NT - 29.09.1985, Qupperneq 17
NT Sunnudagur 29. september 1 7
byggja upp heiminn. Ekki bara meö verkum
okkar heidur líka með tilvist okkar.
Og kenningin um aö samvitund fólks byggi
upp veruleik, ég held hún sé meira en bara
sálfræðileg, heldur geti hinn efnislegi veruleiki
breyst líka að mjög miklu leyti. Við höfum horft
uppá það á þessari öld hvernig ein þjóð hefur
orðið sameiginlega geðveik, Þjóðverjar. Og
nokkrar þjóðir eru geðveikar í dag, fólk lifir í
einhverjum sturluðum samfélagsveruleika. Og
þegar megin þorri fólks ákveður að eitthvað sé
ekki hægt dettur engum í hug að reyna það.
•
Þú hefur staðið fyrir innflutningi á terapistum.
Hvernig tengistu sálfræði?
Ég hef alltaf haft áhuga á sálfræði. Því maður
vill tengja það sem maður er að gera nýjustu
rannsóknum og kenningum á sviði sálarlífs. Ég
hef líka lesið doðranta um taugalíffræði og
læknisfræði til þess að finna hluti sem ég get
byggt á. Og ég hef komist að því að það hafa
verið margir menn á þessari öld sem hafa verið
að byggja upp sálfræðikerfi með tilliti til sálarork-
unnar. Þeir hafa verið að nálgast þessi aust-
rænu kerfi nema hvað þeir reyna að gera þau
ennþá kraftmeiri og forðast þetta aðgerðaleysi
sem er í austrænu iðkunarkerfunum og sem t.d.
passar mér ekki sem karakter.
Ég las Wilhelm Reich mjög ungur og er mjög
hrifinn af honum. Þegar maður er ungur og
nýbyrjaður að hafa áhuga á kynferðismálum þá
er Reich, sem boðar mikilvægi kynlífsins og
kynorkunnar og rétta útrás hennar, ótrúlega
heillandi fyrir kynóðan táning sem er með
hormónastarfsemina nýgangsetta og er hálf-
sturlaður.
Ég hef alltaf haft þörf fyrir að skýra alla hluti.
Fyrir 99% af strákunum þýddi þetta að þeir
fengu standpínu þegar þeir sáu fallega stelpu,
en ég vildi vita hvað var að gerast í mér og af
hverju. Svo ég fer að lesa Freud og Reich, síðar
fer ég að lesa Jung og alla þessa kalla. Síðan
kemst ég að því að það er búið að búa til hinar
og þessar terapíur, sállækningar, sem eru ekki
bara kenningarsmíð og það að leggjast á sófa.
Og ég fer á ýmis námskeið og tek svo þátt í því
að flytja inn mjög góða terapista.
Ég hef komist að þvj' seinna að margt af fólki
sem er framarlega í sáliækningum er farið að
færast mjög mikið yfir á einhverja dulræna línu.
Og er komið inná svið sem er tengt huglækning-
um, og þá ekki huglækningum sem einhverri
handayfirlagningu, heldur það að vinna meðvit-
að með orku líkamans, orkustöðvarnar, og geta
beint henni á ákveðin svæði og örvað dauða
punkta eða eitthvað slíkt. Þetta fólk hefur jafnan
áhuga á manninum sem orkufyrirbæri og sem
einhverju sálrænu fyrirbæri.
Síðast liðinn vetur var ég með námskeið í
Bretlandi fyrir terapista sem hét „Lærið að vera
galdramenn", þar sem ég var að kynna þennan
magíska hugmyndaheim og tengja hann við
það sem þeir eru að gera.
Ég hef meðal annars verið að reyna að finna
út hvernig hægt sé að búa til eitthvert iðkunar-
kerfi, eða heimspeki raunverulega, sem virkar.
„...þú ert tilbúinn að trúa
því að þú sért næsturguði
almáttugum eða jafnvei
yfir hann hafinn...“
Einhverskonar „fúnksjónal fílasófíu" sem er
ekki bara eitthvað sem endar í hausnum á þér,
heldur einungis byrji þar.
•
Þú hefur mikið starfað í kringum rokk-músík
og hljómsveitir og ert nú meðlimur í einni slíkri,
Psychic TV. En áður er þú segir okkur frá henni
langar mig til þess að spyrja þig hvaða hlutverki
þúgegndir í hljómsveitinni Þeyr.
