NT - 17.09.1985, Blaðsíða 12
Þriðjudagur 17. september 1985 12
SUF ítrekar kröfur um hækkun skatta á hátekjur:
Mikilvægara að ná saman
nallalausum fjárlögum
- en standa gegn öllum skattahækkunum, segir Vilhjálmur Egilsson formaður SUS
■ Hátekjuskattur, hækkun eigna-
skatts, hækkun skatts á skrifstofu- og
verslunarhúsnæði eru sjálfsagðar og
sanngjarnar tekjuöflunarleiðir eins
og málum er nú háttað," segir m.a. í
stjórnmálaályktun stjórnar Sam-
bands ungra framsóknarmanna sem
fundaði á Bifröst um helgina. Jafn-
framt er hvatt til sparnaðar og hag-
ræðingar í fjárfrekustu ráðuneytun-
um eins og menntamála-, heilbrigðis-
og tryggingamálaráðuneytunum og
varað við því að velta aðsteðjandi
vanda yfir á herðar komandi kynslóða
með erlendri skuldasöfnun og stjórn-
lausri veiði á fiskistofnunum.
„Þessi ályktun kemur á þeim tíma,
þegar verið er að ganga frá afdrifarík-
ustu fjárlögum þessarar ríkisstjórnar.
Hún verður metin eftir jíessum
verkum, þegar næst verður gengið að
kjörborðinu," sagði Finnur Ingólfs-
son formaður SUF t' samtali við NT í
gær. „Þeir eru líka of margir hag-
fræðingarnir í röðum ungljðanna í
Sjálfstæðisflokknum, fyrst þeim dett-
ur í hug að skattalækkanir geti átt við
á þessum tímum. Verðbólgan er núna
föst á bilinu 30-40% miðað við eitt ár
og hún fær hækkandi. Þenslan er
gífurlega mikil, það sést alls staðar á
vinnumarkaðnum og kemur glöggt
fram í launaskriði. Erlendar skuldir
fara hækkandi. Við slíkar aðstæður
ber að reka ríkissjóð hallalausan. Þá
kemur tvennt til. í fyrsta lagi verður
að hækka skatta við þá sem geta borið
skatta. Þeir sem geta það eru hátekju-
menn. Þess vegna verður að fresta
því að hrinda í framkvæmd þings-
ályktunartillögunnar sem samþykkt
var fyrir tveim árum um lækkun
tekjuskatts. Það þarf að skattleggja
eignir þess fólks sem getur borgað og
ná til þess fólks sem gat eignast
stóreignir á þeim tímum þegar verð-
bólga var mikil og peningar óverð-
tryggðir. Ábyrgir stjórnmálamenn
mega ekki hlaupa frá vandanum þótt
þeir telji tekju- og eignaskattskerfið
götótt. Þeir verða þá að bæta kerfið
en ekki hlaupa frá vandanum. Hins
vegar er sjálfsagt að benda
sjálfstæðismönnum á að það eru
þeirra ráðherrar sem fara með 70-
80% af öllum ríkisútgjöldunum. Til
að reka ríkissjóð þarf líka að spara og
þá kröfu þarf að gera til þessara
ráðherra."
En eru ungliðahreyfingar stjórnar-
flokkanna báðar komnar í stjórnar-
andstöðu en á öndverðum forsend-
um? Finnur Ingólfsson neitaði því að
ungir framsóknarmenn væru í stjórn-
arandstöðu, en á hinn bóginn litu þeir
svo á að framsóknarmenn þyrftu að
endurskoða vel stöðu sína, ef tillög-
um þeirra yrði hafnað við fjárlaga-
gerðina. VilhjálmurEgilsson formað-
ur SUS sagði í samtali við NT að hann
áliti að ungir sjálfstæðismenn og ungir
framsóknarmenn myndu eiga auð-
veldara með að koma sér saman en
hinir eldri flokksmenn. „Við erum
sammála um markmiðin og það er
mikilvægara en það sem okkur kann
að greina á um skattamálin," sagði
Vilhjálmur. Hann sagði að þessar
skattahugmyndir væru þess virði að
vera skoðaðar, það væri mikilvægara
að ná saman hallalausum fjárlögum
en að segja blátt nei við öllum
skattahækkunum."
Bilun á
rafmagni
■ Upp úr klukkan átta í gærkvöldi
fór rafmagnið af Kópavogi og Garða-
bæ.
Að sögn lögreglunnar í Kópavogi
er orsökin ekki kunn og ekki er hægt
að kenna veðrinu um því blíðskapar-
veður var í gærkvöldi á þessu svæði.
