NT - 30.08.1985, Side 1
HP í útvarpsrekstur
með nýjum hluthöfum
Eykur hlutafé í 6 milljónir króna
■ Útgáfufyrirtækið Goðgá,
sem gefur út Helgarpóstinn,
hefur ákveðið að auka hlutafé
fyrirtækisins um 3,4 milljónir
upp í 6 milljónir samtals. Uppi
eru hugmyndir um útvarps-
rekstur, og einnig verður við-
bótarhlutaféð notað til þess að
koma starfsemi Helgarpóstsins
í eigið húsnæði.
Ingólfur Margeirsson ritstjóri
HP sagði í samtali við NT í gær,
að þegar hefði verið gengið frá
munnlegu samkomulagi við þrjá
aðila, um kaup á hlutabréfum
Þeir eru Rolf Johansen, Pórodd-
ur Stefánsson í Sjónvarpsbúð-
inni og Halldór Halldórsson rit-
stjóri. Stjórn HP hefur sam-
þykkt þessa menn, en það var
skilyrði, af hendi stjórnarinnar,
að hún samþykkti verðandi
hlutafjáreigendur. Þessum
mönnum hafa samtals verið
boðnar tvær milljónir króna.
Ingólfur sagði að mörgum
aðilum hefði verið boðin aðild.
Meðal þeirra er Ásgeir Hannes
pylsusali. Endanleg ákvörðun
um fleiri hluthafa verður tekin
á stjórnarfundi á mánudag.
„Ætlunin með þessari hluta-
fjársöfnun er að fá inn menn
sem eru áhugamenn um út-
varpsrekstur og geta komið
okkur að liði þar,“ sagði Ingólf-
ur þegar hann var inntur eftir
því hvort undirbúningur fyrir
útvarpsstöð væri hafinn.
Sjónvarpsstöð, er hún á döf-
inni? „Við erum opnir fyrir
öllu.“
Kína:
Kynhvötin
eyðilagði
Peking-Reuter
■ Kínverskt æskulýðs-
tímarit segir að einn af
fremstu gítarleikurum Kína
hafi verið rekinn úr hljóm-
sveit í Shanghai eftir að
hann þungaði hvað eftir
annað tvær ungar stúlkur
sem störfuðu hjá hljómsveit-
inni.
Blaðið gagnrýndi stjórn
hljómsveitarinnar fyrir að
hafa látið dragast að refsa
gítarleikaranum sem ekki
var nefndur með nafni. Eng-
inn hafi fundið að siðspilltu
ástarlífi hans en það leiddi
til þess að tvær stúlkur
neyddust til þess að fara
samtals níu sinnum í fóstur-
eyðingu.
immiætímm
■Wtil
Kópavogur:
Þrír flutt-
ir á slysa-
deild
■ Harður árekstur varð í
gærmorgun rétt fyrir klukkan
átta, á gatnamótum Nýbýlaveg-
ar og Auðbrekku í Kópavogi.
Þrír bílar skullu saman, og af
fjórum sem í bílunum voru,
þurfti að flytja þrjá á slysadeild.
Ekki er talið að um alvarleg
meiðsli hafi verið að ræða. Þeg-
ar áreksturinn varð, var mjög
sterkt sólskin, sem taiið er að
hafi blindað ökumennina.
Má bjóða þér
áskrift á
tilboðsverði?
■ Heimilissýningin byrj-
aði í gær með pomp og
prakt. Vigdís heimsótti
meðal annars NT þar sem
Helgi Pétursson bauð
henni sérstaka tilboðs-
áskrift að NT, aðeins 150
kr. á mánuöi, en of seint.
Vigdís fær NT á hverjum
morgni eins og svo margir
aðrir.
Sjá nánar af opnun
heimilissýningarinnar bls.
13.
ieeev|«»l
Lífeyrisgreiðslur 1984:
Til aldraðra þingmanna 25 millj.
en aldraðra sjómanna 33 milljónir
Iðgjaldagreiðslur sjómanna voru hins vegar 3220% hærri
■ Lífeyrisgreiðslur úr lífeyris-
sjóðum alþingismanna og ráð-
herra til lífeyrisþega úr þeirra
röðum námu á síðasta ári litlu
lægri upphæð en samsvarandi
greiðslur úr Lífeyrissjóði sjó-
manna. Sem kunnugt er, eru
starfandi þingmenn og ráðherr-
ar 60 talsins hverju sinni, en
starfandi sjómenn um 6.000,
eða um 100 sinnum fleiri. Þótt
stundum heyrist að aflaháir sjó-
menn nái ráðherralaunum og
jafnvel meiru virðist ljóst að þá
skortir töluvert á að ná ráð-
herraeftirlaunum. Hvað iðgjöld
til sjóðanna snertir voru ið-
gjaldagreiðslur sjómanna
3220% hærri en iðgjöld þing-
manna og ráðherra.
Greiddur lífeyrir úr lífeyris-
sjóðum alþingismanna og ráð-
herra nam samtals um 25,4
millj. króna á síðasta ári og
hafði hækkað um 56% milli ára.
Lífeyrisgreiðslur úr Lífeyris-
sjóði sjómanna námu hins vegar
samtals um 33,7 millj. króna,
eða aðeins 8,3 millj. króna hærri
upphæð.
Sá var og niunur á þessum
greiðslum, að lífeyrir til aldr-
aðra sjómanna og ekkna þeirra
var að nær öll leyti greiddur úr
þeirra lífeyrissjóði. Af 25,4
milljóna lífeyri til fyrrverandi
þingmanna og ráðherra komu
hins vegar tæpar 5 millj. úr
sjóðum þeirra en yfir 20 millj.
króna beint úr sjóðnum okkar
allra - ríkissjóði.
Annar glöggur munur er á
iðgjaldagreiðslum félagsmanna
til sjóða sinna. Heildariðgjalda-
greiðslur (launþega og atvinnu-
rekenda) í lífeyrissjóði alþing-
ismanna og ráðherra námu tæp-
lega 3,7 millj. króna, eða um
sjöunda hluta þeirrar upphæðar
sem þeir þurftu að greiða í
lífeyri á árinu. Heildariðgjalda-
greiðslur vegna sjómanna námu
hins vegar um 124 millj. króna,
eða nær fjórfaldri upphæð
greidds lífeyris á árinu.
Afkoma þessara sjóða er því
eðlilega mjög mismunandi.
Hrein eign Lífeyrissjóðs sjó-
manna nam um 1.068 millj.
króna um síðustu áramót, eða
um 32-faldri upphæð lífeyris-
greiðslna á síðasta ári. Hefur þó
oft heyrst á sjómönnum að þeir
óttast um getu sjóðsins til að
standa við skuldbindingar sínar
um greiðslu lífeyris í framtíð-
inni. Hrein eign lífeyrissjóða
alþingismanna og ráðherra var
hins vegar kr. 0 í hvorum. Úr
þeirra röðum hefur þó ekki
heyrst að þeir óttist um ótrygg
lífeyrisréttindi í framtíðinni.
IMT fylgist með slátrun í Borgarnesi -sjábis.24