NT - 21.09.1985, Blaðsíða 4

NT - 21.09.1985, Blaðsíða 4
21. september 1985 4 Samtak hf. Selfossi: Einingahúsafyrirtæki sem heldur í horfinu ■ Samtakseiningahús í Graf- arvogi klætt að utan með stein- klæðningu frá BYKO. NT-mynd Róbert ■ Á síðasta ári var mikið byggt af einingahúsum á höfuðborgarsvæð- inu og sérstaklega í Grafarvogi. í ár hefur mun minna borið á þeim. Pað eru mörg fyrirtækin sem boðið hafa og byggt slík hús. Eitt þeirra er Samtak hf. á Selfossi. Samband var haft við Jón Bergsson, fram. kvæmdastjóra þess fyrirtækis og hann spurður um hvernig starfsemin gengi. Verkefnin helst á landsbyggðinni „Starfsemin hefur vaxið með hverju árinu, nema árið 1983, og í ár er óvissa með háveturinn, en annars megum við vel við una,“ sagði Jón. Fyrirtækið tók til starfa vorið 1979 og er nú með urn 600 fermetra verkstæði að Gagnheiði 1 á Selfossi. Starfsmenn hafa verið 27 í sumar, en fækkar nú eitthvað er skólarnir byrja. í Grafarvoginum hafa verið reist þrjú hús á vegum fyrirtækisins, en mest hefur verið um verkefni á landsbyggðinni. Til dæmis um það má nefna að í sumar hafa verið reist hús frá fyrirtækinu á Bakkafirði, í Mývatnssveit, Eyjafirði og á Snæ- fellsnesi. Einnig hafa samningar verið gerðir um byggingu fimm húsa á Sauðárkróki og einu á Hvamms- tanga. - Stór verkefni eru einnig á Sólheimum í Grímsnesi, en þar er í byggingu ný visteining, um 330 ■ Visteiningahúsið á Sól- heimum. fermetra hús, og svo íþróttaleikhús- ið sem hann Reynir labbaði fyrir' í sumar. Það hús er steypt upp, fyrirtækið hefur á sínum snærum bæði flekamót og byggingarkrana þannig að það er ekki eins háð einingahúsunum og margir aðrir, starfsemin er fjölbreyttari. Margir horfa fram á samdrátt Rétt er að taka fram að það eru tvö einingahúsafyrirtæki starfandi á Selfossi. Fyrir utan Samtak hf. starf- ar þar S.G.-einingahús sem mun vera stærsta húseiningaverksmiðja á landinu. Jón Bergsson segir að blikur séu nú á lofti í þessari atvinnugrein. Tekin hafi verið af öll fyrirgreiðsla sem einingahús höfðu, hvað varðar afgreiðslu lána frá Húsnæðismála- stofnun. Útborgun lána á þeim húsum var örari en öðrum, enda þeim yfirleitt skilað með meiri frá- gangi en ætlast er til með fokheld hús. „Nú fáum við lánin útborguð á átján mánuðum eins og almennir húsbyggjendur, áður var úthlutun- artíminn níu mánuðir. Þetta hefur gert okkur erfitt fyrir og valdið sölutregðu á einingahúsum almennt." „En við höfum náð að halda í horfinu meðan mörg hinna fyrir- tækjanna horfa fram á samdrátt. Hiuti af skýringunni á því er kannski, að við höfum lítið verið með verkefni í Reykjavík, þar sem samdrátturinn er hvað heiftarlegast- ur. í fyrra varð nánast stökkbreyting á þessum markaði í Reykjavík, en bakslagið var gífurlegt í ár.“ ■ Grunnur íþróttahússins á Sólheimum.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.