NT - 26.11.1985, Blaðsíða 12

NT - 26.11.1985, Blaðsíða 12
 G r Þriðjudagur 26. nóvember 1985 12 iðan Fiskveiðar: Mögulegt að spara milljónir - með aðgerðum til orkusparnaðar ■ Fiskifélag Islands og Orkusparn- aðarnefnd Sjávarútvegsráðuneytisins hafa gefið út vandaðan og gagnnterk- an bækling sem hvetja á aðila í sjávarútvegi til orkusparnaðar. í bæklingnum koma frant fjölmarg- ar upplýsingar um leiðir til að spara olíunotkun við fiskveiðar auk upplýs- inga um olíunotkunina almennt. Bæklinginn skrifuðu Auðunn Ágústs- son, Emil Ragnarsson og Stefán Þór- arinsson. I inngangi sínurn að bækl- ingnum segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráöherra að áhugi og skilningur á bættri orkunýtingu hafi aukist verulega á síðustu árum. „Orkusparnaðarnefnd Sjávarútvegs- ráðuneytisins hefur starfað síðan i descmber 1982 og hefur aðstoðað útgerðina við að ráöast í orkuspar- andi aðgerðir. Tæknideild Fiski- félagsins og Fiskveiðasjóðs hefur á undanförnum áruni unnið mikiö og gott starf á sviði orkusparnaðar. Lánareglum Fiskveiðasjóðs var breytt í maí 1985 í þá vcru, að nú eru vcitt lán til endurbóta og vélakaupa í fiskiskip cr horfa til orkusparnaðar og bættrar orkunýtingar," segir ráð- herra enn frcmur í inngangi sínum. Olíukostnaður er stór hluti í út- gerðarkostnaði og samkvæmt upplýs- ingum sem fram konta í bæklingnum ncmur olíukostnaður um 25% af aflaverðmæti ársins 1983 og hefur þetta hlutfall l'arið vaxandi hin síðari ár. Með orkusparnaðaraðgerðum gætu því sparast milljónir króna. I'egar rætt er um olíusparnað koma fjölmargir áhrifaþættir inn í myndina scm taka verður tillit til, en í höfuð- atriöum tengjast þeir hönnun skip- anna annars vcgar og svo rekstrinum hins'vegar. Af mikilvægum hönnunarþáttum má ncfna: mótstöðueiginleika skipsins, skrúfueiginleika, vélar- stærð, nýtingu aflkerfis og nýtingu á kælivatni og afgasi til upphitunar. Grundvallaratriði varðandi rckstrarþætti eru til dæmis, að velja ganghraða með tilliti til olíunotkunar, rétt val á samspili snúningshraða og skrúfuskurðar, aö haldagróðurmynd- un á bol í skefjum, rétt stilling díselvéla og færri siglingar. Rannsóknir á ýmsum hliðum orku- sparnaðar í skipum og kynningar á þeim Itefur verið talsverð síðustu tíu árin cða svo. Það cru fyrst og fremst Tæknideild Fiskifélagsins og Orku- sparnaðardeild Sjávarútvegsráðu- neytisins sem hafa staðið að því starfi. Einnig hefur verið komið á laggirnar samstarfi milli norrænna rannsóknarráða og vísindaakademía um olíusparnaðarverkefni, sem kall- ast „oliefiskprojektet“. Forsendur þess að almennt sé unnt að draga úr olíunotkun skipa eru þær, að greinargóðar upplýsingar liggi fyrir urn notkunina á hverjum tíma, livar hún cr mest og við hvaða aðstæður. Tæknideild Fiskifélagsins hefur komið sér upp allgóðunr mælitækjakosti, sem rcynst liafa ómissandi í þeirri upplýsingaöflun. Þessar mælingar hafa meðal annars leitt í Ijós að umtalsverð olía getur sparast meö breytingum á