NT - 24.11.1985, Page 8

NT - 24.11.1985, Page 8
8 Sunnudagur 24. september NT Á KROSSGOTUM Gluggað í skýrslu sem Ragnar Kjartansson, stjórnarformaður Hafskips, flutti á hluthafafundi félagsins í febrúar 1985, er hlutafé félagsins var aukið um 80 milljónir. Málað yfir nafn Hafskips sl. miðvikudag. „Á meðan við trúum á gildi einkaframtaks og samkeppni, lifir Hafskip hf.“ NT-mynd: Róbert Stjórn Sambandsins ræddi þessi mál sl. miðvikudag og samkvæmt heimildum NT þá var augljóst að sumir stjórnarmenn voru lítt hrifnir af að fara til samstarfs við Hafskips- menn og gera þessa tilraun, það jafnvel þó hún kynni að reynast Sambandinu hagkvæm. Samt var ákveðið að kanna málin til hlítar, enda upplýsingar sem fyrir lágu mjög hráar og ýmis atriði enn í þoku. Kjarni málsins er sá að Sambandið óttast það ástand sem gæti skapast ef Eimskip fær skip og viðskipta- sambönd Hafskips. Þá væri Eimskip komið með 80% af öllum siglingum og hefði um 20-30% betri aðstöðu með þessa miklu flutningamöguleika, en Skipadeild Sambandsins. Menn óttast að Eimskip myndi snarlækka farmgjöld þannig að Skipadeildin yrði ekki samkeppnisfær. „Það er enginn spenntur að taka upp samstarf við þessa menn, en hinsvegar verður Sambandið að horfa til framtíðarinnar og skoða þann möguleika að hætta sé á að hlutdeild Samvinnumanna í skipa- rekstri verði sett út á gaddinn sagði stjórnarmaður Sambandsins í samtali við NT. Þegar þetta er skrifað er enn mjög óljóst hvort Sambandið gengur til samstarfs við íslenska skipafélagið og stofnað verði nýtt skipafélag sem er samkeppnisfært við Eimskip. Mun stjórn Sambandsins líklega koma aftur saman eftir hádegi í dag og gætu málin þá skýrst. Verði niðurstaðan sú að ganga til samstarfs við Hafskip er næsta víst að sú ákvörðun eigi eftir að vera mjög umdeild meðal Samvinnumanna. Eða einsog einn kaupfélagsstjóri sagði við NT. „Það er ísfilmlykt af þessu.“ Horft til ögrandi viðfangsefna og stækkandi möguleika Hvernig skyldi svo samstarf Sam- bandsins og Hafskips þróast, ef af því yrði? Má búast við hnútuköstum á borð við ummæli Ragnars á stjórn- arfundinum fyrir 9 mánuðum, eða skipta menn um skoðun jafn auðveld- lega og skipt er um nöfn á gjaldþrota hlutafélögum? Öruggt má telja að ef af samstarf- inu verður,þá verða margirfyrirvarar bókaðir þegar og ef gengið verður frá samstarti þessara aöila. Er víst að í því samkomulagi verður nákvæm- lega tilgreint hvert hlutverk og starfssvið hvers og eins verður. Tveir samstarfsmöguleikar hafa komið upp á borð í þeim viðræðum sem átt hafa sér stað. Annarsvegar hugmyndin um að stofna eitt skipafé- lag með 60% eignarhluta Sambands- ins og 40% eignarhluta Hafskips- Rekstraraætlun 1985 byggdá s vartsýnisforsendum gerir rád fyrir goðum hagnadi hjá Hafskip. Samvinnuhreyfingin i filabeinsturni valdahrokans með óþrjótandi millifærslumöguleika á vinstri hönd. Samvinnuhreyfingin í skjóli millifærslumöguleika drepur af sér hvert fyrirtækið af öðru a landsbyggðinni. Hvergi i hinum vestræna heimi, annars staðaren á Islandi mundi óskapnaður eins og Sambandsveldið i heild sinni iiðast A meðan við truum á gildi einkaframtaks og samkeppni, lifir Hafskip hf. Hvað gerðist í vikunni? STIKLAÐ ASTORll IHAFSKIPSMALINU Á krossgötum nefnist skýrsla stjórnar Hafskips, sem Ragnar Kjartansson, stjórnarformaður félagsins, flutti á hluthafafundi 9. febrúar 1985, þegar ákveðið var að auka hlutafé félagsins um 80 milljónir króna. NT hefur þessa skýrslu undir höndum, en tilgangur skýrslunnar er auðsjáanlega sá að sannfæra hlut- hafa um að fyrirtækið eigi bjarta framtíð fyrir höndum og að allt sé í sómanum á þeim bæ. Nú þegar Hafskip stendur á þeim krossgötum að flestar dyr virðast