NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 26.11.1985, Qupperneq 3

NT - 26.11.1985, Qupperneq 3
Nokkrar fínar ferðatillögur fyrir þig FERDA ___MIDSTODIIM AÐALSTRÆTI9 S. 28133 Stal bíl- um og númerum - gripinn glóðvolgur í gærmorgun ■ Rannsóknarlögregla gómaði bíl- þjóf í gærmorgun. Maðurinn hafði stolið þremur bílum um helgina, öllum frá bílasölunni Bílatorg við Borgartún. Lögreglumenn sátu fyrir manninum klukkan 5.30 í gærmorg- un. þegar hann var að setjast upp í einn af stolnu bílunum. Tilkvnnt var til rannsóknarlögreglu að þrír bílar hefðu horfið af bílasöl- unni Bílatorg. Allir fundust bílarnir og hafði verið skipt um númer á tveinrur þeirra. Báðir voru með M- númer þegar rannsóknarlögreglan fann þá. Einn bíllinn fannst vestur á Granda, þar sem franrið hafði verið innbrot. Annar fannst á Unnarstíg, og sá þriðji á bílastæði við Grettis- götu. Þjófurinn var gómaður þegar hann hugðist setjast undir stýri í gærmorgun. Maðurinn hefur verið handtekinn og var yfirheyrður í gær, í höfuðstöðvum rannsóknariögregl- unnar. Þá þykir fullvíst að maðurinn braust inn hjá fyrirtækinu Steðja, sem framleiðir númeraplötur fyrir bifreiðaeftirlitið. Þaðan ntunu komin númer þau sem hann setti á bílana sem hann tók á bílasölunni. Málið er í rannsókn. en ljóst er að maðurinn hefur oft komið við sögu rannsóknarlögreglu, vegna afbrota af svipuðu tagi. Mikið um innbrot ■ Talsvert var af innbrotum í Reykjavík um helgina. Brotist var inn í einbýlishús í Seljahverfi og stolið þaðan sjónauka, vasa-diskó, áfengi og skartgripum. Innbrotið var tilkynnt til lögreglu á sunnudag. Brotist var inn í húsnæði Sambands íslenskra samvinnufélaga við Lind- argötu, en engu stolið. Hurð var spörkuð upp, en ekki er vitað til þess að neitt hafi horfið. Þá var farið í tvö barnaheinrili í Hvassaleiti. Litlu sem engu var stolið þar, og skemmdir á húsnæði voru litlar. Stolið úr bíl ■ Mjög hefur færst í vöxt að út- varpstækjum og hljómflutningstækj- um sé stolið úr bílum. Eitt slíkt mál var kært til rannsóknarlögreglu nú um helgina. Helgi Daníelsson yfirlögreglu- þjónn hjá rannsóknarlögreglu sagði í samtali við NT í gær að það væri alltaf talsvert um mál af þessum toga, og þá virtist ekki skipta máli hvort bílarnir væru læstir eða ekki, ef menn ætluðu sér að stela úr þeim. Rání sjoppu ■ Lögregla leitar nú manns sem framdi rán í söluturni á Bergstaða- stræti síðastliðið föstudagskvöld. Maðurinn hótaði afgreiðslustúlkunni lífláti, ef hún opnaði ekki peninga- kassann. Stúlkan opnaði kassann og tók ránsmaðurinn eitthvað af pening- um úr kassanum. Maðurinn komst síðan undan og er hans leitað af lögreglu. Rannsóknarlögregla hefur málið til meðferðar. Þriðjudagur 26. nóvember 1985 3 SIGLING TILIÍANARI 14 DAGA FERÐ MEÐ M/S BLACK PRINCE ARAMOTAFERÐ TIL KAUPMHAFNAR 30. DESEMBER 1985 Endurtökum nú hina frábæru ára- mótaferð til Kaupmannahafnar. Gist verður á SAS ROYAL hóteli, sem er fyrsta flokks hótel i miðbæ Kaup- mannahafnar. Innifalið í verð er flug, akstur til og frá flugvelli að hóteli, og gisting á SAS ROYAL. Á gamlárskvöld verður áramótafagn- aður á hótelinu: MATSEÐILL Fordrykkur: Kampavínskokteill Forréttur: Consommé Madrilene Kjúklingaseyði Aðalréttur:Saumon fumé á chaud et epinards en branch Heimareyktur lax með spínati Eftirréttur: Grand