skrúfu skipa og hafa þó nokkrir útgerðaraðil- ar þegar ráðist í slík verkefni. Eitt þeirra skipa sem farið hefur í skrúfu- breytingu (um 1/3 togaraflotans er Botnvörpuveiðar I höfn 1 % A togi 63% 340 lítrar af olíu áhverttonnaf afla. Vegna siglinga aö og frá miðum og milli miöa 24% Viö köstunog töku vörpu 12% / Oliunotkun viö veiðar 75% Hlutfallsleg skipting byggð á mæiingum isex skuttogurum á árunum 1976-1982, eingöngu heimalandanir, og tekið meðaltal. Netaveiðar Viö beinar veiðar 20% I höfn 8% Viö óbeinar veiðar21% x , ,,, . Vegna siglinga "aö og frá miöum 51 % 176 lítraraf olíu áhverttonnaf afla. Hlutfallsleg skipting byggð á mælingum í tveimur neta- bátum á árunum 1980-1981 og tekið meðaltal. Loðnuveiðar Viö beinar veiðar 6%_j höfn 6% / Oliunotkun á miöum 37% / Við leit, og siglingu milli kastao.fl. 31% 21 lítri af olíu áhvert tonnaf afla. Vegna siglinga 'áö og frá miðum 57% Hlutfallsleg skipting byggð á mælingum i sjö nóta- veiðiskipum á vetrarvertið 1978 og tekið meðaltal. með óhagkvæma skrúfu) er Júlíus Geirmundsson ÍS. Skipið er sex ára gamalt og einn af stærstu skuttogur- ununt af svokallaðri minni gerð. Kont- iö var fyrir gír milli vélar og skrúfu og var nýja skrúfan mun stærri en sú ganila. Til viðbótar voru gerðar þær breytingar að settur var rafall við aðalvél og komið fyrir afgaskatli við útblástursgrein aðalvélar. Mælingar á olíusparnaðinum fyrir og eftir breyt- inguna benda til að um sé að ræða 30-35% minni olíunotkun á siglingu og togi nú en áður, miðað við svipað úthaldsmynstur. Eins og dæmið af Júlíusi Geirmundssyni sýnir, er mögulegt að spara umtalsvert magn af olíu á fiskiskipaflotanum, þó sá sparnaður yrði kannski ekki eins mikill og hann varð í því dæmi. Vissulega er hér um að ræða mikil- væga leið til þess að auka verðmæta- myndun í sjávarútvegi. án þess að sóknarþunginn í fiskistofnana sé auk- inn. l/klst JULIUS GEIRMUNDSSON ÍS 270 ■ Olíunotkun við breytilega spyrnu (bollard) fyrir og eftir breytingar í Júlíusi Geirmundssyni ÍS. Miðað við tólf tonna togátak er olíunotkun fyrir breytingar 205 lítrar/klst, en eftir breytingar 120 lítrar/klst. Munurinn í þessu ákveðna dæmi er því 41.5%. Síldarlandanir Síðasta vika vertíðar ■ Nú fer að líða að lokum síldar- vertíðar, þó bátar hafi leyfi til veiða fram að 15. desember. Eins og sjá má í töflunni hafa nú borist um 45 þús. tonn á land brúttó, en séu 5% dregin frá, en það er áætlaður þungi íssins á vigt, eru þetta43.267.742 kg. Þarsem síldin hefur verið með eindæmunt góð í ár vegur verðmætakvótinn þyngra en oft endranær og Örn Traustason veiðieftirlitsmaður hjá Sjávarútvegsráðuneytinu áætlar að heildar veiðin verði rúm 45 þús. tonn. Það þýðir að aðeins er,u rúmlega 2000 tonn óveidd og þessi vika verður því væntanlega síðasta vika vertíðarinnar ef frá eru taldar örfáar eftirlegukind- ur, sem veiða eitthvað lengur. Verstöð 17. nóv.