NT


NT - 29.09.1985, Side 16

NT - 29.09.1985, Side 16
16 Sunnudagur 29. september NT framhaldslífi" og aðrar ótrúlegar bækur. En þegar ég fór að fá smá snefil af almennri skynsemi þá fannst mér þessi spiritíska heims- mynd ekki ganga upp. Enda er spiritisminn eins og hann var 1915, það hefur ekkert nýtt bæst við. Guðspekifélagid? Ég gekk í það mjög ungur og þar er innanum fólk sem ég get átt samskifti við. Sigvaldi heitinn Hjálmarsson var maöur sem ég sótti mikið til í sambandi við tantrisma, þessa sterku indversku leið sem byggir raunverulega mikið á galdri. En á sinn hátt varð ég fyrir ægilegum vonbrigðum. Ég hélt að Guðspekifélagiö gæti sýnt mér og sagt allt það sem mig langaði að vita og þar mundi ég hitta fólkið. En það olli mér sárum vonbrigðum. Þarna var fólk sem ýmist var í einhverri undarlegri leit eða þá upptekið af því að vera voða heilagt. En náttúrlega er mikið af fólki þarna innanum og saman við sem hefur orðið vinir manns í gegnum árin. En mér finnst Guðspekifélagið hér heima ótrúlega gott miðað við samskonarfélög úti. Og Gangleri er útbreiddasta guðspeki-tímarit í „...ást var til dæmis af- greidd sem miðaldaupp- finning hjá einhverjum trú- badorum sem voru að reyna að krækja sér í þjórfé hjá kvenfóikinu..." heimi og þá ekki miðað við höfðatölu heldur eintakafjölda. Ég dáist að því hvað það hefur haldið góðum standard í gegnum árin. En á margan hátt finnst mér félagið ekki hafa náð því sem það ætti að geta gert. Hefurðu þá galdur í huga? Nei, nei. Ég er ekkert fyrir það að halda galdra-lesefni að öllum. Ég er frekar á móti því að flest fólk fari útí þetta. Eg hef horft upp á það mikið af fólki sem hefur hreinlega sturlast. Maður þarf að hafa vissan karakter til þess að geta gengið inn í þennan heim. Sumum hæfir mikið betur aö fara útí mystík, yoga eða eitthvað slíkt. Og um leið og ég geri mér grein fyrir því að það er ekki mín leið þá veit ég að hún getur verið góð fyrir aðra. En hins vegar nota ég mikið mystík og galdurinn styðst mikið við hana. Hver er munurinn á mystík og galdri? Það hefur veriö sagt að munurinn á þessu tvennu sé sá að mystíkerinn tilbiður eitthvert ákveðið goömagn og reynir aö samsama sig því með því að varpa sér inn í goðmagnið og með tilbeiðslu er hann að hefja sig uppí það að verða eins og þessi ákveðna vera. En galdra- maðurinn hins vegar horfir uppá eitthvert ákveð- ið goðmagn og dregur það bara niðurtil sín með sálaraflinu. Galdur er mikiö beinni og sterkari leið en á sama tíma er mikil hætta á að þú springir í loft upp einhversstaðar á leiðinni. Hvaða áhrif hefur íslenska þjóðtrúin haft á Þig? Eg hef gert mér grein fyrir því að ég hef staðið vel að vígi í þessum málum vegna þess að mér hefur aldrei fundist þetta vera fáránlegt eða furðulegt eða undariegt eða asnalegt. Þetta hefur alltaf passað inn í mína heimsmynd. Greindasta og skemmtilegasta fólkið sem ég hef kynnst það hefur séð Þorgeirsbola, álfa- dansa, huldufólk og upplifað allskonar hluti og talar um það einsog hverjar aðrar staðreyndir. Eru þakklátur þessum heimi? Alveg hiklaust. Þó ég emji stundum um að það hljóti að vera illkvittni örlaganna að mér hafi verið varpað af öllum tímum inn í tuttugustu öldina og af öllum stöðum á íslandi, þá er maður náttúrlega þakklátur innst inni. Ég hef komist að því í seinni tíð að þetta er með því besta sem hefur getað komið fyrir mig. ísland elur líka upp visst hugarfar. Það er algerlega fáránlegt að tvö hundruð þúsund manna þjóð hafi getið af sér alla þá snillinga sem hún hefur