NT - 26.11.1985, Side 7
Þriðjudagur 26. nóvember 1985 7
Utlönd
Blóðugasta flug-
vélarán sögunnar
Valletlu-Aþena-Kairo - Keuter
■ Blóöugasta flugvéláráni,
sern um getur. lauk í Valletta á
Möltu í fyrrinótt þegarsérþjálf-
aðir egypskir öryggisverðir réð-
ust um borð í flugvél þar sem
fimnr flugvélaræningjar héldu
nær hundrað farþegum og
áhafnarmeðlimum í gíslingu.
Skæruliðarnir vörðust grimmi-
lega og 58 menn létust í árásinni
en áður höfðu tveir látist al
skotsárum.
Flugvélaræningjarnir komu
um borð í flugvélina. sem var
egypsk, þegar hún var á flugvell-
inum í Aþenu. Grísk stjórnvöld
halda því samt fram að nær
útilokað hafi verið að ræningj-
arnir hafi konrið vopnum sín-
um um borð í vélina í Aþenu
þar sem öryggisvarsla þar sé
mjög góð.
Egypsku hermennirnir, sem
réðust um borð í flugvélina. eru
úr sérstakri öryggissveit sem'
hefur hlotið þjálfun í Banda-'
ríkjunum og Vestur-Þýska-
landi. Egyptar segja að nreð
Kólombíski
herinn
skýtur
gosræningja
Bogota-Rcuter:
■ Samkvæmt kólomb-
íska dagblaðinu El Tiem-
po hefur herinn í Kól-
ombíu skotið að minnsta
kosti fjóra ræningja sem
notfærðu sér neyðar-
ástandið vegna eldgoss-
ins í Nevado Del Ruiz til
að ræna yfirgefin hús.
Mennirnir, sem voru
skotnir, dulbjuggu sig
sem starfsmenn Rauða
krossins með því að hafa
borða Rauða krossins á
handleggnum. Varnar-
málaráðuneytið hefur
fyrirskipað hernum að
skjóta hvern þann sem
verður uppvís að ránum
í bæjum við eldfjalið þar
sem 22.000 menn létu
lífið fyrr í þessum mán-
uði.
Belisario Betancur
forseti Kólombíu hefur
nú lýst yfir neyðarástandi
í efnahagsmálum vegna
gossins. Hann segir að
4.500 hús hafi eyðilagst í
gosinu, 11.000 hektarar
af landbúnaðarlandi séu
ónýtir til ræktunar og
gosið hafi bein áhrif á
afkomu um 320.000
manna.
Vísindamenn óttast
nýtt sprengigos í eldfjall-
inu. Þeir eru nú að koma
upp viðvörunarkerfi með
jarðskjálftamælum á
mörgum stöðum í fjall-
inu.
árásinni liafi tekist að bjarga 44
mannslífum.
Akvörðunin um árásina var
ekki tekin fyrr en hryðjuverka-
mennirnir fóru að skjóta farþeg-
ana einn á fætur öðrunt og
fleygja þeim út úr flugvélinni.
Þeir sögðust myndú halda af-
tökunum áfram þar til þeir
fengjueldsneyti fyrirflugvélina.
Þegar árásin hófst hentu
skæruliðarnir þrem hand-
sprengjum inn í farþegarúmið
sem varð til þess að eldur læsti
sig í vélina. Margir létust í
sprengingunum en sumir munu
hafa kafnað. Astralíumaður.
sem lifði flugránið af, segist
telja að hafi cinhverjir látist
vegna skotsára þá sé líklegast
að þeir hafi orðið fyrir skotum
frá egypsku öryggissveitunum
þarsem ómögulegt hafi verið að
greina í sundur farþega og flug-
ræningja í reykjarsvælunni sem
var í flugvélinni.
Fjórir hryðjuverkamannanna
létust í árásinni og mun flug-
stjóri vélarinnar hafa drepið
einn þeirra rneð exi. Einn flug-
ræningjanna lifði af og liggur nú
á sjúkrahúsi á Möltu ásamt
þrjátíu farþegum og áhafnar-
meðlimum sem slösuðust.
Ekki er vitað með vissu hvaða
hryðjuverkasamft)kum flugvél-
aræningjarnir tilheyrðu eða
hvert markmið ránsins var þar
sem að minnsta kosti þrenn
samtök liafa lýst yfir ábyrgð á
hendur sér vegna ránsins.
Hópur sem kallar sig Frelsis-
samtök Egypta, var fyrstur til
að lýsa yfir ábyrgð á flugvéla-
ráninu sem samtökin sögðu að
væri stefnt gegn stjórn Egypta-
lands og bandalagi hennar við
ísraelsmenn.
Frelsissamtök Palestínuaraba,
PLO, hafa fordæmt flugvélarán-
ið en Egyptar halda því fram að
klofningshópur úr PLO hafi
staðið á bak við það. Egyptar
hafa gefið í skyn að Líbýumenn
tengist flugvélaráninu óbeint
þar sem þeir styðji hópinn sem
itafi rænt tlugvélinni.
Pakistanskur
kvennabanki
Karachi-Rcuter:
■ Stjómvöld í Pakistan
íhuga stofnun sérstaks
kvennabanka sem verði rek-
inn af konum fyrir konur.
Salma Ahmed forseta
Sambands pakistanskra at-
hafnakvenna, sem einnig á
sæti á pakistanska þinginu,
sagði í gær í viðtali við
pakistanska fréttastofu að
Alþjóðabankinn myndi
styðja stofnun kvennabanka
með því að leggja fram 70%
af stofnfjármagni hans. Hún
sagði að markmið bankans
yrði að efla atvinnustarfsemi
kvenna og bæta lífskjör
þeirra.
