson og Þórarinn B. Jónsson. Stofnfélagarnir 8 sem eru á lífi voru allir sæmdir heiðurs- merki Golfklúbbs Akureyrar sem nú voru veitt í fyrsta skipti. Þeir stofnfélagar GA sem eru á lífi eru Jakob Frímannsson, Svanbjörn Frímannsson, Óli P. Kristjánsson, Sverrir Ragnars, Jón Benediktsson, Kristinn Þor- steinsson, Jóhann Kröyer og Jóhann Frímann og voru þeir fjórir síðasttöldu viðstaddir. Þá veitti Golfklúbbur Akur- eyrar einnig gullmerki, silfur- merki og þeir félagar GA sem orðið hafa íslands- og Akureyr- armeistarar fengu aflient afreks- merki klúbbsins. Golfklúbbi Akureyrar bárust margar veglegar gjafir á afmælishátíðinni sem fór mjög vel fram, skemmtiatriði voru flutt og setið yfir góðum mat og drykk fram á nóttu. Öldungagolfmót ■ Um síðustu helgi fór fram Leirumótið í golfi, opin keppni öldunga. Leiknar voru 18 holur á Hólmsvelli í Leiru og jafn- framt voru vígðar tvær síðustu brautirnar í 18 holu hringnum. Hólmsvöllur skartaði sínu feg- ursta og lýstu menn mikilli ánægju með nýju holurnar og völlinn sem er að flestra mati einn sá besti á landinu. Leikið var í tveimur flokkum 50-54 ára og 55 ára og eldri - með og án forgjafar. Síðan var 18 holu púttkeppni á eftir. Úrslit urðu: Flokkur 55 ára og eldri: ón forgj: 1. Jóhann Benedikts 79 GS 2. Þorbjörn Kærbo 80 GS 3. Marteinn Guðjóns 81 GV GV 69 GS 70 GK 71 GK 63 GS 67 GL 72 GK 78 GL 87 GS 87 med forgj.: 1. Marteinn Guðjóns. 2. Jóhann Benedikts 3. Sveinn Snorrason Flokkur 50-54 ára: án forgj: 1. Ásgeir Nikuláss 2. Astþór Valgeirs 3. Jón B. Jónsson með forgj: 1. Ásgeir Nikulóss 2. Jón B. Jónsson 3. Ástþór Valgeirs Jafnhliða keppninni fór fram 18 holu púttkeppni. Þar var bestur í eldri flokki Jón Þor- steinsson á 32 höggum. í yngri var Ragnar Helgason bestur á 33 höggum. Aukaverðlaun voru veitt þeim er hlutu flestar „sexur“ í mótinu. Þar hlutu Viðar Samúelsson alls 9 „6ur“ og Garðar Jónsson GS sjö „6ur". ■ Gísli Bragi Hjartarson formaður G A og Hannes Guðmundsson fulltrúi GR með málverk á milli sín er GA fékk að gjöf frá GR. Frjálsar íþróttir: Öldungakeppni ■ Meistaramót öldunga í frjálsunt íþróttum verðurhaldið á frjálsíþróttavellinum í Laugardal laugardaginn 7. september. Mótiðerætlað körl- um sem eru 35 ára eða eldri og konum sem eru 30 ára eða eldri og er keppt í aldursflokkunr (30-34, 35-39, 40-44 o.s.frv.) Skráning þarf að hafa borist skrifstofu FRÍ eða til öldunga- ráðsmanna FRÍ (Höskuldur (667141), Kjartan (52848), Ólafur (75292)) fyrir mánudags- kvöld 2. september. Keppt verður í öllum venjulegum meistaramótsgreinum sem 3 eða fleiri skrá sig í. Mótið verður í tveim hlutunr. Fyrri hlutinn fer fram kl. 10-12 en sá síðari hefst kl. 14. Fyrir hádegi má gera ráð fyrir að keppt verði í llOm grinda- hlaupi, 100 m hlaupi karla og kvenna, 1500m hlaupi, sleggju- kasti, spjótkasti karla og kvenna og langstökki karla og kvenna, ef nægilega margir skrá sig í þessar greinar. MOLAR MOLAR MOLAR ■ ...V-Þjóðverjar og Brasi- líumenn munu mætast í knatt- spyrnuleik í V-Þýskalandi þann 12. mars á næsta ári. Þetta er liður í undirbúningi Þjóðverja fyrirHM í Mexíkó næstasumar. Þá hafa Þjóðverjar einnig ákveðið leiki við ítali 4.febrúar og Sviss þann 9. apríl. Þjóðverj- ar eru svo til öruggir í úrslitin í Mexíkó... ...Búlgarinn Alexander Var- banov setti heimsmet í milli- þungavigt í lyftingum í fyrra- kvöld. Varbanov lyftir 211,5 kg í réttstöðulyftu og er það heims- met... mörk í opnunarleik brasilísku knattspyrnunnar. Zico sem nú leikur með