NT - 24.11.1985, Blaðsíða 3
rVísnaþáttun
Háttvirtir lesendur, ég vil byrja á
aö þakka þeim er hata sent mér efni
í þáttinn.
Ólafur Gíslason Neörabæ í Arn-
arfirði sendi mér vísur eftir sig og
aðra hagyrðinga, kem ég hér fyrst
með vísur eftir Ólaf.
Sækja þeir á saltan stig
sjónum rád sitt fela
Sem vilja hvorki venja sig
af vöggu eða pela.
Enn er meðal aumra vor
öfga skammt á milli
Meðan aðrir hníga úr hor
hinir deyja úr fylli
Vont er þegar veðrin hörð
varna mönnum göngu
En verst er þegar virðast gjörð
veður út af öngu.
Ekki lengur yrði par
undan skyldum vikist
Við kórbekkinn ef komi bar
kirkjusóknin ykist.
Kristján Kristjánsson smiður,
fluttist frá ísafirði til Bíldudals um
síðustu aldamót. Hann var góður
hagyrðingur.
Eftirfarandi sléttubandavísa hans
lýsir verslunarviðskiptum kaup-
manns nokkurs á Bíldudal og
kvenna úr Ketildalahreppi.
Hlátur svalur glymur, grær
gustur kala djúpur.
Kátur valur finnur, flær
feitar dala rjúpur.
Sumarliði Jónsson bóndi á Fossi
í Arnarfirði þrjá fyrstu áratugi aldar-
innar kvað um kvennatískuna og
áhrif hennar.
Hárið skera hausinn við
hörmung er að líta
eitthvað bera í andlitið
sem ásýnd gerir hvita
Eðlishvötin ástarþrá
eykur lötum þegnum
er ónefnd götin seggir sjá
skilkifötin gegnum.
Næstu vísur Sumarliða Jónssonar
heita
Á sjó
Vont er kíf að vera á jakt
í veðri stífu og frosti.
Upp á hífast hundavakt
held ég lífið kosti.
Byr vel þeginn blæs í voð
brims á Reginheiði
Ölduþvegin öslar gnoð
yngismeyjarleiði.
Og síðasta vísa Sumarliða Jóns-
sonar heitir,
Nýír siðir.
Þrátt fyrir taman þjóðarsið
þeim er sama núorðið
Hvort aftan, framan eða á hlið
þeir eiga gaman fljóðin við.
Pétur Stefánsson sendi mér aftur
vísur eftir langafa sinn Björn Péturs-
son frá Sléttu í Skagafirði og hér
korna þær.
Þó að skapið hafi hert
harður reynsluvetur
Man ég það sem mér er gert
mörgum kannski betur.
Björn frétti af konu er ólm vildi
giftast honum, Björn kvað.
Þær vilja ennþá eiga mig
með arma skilkibúna
Þó gaman sé að gifta sig
ég get það ekki núna
Björn orti þessa eftirmælavísu
um sjálfan sig.
Gamli Björn er fallinn frá
flestum held ég líki
Nú er hann kannski kominn á
knæpu í himnaríki
Gísli Ólafsson frá Eiríksstöðum kvað
Þegar bjátar eitthvað á
ört og viðkvæmt sinni
Alltaf finn ég friðinn hjá
ferskeytlunni minni
Hér kemur að lokum fyrripartur eftir
Pétur Stefánsson Skeljagranda 1,
Rvk. og botnið þið nú.
I fjarska sýnast fjöllin blá
fögrum Ijóma ofin.
Látum þetta duga að sinni,
Stefán Jóhannesson
Kleifum
Gilsfirði
371 Dalasýslu
Sími 93-4772
NT' Sunnudagur 24. september
Nokkrar fínar ferðatillögur fyrir þig
SldÐAPARADISIN
MAYRHOFEN
FLIUGIÐ TIL KANARÍ
Beint ílu^ !ti Sal/burií í Austurriki
Boðið upj. «i ö hótel i mismunandi
verðíiokkum Mayrhnfen býður upp «i
írábærar brekkur. olstoíur. fina veit-
ingastaði og diskntek l’.ins og tveggja
vikna ferðir
Verd fró kr. 21.75«.-(2 vikur). 0
SkfMimtiLc'o >k«»ðij
slt.'ðak rð - dagsíerð i;. Ii t!iu .vli F'ar-
arstjorinn \m>a’li Kiuli Knapp verður
a stvtðnum
Fáðu bækliugH og nanari upplvs-
ingar uin ferðatilhögun hjá okkur.
briggja vikna ferðir til KANARI í allan
vetur. Beint í!ug eða með viðkonui í
Amsterdam. Ibiiðir eða hntel
Verð frá kr. L’9.343.- (3 vikur).