gert. Við eigum fremstu menn á hvaða sviði sem er. Samt erum við tölfræðilega eins og smáþorp útí heimi sem ætti ekki að hafa rúm fyrir annað en einhverja landsby-idiota. Við erum í hnotskurnarsamfélagi þar sem allir hlutir sem eru að gerast útí heimi birtast fyrr eða síðar. Dæmi um hvað þetta er fáránlegt er að það kviknar allt í einu kraftmikil surrealista- hreyfing uppí Breiðholti hjá nokkrum fimmtán ára guttum sem er svo mögnuð að á nokkrum árum eru þeir komnir með öflugra starf í sinni litlu hreyfingu en er í mörgum af þessum stóru, gömlu hreyfingum úti i heimi, sem þó ættu að geta byggt á einhverri hefð. Einar Pálsson og rætur íslenskrar menningar. Einar er sonur Páls ísólfssonar og ég er með hann fyrir augunum frá því að ég man eftir mér. Og þegar hann heldur sinn fyrsta fyrirlestur í Norræna húsinu þegar ég er níu ára gamall, þá er ég náttúrlega mættur þar. Ég lít á Einar sem mikilmenni. Og fyrst maður er búinn að syngja þjóðinni lof og prís, þá er ágætt að benda á svolítið annað og verra. Alltaf á vissum tímum kemur hér upp svona lítilla sæva, lítilla sanda mórall. Einhver hagsmunaklíka reynir að verja stöðu sína og þolir ekki eitthvað nýtt sem getur ógnað jafnvæginu. Það er verið að verja einhverja kennarastöðu við háskólann eða áhrifavald á einhverjum vissum sviðum. íslend- ingar geta sveiflast frá því að vera stórþjóð í anda yfir í að vera smáþorp með mannorðsaft- ökum á fullu eins og gerist í þorpsslúðri. Þegar menn eru búnir að ná visst langt verða þeir að fara til útlanda og verða frægir þar. Öðruvísi gengur dæmið ekki upp. Og Einar Pálsson hefur í rauninni farið þá leið. Ekki minni maður en Joseph Campell, sem er orðinn eitt mesta áhrifavald um trúfræði og mýtur á þessari öld, lítur á Einar sem stórkost- legan fræðimann og er mjög hrifinn af því sem hann er að gera. Og að bera þessa bölvaða pampa sem eru að öfundast útí Einar saman við Campell og taka eitthvert mark á þeim er einsog að fá einhvern þorpshálfvita til þess að útskýra fyrir manni afstæðiskenninguna. Svo við höldum áfram með íslenska dulspekl; hvað með ásatrúna? Ég held ég hafi verið ásatrúar frá því ég var ellefu ára gamall. Ég hef alltaf verið ótrúlega hrifinn af norrænum hugmyndaheimi. Eins og að geta gengið að einum af merkustu trúar- og menningarsöguheimildum sem til eru á vestur- löndum, ef ekki þeim merkustu, á sínu eigin tungumáli. Og ég trúi því sem Carl Gustav Jung talar um að það sé til eitthvað sem heitir þjóðflokka-dulvitund. Eitthvað sem maður hefur í blóðinu. Og sá siðaboðskapur sem maðurfær útúr norrænum goðheimi er fyrir mér mikið fullkomnari en sá kristni. Nú hef ég alltaf haft mikinn trúaráhuga og var því ægilega kristinn sem krakki og gleypti náttúrlega í mig biblíuna. Svo þegar ég er að lesa hana einu sinni kem ég að atvikinu þar sem krakkahópurinn er að hía á Elía spámann. Hann bölvar þeim náttúrlega í nafni guðs, sem er að sjálfsögðu það góður að hann sendir tvær birnur útúr skóginum, sem slátra fjörutíu börnum. Þá fór ég náttúrlega að efast um að þessi guð væri eitthvað sem ég ætti að hafa áhuga á . Því ég var hræddur um að næsti karl sem ég híaði á hefði svona gott samband við almættið og guð mundi senda á mig strætis- vagna eða eitthvað slíkt. Er þetta ekki bara stakt atvik I Gamla testamentinu? Jú, en fyrir barni er þetta samhangandi. Og seinna þegar ég fór að skoða Nýja testamentiö þá var það fullt af hlutum sem ég hef engan áhuga á að fylgja eftir. Maður hefur þarna einhvern geðklofa Krist sem er ýmist að