Eg var skulum við segja hugmyndafræðingur,
auglýsingastjóri, textasmiður og svona „general
dogs body“. Það sem voru mín mistök í
sambandi við Þeyr var að ég var að reyna að
nota einhverja menn sem málpípur á sama
tíma og ég vildi ekkert taka þátt í því sjálfur. Mér
fannst á þessum tíma að rokkmúsík væri alveg
ótrúlega hentugur vettvangur. Og ég hef alltaf
viljað koma því að sem ég hef verið að gera. En
dæmið gekk bara ekki upp. Ég var farinn að
stýra mönnum sem olli vissu ofsóknarbrjálæði
hjá ákveðum karakterum.
En þaö eru tveir menn sem voru í hljómsveit-
inni sem ég veit að ég á eftir að starfa mikið
með, Tryggur og þó sérstaklega Gulli. Við
höfum um margt mjög svipaðar hugmyndir.
Það sorglegasta við Þeysaraævintýrið var að
svo til allt fjármáladæmi þeirra endaði í hausn-
um á mér og það breytti mínum aðstæðum
hrikalega. Þá fékk maður leiðinlegasta hlutann
af þessum gráa veruleika, sem ég hef alltaf
verið frekarfúll útí, beint í andlitið í formi synda
annarra og varð að borga fyrir það með
peningum.
En hvað var Þeyr?
Þeyr var tilraunastarfsemi. Og það sem ég
lærði af henni var að ég átti ekki að nota aðra
menn sem málpípur. Ég vil geta staðið alger-
lega sjálfur við mitt, stjórnað því sjálfur og tekið
fulla ábyrgð á því sjálfur.
Mér leiðist músíkbransinn og vil ekki taka þátt
í honum nema bara á minn hátt. Mér ieiðist
þessi tilbeiðsluheimur þar sem menn sem eru
ekki með nema lítinn hluta af heilastarfseminni
í gangi eru settir uppá einhvern stall, ganga um
í einhverju goðahlutverki og eru bara sjálfum
sér og flestum öðrum til sárra leiðinda.
En hvernig kemstu í kynni við Psychic TV og
Genesis P. Orridge?
Ég las viðtal við P. Orridge 1982 sem var
akkúrat það skemmtilegasta og greindasta
viðtal sem ég hafði lesið í lengri, lengri tíma.
Það varð til þess að ég fór að hlusta á þessar
plötur og þar var sú besta músík sem ég hafði
heyrt í mörg ár. Á þeim tíma var ég kominn með
upp að hálsi ógeð á þessum bransa. Hlustaði
einungis á Vivaldi, Bach, Pachibel og það
alframsæknasta og poppaðasta var Mozart. Ég
hreinlega gat ekki hlustað á nútímatónlist.
Svo gerist það að ég er fenginn til þess að sjá
um tónleika með Psychic TV hér heima fyrir
hönd Grammsins. Ég skrifaði þá bréf til Genesis
og lauma í það hinum og þessum hlutum. Ég
hafði frétt það fjórum mánuðum áður en þetta
kom til að þegar ég var úti í Bretlandi þá hafði
hr. P. Orridge gjarnan komiö á sömu staði og
ég og spurt sömu spurninga aðeins nokkrum
dögum á eftir mér. Svo þegar hann kemur
hingað og við hittumst þá leið ekki klukkutími
áður en við vorum búnir að koma okkur saman
um hvernig við ætluðum að sigra heiminn. Og
þegar við fórum að bera saman bækur okkar
komumst við að því að við höfðum verið að
„...nokkrar þjóðir eru
Igeðveikar í dag, fólk lifir í J
einhverjum sturluðuml
samfélagsveruleik... “
skrifa nákvæmlega sömu fréttatilkynningar á'
nákvæmlega sama tíma. Síðan þegar hann fer
út þá höldum við þessu sambandi gegnum
síma og bréf.
Þá ert þú hér heima að gera stjörnukort?
Já, þá gerist ég stjörnuspekingur til þess að
halda lífi.
Eitthvað um stjörnuspeki?
Nei. Stjörnuspeki er eitthvað sem ég fer í og
úr. Hins vegar gerði ég stjörnukort fyrir Genesis
og sagði honum hvað hann ætti að gera hverju
sinni. Og saman göngum við í það að reka
umboðsmanninn og tvo aðila úr hljómsveitinni.
Þú ert semsagt með ráðabrugg á bakvið
tjöldin eins og í Þeyr?
