NT - 06.11.1985, Blaðsíða 5
Heimsmeistaraeinvígið í skák:
Beitt sókn Karpovs
gaf góða uppskeru
■ f mikilli baráttuskák glutr-
aði Kasparov stöðu sinni niður
í síðustu leikjum áður en 22.
skák heimsmeistaraeinvígisins í
Moskvu fór í bið, og sérfræðing-
ar telja flestir að skákin sé
unnin fyrir Karpov.
f>ó Karpov sé nú ekkert ann-
að en skinnið og beinin mætti
hann ákveðinn til leiks í gær en
Kasparov var hinsvegar tauga-
óstyrkur og hikandi. Karpov
blés strax til sóknar með hvítu
mennina og lengi framanaf var
hann með betri stöðu. Sérstak-
lega þótti 9. leikur Kasparovs
vafasamur.
En í miðtaflinu varðist Kasp-
arov vel og þótti jafnvel hafa
snúið taflinu við. En tímahrak
setti strik í reikninginn og óná-
kvæmir leiki í lokin leiddu til
peðstaps, auk þess sem Karpgv
hefur mjög virkan kóng.
22. einvigisskákin, sem þótti
vera mjög spennandi, fer hér á
eftir. Karpov hefur hvítt og
Kasparov svart og byrjunin er
Alatortsevafbrigðið af drottn-
ingarbragði.
Hvítt: Karpov.
Svart: Kasparov.
1. d4-d5; 2. c4-e6; 3. Rc3-Be7;
4. cxd-exd; 5. Bf4-Rf6; 6. e3-0-
0; 7. Rf3-Bf5; 8. h3-c6; 9. g4-
Bg6; 10. Re5-Rfd7; 11. Rxg7-
fxg7; 12. Bg2-Rb6; 13.0-0-Kh8;
14. Re2-g5; Bg3-Bd6; 15. Bg3-
Bd6; 16. Dd3-Ra6; 17. b3-De7;
18. bxd6-Dxd6; 19. f4-gxf4;20.
exf-Hae8; 21. f5-Rc7; 22. Hf2-
Rd7; 23. g5-De7; 24. h4-De3;
25. Hdl-Rb5; 26. Dxe3-Hxe3;
27. Kh2-Rb6; 28. Rg3-Rc8; 29.
Rfl-He7; 30. Hd3-Rcd6; 31.
Rg3-Re4; 32. Bxe4-fxe4; 33.
He3-Rxd4; 34. Kh3-He5; 35.
Kg4-h5; 36. Kxh5-Rxf5; 37.
Hxf5-H8xf5; 38. Rxf5-Hxf5; 39.
Hxe4-Kh7; 40. He7-b5; 41.
Hxa7-b4.
ii
1
■11 111 II
1 iiiiii
18 11
A 111
A
1(1 1 lllli 111 11
Hér lék Karpov biðleik en
búist er við að Kasparov gefi
skákina án frekari taflmennsku.
Ef sú verður raunin munar að-
eins einum vinningi á skák-
mönnunum og tvær skákir eru
eftir af einvíginu. Kasparov
nægir jafntefli í báðum skákun-
um til að verða yngsti heirns-
meistari frá upphafi.
Árbæjarsafn:
Útigangs-
maðurbjó
sér fleti
■ Brotist var inn í
burstabæinn í Árbæjar-
safni í fyrrakvöld. Engu
var stolið úr húsinu, en
skemmdir urðu á rúðu,
þar sem talið er að farið
hafi verið inn í húsið. Að
sögn rannsóknarlögreglu
benda allar líkur til þess
að útigangsmaður hafi
þarna búið um sig, þar
sem fleti fannst í einu
horni hússins.
Miðvikudagur 6. nóvember 1985
Þing FFSI sett:
Formaður talar gegn kvótanum
■ „í dag get ég fært ykkur
betri tíðindi... Pessi 500 þúsund
tonna viðbót mun koma í hlut
íslenskra skipa og er því um að
ræða sem næst tvöföldun veiði-
heimilda" Þannig sagðist Hall-
dóri Ásgrímssyni frá á þingi
Farmanna- og fiskimannasam-
bandsins í gær.