Aðeins um 14 prósent
pakistanskra kvenna eru læs
á einfaldan tcxta. Pakistan
er múhameðstrúarríki og
margir íhaldssamir klerkar
telja konur aðeins hálf-
drættinga á við menn við
gerð viðskiptasamninga eða
sem vitni fyrir rétti.
Pakistanska stjórnin seg-
ist vilja bæta lífskjör kvenna
með því að auka menntun
þeirra, kenna þeim að lesa,
bæta heilsugæslu og hvetja
þær út á vinnumarkaðinn.
■ Gerret FitzGerald forsætisráðherra íra og Margrét Thatcher forsætisráðherra Breta eftir gerð
samningsins um aðild írska lýðveldisins að lausn deilumála á Norður-írlandi.
írastjórn vinsæl
eftir samningana
um Norður-írland
Dublin-London-Reuter
■ Samningur stjórnar írska
lýðveldisins og Bretlands um
aðild íra að lausn mála á Norð-
ur-Irlandi, sem undirritaður var
þann 15. nóvembersíðastliðinn,
hefur orðið til þess að auka
mjög vinsældir samsteypu-
stjórnar Gerrets FitzGeralds á
írlandi ef marka má niðurstöður
skoðanakönnunar sem var birt í
gær.
Stuðningur við samsteypu-
stjórnina hefur aukist úr 40% í
júlí síðastliðnum upp í 45%
núna. Á sama tíma hefur fylgi
Fianna-flokksins, sem er í
stjórnarandstöðu, minnkað úr
i 52% í 51%.
Persónufylgi FitzGeralds
forsætisráðherra hefur aukist
ennþá meira. Nú telja 51%
kjósenda hann hæfari en for-
ystumann stjórnarandstæðinga,
Charles Haughey sem fékk að-
eins 43% fylgi en hann hefur
lýst yfir andstöðu við samkomu-
lagið við Breta. Þetta er mikil
breyting frá því í júlí þegar 47%
studdu Haughey en aðeins 41%
voru ánægð með FitzGerald.
Fylgisaukning stjórnarinnar
er talin stafa nær eingöngu af
ánægju kjósenda með sam-
komulag við Breta sem felur í
sér að stjórnir Bretlands og
Irlands skuli stofna ráðgjafa-
nefnd með ráðherrum frá báð-
um stjórnum sem fundi reglu-
lega um ýmis málefni sem snerta
Norður-írland. Nefndin mun
m.a. fjalla um kosningakerfið á
Norður-írlandi, um dómskerf-
ið, öryggismál og landamæra-
vörslu.
Samkvæmt samkomulaginu
er ekki gert ráð fyrir því að
Norður-írland verði þvingað til
sameiningar við írska lýðveldið
á meðan meirihluti íbúa N-ír-
lands er' á móti slíkri samein-
ingu. En samþykki meirihluti
Norður-íra sameiningu í fram-
tíðinni munu stjórnir Bretlands
og írlands vinna sameiginlega
að því setja lög sem geri slíka
sameiningu mögulega.
Sambandssinnar á Norður-
írlandi hafa lýst yfir eindreginni
og skilyrðislausri andstöðu við
samkomulagið sem þeir segja
að sé stefnt gegn einingu
Bretlands. Forystumenn
mótmælenda á Norður-írlandi
sameinuðust um að boða til
fjöldamótmæla gegn samkomu-
laginu á sunnudag. Um það bil
70.000 menn tóku þátt í mót-
mælaaðgerðunum sem voru
haldnar í Belfast.
Breska stjórnin hefur reynt
að draga úr mikilvægi sam-
komulagsins til þess að reyna að
friða mótmælendur á Norður-
írlandi. Bretar segja samkomu-
lagið fyrst og fremst til þess að
svipta írska lýðveldisherinn
fjöidafylgi meðal kaþólika.
Engar áætlanir séu um innlimun
Norður-frlands í írska lýðveldið
í andstöðu við vilja meirihluta
íbúa á Norður-írlandi.
RIÖLBRAUTASKÓLJNN
BREIÐHQLTI
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti
Umsóknir um skólavist í Dagskóla F.B. á
vorönn 1986 skulu hafa borist skrifstofu
skólans Austurbergi 5 fyrir 1. desember n.k.
Nýjar umsóknir um Kvöldskóla F.B. (öld-
ungadeild) á vorönn 1986 skulu berast
skrifstofu skólans fyrir sama tíma. Staðfesta
skal fyrri umsóknir væntanlegra nýnema
með símskeyti eða símtali við skrifstofu F.B.
sími75600.
ATH. þetta er síðasta innritunarvikan.
Skólameistari.
^RARIK
1^.^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Útboð
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum i eftirfarandi:
RARIK-85014: Aflstrengir og ber koparvír.
Opnunardagur: Þriðjudagur 14. janúar 1986, kl. 14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyrir opnunartíma og verða
þau opnuð á sama stað að viðstöddum þeim bjóðendum er
þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með miðvikudegi 27.
nóvember 1985 og kosta kr. 200,- hvert eintak.
Reykjavík 25. nóvember 1985. Rafmagnsveitur ríkisins.
Til sölu:
Kelfdar kvígur, rúllubindivél, jarðtætarar, dráttarvél, súg-
þurrkunarblásari og rafmótor. heyvinnuvélar, varahlutir í
Land Rover og Skoda.
Upplýsingar í síma 96-43635 eða 96-43621.
í eftirtalin hverfi:
Eskihlíð, Þingholt, Sólheimar, Glaðheimar,
Borgarholtsbraut, Nýja miðbæinn og Strandirnar á
Seltjarnarnesi og Ægissiðu. Einnig vantar blaðbera á
biðlista i öll hverfi. _
BLAÐ SEM A ERINDI
TIL ÞIN