Já, en þetta var alveg beint samband. Við
vissum það alltaf að við ættum eftir að vinna
saman, þó upphaflega hafi ég gert ráð fyrir að
vera hérna og vinna úr efni sem hann sendi mér
og öfugt. Við unnum meðal annars plötu úr efni
af hljómleikunum hér á þennan hátt. Þegar
Genesis heyrði afraksturinn af þeirri vinnu
hringdi hann í mig og bað mig að koma út, því
hann vildi stokka hljómsveitina algerlega upp.
Og ég fór út og við stokkuðum ekki bara Psychic
TV upp heldur líka Musteri hinnar dulrænu
æsku.
Hvaða fyrirbrigði eru þá Psychic TV og
Musteri hinnar dulrænu æsku í dag?
Psychic TV er bara peninga- og áróðurs-
maskína, sem við notum til þess að getaferðast
um heiminn og komið okkar siðaboðskap og
hugarefnum að og grætt á því peninga. Og
peningana notum við til persónulegra nota því
ég vil geta eignast þá hluti sem ég tel nauðsyn-
lega. Eg vil líka geta komið upp vinnuaðstöðu
fyrir menn eins og Gulla. Ef hann fær fullkomna
rannsóknarstofu þá erum við komnir með hluti
sem eru ótrúlegir. Ég vil líka geta verið í
samstarfi við fólk eins og Meg Patterson,
kvenlækninn sem hefur fundið upp tæki til þess
að lækna heróín-sjúklinga og Harry Oldfield,
sem hefur fundið upp tæki til að lækna ýmsa
sjúkdóma með því að vinna með orkustöðvarn-
ar. Ég vil taka þátt í að styrkja fólk fjárhagslega
sem er að gera hluti sem mér finnst nauðsynleg-
ir. Við ætlum líka að verða öflugir í bóka- og
plötuútgáfu og erum þegar með mörg járn í
eldinum þar.
Psychic TV verður því fyrst og fremst
peningamaskína, þó svo við stefnum að því að
láta hvert atriði skila hagnaði.
Musteri hinnar dulrænu æsku er hinsvegar
upplýsinganet sem er meðal annars nokkurs-
konar félagsfræðileg tilraun. Það eru um tvö
þúsund manns í reglulegu bréfasambandi við
okkur og við dreifum til þeirra mystískum og
magískum iðkunum án nokkurs trúarlegs inni-
halds. Þau geta ekki tengt þæx við nokkra
heimspeki og við segjum ekki að ef þú gerir
svona þá gerist þetta. Við erum ekki að hafa
áhrif á fólk til þess að láta það draga einhverjar
trúarlegar ályktanir af því sem það er að gera,
heldur að það átti sig á því að það er að setja
af stað hluta af heilastarfseminni og líkams-
starfseminni, sem það hefur ekki virkjað áður,
né verið meðvitað um. Síðan getur það vonandi
fært sér þessa vitneskju í nyt og breytt þeim
hlutum í sínu lífi sem það vill breyta. Við erum
að búa til frjálsa einstaklinga, eins fáránlega og
það hljómar.
Búa til?
Já. Við erum hvatar og alveg eins og hvatinn
kemur og sameinar tvö efni sem annars mundu
ekki fara í efnasamband, þá erum við að
sameina fólk og einhverja hluti sem það annars
hefði ekki kynnst. Þetta er einn hluti af starfsem-
inni.
„...ég elska mannkynið
en ég hata fólk...“
En hvað erþað sem tengirykkur saman?
Við trúum því að maðurinn sé guð og hann
geti tekið þennan guðlega neista í sér og kynnt
upp bál. Ég getvitnað í MatthíasJochumsson;
Trúðu á tvennt í heimi
tign er æðsta ber
guð í alheimsgeimi
guð i sjálfum þér.
Þið viljið sem sagt flytja guðshugtakið aftur
inní manninn?
Já. Maðurinn er alltaf að reyna að lifa uppá
einhverja náð himnafeðga, þar sem annar er
morðóður og hinn með svona frekar vafasama
siðfræði.
Maðurinn getur skapað,, sinn eigin veruleik.
90% af fólki eru svefngenglar. Sá hluti af vitund
þeirra sem felur í sér einhverja ákvarðanatöku
fær í hæsta lagi útrás í því að ákveða hvaða
videó-spólu það á að horfa á um kvöldið.