Flamengo átti einnig stóran þátt í hinum mörkum liðsins en þau urðu alls fimm gegn Bonsucesso... ...Kanadamenn sigruðu Hondúrasbúa í undankeppni HM með einu marki gegn engu í Hondúras um daginn og eiga nú mikla möguleika á að komast til Mexíkó á úrslitakeppnina. Liðið hefur þrjú stig í riðlinum en Hondúras og Costa Rica eitt hvor þjóð. Það var varamaður- inn Pakos sem skoraði á 60. mínútu... ...Brassinn ZICO skoraði tvö Enska knattspyrnan ■ Hér koma úrslit í ensku knattspyrn- unni á mónudagskvöldið sem ekki birt- ust í blaðinu í gær: 1. deild: Birmingham-Oxíord ............... 3-1 Coventry-Newcastle............... 1-2 West Brom.-Man.City.............. 2-3 2. deild: Fulham-Grimsby................... 2-1 Huddersfield-Portsmouth.......... 1-2 Norwich-Barnsley................. 1-1 Sunderl.-Oldham.................. 0-3 3. deild: Brentford-Bournem................ 1-0 Bristol-Gillingham............... 1-2 Darlington-Blackpool ............ 2-1 Derby-Wolves.................... 4-2 Lincoln-Walsall ................ 3-2 Newport-Cardiff................. 1-2 Reading-Bristol ................ 3-2 Swansea-Plymouth................ 0-2 York-Wigan ..................... 4.1 Bolton-Bury .................... 1-4 Notts County-Doncaster.......... 1-1 4. deild: Chester-Hartlepool ............. 1-1 Exeter-Northampton.............. 1-2 Scunthorpe-Wexham............... 1-1 Swindon-Torquay ................ 2-1 Burnley-Port Vale .............. 1-2 Preston-Tranmere................ 2-2 Rochdale-Stockport ............. 4-1 ■ Sigurvegarar á öldunganiótinu í Leirunni. Miðvikudagur 28. ágúst 1985 18 Urslitaleikurinn í bikarkeppni: Valur og ÍA - leika til úrslita eins og í fyrra ■ Á morgun verður stóri leikurinn í kvennaknattspyrn- unni hér á landi er Valur og ÍA mætast í úrslitum bikarkeppn- innar á Laugardalsvelli kl. 18.30. Valsstúlkurnar eru nú- verandi bikarmeistarar en þær sigruðu Skagastúlkurnar í úr- slitaleik í fyrra með sex mörkum gegn fjórum. Það eru sem sagt þessi sömu lið sem mætast ann- að árið í röð. Bikarkeppni kvenna er nú á dagskránni í fimmta sinn. Breiðablik hefur oftast unnið bikarinn eða fyrstu þrjú árin. Fyrst unnu Blikastúlkurnar Val 4-0 og árið eftir léku þessi lið á ný og enn sigruðu Blikar, nú 7-6. Árið 1983 léku Blikastúlk- urnar við í A og sigruðu 3-1 en í fyrra léku sem sagt Valur og í A. Skagastúlkurnar hafa nú yfir- burðarforystu á íslandsmótinu og hafa verið ósigrandi í ár. Þær fóru einnig nýlega til Hollands og sigruðu þar á miklu kvenna- knattspyrnumóti þannig að lið þeirra verður að teljast sigur- stranglegra. Valsstúlkurnar hafa verið að sækja sig mjög eftir frekar slaka byrjun og þær lögðu Breiðablik í undanúrslitum bikarsins. Þá fór Valsliðið í keppnisferð til Ítalíu og stóð sig þar með sóma. Það má því búast við að hart verði barist á morgun urn bikarinn. Evrópukeppnir: Úrslitaleikir ■ ...Knattspyrnusam- band Evrópu UEFA, hefur ákveðið að flytja úrslitaleikina í hinum þremur Evrópukeppnum félagsliðpa fram, til að gefa landsliðum Evrópu meiri tíma til að undirbúa sig undir úrslitakeppni HM í Mexíkó. Úrslita- leikurinn í Evrópukeppni meistaraliða verður því 7. maí, en ekki hinn 14. eins og ráðgert hafði verið. Úrslitaleikur Evrópukeppni bikarhafa verður 2. inaí og úrslita- leikirnir tveir í UEFA- keppninni verða 30. apríl og annað hvort 6. eða 8. maí... Baráttan harðnar: Hverjir hreppa meistaratitilinn? verða Framarar líka íslandsmeistarar? ■ Ráðast úrslit 1. deildar Is- landsmótsins