henda út mömmu sinni og familíu eða þá að bölva fíkjutrjám og gera ýmsa ótrúlega grimma hluti. Hann lofar líka að koma aftur í ríki sitt áður en sú kynslóðs sem hann tilheyrði liði undir lok. Og svo þegar síðasti lærisveinninn dó ca. fimmtíu árum eftir dauða Krists þá var þetta náttúrlega búið spil. En eftir stendur kirkjan. Jú, jú og öllum til óþurftar og sárra harma í gegnum aldirnar. Þannig að Hvíti Kristur og Þórglímdu um sál þína, en öfugt við kvæðið þá sigraði Þór i þetta sinn. Eða Óðinn öllu heldur. Hann er galdramaður. Já og prakkari. Guð skálda, fræðimanna og fjörmaður mikill. Það er helvíti gott að hafa guöi sem eitthvert líf er í. Enda lét ég það vera mitt fyrsta verk að ganga í Ásatrúarsöfnuðinn þegar hann var stofnaður. • Svo við höldum áfram með þina sögu. Hrepptirðu konuna? Já, já. Og ég kom með henni heim og gerist )'„...galdur er mikið beinni og sterkari leið en á sama tíma er mikil hætta á að þú springir í loft upp einhvers- staðar á leiðinni... “ / skyndilega, að ég held, nokkuð tilfinningalega þroskaður. Ég fékk aðeins meira jafnvægi í minn hugmyndaheim. Maður er náttúrlega alltaf að læra. Fjölskylda? Já, já. Um tíma gerðist ég húsfreyr. Þurfti galdramaðurinn að beygja sig undirþað hlutverk? Nei, alls ekki. Þetta var góö kona og studdi allar mínar dellur með ráð og dáð. Hún hafði sjálf stundað hin og þessi austrænu iðkunarkerfi og var mjög gagnrýnin. Hún rak útúr mér mikið af ónauðsynlegri rómantík, en ég fékk náttúr- lega að halda þeirri rómantík sem ég þurfti meö. Á þessum tíma stunda ég mikið bréfaskriftir við fólk útí Bretlandi, en fæ fljótlega bakþanka. Margt af þessu fólki var haldið einhverjum ranghugmyndum og var voða upptekið af valdaþenkju, sem mér finnst alltaf varhugavert. Það er alltof auðvelt að klæðast kufli og skreyta sig með fullt af flottum titlum og telja sig vera kominn í beint samband við alheiminn. Eg veit ekki afhverju, en þolinmæöi mín gagnvart slíku fólki hefur alltaf verið takmörkuð. Svo þegar ég fer út 1979 og 1980 þá hitti ég það fólk sem hefur haft afgerandi áhrif á líf mitt og var á svipuðum basa og ég. Ég hitti meðal annars síðasta eftirlifandi lærisvein Crowleys. Gerald Yorke? Já, Gerald Yorke er maður sem allir þekkja í þessum dulspekiheimi. Ekki bara vegna þess að hann var lærisveinn Crowleys og átti stærsta safn af óútgefnum og óbirtum ritum hans, heldur var þetta maður sem er búinn að vera ótrúlega virkur í bókaútgáfu og ýmsu öðru. Hann hefur meðal annars ritstýrt The Tibeton Series með Dalai Lama og hefur átt stóran þátt í tveimur stærstu dulspekiútgáfufyrirtækjum Bretlands. Eitt sem hefur alltaf verið sterkt í mér fyrir utan galdur er áhugi á Tibet og tíbetskri menningu, því hún er það nálægt íslenskum hugsunarhætti. Tíbetskur buddismi er samruni indversks buddisma og Bon, sem eru shaman- ísk trúarbrögð sem byggja mikið á galdri. En Tíbetar færa þetta í heimspekilegt form og sem mér finnst vera fullkomnasta form á heimspeki sem til er. Og þegar ég er að lesa þessar típetsku bókmenntir þá er alltaf verið að minnast á Gerald. Önnur hver bók sem mér finnst eitthvert vit í byrjaði á því að færa honum sérstakar þakkir. Meira að segja Sören Sörensen sem skrifaði mjög brilljant bók þar sem hann var að bera saman yoga og taugalíffræði byrjar sína bók á því að þakka Gerald Yorke fyrir ábending- ar og góða hluti. Hann hefur verið guðfaðir svo margra og á svo margan hátt. Félagi minn Christopher Macintosh var búinn að þekkja hann í mörg ár í gegnum sínar bækur og í sambandi við heimildaöflun tengdum þeim. Og hann ákveður að fara með mig til karlsins og segir að hann hefði líkiega mjög gaman af því að hitta mig og þegar ég væri búinn að kynnast honum betur fengi ég kannski að líta á eitthvað af þessu Crowley-safni hans. Þar var meðal annars bók sem var kölluð „The Scrap Book" sem voru persónulegir munir frá gamla Aleister og var geymd á einhverskonar altari í bókastofunni hjá Yorke. Menn vissu það að ef „...