NT - 24.11.1985, Side 15

NT - 24.11.1985, Side 15
NT Sunnudagur 24. september 19 Ef listamaður segir ekki í verki sínu þaö sem hann vildi sagt hafa verður tal hans um verkið aðeins vandræöa- legt klór. Gott verk býr hinsvegar oftast yfir þeirri listrænu bæklun sem hvetur höfundinn til að gera því málgælur. Slíkar gælur eru annað- hvort misskilningur eða afbrýðisemi. Höfundur heldur kannski að eftir fæðingu þurfi hann að hafa verkið á brjósti, eða hann heimtar, af hagnýt- um ástæðum, mikið af þeirri athygli sem verkinu ber. En það er einmitt hin listræna bæklun sem gefur verk- inu sjálfstætt líf. Á jaðri fullkomnunar er lífveran næst því að tortíma sjálfri sér og í hinni bestu listfinnum við sömu streitu: Við höfum lesið Ijóð sem gera Ijóð næstum óþörf og hjákátleg. Þau sem ekki fara svo langt loga kannski í huganum, vegna einhvers sem þau skortir, eða segja ekki. Þau Ijóð sem gefa lesandanum mest eru gjarnan þannig að £au segja með því að segja ekki. A sama hátt gefur höfund- ur sennilega loknu verki sínu mest með því að segja ekki. Verkið er það sem hann vildi sagt hafa. Raunverulegt líf listamannsins er aðeins í því verki sem hann á eftir að skapa. Hann hafnar sífellt sjálfum sér í því sem þegar er orðið; sjáið, þar er ekkert nema listaverkið. List er lífs- háttur verksins. Hverja mínútu eigin lífs verður höfundurinn að stjaka við sjálfum sér, hversu gjarnan sem hann vildi sig faðmað hafa. Slíkt faðmlag er endir listar og upphaf lífsdoða. Hér birtist líka leitin að sönnu lífi. Líf er afl, þessi endalausa raungerv- ing möguleika sem við nefnum líka þroska. Að seilast stöðugt handan sjálfs sín er þroski. í sköpuninni eru menn alltaf ungir, alltaf að lifa á ný og lifa stórum. Þeir sem finna hvergi annarsstaðar líf en í stöðugri endur- holgdun andans eru alltaf ungir; og eldast reyndar fljótt. „Og gæti maður ekki bara dáið úr tómum bata?“ var spurt; og kannski er slíkt líf of satt til að vera gott. Er ekki fáránlegt að fórna öllu fyrir þann þroska sem maður aldrei nær, að vera aidrei orðinn maður sjálfur fyrr en við andlát? Það er jú kjánaskapur, eins og annað sem er satt. En þannig er hið fullkomna líf: Svo algjört að það elur líka með sér skefjalausa ófullkomnun. Hvað sem virðist er það samt ekki flótti frá sjálfinu. Það er áhlaup á dauðann, með fegurðina að vopni. Einhversstaðar í Mílanó 24. október 1985. Atli Ingólfsson. „Söngfélagið Harpa“, daginn sem það nafn var upp tekið, 16. maí 1875. Áður hafði félagið heitið „Söngfélag í Reykjavík," stofnað 1862. Mennirnir eru, talið frá vinstri: 1) Jón á Hól, 2) Brynjólfur Þorláksson, 3) Magnús Árnason, snikkari, 4) Moritz Halldórsson, 5) ókunnur, 6) Helgi Helgason, 7) Bjarni Þorkelsson (barn), 8) Guðmundur frá Gróttu (barn), 9) Sigurður Waage (barn), 10) bak við Sigurð) ókunnur, 11) Guðmundur Olsen, 12) J.O.V. Jónsson, 13) Jónas Helgason, 14) Pétur Biering, 15) Ólafur Rósenkrans, 16) Magnús Torfason, 17) Þórður á Hól, 18) ókunnur, 19) Helgi Jónsson, 20) Benedikt Waage. (Ljósmynd: Sigfús Eymundsson). FYRSTIÍSLENSKIKÓRINN