Ég elska mannkynið en ég hata fólk. Það er
þessi ótrúlega þversögn. Ég hata kannski ekki
fólk, en ég hata þennan hugsunarhátt sem
beygir fólk undir einhvern gráan, guðlausan
veruleika sem hefur ekkert fallegt, enga von,
ekkert skapandi í för með sér. Við erum hérna
til þess að gera. Við erum ekki hér til þess að
láta eitthvert þjóðfélag dansa can-can oná
fótunum á okkur og troða okkur undir. Maður
veit náttúrlega að menn hafa verið að reyna að
frelsa heiminn útfrá stjórnmálastefnum, við
erum ekki einu sinni að reyna að frelsa heiminn,
en við erum að reyna að breyta hugsunarhættin-
um.
Meinarðu þá einstaklinga?
Já, einn í einu. Ef þú pælir í því hvernig
heimurinn breyttist í Endurreisninni útfrá töl-
fræði, þá held ég að það þurfi ekki nema svona
á bilinu átta til níu hundruð manns sem eru
samtaka til þess að breyta heiminum í dag.
Svoupprenninýttskeið í mannkynssögunni?
Já.
Og þið ætlið að nota til þess þréfaskriftir?
Já, bréfaskriftir og með því að koma fram
sem hópur. Með því að virkja mismunandi þætti
í listum og vísindum getum við komið af stað
flóði sem á eftir að hlaða utan á sig eins og
snjóbolti sem rúllar og rúllar.
En nú er fólk sjálfsagt orðið langsvelt í
þessum gráa veruleik sem þú kallar og er farið
' að hungra í stærri heim sem rúmardulmögn og
ævintýr. Er ekki í rauninni tiltölulega auðvelt að
safna fólki í kringum hvað sem er svo framar-
lega sem það er í andstöðu við gráa heiminn?
Jú og það er einmitt ástæðan fyrir því að við
grisjuðum stóran part af Musteri hinnar dulrænu
aé^ku. Við viljum ekki fólk sem er að kaupa sér
einhvern draumaveruleik sem það vill nota sem
býtti fyrir þennan gráa veruleik sem það getur
ekki lifað við. Við viljum fólk sem vill gera
eitthvað í málunum. Maður getur fengið fullt af
rugludöllum, bæði hér heima og erlendis, sem
eru tilbúnir að kaupa hvaða kenningu sem er
bara ef hún tekur frá þeim alla ábyrgð. Fólk sem
vill vera áhangendur. Og áhangendur draga úr
þínum eigin hraða. Ef þú ert að burðast með
eitthvert lið á eftir þér þá kemuröu engu í verk
og verður fórnarlamb þinnar eigin ímyndar og
það er bara eins og hver önnur vitleysa.
„...það er miklu betra að
vinna með vídeo en
kálfskinn og hrafnsblóð...“
Þú talar mikið um tækni og tæki ýmiskonar.
Hvernig samræmist það galdrinum?
Það er náttúrlega útí hött á vísindaöld að
dansa í einhverjum kufli, veifandi einhverju
sverði fyrir framan einhvern bikar og með
einhvern galdrastaf í hendi, ef þú áttar þig ekki
á því að þetta eru bara tákn sem voru mjög
viðeigandi á sínum tíma. Þó þú sért með
eitthvert dýraskinn þá þýðir það ekki að það sé
kynngimagn sem fylgir því bara vegna þess að
það sé dýraskinn. Það er vegna þess að þú
hefur sett kynngimagn í hlutinn. Það er til
dæmis miklu betra að vinna með videó en
kálfskinn og hrafnsblóð. Galdramaðurinn verður
að vera í takt við tímann.
Þú ert sem sagt ekki haldinn nostalgíu?
Nei, nei. Ekki til i dæminu. Ég nota bara það
sem virkar og svo spyr maður sjálfan sig af
hverju virkar það. Er það útaf einhverjum
ákveðnum hreyfingum, er það útaf einhverri
ákveðinni öndunartækni eða einhverju allt
öðru? Virkar það ef ég sleppi því að nefna
þennan ákveðna guð eða erkiengil og ef það
virkar þá sleppi ég að nefna þá í framtíðinni. Ég
nota hið valinkunna rökhyggjutæki að skera
niður og einfalda þar til maður hefur einn
ákveðinn hlut sem er ástæðan fyrir því að þetta
virkar.
Ekki fara að klæða þig í einhvern dulbúning
því þá ertu farinn að kasta ábyrgðinni frá þér.
Þú hefur trú á tækninni?
