NT - 21.09.1985, Blaðsíða 5
21. september 1985 5
Kremuð sveppa-
súpa
1/4 bolli smjör
2 iaukar finsaxaöir
750 gr. sveppir, fínsaxaðir
1/4 bolli hveiti
5 boliar kjúkiingasoö
salt og pipar eftir smekk
1 bolli rjómi
1 msk. sherrý (má sleppa)
8 sveppir í sneiðum (má sleppa)
Bræðið smjörið í stórum potti og
látið laukin þar út í og sjóðið hann án
þess að hann brúnist. Þegar laukurinn
er orðinn glær eru sveppirnir settir út
í og látnir sjóða í smjörinu í nokkrar
mínútur. Stráið hveitinu yfir laukinn
og sveppina og látið sjóða í 5 mínútur,
hrærið í á meðan.
Hellið soðinu út í og látið suðuna
koma upp. Ef að verið er að nota
heimatilbúið soð þarf að krydda það
með salti og pipar. Látið lok á pottinn
og látið malla við lítinn hita í 30
mínútur. Merjið súpuna í blandara
eða í gegnum sigti og látið síðan aftur
í pottinn. Bætið út í rjómanum og
hitið upp að suðu en látið súpuna ekki
sjóða eftir það. Leiðréttið kryddið ef
með þarf og bætið sherrýinu út í ef
það er notað. Berið fram skreytt með
sveppasneiðum.
Kjúklingur
Chassaur
2 stórir kjúklingar í bitum
hveiti
2 msk. olía
2 msk. ósaltað smjör
2 fínsaxaöir laukar
1/4 bolli hveiti
3 meðaltómatar, afhýddir og saxaðir
1/2 bolli þurrt hvítvín (mysa)
2 bollar nautasoð
1/4 bolli söxuð ný persilla
1 tsk. timian
1 tsk. estragon
1 tsk. þurrkaður graslaukur
500 gr. litlir sveppir, heilir
Þurrkið kjúklingastykkin vel og
stráið hveiti yfir þau. Hitið smjörið
og oiíuna í þykkbotna potti. Brúnið
kjúklinginn þar í, látið hann á disk og
látið laukinn þar út í og brúnið hann.
Stráið 1/4 bolla af hveiti þar yfir og
brúnið það vel án þess að það brenni.
Bætið út í tómötunum, víninu og
soðinu og látið suðuna koma upp.
Sósan á ekki að vera mjög þykk.
Látið út í hana kryddið og kjúklinga-
stykkin og síðan sveppina og blandið
vel saman við sósuna. Látið alúmin-
íumpappír yfir og þar yfir lok. Látið
malla við lítinn hita í 45 mínútur.
Takið lokið og alúminíumpappír-
inn af og athugið hvort kjúklingurinn
er orðinn meyr. Ef hann er ekki
orðinn meyr þarf að sjóða hann
aðeins lengur. Setjið kjúklinginn á
fat. Ef sósan er ekki nógu þykk aukið
þá hitann og látið hana bullsjóða án
loks þangað til hún er mátulega
þykk. hellið henni yfir kjúklinginn og
skreytið með saxaðri persillu.
Hrísgrjónapílaff
3 msk smjör
1 laukur, fínsaxaður
1 græn paprika, söxuð
1 tómatur, afhýddur og saxaður
1 Vi bolli löng hrísgrjón
3 bollar kjúklingasoð
salt og pipar
2 msk smjör
3 msk söxuð ný persilla
Notið 3 lítra pott og bræðið smjörið
í honum og steikið laukinn þar í
þangað tii hann er glær. Bætið út í
grænni papriku og tómat og steikið
þangað til allur vökvi hefur gufað
upp. Látið hrísgrjónin út í og þekið
þau vel með feitinni.
Hellið nú soðinu yfir og látið suð-
una koma upp. Minnkið hitann, látið
lok á og látið malla við lítinn hita í 20
mínútur. Þegar hrísgrjónin hafa dreg-
ið til sín allan vökvann kryddið þá
með salti og pipar. Hrærið saman við
smjöri og persillu.
Sykursteiktar
rósmarín-
gulrætur
1 kg gulrætur, skornar í 1 cm
þykkar sneiðar
Eldhúskrókur
Komið í mat:
Franskurmatseðill
■ Franskur sveitamatur hefur alltaf
þótt mjög góður en ódýr og þægilegur
matur í matarboð. Þessi matseðill
íþyngir ekki buddunni frekar en sá
fyrri en er þó dálítið fyrir augað.
Forrétturinn er sveppasúpa úr nýj-
um sveppum. Þar sem flestir eru því
vanastir að fá niðursoðna súpu eða þá
pakkasúpu þá er ekta sveppasúpa
alveg sérstök. Þó má nota niðursoðna
sveppi ef nýjir fást ekki.