íslendingar geta sveiflast frá því að vera stór þjóð í anda yfir í að vera smáþorp með mann- orðsaftökur á fullu... “ þeir héldu tryggð við hann í svona þrjú ár þá fengju þeir kannski að kikja á bókina. En Christopher tekur mig sem sagt til gamla mannsins. Yorke var jarl og bjó á stóru ættaróð- ali, ekki langt frá Oxford. Og mér er tekið strax eins og týnda syninum. Við höfðum ekki verið nema fimm mínútur úti í garði þegar gamli maðurinn kemur valhoppandi með „ The Scrap Book“ sem hafði ekki verið hreyfð af þessum stalli í manna minnum. Og við vorum þarna langt fram á nótt að bera saman bækur okkar og það myndast strax sterkt samband á milli okkar. Allt í einu var ég búinn að hitta manninn sem ég var alltaf búinn að bíða eftir. Hann tekur mig raunverulega að sér og dælir í mig bókum. Og gerist kennari minn. Hann hafði sjálfur farið í gegnum alla hluti. Hann var buddisti, en hélt alltaf tryggð við Crowley gamla og sagði hann þann stórkostleg- asta kennara sem hann hefði nokkurn tímann haft. Þó hann hefði verið ósammála mörgu af því sem Crowley gerði þá gat hann alltaf sagt að gamli syndarinn hafi fengið laun erfiðisins. Gerald var prakkari eins og Crowley og elskaði náttúrlega prakkaraskapinn í honum. Þegar hann bjó með honum í París þá var eitt af störfum hans þar að hlaupa til og dreifa klæmnum póstkortum útum alla setustofuna og setja gin og wiskyflöskur á öll borð þegar von var á einhverjum sem vildi gerast lærisveinn eða lærisveinka hjá Crowley. Svo þegar mann- eskjan kom og vildi hitta þennan heilaga mann, þá sat hann með lappirnar uppá borði, með gat á sokkunum á stórutá og sötraði sherry, koníak og wisky á víxl og ropaöi, milli þess sem hann saug stóran vindil. Yorke var svipaður prakkari sjálfur. Hann hafði alveg ótrúlegan húmor og ég var alltaf svo hræddur þegar honum þótti eitthvað fyndið að hann mundi bara detta í sundur. Ég hef aldrei séð mann sem hefur hlegið jafn rosalega. Hár, grannur, fallegur en sprakk gersamlega og lék alveg ótrúlega loftfimleika á stólnum. Og með þessar ótrúlegu sögur. Hann tekur mig sem sagt í læri. Ég lít svo á að ég hafi haft tvo kennara í gegnum lífið. Það eru Páll Isólfsson, sem kenndi mér að hugsa og skynja, og Gerald Yorke sem kenndi mér að skipuleggja mig og setja það í framkvæmd. Það sem ég var búinn að koma mér upp áður en ég hitti hann var, þó ég segi sjálfur frá, mikil bókleg þekking. Og trúði hverju einasta orði af því sem ég hafði lesiö. En ég hafði líka reynt og iðkað hluti og þurfti við það að læra meira og minna af sjálfum mér. Éina tilsögnin sem ég fékk varfrekar i mystík en magiu. En þarna fékk ég í fyrsta skipti einhverja praktíska kennslu. Og frá manni sem ég gat virt alveg óendanlega. Það var engin spurning. Framkvæmd galdurs? Galdur er leið til þess að varpa þér í visst sálrænt ástand og þú notar til þess helgisiöi eða ritúöl. Þú ert að byggja upp ástand þar sem þú ert tilbúinn til þess að trúa því að þú sért næstur guði almáttugum eða jafnvel yfir hann hafinn. Trúa því að þú getir breytt hlutunum. Menn þekkja þetta meira