Nöfn eru fundin á elstu, þekktu mynd af íslenskum kór eftir fyrirspurn NT Þann 7. júlí sl. auglýstum við hér í blaðinu eftir nöfnum á mönnum á mjög merkilegri mynd, sem við þá nýlega höfðum haft uppi á. Þarna var um að ræða fyrsta reglulega söngfé- lagið á íslandi, söngfélag Jónasar Helgasonar, tónskálds. Félagið var upphaflega stofnað árið 1862, en tók upp nýtt nafn - „Harpa“ -1875, hinn 16. maí það ár. Var myndin hér með tekin þann dag. Sá var þó galli á gjöf Njarðar að engin nöfn fylgdu myndinni og báðum við lesendur að láta vita, ef þeir þekktu hér einhvern afa sinn. Undirrit- aður og hr. Halldór Jónsson við Ijósmyndadeild Þjóðminjasafnsins lýstu sig reiðubúna að taka við upp- lýsingum. Þetta bar þann árangur sem hér má sjá: í dánarbúi Sigurðar heitins Waage leyndist annað eintak af myndinni með flestum nöfnunum og nú birtum við þau hér. Þetta er elsta mynd af íslenskum kór sem til er og ekki vitað til að hún hafi birst á prenti fyrr en NT birti hana þann 7. júlí sl. sem fyrr segir. I sama tölublaði er líka að finna nokkuð ítarlega frásögn af söngfélagi Jónas- ar og myndinni. Atli Magnússon Framhaldssaga eftir Jón Jónsson „Sennilega hefur þessi hátíðar- stund skipt fyrir mig sköpum á lífsleið- inni,“ segir Guðleifur meðal annars, „og þá mun hafa fæðst í brjósti mér sú ákvörðun að gjörast prestur. Ég man gjörla hversu séra Schull var myndarlegur maður og við urðum miklir vinir síðar meir og skrifuðumst lengi á...“ Séra Guðleifur lýsir óblandinni hrifningu barnshjartans og tærri gleði þess áslíkri hátíðarstund meðeinkar hugþekkum hætti. Bókin heitir Lifað í lífsstraumi og kom út hjá bókaútgáf- unni Hnoðrum á Súgandafirði 1951, árið eftir að séra Guðleifur lést fyrir aldur fram. Eftir móttökuhátíðina í Cuxhaven var æxlið flutt landleiðina til Witten- berge undirfánum og vopnum prúss- neska lándhersins. Þar var því aftur komið fyrir í anddyri hins fornfræga klausturs og er sagt að biskupsfrúin í Wittenberge hafi fellt tár þegar rammger glerkúpan (4cm þykk) var komin yfir það þar sem það lá á hvítum flauelspúða ofaná glænýjum silfurstöpli, en koparstöplinum sem steyptur hafði verið undir það á ofan- verðri 16. öld, hafði verið komið fyrir á Þjóðminjasafninu í Berlín. En hinn trausti glerskjöldur og 12 manna harðsnúin lífvarðasveit með vakandi auga á æxlinu dag og nótt, hafa ekki getað komið í veg fyrir að tvisvar sinnum að minnsta kosti hafa verið gerðar alvarlegar tilraunir til að ræna því. Árið 1919 varð að beita hörku til að yfirbuga ungan rúmensk- an listamann og heimspeking, anar- kista að því er yfirvöld fullyrtu, sem reyndi að mölva glerkúpuna með þungri sleggju. [ næsta skipti munaði ennþá minnu að illa færi. Þá var dökkgrár Merc- edes Benz, sem þrír austurrískir gyðingar, feðgar, voru í, tekinn í gegn vegna falskrar (að því er virtist) vísbendingar um kókaínsmygl, af landamæravörðum í Ölpunum kreppuhaustið 1929. Fannst þá æxlið sem hafði verið saumað inní bólstrað bak framsætisins bílstjóramegin. En þess hafði ekki verið saknað í Witt- emberge