-24.növ. Fráupphafí Land- Magn Land- Magn 1 frost anir anir Vopnafjörður 0 — 29 1.146.634 0 Borgarfjörður A 0 — 7 55.880 0 Seyðisfjörður 4 80.905 66 2.314.785 121.433 Norðfjörður 4 138.220 51 2.477.366 518.155 Eskifjörður 2 43.790 102 4.835.390 190.940 Reyðarfjörður 1 59.360 50 2.551.737 0 Fáskrúðsfjörður 8 241.395 58 2.924.673 409.774 Stöðvarfjörður 4 79.040 29 1.434.465 208.540 Breiðdalsvík 3 60.450 42 1.371.990 203.500 Djúpivogur 9 217.889 88 3.250.335 692.778 Hornafjörður 25 673.119 81 3.817.567 1.892.761 Vestmannaeyjar 7 777.940 46 4.763.919 3.488.709 Þorlákshöfn 6 666.800 44 4.365.700 1.584.330 Grindavík 4 410.000 61 6.591.142 1.940.070 Sandgerði 2 133.180 10 654.520 273.124 Keflavík Ö — 15 805.040 87.800 Hafnarfjörður 0 — 3 295.570 138.770 Akranes 1 151.650 10 1.124.450 0 Aðrarhafnir 0 — 18 763.829 297.450 Brúttótölur: í vikunni alls: 3.733.738 kg. Á vertíðinni alls: 45.544.992 kg. í frost alls: 12.048.134 kg. ■ Síldarverksmiðja ríkisins á Skagaströnd þ Skagaströnd: Gagnmerh - kolahræra í stað olíu ■ I Síldarverksmiðju ríkisins á Skagaströnd er í undirbúningi að gera tilraun með nýjan orkugjafa í stað olíu fyrir þurrkara verksmiðjunn- ar, sem er eldþurrkari. Það sem um er að ræða er „kolahræra“ (coal slurry), en það er blanda af fín- möluðum kolum, vatni og kemísk- um efnum. Kolahræran er eins kon- ar grugg-lausn (að sögn ekki ósvip- uð vatnsmálningu) og er 70% kola- duft, 29% vatn og 1% kemísk efni sem koma í veg fyrir að duftið setjist til eða botnfalli. Kostir hrær- unnar untfram kol eru þeir að þetta Nokkrar ■ Misjafnt hljóð var í mönnum við sjávarsíðuna í gær. Almennt hafa togararnir verið að físka nokkuð, þó margir þeirra landi ýmist í gáma eða sigli og lítið af aflanum komi til vinnslu hér heima. Síldin er enn veidd í frystingu og fer hún mest á Austfirði og Suðurland en ioðnan í bræðslur víðs vegar um landið. Vesturland: Togarinn Haraldur Böðvarsson landaði 115 tonnum af bolfiski á Akranesi fyrir viku. Þar af voru 70 tonn þorskur, 34 tonn karfi og tvö tonn af ýsu. Restin var blönduð. í gær landaði Krossvíkin 150 tonnum af þorski. Þrír bátar voru í síðustu viku á netum og fengu þeir á bilinu eitt til fimrn tonn af ýsu. Sautján bátar frá Ólafsvík lönd- uðu, í síðustu viku, rúmleg tvö hundr- uð tonnum af vænum þorski. Þrír minni bátar lönduðu í Ólafsvfk um helgina. Einn var á snurvoð, með rúm átta tonn. Tveir á línu með þrjú og tæp fimm tonn. Ekki fengust fréttir frá Hellissandi í gær. Sjósókn í Grundarfirði og Stykkishólmi beinist eingöngu að skelfiskveiðum þessa dagana. Vestfirðir: Á Patreksfirði landaði línubáturinn Þrymur samanlagt yfir síðustu viku um 30 íonnum, í fjórum róðrum, mest þorsk og ýsu. Togarinn Sigurey seldi aflann erlendis. Togarinn Framnes á Þingeyri land- aði 32 tonnum af blönduðum afla sl. þriðjudag. Sléttanesið landaði sama dag tæplega 10 tonnum, eftir stutta ferð, en báðir togararnir komu inn vegna slæms veðurs. Tveir línubátar lönduðu rúmum 5 tonnum yfir vik- una, á Þingeyri.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.