NT - 30.08.1985, Side 15
Igira framundan
Föstudagur 30. ágúst 1985 15
Rás 2 laugardag kl. 21.
Slagarar millistríðsáranna
■ Jón Gröndal kemur víða við þegar hann rifjar upp vinsælustu
slagara millistríðsáranna, enda eru þeir víða að. Þar eru t.d. þau
dönsku og þýsku dægurlög þeirra tíma, sem enn ylja eldra fólki
um hjartaræturnar.
■ Milli stríða kallast þáttur,
sem Jón Gröndal hefur stjórn-
að á Rás 2 á laugardagskvöld-
um kl. 21-22 í sumar. Sjálfsagt
átta sig flestir á því hvað í
nafninu felst, en í þáttunum er
að sjálfsögðu fjallað um tíma-
bilið milli heimsstyrjaldanna
og gott betur, því að tíminn er
teygður allt til u.þ.b. 1950.
En nafn þáttarins segir ekki
alla söguna. Að vísu segist Jón
halda sig við slagara þessara
ára og síður en svo einskorða
sig við þá, sem frá engilsaxn-
eskum þjóðum hafa komið,
þar sé einnig að finna vinsæla
tónlist frá ýmsum Evrópulönd-
um t.d., s.s. Þýskalandi og
Danmörku, og ætti þar margt
eldra fólk að vera með á nótun-
um, því að einmitt mörg vin-
sælustu lögin hér á landi á
millistríðsárunum komu ein-
mitt frá þessum nágrannalönd-
um, ekki síst með músíköntum
þaðan, sem hingað lögðu leið
sína.
Og ekki er hjalið milli laga í
þættinum innihaldslaust. Þar
eru dregnar fram ýmsar sögu-
legar staðreyndir og fréttir
þessara tíma í stuttu máli og
þykir mörgum fróðlegt.
í hverjum þætti tekur Jón til
umfjöllunar ákveðið ár, eða
jafnvel fleiri en eitt. í þættinum
á morgun er hann ákveðinn í
að veita árinu 1928 sérstaka
athygli, en óvíst var þegar við
hann var talað að fleiri ár
fengju að fljóta með í þetta
sinn.
Sjónvarp laugardag kl. 21.05:
Tónlistarhátíð
- þegar hljómsveit kveður
■ Annað kvöld kl. 21.05
hefst tæplega tveggja klukku-
stunda löng sýning frá síðustu
tónleikum hljómsveitarinnar
„The Band“ sem fram fóru í
San Francisco á þakkarhátíð-
ardegi Bandaríkjamanna
1976. Þátturinn kallast Síðasti
valsinn.
í þætti þessum koma fram
ýmsir þeir sem mest létu að sér
kveða í rokkheiminum á árun-
um oeggja vegna við 1970.
saman er tvinnað viðtölum við
meðlimi „The Band“.
Stjórnandi myndarinnar er
Martin Scorsese. Þýðandi er
Reynir Harðarson.
■ Meðal þeirra sem koma
fram í Síðasta valsinum er t.d.
Bob Dylan, en auk hans má
nefna Neil Young, Eric
Clapton, Ringo Starr og fjöl-
marga fleiri.
Afmælisgestir Jazzvakningar
í djassþætti
■ DjassþátturíumsjónTóm-
asar R. Einarssonar verður í
útvarpinu á sunnudagskvöld
kl. 22.50 og vcrða nú kynntir
nokkrir af þeim listamönnum
sem koma á 10 ára afmælishá-
tíð Jazzvakningar 12.-15. sept-
ember.
Þar má m.a nefna söngkon-
una Ettu Cameron. Hún er
fædd á Bahamaeyjum en flutt-
ist barnung til Bandaríkjanna,
þar sem hún starfaði lengi vel.
Síðustu árin hefur hún verið
búsett í Kaupmannahöfn og
þaðan heldur hún í tónleika-
ferðir um Evrópu. Hún kom
fram í dömkum sjónvarpsþætti
fyrir viku svo að hlustendur
hafa þegar haft af henni nokkur
kynni.
Pétur Östlund er annar
kærkominn gestur á afmælishá-
tíðina. Hann cr búsettur í
Svíþjóð en hér ætlar hann að
leika með tríói Niels-Henning
Örsted Pedersen, sem og sinni
eigin hljómsveit, Emphasis on
Jazz. f útvarpsþættinum leikur
hann með þeirri hljómsveit og
tekur líka nokkurrá mínútna
trommusóló.
16.20 Þættir úr sögu íslenskrar
málhreinsunar Fyrsti þáttur af
fjórum: „Af siðbótarfrömuðum og
fornmenntavinum". Umsjón: Kjart-
an Ottósson. Lesari: Stefán
Karlsson.