ARAMOTAFERÐ
TIL AMSTERDAM
Áramótaferð með Ferðamiðstöðinni
er eitt af því sem ekki er hægt að lýsa,
þú verður að upplila það.
Farið verður frá Keflavik 28. desem-
ber og dvalið á hinu frábæra hóteli
Pulitzer.
Á gamlárskvöld verður áramóta-
fagnaður á hinum einstaka skemmti-
stað Lido, þar sem boðið verður upp á
kalt borð. drykki. desert, dans og
skemmtiatriði með heimsþekktum
dönsurum og skemmlikröftum. Allir
drykkir án endurgjalds, að undan-
skildu kampavíni.
Á nýársdag er svo „Brunch" (sam-
bland af morgunverði og hádegis-
verðil á hótel Pulitzer.
Flogið verður heim frá Amsterdam 2
janúar.
Amsterdam hefur upp á margt að
bjóða, þar er gotl og gaman að versla
og alltaf líf og fjör — sem sagt
ógleymanleg óramótaferö.
Verð ó mann í tvíbýli Kr. 15.645,-
— aukagjald f. einbýli — 3.800.-
lnnifalið: Flug, gisting í 5 nætur,
ferðir tii og fró fiugvelli að hóteli,
óramótafagnður og Brunch.
' a'v
ARAMOTAFERÐ
TIL KAUPMHAFNAR
30. DESEMBER 1985
Endurtökum nú hina frábæru ára-
mótaferð til Kaupmannahafnar.
Gist verður á SAS ROYAL hóteli, sem
er fyrsta flokks hótel i miðbæ Kaup-
mannahafnar. Innifalið í verð er flug,
akstur til og frá flugvelli að hóteli, og
gisting á SAS ROYAL.
Á gamlárskvöld verður áramótafagn-
aður á hótelinu:
MATSEÐILL
Fordrykkur: Kampavínskokteill
Forréttur: Consommé Madrilene
Kjúklingaseyði
Aðalréttur Saumon fumé ó chaud et
epinards en branch
Heimareyktur lax með spínati
Eftirréttur: Grand Marnier souffié
Eftir miðnætti verður boðið upp hlað-
borð með blönduðu dönsku áleggi.
Boðið verður upp á frönsk vín, kaffi og
koniak með og eftir mat.
Verð ó mann: IKR. 2.990.- (DKK. S9R)
Kvintett Ernst Herdorff leikur.
-Sannkölluð óramótastemmning-
6NT Má-Su 4NT Má-Fö
kr. 19.250 kr 16.395
aukagj. v/einb. kr. 5.H0K kr.
Verd á mann í
tvíbýli
3.K72
Verð miðað við skráð gengi
þann 10/10/85.
SIGLING TIL KANARI
14 DAGA FERÐ MEÐ
M/S BLACK PRINCE
Skipafélagið FRED OLSEN LINES býð-
ur þægilega 14 daga siglingu með
hinu glæsilega 300 farþega skemmti-
ferðaskipi frá Rotterdam til Madeira,
Las Palmas, Tenerife, Lanzarote,
Madeira, Tilbury/London, Rotterdam.
Verð frá kr 71.900.- 2 í klefa. 53.000.-
3 í klefa. 48.950.- 4 í klefa.
Innifalið i verðinu er flug til og fró
Amsterdam, ferð með m/s PRINCE
með fullu fæði.
Brottför: 9. og 23. janúar — 0 og 20
febrúar — fi. og 20. mars — 3. og 17
april.
r r
JOL OG ARAMOTI
LONDON
JÓLAFERÐ TIL LONDON 23 des. til
27. des. 1985. Fimm daga ferð. Njótið
jólanna í London á fyrsta flokks hóteli
við Oxford Circus, ST. GEORGES. Verð
i tvíbýli kr. 22.470.
Innifalið í verðinu er: Flug og gisting
með enskum morgunverði. Á að-
fangadagskvöld verður framreiddur
fimm rétta kvöldverður með for-
drykk. Á jóladag fimm rétta hádegis-
verður við píanóundirleik.
Sannkölluð jólastemmning.
Verð i tvibýli kr. 22.470.
ÁRAMÓTAFERÐ TIL LONDON 30.
des. 1985 til 3. jan. '86. Fagnið nýja ár-
inu í London í góðu yfirlæti á ST.
GEORGES hótelinu við Oxford Circus.
Innifalið í verði er: Flug og gisting
með enskum morgunverði. A gamla-
árskvöld verður borðaður fimm rétta
kvöldverður við kertaljós og hljómlist,
síðan dansað. Á nýársdag, hádegis-
verður i frábærum veitingasal St.
Georges hótelsins.
Sérstök áramótaatemmning.
Verð í tvíbýli kr. 21.950.
m
l[Í=j FEROA
IM!I MIDSTODIIM
AÐALSTRÆTI 9 S. 28133
3JARNA D