NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 29.09.1985, Qupperneq 2

NT - 29.09.1985, Qupperneq 2
2 Sunnudagur 29. september NT- Umsjón: Arnaldur Sigurösson Gunnar Smári Egilsson Útlit: Ólöf Nordal Forsíöa: Jóhanna Ólafsdóttir Ljósmyndin er af dimmisjón hjá M.S. '85 og er á Ijósmyndasýningu kvenna í Nýlistasafninu Vatnsstíg 3b. Þaö er fátítt að helgarútgáfu dag- blaös sé fylgt úr hlaöi meö formála. En svona vill Helgi hafa þaö. Helgarblöð hafa sem kunnugt er tekiö viö því hlutverki er kirkjuferöir fyrri alda gegndu. Þar fær maöur fréttir af næstu bæjum, nýtur listar (fjölbreyttari vonandi en altaristaflan og saltarasöngurinn), heyrir sögur úr fjarlægum byggðarlögum, nýtur siðvendni predikara, hlustar eftir deilum manna og tekur jafnvel þátt í þeim. Þessu hlutverki ætlum við aö reyna að gegna eftir besta viti og getu. Eitt hefur breyst frá því helgar- blöðin tóku viö af kirkjuferðunum. Nú er maður í sókn meö búskmenn- um frá Afríku, geimferöalöngum og kynóðum fjöldamoröingjum. Þetta þykir okkur nýju umsjónarmönnun- um ekki heillavænleg þróun. Við erum það gamlir í hugsun og litlir tuttugustu-aldarmenn aö ung- mennafélagsandinn hefur enn traustan sess í hjörtunum. Viö stefnum því aö því aö einbeita okkur að íslandi og íslenskum hugöarefnum, en vonandi án þess að veröa heimóttarlegir. En þar sem við erum enn ungir í starfi og aö árum ætlum við ekki aö lofa ykkur lesendum neinum stór- merkjum, heldur minna á að viö erum viðmótsþýöir og tökum allri gagnrýni, skömmum og hóli, meö jafnaðargeði. Nýir krummar krunka best! asgse nr1 ■■ ■ a Tjornin i Reykjavík J M | NT-mynd:Ámi Jon Axel meo andófs?sýningu Karlmaður með myndlistarsýningu í meirihluta-galleríi kvenna. Og það á miðri listahátíð kvenna Á meðan kvenkyns-aöstendend- ur salarins eru fjarri góðu gamni og eru að spóka sig á listahátíð kvenna hefur Jón Axel Björnsson gripið tæki- færiö og sett þar upp olíumálverk sín. Jón kvaöst aðspurður vera eyöilagöur maður og ekki hafa áttað sig á þessum leiðu mistökum fyrr en á opnunardaginn. Hann sagöist vona að sér yrði fyrirgefið frumhlaupiö og óskaði aö þaö kæmi skýrt fram aö hann hefði ekkert við list kvenna né kvenmenn yfirleitt aö athuga. Jón Axel vakti eftirminnilega athygli meö fyrstu einkasýningu sinni í Ásmundarsal fyrir nokkrum árum. Sú sýning var meö þeim fyrstu þar sem „nýja málverkið“ réð ríkjum. Þó svo aö hún heföi verið opnuö um miðjan febrúar varö einn gagnrýnandinn það uppnuminn að hann kallaöi hana sýningu ársins. Sú yfirlýsing dró síö- an dilk á eftir sér eins og minnugir muna en það er annað mál. Síðan hefur Jón tekiö þátt í sam- sýningum m.a. í Listasafni Alþýðu þar sem hann sýndi ásamt Gunnari Erni og Vigni. En sýningin í Salnum er önnur einkasýning hans. Verk Jóns hafa þróast í átt til meiri óhlutbundins myndmáls; bakgrunn- urinn hefur þrýst sér fram og flæðir víðsvegar yfir fígúrurnar, sem Jón setur enn sem fyrr i ankannalegar stellingar. Pensilskriftin er kröftugri, litirnir hreinni og djarfari. En þrátt fyrir hrárra yfirbragð myndanna leynir það sér ekki að Jón hefur fullt vald á tækninni. Jón Axel bætir með þessari sýn- ingu við þær vonir sem menn hafa bundið við hann. qse Sagaúrdaglegalífinu „Heldur vildi ég missa höfuðið en höndina," sagði