NT - 06.11.1985, Blaðsíða 3
■ Fríðrik Pálsson viðsidptafræðingur.
stjóri SH
■ Friðrik Pálsson viðskiptafræðing-
ur hefur verið ráðinn forstjóri Sölu-
miðstöðvar hraðfrystihúsanna, frá og
með 1. janúar næstkomandi.
Friðrik er sonur hjónanna Páls
Karlssonar bónda og konu hans
Guðnýjar Friðriksdóttur. Hann lauk
stúdentsprófi frá Verslunarskólanum
1969 og viðskiptafræðiprófi frá HÍ
1974.
Friðrik hefur starfað hjá Sölusam-
bandi íslenskra fiskframleiðenda um
langt skeið og verið framkvæmda-
stjóri þess frá 1978.
Friðrik er kvæntur Ólöfu Péturs-
dóttur, héraðsdómara.
Skólafólk:
Samkeppni
um hugbúnað
■ IBM á íslandi hefur ákveðið að
standa fyrir samkeppni meðal ís-
lenskra skólanemenda og kennara
þeirra um hugbúnað. Tilgangurinn er
að hvetja til aukins framboðs af
hugbúnaði á IBM PC, sem hentar til
náms í skólum landsins.
Það sem verið er að leita eftir er
námsefni sem kennir ákveðin atriði
eða hugtök í námsskrá og nýtir einka-
tölvuna á frumlegan og skapandi hátt.
Keppendur geta komið úr öllum
skólum, sem á annað borð hafa
aðgang að IBM PC tölvu, en þátttak-
endur mega þó ekki vera orðnir
tvítugir 1. september 1986.
Dómnefnd er skipuð þremur
mönnum og verða verðlaun vegleg.
bæði peningar og vélbúnaður. Verð-
launahugbúnaðurinn verður sendur á
sérstaka Evrópukeppni um hugbúnað
fyrir IMB PC tölvur.
Síðasti skiladagur er 15. febrúar
1986.
Sendiherra í
Ungverjalandi
■ Páll Ásgeir Tryggvason sendi-
herra afhenti hinn 25. október sl.
Rezsoe Trautmann varaforseta Ung-
verjalands trúnaðarbréf sitt sem
sendiherra fslands í Ungverjalandi
með aðsetur í Moskvu.
Ferðaáfangar mega ekki vera
of langir - þá þreytast
farþegar, sérstaklega börnin.
Eftir 5til lOminútnastanságóðum
stað er lundin létt. Minnumst
þess að reykingar i bilnum geta
m.a. orsakað bílveiki.
iJU^JFERÐAR
TILBOÐ ÁRATUGARINS
Við bjóðum nú bændum
takmarkaðan fjölda
ZETOR dráttarvéla
á einstöku verði og
greiðsluskilmálum,
sem enginn slær út.
Þetta tilboð stendur
til 2. desember eða
meðan hinar takmörkuðu
birgðir endast.
Undanfarin 10 ár hefur ZETOR verið söluhæsta dráttarvélin á
íslandi og sum árin hefur hlutfallið numið yfir 50% af heildarsöl-
unni, og eru nú tæplega 3000 vélar í notkun hér á landi.
Þetta sannar að íslenskir bændur vita að langmest fæst
fyrir peningana með kaupum á ZETOR.
ZETOR hlaðin aukabúnaði:
• Olíuverk sem gerir vélina þvðgenj'ari »}> sparneytnari •
Kröftugt vökvakerfi, sem eykur verulega lyftigetu þríteng-
isbeislis og annarra viötengdra tækja • Fislétt vökvastýri •
Öflug miðstöð • Hljöðeinangrað hús og rúmbetra en
nokkru sinni með opnanlegum hliðar- og afturgluggum •
Dráttarkrókur • Stereo útvarp og segulband - leið -
beiningasnælda fylgir vélinni • Ryðvörn • Stillanlegt
fjaðrandi ökumannssæti • Rúðuþurrkur m/sprautu framan
og aftan • Ljóskastarar framan og aftan • Sjálfstæð
fjöðrun á framhjóluin • Yfirstærð af dekkjum aftan og
framan • Stórir hliðarspeglar o.fl. o.fl. sem of langt vrði
upp að telja.
Getum enn boðið ZETOR á gamla
verksmiðjuverðinu,sem er tvímælalaust
besta verðið á alvöru dráttarvél.
5211 47 ha. án fjórhjóladrifs kr. 310.000
5245 47 ha. með fjórhjóladrifi kr. 375.000
7211 65 ha. án fjórhjóladrifs kr. 373.000
7245 65 ha. nieð fjórhjóladrifi kr. 465.000
Greiðsludæmi:
ZETÓR 5211 staðgreiðsluverð gengi
4/11 kr. 310.000.- 30% útborgun
ásamt stimpilgjaldi, þinglesningu
og umsýslu.....98.776.- Eftirstöðvar
lánaðar á skuldabréfi með
mánaðarlegum greiðslum í
24 mánuði, verðtryggt samkv.
lánskjaravísitölu, en vaxtalaust
kr. 265.174.- Mánaðargreiðsla
kr. 11.049.- í eftirstöðvunum eru
reiknaðar kr. 2007.- í
fjármagnskostnað á mánuði
í 2 ár. Allar aðrar gerðir
ZETOR á sömu kjörum.
Þessi verð og ístékk greiðslu-
kjör gera nú öllum bændum
kleift að eignast ZETOR
umboðid:
i
íslensk-tékkneska verslunarfélagið hf.
Lágmúla 5, sími 84525, Rcykjavík.