Marnier soufflé Eftir miðnætti verður boðið upp hlað- borð með blönduðu dönsku áleggi. Boðið verður upp á frönsk vín, kaffi og koníak með og eftir mat. Verd á mann: IKR. 2.990,- (DKK. 598) Kvintett Ernst Herdorff leikur. -Sannkölluð áramótastemmning- 6NT Má-Su 4NT Má-Fö Verð á mann i tvíbýli kr. 19.250 kr. 16.395 — aukagj. v/einb. kr. 5.808 kr. 3.872 Verð miðað við skráð gengi þann 10/10/85. ARAMOTAFERÐ J0L 0G ARAM0T I LONDON JÓLAFERÐ TIL LONDON 23. des. til 27. des. 1985. Fimm daga ferð. Njótið jólanna í London á fyrsta flokks hóteli við Oxford Circus, ST. GEORGES. Verð í tvibýli kr. 22.470. Innifalið í verðinu er: Flug og gisting með enskum morgunverði. Á að- fangadagskvöld verður framreiddur fimm rétta kvöldverður með for- drykk. Á jóladag fimm rétta hádegis- verður við píanóundirleik. Sannkölluð jólastemmning. Verð í tvíbýli kr. 22.470. ÁRAMÓTAFERÐ TIL LONDON 30. des. 1985 til 3. jan. '86. F'agnið nýja ár- inu í London í góðu yfirlæti á ST. GEORGES hótelinu við Oxford Circus. Innifaiið í verði er: Flug og gisting með enskum morgunverði. Á gamla- árskvöld verður borðaður fimm rétta kvöldverður við kertaljós og hljómlist, síðan dansað. Á nýársdag, hádegis- verður ! frábærum veitingasal St. Georges hótelsins. Sérstök áramótastemmning. Verð í tvíbýli kr. 21.950. 0 o ° MAYRHOFEN TIL AMSTERDAM FLJÚGŒ) TIL KANARÍ Skipafélagið FRED OLSEN LINES býð- ur þægilega 14 daga siglingu með hinu glæsilega 300 farþega skemmti- ferðaskipi frá Rotterdam til Madeira, Las Palmas, Tenerife, Lanzarote, Madeira.Tilbury/London, Rotterdam. Verð frá kr. 71.900.- 2 í klefa, 53.000.- Innifalið í verðinu er flug til og frá Amsterdam, ferð með m/s PRINCE með fullu fæði. Brottför: 9. og 23. janúar — (i. og 20. febrúar — ö. og 20. mars — 3. og 17. Áramótaferð með Ferðamiðstöðinni er eitt af því sem ekki er hægt að lýsa, þú verður að upplifa það. Farið verður frá Kefiavík 28. desem- ber og dvalið á hinu frábæra hóteli Pulitzer. Á gamlárskvöld verður áramóta- fagnaður á hinum einstaka skemmti- stað Lido, þar sem boðið verður upp á kalt borð, drykki, desert, dans og skemmtiatriði með heimsþekktum dönsurum og skemmtikröftum. Allir drykkir án endurgjalds, að undan- skildu kampavíni. Á nýársdag er svo „Brunch" (sam- bland af morgunverði og hádegis- verði) á hótel Pulitzer. Þriggja vikna ferðir til KANARÍ í allan vetur. Beint flug eða með viðkomu i Amsterdam. Ibúðir eða hótel. Verd frá kr. 29.343,- (3 vikur). Beint flug til Salzburg í Austurríki. Boðið upp á 5 hótel í mismunandi verðflokkum. Mayrhofen býður upp á frábærar brekkur. ölstofur, fína veit- ingastaði og diskótek. Eins og tveggja vikna ferðir. Verd frá kr. 21.758.-(2 vikur). 0 Flogið verður heim frá Amsterdam 2. janúar. Amsterdam hefur upp á margt að bjóða, þar er gott og gaman að versla og alltaf líf og fjör — sem sagt ógleymanleg áramótaferð. Verd á mann í tvibýli Kr. 15.645,- — aukagjald f. einbýli — 3.800.- Innifalid: Flug, gisting i 5 nætur, ferðir til og frá flugvelli að hóteli, áramótafagnður og Brunch. ir V Skemmtilegar skoðunarferðir — sleðaferð — dagsferð til Ítalíu o.fl. Far- arstjórinn vinsæli Rudi Knapp verður á staðnum. Fáðu bæklinga og nánari upplýs- ingar um ferðatilhögun hjá okkur. SKÍÐAPARADÍSIN AoGt-ST BJARNA D.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.