í sambandi við aðalréttinn þýðir
Chasseur veiðimaður. Þessi réttur er
mjög líkur ítölskum rétti Cassiatore
sem líka þýðir veiðimaður. Það virð-
ist eftir þessum réttum að dæma að
allir veiðimenn matreiði með tómöt-
um og sveppum. Eins og með alla
pottrétti er þessi betri ef hann er
búinn til daginn áður og hitaður upp
rétt áður en á að nota hann. Með
aðalréttinum er borið fram hrís-
grjónapilaff. Venjulega tekur um 20
mínútur að sjóða hrísgrjón mátulega.
Ef það tekur þau lengri tíma að draga
til sín vökvann þá er hitinn of lítill en
ef það tekur aðeins 10 mínútur er
hitinn of mikill. Þar sem kjúklinga-
pottrétturinn er með góðri sósu er
gott að hafa sykursteiktar gulrætur
með honum. Þessi gulrótarétturhefur
bragð af rósmarín og gerir matinn
litríkari þar sem kjúklingurinn er
frekar litlaus.
Það er venjulega hægt að fá nýjar
perur hér allt árið en ef það er ekki
hægt einhverra hluta vegna þá er
hægt að nota niðursoðnar perur.
14 bolli smjör
2 msk sykur
1 tsk rósmarín
1 bolli kjúklingasoð eða vatn
salt og pipar.
Notið stóra pönnu. Bræðið
smjörið, látið gulræturnar þar út í og
þekið þær vel með smjörinu. Stráið
sykrinum yfir og hrærið vel í. Bætið
út í rósmaríninu. Steikið í 5 mínútur
og hrærið vel í á meðan. Það þarf að
gæta vel að gulræturnar brenni ekki
við. Hellið soðinu yfir og sjóðið við
lítinn hita í 25-30 mínútur eða þang-
að til soðið hefur gufað upp og
gulræturnar eru gljáandi og meyrar.
Hrærið öðru hverju í. Bætið við
meira soði ef gulræturnar eru ekki
orðnar meyrar þegar það er soðið
upp. Smakkið og kryddið með salti
og pipar eftir smekk.
Perur
soðnar
í víni
6 þroskaðar perur
sítrónusafl
3 bollar þurrt hvítvín
2 bollar sykur
1 kanelstöng, brotin í 1 cm bita
6 negulnaglar
biti af vanillustöng eða Vi tsk vanillu-
dropar
þeyttur rjómi (má sleppa)
Afhýðið perurnar og skerið þær í
tvennt. Takið kjarnahúsið úr þannig
að það líti snyrtilega út. Ýrið sítrónu-
safa yfir.
■ Notið pott sem er nógu stór um sig
til að perurnar geti legið í einu lagi,
hitið í honum vínið og sykurinn.
Hrærið þangað til sykurinn bráðnar
og látið þá perurnar út í ásamt
kryddi. Sjóðið þangað til perurnar
eru orðnar meyrar eða í um það bil
20 mínútur. Snúið perunum við öðru
hverju. Látið þær ekki ofsoðna.
Takið perurnar upp úr vökvanum.
Sjóðið niður vökvann um helming
þangað til hann er farinn að þykkna.
Síið vökvann og hellið honum yfir
• Kremuð sveppasúpa
• Kjúklingur Chasseur eða
• Veiðimannakjúklingur
• Hrísgrjónapilaff
• Sykursteiktar rósmarin-
gulrætur
• Perur soðnar í víni
perurnar. Berið fram volgt eða kalt
með þeyttum rjóma ef villr Það er
líka mjög gott að bera fram ís með
perunum.
Ath: Ef að notuð er vanillustöng,
látið hana þá með hinu kryddinu út á
perurnar. Ef það eru notaðir dropar
eru þeir látnir út í þegar buið er að
sjóða vökvann niður. Einnigefnotað-
ar eru niðursoðnar perur þá þarf að
athuga að búið er að sjóða perurnar.
Það er aðeins notaður hálfur skammt-
ur af víninu og sykrinum og síðan 1 'h
bolli af vökvanum af perunum. Þetta
er síðan soðið saman og niður þangað
til eftir eru um það bil 2 bollar af
vökva og þá eru perurnar velgdar
varlega í vökvanum ef að á að bera
þær fram volgar. Annars er vökvan-
um hellt heitum yfir perurnar og þær
látnar kólna í honum.
Effco þurrkan læknar ekki kvef
En það er óneitanlega gott að snýta sér í hana
Hún er svo stór og mjúk og
særir nebbann ekki neitt. Svo þegar
kvefið er batnað getur þú notað
afganginn af rúllunni til annarra
hluta, eins og t.d. til að þrífa bílinn,
bátinn, sumarbústaðinn og svo
getur þú að sjálfsögðu notað hana
til algengustu heimilisstarfa.
Það er eitthvað annað að þrífa
með Effco þurrkunni. Hún gerir
heimilisstörfin, sem áður virtust
óyfirstíganleg, að skemmtilegum
leik. Óhreinindin bókstaflega leggja
á flótta þegar Effco þurrkan er á
lofti.
Effco-þurrkan fæst á betri bensínstöðvum
og verslunum.