þeim lokaðar, nema ef vera skyldi hliðið á höll sjálfs myrkrahöfðingjans, ef taka á ummæli Ragnars um Sam- bandið í skýrslunni alvarlega, hljóma ýmis ummæli hennar sérkennilega. í skýrslunni segir að meginniður- stöður rekstraráætlana fyrir árið 1985 geri ráð fýrir góðum hagnaði af rekstri fyrirtækisins í heild. Þá er reiknað með að rekstrarjafnvægi náist í hinu hefðbundna íslandsstarfi, en dótlur- fyrirtækin erlendis og Trans-Atlantik siglingarnar skili hagnaði og velta félagsins a.m.k. tvöfaldist í alvöru- mynt talið. „Hér er að sjálfsögðu um áætlanir að ræða, gerðar með eins trúverðug- um hætti og tök eru á og að öðru jöfnu byggðar á svartsýnisforsendum." Mjög svipaður tónn mun hafa verið sleginn í skýrslu, sem skömmu áður var lögð fyrir bankastjórn Útvegs- bankans, um afkomuhorfur fyrir 1984 og rekstraráætlun fyrir 1985. Óskapnaður í fílabeinsturni valdahrokans Þó nokkru púðri er í skýrslunni eytt á Sambandið, sama Samband og nú er verið að leita samstarfs við. Nokkur dæmi skulu hér nefnd: „...Samvinnuhreyfingin í fílabeins- turni valdahrokans með óþrjótandi millifærslumöguleika á vinstri hönd.“ „Telst það eðlileg samkeppni, þeg- ar Samvinnuhreyfingin í skjóli milli- fræslumöguleika drepur af sér hvert fyrirtækið af öðru á landsbyggðinni? Hvergi í hinum vestræna heimi, annars staðar en á íslandi mundi óskapnaður einsog Sambandsveldið í heild sinni líðast." Á óskapnaðurinn að hysja buxurnar upp um íhaldið? Þessarar spurningar spyrja margir innan Sambandsins nú. „Hvers- vegna átti Samvinnuhreyfingin að hysja buxurnar upp um þessa íhalds- menn, sem hafa barið einna mest á okkur?" er haft eftir einum kaupfé- lagsstjóra utan af landi, en þeir þing- uðu sín á milli í Reykjavík fyrir helgina. Samvinnuhreyfingin hefur átt við erfiðleika að stríða á undan- förnum árum og mörg kaupfélaganna verið rekin með tapi. ■ Fjármálafimleikar er íslenskt ný- yrði sem til varð í vikunni vegna hinna margvislegu tiifæringa, sem átt hafa sórstað í Hafskipsmálinu svokallaða. Hafskip, sem komið var að fótum fram um síðustu helgi, svo ekki sé tekið dýpra í árinni, fjölgaði sér með „frumuskiptingu" í upphafi vikunnar rétt áður en félagið fékk heimild til þriggja mánaða greiðslustöðvunar. Stjórn Hafskips stofnaði nýtt hluta- félag, (slenska skipafélagið, sem einnig er stjórnað að miklu leyti af stjórn Hafskips, en með þvi tókst þeim að forðast kyrrsetningu skipa sinna í erlendum höfnum að kröfu þarlendra lánardrottna. Þar sem skip Hafskips eru nú skráð í eigu Islenska skipafélagsins höfðu kröfuhafar Haf- skips ekki að neinu að ganga. Sagt er að hið (slenska skipafélag hafi keypt íslandssiglingar Hafskips á 625 milljónir króna, en kaupin gerðust þannig að eignir og skuldir voru yfirfærðar á nafn hins nýja félags, án þess að neitt nýtt fé kæmi þar inn. (hlutafé 1 milljón). Lögfróðir menn velta því nú fyrir sér hvort þessi kaup séu í alla staði lögleg. Af Hafskip er þá eftir Atlantshafs- siglingarnar, sem að sögn forstjórans hafa á síðustu tveimur árum verið reknar með um 200 milljón króna tapi og fyrirsjáanlegt er að niðurlagning þessara siglinga veldur allt að 100 milljón króna tapi í viðbót. Óþarfi er að fjölyrða um að margir telja þessar tölur vera eitthvað hærri. Skuldir Hafskips í sinni núverandi mynd nema því einum 300 milljónum í það minnsta. Þegar NT spurði bankaráðsmann Útvegsbankans að þvi í vikunni hvaö yrði um Atlants- hafsdeildina, þ.e. núverandi Hafskip, sagði hann að ef hægt væri að selja eitthvað úr henni yrði það gert, en að í öllu falli yrði Hafskip lagt niður og dæmið gert upp. Fáir vita útkomuna úr því dæmi enn sem komið er, en Ijóst er að lánardrottnar koma til með að tapa miklu