Lára. Rödd hennar, há og ákveðin hljómaði yfir kaffistofuna og náði eyrum flestra gegnum kliðinn. Þetta var sannar- lega líkt henni. Hún hafði byrjað að vinna í frystihúsinu fyrir aðeins mánuði og hún hafði strax vakið athygli okkar vegna ákveðinnar framgöngu sinnar, dugnaðar og heilbrigðis. Svo var hún líka kátur og góður félagi. Við höfðum verið að ræða vinnuslys í kaffitímanum. Tilefnið var frétt í blaði þar sem sagt var frá pilti sem lent hafði í vinnuvél og misst fót. Við höfðum verið sammála um að hann hefði sloppið vel miðað við aðstæður. Nema Lára. Hún mótmælti kröftuglega. Hún benti okkur á allt sem hann yrði nú að fara á mis við. „Ekki vil ég lifa við svoleiðis örkuml," sagði hún. „Ég vona sannarlega að þú þurfir þess aldrei og haldir þó höfðinu," sagði ég hlýlega. Ég hafði sérstaka ástæðu til að vera Láru þakklát. Hún hafði losað mig við leiðinda- starfið við hausarann sem ég hafði orðið að þola í tvö ár vegna þess að enginn fékkst til þess. „Blessuð vertu,“ sagði hún er hún hafði unnið hjá okkur aöeins viku, „ég skal afhausa. Tala bara við verkstjór- ann.“ Svo nú sat ég við snyrtingu en Lára vann ásamt tveim öðrum stúlk- um í vélasalnum. Þar var roðflett- ingavél, flökunarvél og innst, á bak við hinar, á upphækkun var hausa- skurðarvélin. Snigill flutti burt hausa, bein og roð. Nú glumdi bjallan og við risum frá kaffiborðunum og tíndumst inn í vinnsluálmuna. Við sem unnum í pökkunarsalnum gengum hver að sínu borði. Lára, Sigga og Björg hurfu inn í vélasalinn. Brátt fór vinnslukerfið í gang. Það var svo kunnuglegur kliður að við urðum hans tæpast varar. Að minnsta kosti héldu samræðurnar áfram. Þær styttu tímann sem annars yrði lengi að líða í svona vélrænni vinnu þar sem handtökin voru æ þau sömu og löngu orðin okkur töm. Ég heyrði að konurnar á næsta borði voru að gagnrýna Láru fyrir gáleysislegt tal. Ég ætlaði að fara að bera í bætifláka fyrir hana þegar ókennilegur glamrandi barst um salinn. I sama bili var hurðinni á vélasalnum hrundið upp, þaðan barst ærandi hávaði og Björg kom æpandi út. Hún hentist í gegnum vinnslusalinn og hvarf út á götu. Rétt á hæla henni kom Sigga, náföl með uppglennt augu. Hún stökk fram í miðjan sal, sneri sér við og horfði stórum skelfingaraugum á dyrnar sem hún var nýsloppin í gegnum. Við stóðum öll sem dæmd, alveg lömuð af skelfingu. Það er Lára: Hugsunin kom yfir mig eins og þrúgandi ógn, og ég heyrði aftur eins og óp í fjarska. Heldur vildi ég missa höfuðið en höndina. Það liðu ekki nema örfáar sekúndur, en okkur fannst það sem heil eilífð. Og svo - svo kom Lára fram í dyrnar, föl en þó með undrunarsvip eins og hún vildi segja. Hvað gengur eiginlega á. Það mátti greina bylgju af feginsandvörpum fara um salinn og við losnuðum við skelfingarfjötr- ana. Verkstjórinn hljóp inn í vélasal og stöðvaði vélarnar. Skarkalinn hljóðnaði og dó út. Nú talaði hver upp í annan. Hvað gerðist? Hvað í ósköpunum kom fyrir? Af hverju kom þessi hávaði. En stúlkurnar þrjár höfðu ekki hug- mynd um hvað gerst hafði en seinna sýndi verkstjórinn okkur stóran hníf sem dottið hafði niður í snigilinn og valdið þessum dæmalausu látum sem næstum hafði hrætt úr okkur líftóruna. Sigrún Björgvinsdóttir

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.