Lögreglan í Kópavogi sagði að
rafmagnslaust hafi verið í hálftíma til
þrjú korter og þá kom rafmagnið
aftur jafn skyndilega og það fór.
Lögreglan í Hafnarfirði sagði að
Ijós hefðu blikkað þar á sama tíma og
rafmagnið fór í Kópavogi og Garða-
bæ.
Þá slökknuðu götuljós við nokkrar
götur í Reykjavík en það komst fljótt
í lag.
HAGLASKOT
ódýr og örugg
O BRNO
# FIREARMS
XMERKUBIA
m U5U PRAHA CZECHOSLOVAKIA
clever*
Clever haglaskotin eru þekkt fyrir
gæði og nákvæmni. Nú fyrirliggjandi
f ótal stærðum og gerðum.
Einnig úrval af BRNO haglabyssum
og rifflum. Markviss skot! s
Örugg skotvopn! |
Fást í sportvöruverslunum og
kaupfélögum um land allt. jjj
VERSLUNARDEILD -
HEIMIL1SVÖRUR •HOLTAGÖRÐUM'SÍMI 8 -12 66
■ Það var mikil traffík við Norrönu í sumar á Seyðisfirði enda hefur reksturinn
aldrei gengið betur.
NT-mynd: Guðm. Sigfússon
Norröna:
Fleiri íslendingar
sigldu með skipinu
Um 11000 farþegar til og frá Seyðisfirði í sumar
■ Færeyska ferjan Norröna hefur
nú hætt siglingum sínum til Seyðis-
fjarðar að sinni.
Að sögn Jónasar Hallgrímssonar
framkvæmdastjóra Austfars hf. á
Seyðisfirði hefur reksturinn gengið
mjög vel í sumar, um 11000 manns
sigldu með skipinu til og frá Seyðis-
firði. Er þetta svipaður fjöldi og fyrri
sumur nema að nú sigldi skipið 14
ferðir, sem er einni ferð minna en í
fyrra. Þannig var farþegafjöldi á
hverja ferð meiri nú en áður.
Um 53000 farþegar ferðuðust með
skipinu, séu allar leiðir taldar, og er
það um 12% aukning frá því í fyrra.
Jónas sagði að lokum að u.þ.b. 20%
farþeganna sem fóru um Seyðisfjörð
hefðu verið fslendingar og hefur
hlutfall þeirra vaxið frá því sem áður
var.
í vetur verður Norröna leigð út til
annarra landa, en hefur íslandssigl-
ingar sínar aftur næsta surrtar.
■ Stóra stundin runnin upp - undirritun bónu
Gunnarsson.
Bónussamkomulag VSÍ og
„Fyrsta
umfjölli
- segir Magnús Gunnarsso
Tvö banaslys
um helgina
■ Tvö banaslys urðu í umferðinni
um helgina. Eygló Vilhjálmsdóttir
frá Sílalæk í Aðaldal lést þegar bíll,
sem hún ók, valt á Öxnadalsheiði,
laust fyrir hádegi á laugardag. Fernt
var í bílnum, en farþegar sluppu við
meiðsl.
Björn Ólafsson til heimilis að Aðal-
götu 8 Siglufirði lést í umferðarslysi
aðfaranótt sunnudags, þegar jeppa-
bifreið hans fór útaf veginum, rétt
norðan við bæinn Hraun í Fljótum.
Að sögn lögreglu á Siglufirði er talið
að maðurinn hafi látist samstundis.
Hann var einn í bílnum þegar slysið
varð. B[örn lætur eftir sig konu og
börn. Skyggni var mjög slæmt og allar
aðstæður til aksturs þessa nótt.
Tværkonur
fyrir bíl
■ Ekið var á tvær konur í
Reykjavík í gær. Fyrra slysið
varð í gærmorgun klukkan átta
1 Tryggvagötu. Þar var kona á
leið yfir götuna og varð fyrir bíl.
Hún var flutt á slysadeild og
mun hafa skorist nokkuð í and-
liti.
Seinna slysið varð í Pósthús-
stræti um miðjan daginn. Kona
var að stíga út úr bíl sínum,
þegar bíll kom bakkandi og
lenti á hurðinni. Hún klemmdist
á milli stafs og hurðar. Meiðsli
hennar reyndust ekki alvarleg.
Það sem af er mánuðinum
hafa fimm konur orðið fyrir
bílum í miðbænum. Flestar hafa
þær verið fullorðnar.