því í staðinn hafði verið komið fyrir eftirlíkingu sem reyndist vera mjög haganlega útskorið lamba- sparð, skv. niðurstöðum annálaðra vísindamanna við vísindaaka- demíuna í Köln. Allir varðmennirnir sóru þess eið að hafa verið glaðvakandi allan þann tíma er þeir gættu æxlisins og því er það óráðin gáta enn þann dag í dag, hvernig skiptin hafa getað farið fram án þess að nokkur yrði þeirra var. Feðgarnir, sem voru þögulir eins og gröfin, voru dæmir í 8 ára fangelsis- vist, þar sem faðirinn lést skömmu síðar, forhertur og vildi ekkert gefa upp í banalegunni, en sýnir hans fóru síðan með leyndarmálið með sér í fjöldagröfina við Auswitz á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Þar til fyrir skemmstu hefur æxlið haft mikiö aðdráttarafl fyrir ferða- menn og aflað hinu þýska alþýðulýð- veldi ( sem svo er nefnt) ómældra gjaldeyristekna. En nú hefur aðgangur að því verið takmarkaður og það verið flutt frá Wittenberge, en stjórn- völd hafa ekki viljð upplýsa hvar það sé niðurkomið. Sögusagnir eru á kreiki um að orsök þessa sé að tyrkneskur hryðjuverkamaður, Mehe- met Gursel að nafni, hafi verið hand- tekinn á brautarstöðinni í Dresden með fölsk vegabréf í fórum sínum, þar sem hann var á leið til Witten- berge, grunaður um að hafaætlað að ræna æxlinu og myrða aðalritara flokksins í héraðinu. Stjórnvöld hafa vísað þessum sögusögnum á bug og segja þær hreinan uppspuna, en áreið- anlegar heimildir í Vestur-Berlín full- yrða að Gursel sé nú í haldi í Austur-Þýskalandi vegna þessa. Því hefur einnig verið staðfastlega neitað að ókennilegt loftfar með verur innanborðs sem líktust einna helst gulum svífandi deplum með langa rana, hafi reynt að nálgast Witten- berge á milli jóla og nýárs 1984, en orðið frá að hverfa er orustuþotur Varsjárbandalagsins komu á vettvang. Þessi frásögn birtist í Vest- ur-þýska vikublaðinu „Bild und Drama“ og fylgdu henni ógreinilegar en athyglisverðar Ijósmyndír sem bandarískur ferðamaður hafði náð á Kodak vasamyndavél að kvöldi hins 29. desember. Hvað æxlisvillutrúna varðar þá virðist hún hafa liðið undir lok í Póllandi. Síðasti áhangandi hennar sem vitað er um, mun hafa verið sérlyndur og viðskotaillur pólskur aðalsmaður, afkomandi Jönu von Ztoczew í áttunda lið, sem stytti sér aldur í einkakapellu sinni sama dag og McSpear fann æxlið í kortabók- inni. Þykir sumum það undarleg tilvilj- un, og þessi atburður leiddi reyndar af sér frjóar deilur á alþjóðaþingi sálfræðinga í Hannover á síðasta árí þar sem nauðhyggjusinnuðum lenti saman við efahyggjumenn: ertil tilvilj- un? er heimurinn vél? í Þýskalandi hefur æxlistrúin aldrei dáið algjörlega út, þó að starfsemi slíkra öfgaflokka hafi nú verið bönnuð í næstum fjórar aldir. Vitað er um dularfulla hópa sem hittast síðdegis í bjórkjöllurum. Eru jafnvel uppi getgát- ur um að Mehemet Gúrsel hafi verið leigður af einhverju slíku trúfélagi til að ræna æxlinu, en talsmaður leyni- samtaka æxlistrúarmanna, sem ekki Framhald í. næsta blaöi

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.