NT - 29.11.1985, Blaðsíða 7

NT - 29.11.1985, Blaðsíða 7
 Föstudagur 29. nóvember 1985 7 LL Útlönd Sæði og blóði beitt gegn glæpamönnum London-Reuter ■ Breskir vísindamenn hafa aö undanförnu unnið að því að fullkomna nýja aðferð til að greina á milli einstaklinga með rannsókn á DNA í arfberum (genum) í blóðfrumum og sæði. Talsmaður breska innanríkisráðu- neytisins segir að „erfðaför" sem finnast í DNA séu jafn örugg og fingraför til að greina á milli manna. Sérfræðingar lögreglunnar geti fram- vegis borið saman blóð eða sæði grunaðra glæpamanna við blóð og sæði sem finnist á glæpastaðnum. f>að eru vísindamenn við Leichester háskóla sem eiga heiðurinn af þessari nýju tækni. Nú er stefnt að því að beita henni við greiningu sönnunar- gagna fyrir rétti innan örfárra mán- aða. Flugumferðarstjórar mettir á Grikklandi Aþena-Reutcr ■ Grískir flugumferðarstjórar hættu í gær hungurverkfalli sínu, sem hófst síðastliðinn mánudag, eftir að stjórnvöld lofuðu að ræða við þá um kjarakröfur þeirra. Nær öll flugumferð stöðvaðist í hungurverkfallinu sem einnig var fólgið í því að flugumferðarstjórarnir hættu að sofa. Að sögn talsmanna flugumferðarstjóra leið yfir um 120 menn á meðan á hungurvökunni stóð og þrír fengu hjartaáfall. En þótt hungurverkfalli flugum- ferðarstjóra hafi lokið í gær héldu mótmælaaðgerðir gegn aðhaldsstefnu grísku stjórnarinnar áfram. Opinber- ir starfsmenn lögðu niður vinnu í 24 klukkustundir og leigubílstjórar fóru líka í verkfall í gær. Stærsta brjórkrús í heimi Kuaia I.umpur-Reuter ■ Forráðamenn malaysíska fyrirtækisins Selangor Pewter héldu upp á 100 ára stofn- afmæli fyrirtækisins með því að búa til tveggja metra háa bjórkönnu sem þeir segja að sé örugglega stærsta bjór- kanna í heimi. Bjórkannan er 1,8 tonn að þyngd og hún tekur samtals 4000 lítra af öli. ■ Andleg menning kínverskra ungmenna í hættu? Kínversk stjórnvöld telja erlendar auglýsingar við götur í Peking slæmar fyrir andlega menningu Kínverja. Erlendar auglýsingar hættulegar í Peking? Peking-Reuter: ■ Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að taka niður auglýsingar um erlendar vörur sem hafa á síðustu árum trónað á áróðursveggjum meðfram öllum helstu götum Pekingborgar. Auglýs- ingarnar eru m.a. sagðar hafa slæm áhrif á andlega menningu Kínverja. Áróðursveggirnir voru áður notað- ir undir pólitísk vígorð. En eftir að Kínverjar ákváðu að opna land sitt fyrir viðskiptum við erlend ríki af fullum krafti árið 1979 hafa auglýsing- ar erlendra stórfyrirtækja komið í stað vígorðanna. Borgaryfirvöld í Peking eru nú komin á þá skoðun að það sé ekki rétt að auglýsa erlendan varning á þennan hátt við Friðarstrætið (Changan-jie) sem liggur í gegnum Pekingborg frá austri til vesturs. Keisarahöllin gamla og Höll alþýðunnar standa meðal annars við þetta stræti. Þessi ákvörðun bitnar fyrst og fremst á japönskum fyrirtækjum sem hafa lagt mikla áherslu á að auglýsa vörur sínar sem mest í Kína. Erlendir sendifulltrúar í Peking segja að aug- lýsingabannið sé m.a. ætlað til að draga úr gagnrýni kínverskra há- skólastúdenta á „efnahagsinnrás Jap- ana í Kína". Stúdentar hafa að undanförnu efnt til mótmælaaðgerða gegn Japönum í nokkrum kínverskum borgum og svo virðist sem kínversk stjórnvöld óttist að mótmælaaðgerðir þeirra breiðist út og snúist upp í almenn mótmæli gegn núverandi efnahagsstefnu sem mörgum þykir allt of kapítalísk. Samkomulagið um N-írland samþykkt ■ Frá mótmælafundi sambandssinna í miðborg Belfast í seinustu viku. Þeir telja samning bresku stjórnarinnar við stjórn írska lýðveldisins um írska aðild að framtíðarþróun mála á Norður-írlandi svik við einingu Bretlands. Bretland: Fimmtán norður-írskir þingmenn segja af sér London-Reuter ■ Breskir