Að undanförnu hafa fiski-
fræðingarnir unnið að rannsókn-
um á loðnustofninum og á
grundvelli þeirra hafa þeir gert
tillögur um veiði á tímabilinu
frá desember til mars. Áður
höfðu þeir gert tillögu um að
veidd yrðu 700 þúsund tonn á
tímabilinu ágúst-nóvember, og
þar af féllu 500 þús. tonn í hlut
Islendinga. Tillögur fiskifræð-
inga um heildar aflamark á ver-
tíðinni nemurþví 1200tonnum.
Tilkynning ráðherra féll í
góðan jarðveg á þinginu enda
nokkur loðnuskip langt komin
með sinn kvóta og önnur svo
Kaupfélag Hafnfirðinga
og lögbannið
■ Vegna yfirlýsinga frá
Kaupfélagi Hafnfirðinga í út-
varpi og blöðum óskar undir-
ritaður að eftirfarandi verði
birt.
Á sínum tíma fékk K.H.
úthlutað lóð að Miðvangi 41
hvar rekin skyldi þjónustumið-
stöð s.s. banki, pósthús, bak-
arí, fiskbúð, apótek o.fl. Árið
1977 kaupir Kökubankinn hf.,
fokhelt húsnæði af K.H. til
þess að setja upp bakarí í
fyrrnefndri þjónustumiðstöð.
Samningar voru gerðir í vin-
semd og bróðerni og sá um þá
f.h. Kaupfélags Hafnfirðinga
Jón Finnsson hrl. Stjórn K.H.
undirritaði öll samninginn.
Ekki kvaddi Kökubankinn
lögmann sér til aðstoðar, þar
sem hæfni og heiðarleika lög-
manns K.H. var fullkomlega
treyst. í samningi þessum eru
mjög skýr ákvæði til hvers
húsnæði þetta skyldi notað,
svo og réttur og skyldur beggja
aðila nákvæmlega tilgreind. í
samningnum segir meðal
annars: „Kökubankanum hf.
er heimilt að reka í húsnæðinu
að Miðvangi 41, framleiðslu
og sölu á brauðum og kökum
og skydum vörum en er óheim-
ill annar rekstur, nema til komi
samþykki annarra rekstrarað-
ila í húsinu. Á sama hátt
skuldbindur Kaupfélag Hafn-
firðinga sig til þess að versla
ekki með daglega framleiðslu
annarra brauðgerðarhúsa
nema samkomulag verði um
annað.“
Samningur sem þessi er
mjög algengur og raunar alger
forsenda þess að húsnæðið var
keypt í þessu tilfelli.
Nauðsynlegt er, ef þjónustu-
miðstöð, eins og að Miðvangi,
á að standa undir nafni, að
samstarf, samvinna og gagn-
kvæmt traust ríki milli aðila. í
byrjun var samstarfið með
ágætum eða í u.þ.b. 3 ár en
breyttist þegar núverandi
kaupfélagsstjóri hóf störf.
Þá var byrjað að brjóta
gerða samninga og hefja sölu á
brauðvörum frá öðrum bak-
aríum.
Síðan telur K.H. sig geta
einhliða sagt upp samningi og
kemur með órökstuddar dylgj-
ur og beinan atvinnuróg, en
því verður svarað á öðrum
vettvangi.
Þegar svo var komið þótti
Ijóst að K.H. ætlaði ekki að
standa við gerða samninga var
því nauðsynlcgt að leita réttar
síns fyrir dómstólum. Fyrsta
skref er að óska eftir lögbanni
og síðan leggja málið í dóm.
Kaupfélagsstjórinn lætur í
það skína í útvarpsfrétt að
kvöldi 31.10. að K.H. sé með
þessu að hugsa um hag neyt-
enda og bjóða uppá aukið
vöruframboð í verslun sinni.
K.H. ætti e.t.v. að leggja áþað
höfuðáherslu að koma betur
út úr verðkönnunum en verið
hefur og t.d. gefa Kökubank-
anum tækifæri til að selja mjólk-
urvörur á þeim tímum þegar
K.H. er lokað, það væri að
hugsa um hag neytenda.
Sú auglýsing sem K.H. fær
með þessum hætti er ekki til
þess að auka veg þeirra á
nokkurn hátt a.m.k. er það
Ijóst að þeir virða ekki gerða
samninga.
Kökubankinn ætlaði að hlífa
K.H. við að gera framangreint
að opinberu útvarps- og blaða-
máli en fyrst þeir hafa kosið þá
leið skal ekki standa á Köku-
bankanum að leggja öll spilin
á borðið.