17.00 Fréttir á ensku.
17.05 Siðdegistónleikar a. Trompet-
konsert í D-dúr eftir Gottfried Heinr-
ich Stölzel. Maurice André og St.
martin-in-the-Fields hljómsveitin
leika. Neville Marriner stjórnar. b.
„Scheherazade". Svíta op. 35 eftir
Rimskí-Korsakoff. Rainer Köhl
leikur á fiðlu með Fílharmoníu-
sveitinni í Vínarborg; André Previn
stjórnar.
18.00 Bókaspjall Áslaug Ragnars
sér um þáttinn.
18.15 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. 19.30 Tilkynning-
ar.
19.35 Tylftarþraut. Spurningaþátt-
ur. Stjórnandi: Hjörtur Pálsson.
Dómari: Helgi Skúli Kjartansson.
20.00 Sumarútvarp unga fólksins.
Blandaður þáttur í umsjón Jóns
Gústafssonarog Ernu Arnardóttur.
21.00 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
21.30 Útvarpssagan: „Sultur" eftir
Knut Hamsun. Jón Sigurðsson
frá Kaldaöarnesi þýddi. Hjalti
Rögnvaldsson les (6).
22.00 „Ég sái ljóði“ Erlingur Gísla-
son les áður óbirt Ijóð eftir Gunnar
Dal.
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 (þróttaþáttur. Umsjón: Ingólfur
Hannesson.
22.50 Djassþáttur - Tómas R. Ein-
arsson.
23.35 Guðað á glugga (24.00 Fréttir)
Umsjón: Pálmi Matthíasson.
RÚVAK.
00.50 Dagskrárlok.
Föstudágur
30. ágúst
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Ásgeir Tómasson og Páll
Þorsteinsson
14.00-16.00 Pósthólfið Stjórnandi:
Valdis Gunnarsdóttir
16.00-18.00 Léttir sprettir Stjórn-
andi: Jón Ólafsson
Þriggja mínútna fréttir sagðar
klukkan: 11.00,15.00,16.00 og 17.00
Hlé
20.00-21.00 Lög og lausnir Spurn-
ingaþáttur um tónlist. Stjórnandi:
Sigurður Blöndal
21.00-22.00 Bögur Stjórnandi: And-
rea Jónsdóttir.
22.00-23.00 Á svörtu nótunum
Stjórnandi: Pétur Steinn Guð-
mundsson
23.00-03.00 Næturvaktin Stjórnend-
ur: Vignir Sveinsson og Þorgeir
Ástvaldsson
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar1
Laugardagur
31. ágúst
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
andi: Einar Gunnar Einarsson
14.00-16.00 Við rásmarkið Stjórn-
andi: Jón Ólafsson ásamt Ingólfi
Hannessyni og Samúel Erni
Erlingssyni.íþróttafréttamönnum
16.00-17.00 Listapopp Stjórnandi:
Gunnar Salvarsson
17.00-18.00 Hringborðið Hring-
borðsumræður um músík. Stjórn-
endur: Magnús Einarsson og Sig-
urður Einarsson.
Hlé
20.00-21.00 Línur Stjórnandi: Heið-
björt Jóhannsdóttir
21.00-22.00 Milli stríða Stjórnandi:
Jón Gröndal.
22.00-23.00 Bárujárn Stjórnandi:
Sigurður Sverrisson
23.00-00.00 Svifflugur Stjórnandi:
Hákon Sigurjónsson
00.00-03.00 Næturvaktin Stjórnandi:
Margrét Blöndal.
Rásirnar samtengdar að lokinni
dagskrá rásar1
Sunnudagur
1. september
13.30-15.00 Krydd í tilveruna
Stjórnandi: Helgi Már Barðason
15.00-16.00 Dæmalaus veröld Þátt-
ur um dæmalausa viðburði liðinnar
viku. Stjórnendur: Þórir Guð-
mundsson og Eirikur Jónsson.
16.00-18.00 Vinsæidalisti hlust-
enda Rásar 2 20 vinsælustu lögin
leikin. Stjórnandi: Gunnlaugur
Helgason
Föstudagur
30. ágúst
19.15 Á döfinni Umsjónarmaður Karl
Sigtryggsson.
19.25 Taktu nú eftir, Simba (Ser du
efter, Simba?) Dönsk barnamynd
um fimm ára dreng og pabba hans
en þeir feðgar eiga heima í Afríkur-
íkinu Zimbabwe. Þýðandi Jóhanna
Jóhannsdóttir. (Nordvision -
Danska sjónvarpið)
19.50 Fréttaágrip á táknmáli
. 20.00 Fréttir og veður
20.40 Skonrokk Umsjónarmenn
Haraldur Þorsteinsson og Tómas
Bjarnason.
