NT - 24.11.1985, Blaðsíða 6
6 Sunnudagur 24. september NT
Sögur og Ijóð eftir Ástu Sigurðardóttur:
r
„...hún er séráparti
sem rithöfundur,“
segir Kolbeinn Þorsteinsson
hjá Máli og menningu
í samtali við NT
■ „Hún var búin að fá
útgefanda að henni, en
líklega hefur hún ekki
verið ánægð með hana
og hent henni,“ segir
Kolbeinn en bætir því
við að svona sé nú lífið
einu sinni þótt það væri
auðvitað óumræðilegur
fengur að hafa skáld-
sögu upp á 300 síður
eftir Ástu í höndunum.
NT-mynd: Árni Bjarna
Ásta Sigurðardóttir. Rithöfundur
og myndlistarmaður. Hún skrifaði
smásögur, magnaðar sögur, fullar af
andstæðum, litum, sönnum og sterk-
umi tilfinningum.
Árið 1961 kom út eftir hana smá-
sagnasafn sem bar nafnið Sunnu-
dagskvöld til mánudagsmorguns,
bók sem er löngu horfin af markaði.
Sögurnar höfðu flestar birst áður í
tímaritum og margar vakið gífurlega
athygli því í þeim lýsir Ásta lífi
utangarðsfólks og annarra umkomu-
leysingja og setur sig í spor þeirra, og
ögrandi hreinskilnin og hispurleysið í
frásögninni hafa vafalítið hneykslað
margan góðborgarann. En menn
drukku sögurnar í sig og þegar ég
komst sjálf í þær 17 ára gömul fannst
mér ég hafa komist yfir leynilegan
fjársjóð, því bókin varþá löngu, löngu
uppseld.
En í liðinni viku kom út bók hjá Máli
og menningu, með smásögum, Ijóð-
um og dúkristum eftir Ástu. Þar er að
finna allar sögurnar sem birtust í
Sunnudagskvöldi til mánudags-
morguns en líka margar áður óbirtar
sögur og Ijóð. Óumræðilegur fengur
fyrir aðdáendur Ástu en ekki síst
fengur fyrir þá sem aldrei hafa lesið
neitt eftir hana.
Kolbeinn Þorsteinsson, starfsmað-
ur hjá Máli og menningu og eitt barna
Ástu, sá ásamt fleirum um útgáfu
bókarinnar sem ber yfirskriftina Sög-
ur og Ijóð. Á blaðamannafundi í
vikunni þegar hann kynnti bókina
ásamt Þóri Jökli bróður sínum og
Silju Aðalsteinsdóttur hjá Máli og
menningu gat ég - aðdáandi Ástu -
■ Spilin eru mögnuð eins og sjá má á myndinni sem Róbert Ijósmyndari tók af hluta spilanna.
ekki hamið löngun mína til að ræða
við þá bræður. Og Kolbeinn féllst loks
á að koma í viðtal, Þórir Jökull var
farinn aftur í sveitina. Síðdegis hitt-
umst við svo heima hjá Kolbeini í
vesturbænum. Kolbeinn hafði lagað
þetta dýrindis kaffi og var örlátur á
það.
„Það var í byrjun september að
ákveðið var að Mál og menning gæfi
út bók með áður óbirtu efni mömmu.
Við Árni Einarsson framkvæmdastjóri
Máls og menningar höfðum farið
niðrá handritadeild Landsbókasafns-
ins þar sem ég ætlaði að sýna honum
spil sem mamma gerði, og við syst-
kinin höfðum mikinn hug á að fullgera
og gefa út. En hann fékk eðlilega
meiri áhuga á óbirtum sögum eftir
hana sem voru líka varðveittar þar,
því Mál og menning er auðvitað
bókaforlag. Vinnslan á bókinni var
strax sett i gang, fyrst var meira að
segja stefnt að því að hún kæmi út
15. október sem var óðs manns æði.
Bókin kom í verslanir núna í vikunni,
en við fengum raunar fyrstu eintökin
í hendurnar laugardaginn 16. nóv-
ember."
Og þú hannaðir bókina?
„Ja, við Silja gerðum það eiginlega
saman. Ég hafði aldrei fengist við
svona áður en ég hafði strax ákveðn-
ar hugmyndir um hvernig bókin ætti
að jíta út.
Ég spurði Silju nú að því hvers
vegna hún hefði sett það inn í bókina
að ég hefði hannað hana, hvort hún
væri að slá einhvern varnagla með
því, en hún sagði að svo væri ekki.
Ég vil ekki eigna mér neinn heiður af