Bergur Haraldsson,
stjórnarmaður í
Kökubankanum.
gott sem búin með hann. Þar
sem hér er um mikilvægt mál að
ræða skyggði það nokkuð á
aðra dagskrárliði þingsins, en
það setti Guðjón Á. Kristjáns-
son formaður FFSÍ. I ræðu sinni
gerði Guðjón grein fyrir störf-
um sambandsins frá síðasta
þingi og kom víða við. Undir
lok ræðu sinnar gerði hann fisk-
veiðistefnuna að umtalsefni og
taldi að spár fiskifræðinga hefðu
reynst haldlitlar og betra væri
að styðjast við meðalársafla síð-
ustu tuttugu ára. Hann sagði að
lokum: „Kvótakerfi á hvert
einstakt skip yfir tíu lestir á
almennum botnfiskveiðum er
stjórnkerfi sem ég hef engan
áhuga á að vinna að... Það er
tilgangslaust að velja menn til
forystustarfa og ætlast til að þeir
fylgi eftir málum, sem ganga
þvert á sannfæringu þeirra
sjálfra“ Með þessum orðum er
Guðjón að gefa þingfulltrúum
vísbendingu um, að verði sam-
þykkt ályktun á þinginu sem
styðji kvótakerfið muni hann
ekki gefa kost á sér til forystu í
FFSÍ.
Þinginu verður framhaldið í
dag.
NT-raynd: Róbert.
■Fró ársþingi Farmanna- og fiskimannasambands íslands sem hófst í gær.
Eurocard með nýtt
úttektartímabil
„Til góðs fyrir alla aðila,“ segir Gunnar Bæringsson fram-
kvæmdastjóri
■ Eurocard kreditkort sf. hafa
ákveðið að breyta úttektartíma-
bili korthafa sinna. Þannig hefst
úttektartímabilið framvegis 18.
hvers mánaðar og lýkur 17.
næsta mánaðar á eftir, í stað 21.
og 20. eins og áður hefur verið.
Auk þessa breytist gjalddagi
útsendra gíróseðla og verður
framvegis annan dag hvers mán-
aðar í stað þess fimmta.
Gunnar Bæringsson fram-
kvæmdastjóri sagði að þessar
breytingar væru fyrst og fremst
til hagræðingar og eftir þær
væru bæði kreditkortafyrirtækin
Eurocard og Vísa með sama
úttektartímabil og sömu gjald-
daga á útsendum gíróseðlum.
Nýja fyrirkomulagið tekur gildi
frá og með yfirstandandi út-
tektartímabili sem lýkur þann
17. nóvember og gjalddagi
þessa tímabils verður 2. des-
ember. „Úr því að þeir hjá Vísa
tóku ekki upp sama kerfi og við
þegar þeir byrjuðu höfum við
tekið það til bragðs að breyta
þessu hjá okkur og vonum að
þessi breyting komi ekki að sök
hjá viðskiptavinum okkar. Við
höfum lent í nokkrum erfiðleik-
um fyrir undanfarin jól að Ijúka
vinnslu á gíróseðlum og senda
út reikninga en við þessa breyt-
ingu fáum við tækifæri á að
Ijúka því í tíma og þegar til
lengri tíma er litið held ég að
þessi breyting verði til góðs fyrir
alla þá sem hlut eiga að máli.“
■ Starfsmenn Seljaútibús í nýja húsnæðinu. 'my,ld: Rébtrt
Seljaútibú flytur
í nýtt húsnæði
■ Nýlega flutti Seljaútibú
Búnaðarbankans starfsemi sína
í hús verslunarinnar Víðis í
Mjóddinni, eftir að afráðið var
á þessu ári að festa kaup á hluta
hússins þar.
Seljaútibú Búnaðarbankans
var stofnað 11. desember 1981.
Frá upphafi hefur útibúið verið
í leiguhúsnæði að Stekkjarseli 1
í Reykjavík, en það var hugsað
sem leiguhúsnæði og rann leigu-
tíminn út 1. nóvember. Ætlunin
var að byggja nýtt hús fyrir
útibúið í Seljahverfi en ekki
tókst að fá hentuga lóð.
Útibúið annast öll innlend og
erlend bankaviðskipti, og getur
nú boðið næturhólf og öryggis-
hólf til afnota fyrir viðskipta-
vini.
Starfsmenn útibúsins eru nú
átta talsins og útibússtjóri er
Dóra Ingvarsdóttir.