NT - 29.11.1985, Blaðsíða 5

NT - 29.11.1985, Blaðsíða 5
Föstudagur 29. nóvember 1985 5 Deilur um bókina Þú og Ég í fræðslu- ráði Reykjavíkur ■ Fyrir skömrnu tóku nýir eigendur við tískuversluninni Bóbó, að Laugavegi 61. Tískuversiunin Bóbó mun hér eftir, sem áður, hafa herra- og kvenfatnað á boðstólum. A myndinni eru þær Fríða Methúsalemsdóttir, afgreiðslustúlka, og nýju cigcndurnir þær Jóhanna Guðnadóttir og Guðrún Björnsdóttir. Akureyri: Ölvaður ökumaður ók á hliðstólpa Litlu munaði að hann æki niður vegfarendur ■ Um tvö hudruð metra öku- túr tveggja ungra manna á föstu- dagskvöldið var endaði með skelfingu og þó má teljast mesta mildi að ekki fór ver. Að sögn sjónarvotta sem gengu framhjá mönnunum tveimur þar sem þeir stóðu við bifreið sína að Lada gerð, voru þeir áberandi drukknir en gerðu sig alls ekki líklega til að aka af stað. En hópurinn hafði ekki gengið nema spölkorn þegar Ladan kom æðandi á eftir þeim og ökumaður missti stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún þeyttist uppá gangstétt, lenti á grindverki og stöðvaðist að lok- um á steinsteyptum hliðstólpa. Svo mikil ferð var á bílnum að hliðstólpinn gekk langt upp í vélarhúsið og brotnaði. Mennirnir vour lítið meiddir, eilítið skrámaðir í andliti, og vegfarendur gátu prísað sig sæla því eins og einn þeirra komst að orði: „Þegar bíllinn lenti á stólp- anum var ekki metri á milli okkar". Þær upplýsingar fengust hjá rannsóknarlögreglunni að auk þessa áreksturs hefði verið ekið á gangandi vegfaranda á gang- braut við Hörgárbraut, meiðsli voru ekki mikil. Aðfaranótt laugardags valt bíll fram við Öngulstaði og skemmdist mikið. Grunur leikur á að Bakk- us hafi verið með í ferð. Önnur bílvelta átti sér stað skammt norðan við Stokkahlaðir, aftur- öxullinn brotnaði og því fór sem fór, ökumaður og farþegi sluppu ómeiddir. Að sögn Daníels Snorrasonar rannsóknarlögreglumanns var helgin að undanskildum þessum óhöppum með rólegra móti og lítil ölvun um helgina í bænum. HIH/AK. ■ Skólasafnanefnd fræðslu- ráðs Reykjavíkur hefur óskað eftir að bókin Þú og Ég bók um kynlíf fyrir ungt fólk sem kom út hjá Máli og menningu nýver- ið verði ekki leyfð til kaupa á skólabókasöfn borgarinnar. Bragi Jósepsson fulltrúi nefndarinnar sagöi það sam- dóma álit nefndarinnarað bókin vegi að grundvallarviðhorfunt alménnings um kynlíf, uppeldis- hlutverki foreldra, almennu sið- gæði og legði of mikla áhersiu á frjálsræði og frjálsar ástir og væri það viðsjárvert nú þar sem hættulegir kynsjúkdómar geisa. Hann sagði að nefndin hefði því ekki taliö æskilegt að bókin lægi frammi á bókasöfnum grunn- skólanna, því það væri ekki hlutverk skólans að standa fyrir slíkum áróðri. Á síðasta fundi fræðsluráðs Rcykjavíkur lögðu þær Gerður Steinþórsdóttir, Lena M. Rist, Ragna Ólafsdóttir, og Ingveldur Sveinbjörnsdóttir fram bókun þess efnis að samkvæmt reglum um skólasöfn sé það í verka- hring kennara og starfsfólks skóla að velja bækur á skóla- söfnin og að skólasafnanefnd sé að fara út fyrir verksvið sitt með því að skipta sér af hvort þcssi tiltekna bók sé keypt eða ekki. Hlutverk skólasafnanefndar sé að veita einni frumsaminni barnabók, erlendri eða inn- lendri verðlaun og aö fylgjast með því að skólasöfn kaupi ekki bækur umfram fjárhags- áætlun. Gerður Steinþórsdóttir sagði það skjóta skökku við að ein- staklingar gætu gerst rit- skoðendur bókar sem þegar væri búin að fá jákvæða umfjöll- un t.d. hjá Kynfræðslunefnd Reykjavíkurborgar. Hún ítrek- aði það álit sitt að nefndin væri að fara út fyrir verksvið sitt og taldi þetta at'ar hæpinn málflutn- ing hjá nefndinni. Gerður sagði að lokum að niöurstaða síðasta fundar hefði verið sú að bókin verður send til umsagnar borgarlæknis, Félags Hagkaup, Skeifunni: ■ Sérstök deild með vcrkfæri og byggingarvörur opnaði nýlega á cftri hæð Hagkaups, Skeifunni 15, þar sem húsgagnaverslunin Ikea var áður til húsa. „Það er vart hægt að segja að um sé að ræða hefðbundna byggingarvörudeild," sagði Jón Ásbjörnsson forstjóri Hag- kaups, í samtali við NT. „Deild- in heitir „Hendur fram úr ermum“, og verslanir af þessari tegund kallast á ensku „Do it yourself", og hafa rutt sér til rúms erlendis undanfarin ár. Þetta miðast við allskonar vörur sem fólk notar á heimili sínu, til að bjarga sér sjálft um viðhald skólastjóra, Kennarafélags Reykjavíktir og fræðsjustjóra Reykjavíkur og eiga þessir aðil- ar að skila áliti sínu fyrir næsta fund fræðsluráðs n.k. mánudag, en þangað til verður bókin Þú og Ég ekki til afgreiðslu til skólabókasafna grunnskóla borgarinnar. og viðgerðir bæði á heimilinu eða í sambandi við bílinn sinn. Deildin á að höfða meira til hins almenna viðskiptavins Hag- kaups, þótt fagmenn geti auð- vitað verslað þarna líka, enda um 4000 vörutegundir að ræða.“ Jón sagði ennfremur að ekki væri búið að auglýsa eða opna deildina formlega, þessi tími sem hún hefði verið opin væri eins konar generalprufa á hvernig viðtökur væru, auk þess sem deildin væri ekki alveg fullfrágengin. Hvenær frumsýn- ingin yrði, gat Jón ekki sagt um, en bjóst við því að hún verði á næstu dögum. Byggingarvöru- deild opnar á efri hæðini - á að höf ða til sjálfsbjargarviðleitni neytenda VINSÆLASTI HERRAFATNAÐUR í EVRÓPU. ______________ÓTRÚLEGA HAGSTÆTT VERD.____________ mClkC Í ÖLLIJM BESTU HERRAFATAVERSLUNUM Á LANDINU.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.