þingmenn samþykktu í gær með yfirgnæfandi meirihluta at- kvæða samkomulagið sem Margrét Thatcher forsætisráðherra Breta gerði fyrir skömmu við Garret Fitz- gerald forsætisráðherra írska lýðveld- isins um Norður-írland. Alls greiddu 473 þingmenn atkvæði með samkomulaginu en aðeins 47 voru á móti því. Eftir atkvæða- greiðsluna lýstu fimmtán af sautján þingmönnum Norður-írlands á breska þinginu því yfir að þeir myndu segja af sér til að mótmæla samkomu- laginu þar sem það stríði gcgn einingu Bretlands. Þingmennirnir fimmtán eru allir sambandssinnar og eindregnir and- stæðingar sameiningar við írska lýð- veldið. Þeir hafa krafist almennrar atkvæðagreiðslu á Norður-lrlandi urn samkomulagið scm m.a. felur í sér að bresk stjórnvöld ntunu ráðfæra sig við írsku stjórnina um allar meirihátt- ar breytingar sem verða gerðar á kosninga- og dómskerfi á Norður-ír- landi. Þingmenn sambandssinna segjast munu bjóða sig aftur fram í auka- kosningum í byrjun næsta árs til að sýna að kjósendur á Norður-írlandi séu á rnóti samkomulaginu. En Mar- grét Thatchcr segist ekkert mark ætla að taka á niðurstöðu kosninganna. Norrænir þingmenn ræða kjarnorkuleysi Kaupmannahöfn-Reuler ™ ■ Norrænn þingmannafundur hefst í Kaupmannahöfn í dag um hvort hægt sé að gera Norðurlöndin að kjarnorkuvopnalausu svæði. Alls taka um hundrað þingmenn frá 45 stjórnmálaflokkum í Danmörku, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og á íslandi þátt í fundinum. Hugmyndin um kjarnorkuvopna- laus Norðurlönd var fyrst sett frani af Urho Kekkonen forseta Finn- lands árið 1963. Síðan hefur hún verið mikið rædd á Norðurlöndun- um. Finnar og Svíar eru skilyrðis- laust hlynntir stofnun slíks svæðis og íslenskir þingmenn hafa lýst yfir stuðningi við hugmyndina. Stjórnir Danmerkur og Noregs eru hins vegar á móti einhliða yfirlýsingu um kjarnorkuvopnaleysi Norðurlanda nema til komi víðtæk- ara samkomulag risaveldanna í austri og vestri. Öll Norðurlöndin banna kjarn- orkuvopn í löndum sínuni á friðar- tíma. Símatap í Kuwait: Hundrað kíló af ógreiddum símreikningum ■ Útlendingar, sem starfa tíma- bundið í arabaríkinu Kuwait skilja oft eftir sig himinháa símreikninga sem yfirvöld hafa enga möguleika á því að innheimta. Dagblað í Kuwait hefur eftir em- bættismanni, sem starfar við stjórn símamála, að hundrað kílóa bunki af ógreiddum símreikningum háfi safn- ast upp hjá póst og símamálastjórn- inni. Reikningarnir séu samtals upp á um 70 milljón dollara og sá hæsti nemi rúmlega einni milljón dollara (40 milljón ísl.kr.) einn sér. Hungurpopp í Ungverjalandi Búdapest-Reuter: ■ Ungversksir popparar hafa ákveðið að fara að dæmi vestrænna poppsöngvara og halda tónleika til að safna peningum fyrir hungraða Afr- íkubúa. Samkvæmnt fjögurra blaðsíðna auglýsingu, sem birtist í ungverska ríkisblaðinu Magyar hirlap munu tuttugu ungverskar popphljómsveitir koma fram á tónleikum í desember sem haldnir verða til styrktar hjálpar- starfi í Afríku. í blaðinu er látin í ijós sú von að erlendir poppsöngvarar komi einnig fram á tónleikunum. írskri poppsöngvarinn Bob Geldof, sem skipulagði alþjóðatón- leika til stuðnings hjálparstarfi í Afr- íku síðastliðið sumar, tók í gær við verðlaunum Sameinuðu þjóðanna fyrir framlag sitt til baráttunnar gegn hungri í heiminum. SNJÓHJÓLBARÐAR Sólaðir og nýir snjóhjólbarðar af öllum stærðum og ýmsum tegundum, bæði radial og venjulegir, sterkir og með góðu gripmunstri. Einnig lítið slitnir snjóhjólbarðar á gjafverði. Snöggar hjólbarðaskiptingar. Vanir menn - Allir bílar teknir inn - Setustofa, alltaf heitt á könnunni meðan hinkrað er við. Komið, skoðið, gerið góð kaup BARÐINN Skútuvogi 2, símar: 30501 og 84844

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.