og minna í hinum ýmsu slökunar og sjálfssefjunarkerfum. Dale Carnegie og allt slíkt byggir á þessu lögmáli. Þú ert að breyta sjálfsímyndinni svo að hlutir sem voru þér einu sinni ómögulegir ganga alveg upp að því er virðist sjálfkrafa. Sumt fólk getur farið í gegnum lífið á baksundi og það virðist sem allt gangi upp hjá því. Þetta er spurning um að geta „...við erum að búa til 'frjálsa einstaklinga eins fáránlega og það hljóm- sannfært sjálfan sig um að þetta gangi og híað á þá þætti í umhverfinu sem segja að það geri það ekki. Það sem þú gerir er að skifta tilverunni í nokkur hólf. Við getum tekið dæmi af kabbal- isma eða gyðinglegri dulspeki. Þar ertu með tíu heima sem eru tengdir saman með tuttugu og tveimur brautum. Og hver braut er ákveðið svið mannlegrar skynjunar og um leið hegðunar og framkvæmda. Hver heimur stjórnast af ákveð- inni plánetu, sem hefur ákveðinn lit, sem hefur ákveðna tölu, sem hefur ákveðna hluti úr jurta-, steina- og dýraríkinu. Þú lokar þig síðan inni með öllum þessum hugmyndum og allar minna þær þig á hina upprunalegu spennu sem liggur að baki þeim öllum. Og þú gengur í gegnum eitthvert ritúal sem fær þig til þess að byggja upp þessa vissu spennu þar til þér hefur tekist að loka allt úti nema hana eina. Og þar sem þú lítur á þig sem smækkaða mynd af alheiminum, maðurinn er örheimur, míkrókomsmos, og speglar hinn stóra heim, macrókosmos, þá verða þær breytingar sem verða í þér einnig í hinum stóra heimi. Út á þetta gengur þessi ritúala-magía. Svo er til annað sem kallað er sex-magía og byggir á því að þú ert að nota þætti úr þínum eigin orkulíkama, vinna með frumorkur hans. Sem Indverjar hafa nefnt kundalini-orku, orku- stöðvarnar sjö sem eru orkurásir, og svo kallaða Prana-orku, sem flæðir um þær. Óður er mjög líklega samskonar fyrirbrigði í Eddu- kvæðunum þegar verið er að skapa Ask & Emblu. Þýski vísindamaðurinn Reichenbach tekur þetta hugtak úr Eddu-kvæðunum og kallar þá orku sem flæöir um allan líkamann og hann fann er hann gerði tilraunir með kristalla og líforku, Odiku-orku. Bergson talar líka um Elan Vital, Freud kallar sína orku Libido og Reich tekur Libidoið og færir það nær austrænum hugtökum og kallar það Orgon-orku. Sem er mjög svipað hugtak og Ki-orka sem karate- menn vinna með. En í sex-magíu ertu að vinna með þessar orkur og til þess að fá út vissa útkomu notarðu til þess guði, ára og engla og vinnur með þá. En í guðanna bænum ekki leggja neina heimspeki- lega merkingu í tilvist þeirra. Þeir eru mjög líklega bara góðir merkimiðar sem maður hefur fundið um einhver orkufyrirbæri sem eru eitt- hvað allt annað en guðir, árar eða englar. Mjög líklega er þetta bara hluti af okkar eigin heilastarfsemi. Er ekki alveg eins gott að nálgast þetta með eðlisfræði eins og galdri? Thomas Kuhn sem skrifaði bókina „The Structure ofScientific Ftevolution" sýnir hvernig vísindamenn allra tíma hafa veriö ótrúlega lokaðir fyrir öllum nýjum hlutum. Þeir lifa í það ofsalega föstum hugmyndaheim um hvað getur gerst og hvað ekki að þeir eru gersamlega týndir. En geturþú notfært þér eðlisfræði? Já, auðvitað. Þeir eru búnir að átta sig. Skammtaeðlisfræðin sýnir að með því að gera ákveðna tilraun þá hefur þú áhrif á hana. Meö því að skoða eitthvert ákveðið ferli þá breytist það. Og lokaniðustaðan hjá þessum mönnum hlýtur að vera sú að vitund á stóran part í heiminum í kringum okkur. Við erum að skapa okkur veruleik. Með okkar þátttöku erum við að

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.