NT

Ulloq

NT - 24.11.1985, Qupperneq 14

NT - 24.11.1985, Qupperneq 14
1 8 Sunnudagur 24. september NT AÐSEGJAEKK Hinn dularfulli hnúskur vissi hvar það var niðurkomið uns fornbókasalinn Malcolm McSpear, hæglátur maður í Winchester í sunn- anverðu Englandi, fann það fyrir tilviljun síðla árs 1896 inní hollenskri kortabók sem gefin hafði verið út í Antwerpen árið 1599, en komist í hendurnar á McSpear úr dánarbúi stórjarðeigandans sir Geofrey Stan Wimbledon er hafði andast í hárri elli á heilsuhælinu „Lindin" í svissnesku Ölpunum og ekki skilið eftir sig neina erfingja. Þannig hafði verið gengiðfrá korta- bókinni að miðjan var skorin burt (sennilega með hvössu eggjárni) úr 18 landabréfum af nýja heiminum og æxlið falið í gatinu sem þannig varð til. Umrætt æxli var nú orðið heldur þurrt og rykfallið og hafði skroppið töluvert saman frá þeim tíma er deilurnar stóðu sem hæst út af því; var nú orðið einna áþekkast skorpinni rúsínu, dökkbrúnt og stökkt í sér • (McSpear molaði óvart úr því nokkur korn), en þegar dr. Schupp, sem áður hefur verið minnst á, tók það til rannsóknar hafði það verið Ijósrautt og meyrt, 3,3 cm í þvermál og 2,8 cm að þykkt skv. endurteknum mæling- um færustu vísindamanna þeirra tíma. En virtir þýskir fræðimenn rannsök- uðu það nú af stakri nákvæmni og gátu borið kennsl á það eftir þrotlaus- ar athuganir í fjóra mánuði, enda hafði vísindunum fleygt fram. Æxlið var svo slegið þýska ríkinu á ógleymanlegu uppboði hjá Sotheby í Lundúnum þann 16. nóvember 1897 fyrir 16.400 sterlingspund. Þrátt fyrir að þetta væri svimandi upphæð voru þýska ríkisstjórnin og kanslarinn, að ógleymdum keisaran- um á einu máli um, - og höfðu í því efni dyggan stuðning hinnar samein- uðu þýsku þjóðar, - að allt væri leggjandi í sölurnar fyrir hið horfna sameiningartákn og því buðu hinir þýsku umboðsmenn, Gunter von Grachtheim og séra Lothar Schull, miskunnarlaust yfir öll yfirboð banda- ríska járnbrautakóngsins Herberts Splintham sem líka girntist hið fræga æxli og hafði stofnað um það fríkirkju í Kentucky. Splintham gekk sótrauður af bræði útaf uppboðinu og strunsaði um borð í hið mikilfenglega farþegaskip Queen Victoria með þeim orðum að aldrei framar skyldi hann stíga fæti á Evrópu. Eftir sólarhringssiglingu í ágætis veðri var geðofsa járnbrautakóngsins farið að lægja; hann sást reika hrygg- ur um skipið og horfa fullur saknaðar á sólarlagið. Það var á sjötta degi siglingarinnar sem brotsjór reið yfir skipið og olli gífurlegri eyðileggingu. Mesta mildi var að enginn týndi lífi en slys urðu nokkur á mönnum við höggið; skipslæknirinn rotaðist og gat því ekki komið til hjálpar Herberti Splintham sem lá fótbrotinn inná sal- erni. Þetta var Ijótt opið brot og opnaðist enn meir þegar hann fór að reyna að skríða. Hinum miklu kvölum fótbrotsins fylgdi sérstæð trúarleg reynsla sem Splintham stofnaði síðar tímarit til að skýra. Mér fannst, hefur hann sagt, sem mér vitraðist þar sem ég lá þarna, öll saga mannkynsins í hnotskurn, allar þrautir manna, vonir þeirra og vonbrigði, allt líf sem lifað hafði verið á þessari plánetu var eins og einn ægivoldugur hljómur í höfði mínu þar sem ég lá fótbrotinn inná klói. Splintham kom breyttur maður úr þessari Evrópuför og var eftir þetta kallaður Herbert góði. Hann gaf öll sín auðæfi til fátæklinga og lagðist í flakk með umrenningum og heittrú- armönnum, var haltur alla ævi. En Splintham söfnuðurinn klofnaði vegna mismunandi afstöðu til um- breytinga leiðtogans. Þeir voru margir sem voru gramir járnbrautakónginum fyrir að hafa ekki náð í æxlið á uppboðinu, en rök hans gegn þess- um röddum voru á þá lund, að æxlið sjálft væri forgengilegt, en hin ófor- gengilega hugmynd um æxlið væri ofar öllu. Við höfum ekki glatað trúnni, sagði hann, þó að við höfum ekkert áþreifanlegt tákn hennar í höndunum. Þetta gátu ekki allir sætt sig við og endanlega sauð uppúr á jólasam- kundu Splinthamsafnaðarins 1898, þegar flokki „tventara" sem barðist fyrir heimtingu æxlisins og var kennd- ur við nautgripasalann John Twenty, var vikið úr söfnuðinum. Flestir tvent- aranna hrökkluðust úr landi vegna óbeinna ofsókna og reka þeir nú umfangsmikið trúboðsstarf og naut- griparækt í Argentínu. En af æxlinu er það að segja, að það var flutt á hinni nýju og glæsilegu freigátu Vilhjálmi II. yfirtil Þýskalands og borið í land í Cuxhaven þann 26. nóvember 1897, við hátíðlega athöfn þar sem bárust ótal heillaóskaskeyti, m.a. eitt frá hinni ungu samvinn- uhreyfingu á íslandi, en bændur í Þingeyjasýslu áttu frumkvæðið að fjársöfnun á Norðurlandi til að standa straum af kostnaði við sendingu skeytisins. Annars er rétt að vísa þeim sem vilja fræðast frekar um þennan hátíð- lega dag, á æviminningar séra Guð- leifs Leósonar þrófasts að Hnausa- völlum, en hann var þarna viðstaddur sem ungur hnokki með föður sínum, Leó stórkaupmanni Leóssyni, sem verslaði lengi í Hafnarfirði en var nú í Þýskalandi í viðskiptaerindum.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.