Það sem heillar mig alveg ósegjanlega í
sambandi við tæknina er að það er farið að búa
til tæki sem geta haft áhrif á vitundina og hinn
líkamlega veruleika. Það er löngu sannað mál
að sýking kemur fyrst fram á orkusviðinu og það
er hægt að lækna sjúkdóma með því að koma
orkusviðinu í lag aftur. Og þessi tæknibylting er
rétt að byrja og næsta stökk í læknavísindunum
hlýtur að verða notkun á svona tækjum. Það er
bara búið að úthýsa svo miklu af þessu sem
skottulækningum og rugli. Það er eins og þessi
stóru hugsanakerfi, það er sama hvort við tölum
um læknavísindin eða eitthvað annað, þoli
varla breytingar. Sérstaklega ef einhver pró-
fessor þarf að fara að hugsa uppá nýtt og á þá
kannski á hættu að rnissa stöðuna. Þetta hefur
alltaf verið vesenið. Ég sagði við Einar Pálsson
um daginn að mér fyndist mennirnir uppi í
Háskóla gera lítið annað en fjárfesta í þögn. Og
fjárfestingin er orðin svo mikil að þeir geta ekki
hætt. Það hlýtur sumum að líða voða illa því
þrátt fyrir að þeim sé skítsama um kenningarnar
sem þeir eru að verja, þá er þetta sem
akademísk vinnubrögð gersamlega út í hött.
Háskóli á að vera umræðugrundvöllur og það á
að vera akademísk umræða um það sem
kemur upp. Þeir hefðu átt að geta sagt til um
það fyrir fimmtán árum hvort eitthvað væri til í
þvi sem Einar Pálsson er að gera, en þess í
„...mér finnst mennirnir
Juppí Háskóla gera lítið
Jannað en fjárfesta
'þögn...“ ___________
stað kjósa þeir að þegja. Og nú er þögnin orðin
svo pínleg að mér finnst þeir vera minni menn
fyrir.
í rauninni hefur ekkert nýtt gerst í vísindum í
háa herrans tíð. Það eina sem hefur gerst er að
það er komin tækni sem gerir það kleift að
smíða tæki eftir gömlum kenningum. Það hefur
ekkert komið fram sem ekki var til teorískt fyrir
100 árum.
Hvar ertu staddur í þínum galdri í dag?
Sem stendur er ég að reyna að koma öllu því
sem ég hef lært í eitthvert heilrænt kerfi. Og ég
á eftir að læra margt í viðbót. En ég stefni að
því að koma mér upp nokkurs konar tækni-
magiu.
Hingað til hefur stjórn á fólki verið hugmynda-
fræðileg, en ég er sannfærður um að í framtíð-
inni verði hún meira tæknileg. Nú þegar er hægt
að stjórna því í hverskonar skapi fólk er með
hljóðbylgjum og.það er meira en hægt því bæði
Rússar og Bandaríkjamenn hafa orðið uppvísir
að því að senda út 6,6 Hertz lágtíðnibylgjur.
Þær virka þannig aö heilinn fer að framleiða
theta-bylgjur og maður fær of mikið af serafóni
útí blóðið og verður þunglyndur og ofbeldis-
hneigður. Og ég ætla ekki að láta einhverja
menn í Washington eða Moskvu ákveða fyrir
mig í hvernig skapi ég er hverju sinni. Maður vill
geta stjórnað sínum eigin veruleik.
•
Að lokum. Ertu búinn að flýja land?
Það er undarleg tilhneiging hjá íslendingum
að vilja alltaf svelta bestu syni sína og taka þá
svo í sátt eftir dauðann ef það er óumflýjanlegt.
En helst að sópa þeim sem lengst í burtu.
Ert þú einn afþeim?
Einn af bestu sonum þjóðarinnar. Ég efast
ekki um það eina sekúndu. Það að þjóðin vilji
kannast við mig er svo annað mál.
Nei, ég veit það ekki. Ég hef alveg frá upphafi
samkennt mig mönnum eins og Sölva Helga-
syni. Ég grét mig i gegnum Sólon íslandus í
frumbernsku og tilbað Sölva. Ég fann það í
hjarta mínu að ég átti samleið með þessum
manni. Kaldhæðnin var sú að fólk var aldrei gott
við hann nema þegar hann talaði illa um
náungann. Fólk sagði að hann væri illa innrætt-
ur og það væri mikill kjaftur á honum, en
karlgreyið fékk aldrei húsaskjól eða mat nema
hann segði að á síðasta bæ hefði allt verið í hor
nema lýs og flær. Þetta elska (slendingar. gse