í knattspyrnu ekki fyrr en þann 14. september, næstsíðasta keppnisdag mótsins? Sú spurning gerist æ áleitnari því einmitt þann dag leiða saman hesta sína Fram og ÍA á Laugardalsvellinum og Víðir og Þróttur á nýja grasvell- inum í Garðinum. Tveimur dögum fyrr leika að vísu Valur og KR og sá leikur gæti vissulega ráðið því hvaða nafn verður letrað á íslands- meistaratitilinn. En bæði þessi lið eiga eftir mjög erfiða leiki, Valsmenn þó sýnu erfiðari. Valur á næsta leik gegn ÍA upp á Skaga og annan erfiðan útileik gegn Keflavík. Heima eiga þeir eftir Víði og KR. Þótt Valsmenn séu með sterkt lið núna, má kallast gott nái þeir sjö stigum út úr þessum þremur leikjum og þeir myndu þá verða komnir með 35 stig. KR á eftir leikinn við Val og Þór á útivelli. í næstu umferð leika þeir við Fram og svo eiga þeir eftir heimaleik gegn Víði. Segjum fimm stig úr þessum leikjum. Þeir væru þá komnir með 32 stig. Fram á eftir áðurnefnda leiki við KR og ÍA og auk þess leik gegn FH á útivelli og gegn Þrótti á heimavelli. Þeir gætu því verið komnir með 36 stig fyrir leikinn gegn ÍA, nái þeir sjö stigum út úr hinum þremur. ÍA er í dag með 26 stig og á eftir leiki gegn Val og Víkingi upp á Skaga og ÍBK og Fram á útivelli. Þeir gætu einnig náð sjö stigum út úr þremur fyrstu nefndu leikjunum og því verið komnir með 33 stig fyrir Fram leikinn. Að öllu óbreyttu myndi sigur því „nægja" þeim til að halda titiinum, sem þeir unnu í fyrra, þar sem markatala liðsins er svo miklu betri. Þór er með 25 stig og gæti einnig sett strik í reikninginn því liðið á frekar létta andstæð- inga eftir. KR og FH á heima- velli, og Þrótt og Víði á útivelli. En útisigrarnir eru sýnd veiði en ekki gefin vegna þess að Þórslið- ið á Akureyri og Þórsliðið sunn- an heiða eru tveir ólíkir hlutir. Auk þess eiga bæði Þróttur og Víðir við fallbaráttudrauginn að glíma og munu eflaust selja sig dýrt. Hvað með ÍBK? Liðið hefur jafnmörg stig og Norðan- mennirnir og „auðvelda“ leiki gegn FH og Víkingi eftir á útivelli. En heimaleikirnir verða erfiðir, gegn ÍA og Val. Víkingur er svo gott sem fallið og Þróttur og Víðir koma til með að berjast á banaspjót- um til að forðast 2. deildina. Víðir er nú með 12 stig, tveimur meira en Þróttur og að því gefnu að bæði liðin sigri Þór gæti innbyrðisleikur þessara liða í Garðinum skipt öllu máli. En Þróttur á að vísu eitt tromp á hendi sér, heimaleik gegn Vík- ingi. Og verði úrslit þar með eðlilegum hætti myndu Þróttar- ar aðeins þurfa jafntefli í Garð- inum hinn 14. september næst- komandi. Staðan í 1. deild er nú þessi, en næstu leikir verða 28. ágúst. Fram ................... 14 9 2 3 28-20 29 Valur .................. 14 8 4 2 22-10 28 KR...................... 14 8 3 3 29-18 27 ÍA ..................... 14 8 2 4 30-16 26 ÍBK .................... 14 8 1 5 24-15 25 Þór..................... 14 8 1 5 22-19 25 FH...................... 14 5 1 8 18-26 16 Víðir................... 14 3 3 8 16-30 12 Þrótlur ................ 14 3 1 10 15-28 10 Víkingur ................14 1 0 13 12-32 3 í kvöld ■ í kvöld hefst 15. umíerð 1. deildar í knattspyrnu. Skaga- menn taka á móti Valsmönnum á Skaganum. Víðismenn fá Þór í heimsókn og Þróttur og Vikingur mætast á Laugardalsvelli. Allir leikirnir hefjast kl. 18:30. Þá verður leikið í úrslitum 4. deildar og þar eigast við Augnablik og ÍR i hreinum úrslitaleik í suður- landsriðlinum. Sá leikur hefst i Kópavogi kl. 18:30.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.