21.05 Heldri manna lif (Aristocrats)
Fimmti þáttur. Breskur heimilda-
myndaflokkur í sex þáttum um
aðalsmenn í Evrópu. I þessum
þætti kynnumst við Medinaceli
aðalsættinni á Spáni og litumst um
á heimili fjölskyldunnar í Sevilla.
Þýðandi Ragna Ragnars.
22.00 Maðurinn á þakinu (Mannen
pá taket) Sænsk bíómynd frá
1976, gerð eftir samnefndri saka-
málasögu eftir Maj Sjöwali og Per
Wahlöö. Leikstjóri Bo Widerberg.
Aðalhlutverk: Carl Gustaf
Lindstedt, Sven Wollter, Thomas
Hellberg, Hákan Serner, Birgitta
Valberg og Eva Remaeus. Lög-
regluforingi er myrtur og Martin
Beck tekur þátl i leitinni að morð-
ingjanum. Hann finnst á húsþaki
þar sem hann reynist ekki auðsótt-
ur. Myndin er ekki við hæfi barna
Þýðandi Jóhanna Þráínsdóttir.
23.50 Fréttir í dagskrárlok.
Laugardagur
31. ágúst
17.00 (þróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
19.10 Hver er hræddur við
storkinn? (Vem ár rádd för
storken?) 3. þáttur. Finnskur fram-
haldsmyndaflokkur í þremur þátt-
um um sumarleyfi þriggja hressra
krakka. Þýðandi Kristín Mántylá.
(Nordvision - Finnska sjónvarpið).
19.50 Fréttaágrip á taknmáli
20.00 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Allt í hers höndum (Allo, Allo!)
Lokaþáttur. Breskur gaman-
myndaflokkur í átta þáttum. Leik-
stjóri David Croft. Aðalhluverk:
Gorden Kaye. Þýöandi Guðni Kol-
beinsson.
21.05 Síðasti vaisinn (The Last
Waltz) Bandarísktónlistarmyndfrá
siðustu tónleikum hljómsveitarinn-
ar „The Band“ ásamt Bob Dylan
áriö 1976. Ýmsir kunnir hljómlistar-
menn tóku þátt í þessum kveðju-
tónleikum, svo sem Eric Clapton,
Ringo Starr, Neil Diamond o.fl.
Einnig er rætt við listamennina og
rokksagan rifjuð upp. Þýðandi
Reynir Harðarson.
23.00 Fjölskyldubönd (Le clan des
Siciliens) Frönsk bíómynd frá
1970. Leikstjóri Henri Verneuil.
Aðalhlutverk: Jean Gabin, Alain
Delon, Lino Ventura og Irina
Demick. Söguhetjan á að baki rán
og manndráp og hans bíður
þyngsta refsing. Honum tekst að
smjúga úr greipum lögreglunnar
og tekur að undirbúa mikið skart-
griparán með sikileyskum athafna-
manni. Þýðandi Pálmi Jóhannes-
son.
01.05 Dagskrárlok.
Sunnudagur
1. september
18.00 Sunnudagshugvekja Séra
Myako Þórðarson, prestur heyrn-
leysingja, flytur.
18.10 Bláa sumarið (Verano Azul)
Fjórði þáttur. Spænskur fram-
haldsmyndaflokkur í sex þáttum
um vináttu nokkurra ungmenna á
eftirminnilegu sumri. Þýðandi Ás-
laug Helga Pétursdóttir.
19.10 Hlé
19.50 Fréttaágrip á taknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.25 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Sjónvarp næstu viku
20.50 Á ystu nöf - Eggjataka í
Bjarnarey Bjarnarey nefnist ein
Vestmannaeyja. Þangað brugðu
sjónvarpsmenn sér í sumar, fylgd-
ust með bjargsigi og eggjatöku og
ræddu við Hlöðver (Súlla)
Johnsen, fararstjóra og eyjarkarl,
sem kann frá mörgu að segja úr
slíkum ferðum. Umsjónarmaður
Páll Magnússon. Stjórn upptöku:
Óli örn Andreassen.
21.40 Hitlersæskan (Blut und Ehre)
Lokaþáttur. Þýskur framhald-
smyndaflokkur í fjórum þáttum.
Þýðandi Veturliði Guðnason.
22.40 Samtímaskáldkonur 5. Eeva-
Liisa Manner I þessum þætti er
rætt við eina þekktustu skáldkonu
Finna nú á dögum. Hún hefur
einkum ort en einnig ritað leikrit og
sögur. Þýðandi Kristín Mántylá.
(Nordvision - Finnska sjonvarpið)
23.30 Dagskrárlok.