fé, enda fyrirtækið eignalaust að kalla. Útvegsbanki Is- lands er einn þeirra aðila sem mun tapa á viðskiptum sínum við það sem eftir er af Hafskip, en spurningin er hversu marga tugi eða hundruð mill- jóna þar er um að ræða. islenska skipafélagið hins vegar er betri von fyrir Útvegsbankann og raunar „Hafskipsmenn" líka. Það yfir- tók skuldir Hafskips við Útvegsbank- ann upp á 625 milljónir króna og fékk í staðinn eignir upp á einhvern fjölda milljóna - þ.e. fslandssiglingar Hafskips. Nákvæmlega hversu verð- miklar þessar eignir eru veltur á mati hvers og eins, en vitað er að Eimskip mat þær á 430 milljónir. Það fannst Útvegsbankanum og Islenska skipafélaginu þó varla nóg og Sambandið kemur inn í myndina sem hugsanlegur bjargvættur út úr ógöngunum. Meti Sambandið eignir Islenska skipafélagsins mun hærra en Eimskip gerði, er það vissuleaa gleðiefni fyrir Útvegsbankann og ls- lenska skipafélagið. Geri þeir það ekki er athugandi að snúa sér að Eimskip aftur. Þegar þessar linur eru ritaðar hefur ekki skýrst hvað verður um samvinnu íslenska skipafélags- ins og SÍS, en möguleikar þess dæmis eru reifaðir annarsstaðar hér á síðunni. B.G. manna. Hinn möguleikinn er að sam- eiginleg flutningamiðlun verði stofnuð, en skipafélögin tvö starfi sjálfstætt. „Horft til ögrandi viðfangsefna og stækkandi möguleika," sagði Ragnar Kjartansson á stjórnarfundinum í febrúar. Tæpast átti hann þar við sameiningu Hafskips og Sambands- ins. Nei, Ragnar og Hafskip stóðu þá á krossgötum og voru að hvetja menn til að auka hlutafé félagsins um 80 milljónir, sem tókst. I skýrslunni segir að nettóhagnað- ur eftir afskriftir og fjármagnskostnað hafi numið 84 milljónum á núvirði á árabilinu 1979-1983. Þá segir að rekstur félagsins hafi gengið bæri- lega á árunum 1982 og 1983 og rekstrarhagnaði verið skilað, jafn- framt sem sótt var á ný mið og fram eftir árinu 1984 var félagið rekið með sæmilegu rekstrarjafnvægi, en þegar dró á síðari hluta ársins, hrönnuðust óveðursský á lofti sem hendi væri veifað og gerðu að engu áætlaða 20-30 milljón kr. jákvæða rekstrar- afkomu á árinu. Því bendir flest til að tap félagsins hafi á árinu verið 50-60 milljónir kr. Það sem þó hamlaði gegn enn frekari rekstrartapi á árinu, sam- kvæmt skýrslunni, „er sú staðreynd, að erlenda tekjuöflunin er farin að skila sér, þótt hún komi aðallega til síðustu mánuði ársins." Annarsstaðar í skýrslunni segir að í rekstraráætlun árins 1985 sé reikn- að með tvö- til þreföldunar á veltu félagsins og áhugaverðum hagnaði vegna Atlantshafs-siglinga Hafskips. Þá segir að Björgúlfur Guðmunds- son, ásamt vaskri sveit, hafi haft um þetta verkefni, forystu og unnið brautryðjendastarf, sem hvorttveggja geti átt þátt í að treysta félagið í sessi og flýtt fyrir þeirri þróun, að Islending- ar taki aukinn þátt í alþjóðlegum siglingum- sjálf siglingaþjóðin. Sérstaða Hafskips Þetta var tónninn hjá þeim Haf- skipsmönnum í febrúar í ár. Mjög líklegt er að áætlanir þær sem Út- vegsbankinn fékk hjá fyrirtækinu hafi verið á svipuðum nótum. Hvort hér er um vísvitandi fölsun að ræða eða að mennirnir hafi einfaldlega ekki vitað betur, skal ekki lagður á dómur hér, en á 24. síðu skýrslunnar, sem jafnframt er lokasíða hennar, segir, að Hafskip verði að skapa sér sér- stöðu. Óneitanlega hefur félaginu tekist það. Að endingu skulu svo birt hér lokaorð skýrslunnar: „Á krossgötum stóraukins starfs og nýrra möguleika stendur ekki til að gefast upp. Tuttugu og sjö ára upp- byggingarstarfi verður haldið áfram. Á meðan við trúum á gildi einkafram- taks og samkeppni, lifir Hafskip hf.“ Hafskip var lagt niður í vikunni sem leið. Sáf.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.