NT - 29.11.1985, Blaðsíða 19
-f u Föstudagur 29. nóvember 1985 19
L IVI «9
Sigríður Vilhjálmsdóttir
frá Hánefsstöðum
ættum að hugleiða það núna og muna
eftir því að það sem hún sagði um
þessi mál fyrirlöngu síðan, erhárrétt,
sé til þessa dags litið. Hún var framsýn
í þessum málum eins og svo mörgum
öðrum.
Ekki get ég skilið við þessar fátæk-
legu kveðjulínur án þess að minnast
á það góða mál sem hún talaði.
Stundum kom hún með skondin orð.
Fædd 27. nóvember 1907
Dáin 24. október 1985.
Sigríður Vilhjálmsdóttir var fædd
að Hánefsstöðum við Seyðisfjörð 27.
nóvember, 1907. Hún vardóttirhjón-
anna Vilhjálms Árnasonar og konu
hans Bjargar Sigurðardóttur. Sigga,
eins og hún var oftast kölluð var
næstyngst sjö systkina, en þau voru:
Sigurður, Árni, Hermann. Pórhallur,
Hjtílmar Sigríður og Stefanía. Hjálmar og
Stefanía eru ein eftir af þessum
þróttmikla systkinahópi. Auk barna
sinna ólu þau Vilhjálmur og Björg,
upp Vilhjálm Emilsson. Foreldrar
hans voru hjónin Emil Guðjónsson
og Guðný Helga Guðmundsdóttir frá
Hátúni á Hánefsstaðaeyrum. Vil-
hjálmur naut frænku minnar lengst af
þeim systkinum, en hann kvæntist
systur Einars, manns Siggu, Ingi-
björgu Stefánsdóttur frá Mýrum í
Skriðdal. Heimili þeirra systkina
Siggu og Vilhjálms voru svo að segja
hlið við lilið og var samgangur mikill
milli þeirra, enda þessi tvö heimili lík
um margt. Gestrisni og hlýja tóku á
móti hverjum manni á báðum þessum
heimilum. Eftir fráfall Siggu munu
margir leita í Vindás, en það nefndu
þau hús sitt, Villi og Inga.
Hánefsstaðaheimilið var stórt og
umsvifin mikil. Oft voru um 60 manns
íheimili með heimafólkinu, en útgerð
og landbúnaður fóru þar saman. Það
má nærri geta að handtökin hafa
verið mörg. Vinnumenn og konur
voru allt úrvalsfólk, sem sóttist eftir
að vera í vist hjá hjónunum á Hánefs-
stöðum. Sigga vandist því snemma á
að taka til hendinni og gekk að öllum
störfum af kappi og áhuga. Móðir
mín, sem var vinnukona á Hánefs-
stöðum og giftist Þórhalli bróður
Siggu, sagði mér oft margar og
skemmtilegar sögur af Siggu, en hún
var fjörug og skemmtilegur félagi.
Pað væri freistandi að segja frá nokkr-
um þeirra, en ég læt minningarnar og
frásagnargleði Siggu sjálfrar nægja,
en margt var brallað á stóru búi. Að
sögn móður minnar var Sigga einstak-
lega sporlétt og viljug. Á þessum
árum var grín og glens ómissandi
þáttur í athöfnum hennar. Hún atii
kappi við bræður sína við störf og
leiki og tókst það með prýði. Henni
lærðist snemma að þykja vænt um
það sem fagurt var, enda mjög listræn
sjálf. en tónlist, góðar bókmenntir og
handvefnaður var í hávegum haft á
Hánefsstöðum.
Með þetta nesti lagði Sigga út í
lífið. Hún var við nám og kennslu hjá
Sigrúnu Blöndal á Hallormsstaða-
skóla árið 1930, en þar aðstoðaði hún
við kennslu í vefnaði. Petta var
afdrifaríkt ár fyrir Siggu, því þarna
kynntist hún ungum og glæsilegum
manni, Einari Stefánssyni frá Mýrum
í Skriðdal. Pau gengu í hjónaband
árið 1932. Einar lést fyrir sjö árum,
má þá segja að lífslöngun Siggu liafi
byrjað að dvína. Hún hafði ekki verið
heilsuhraust frá því um miðbik ævinn-
ar, en nú fór heilsu hennar hratt
hrakandi. Hún var rúmföst s.l. 3 ár,
en fylgdist með öllu sem fram fór, en
líkamleg heilsa var farin. Heimili
Einars og Siggu var í þjóðbraut og
voru þau ein af fyrstu íbúum Egils-
staðakauptúns, en þar reistu þau
fallegt heimili árið 1945. Áður höfðu
þau búið að Hafranesi og Reyðar-
firði. Einar var smiður að mennt, en
varð byggingarfulltrúi Austurlands
árið 1951. Vinir og frændur voru tíðir
gestir hjá þeim hjónum, en alltaf var
nægjanlegt pláss fyrir alla. Ég kom
ótal sinnum til þeirra, en varla man
ég nokkurn tíma til þess að ekki hafi
verið þar fleiri manns fyrir. Gestrisni
og einlægni var þeim svo eðlileg að
engum fannst hann vera til trafala.
Gestagangurinn í Laufási, en svo
nefndu þau heimili sitt, var gríðarleg-
ur, svo mikill að ekkert heimili hef ég
þekkt, sem tók á móti svo mörgum
gestum og gangandi og alltaf af
rausn og myndarskap. Siggu var það
meðfætt að taka á móti fólki á þann
Ný skáldsaga eftir
Hammond Innes
Hammond Innes: Olíubylgjan blakka
Iðunn 1985-207 bls.
■ Hammond Innes hefur lengi átt sér traustan hóp aðdáenda víða um heim
og þeir bókmenntagagnrýnendur erlendir, sem fást við að gagnrýna þá
bókmenntagrein, sem flestar bækur Innes heyra til, spara sjaldan stóru orðin
þegar ný bók kemur frá hendi hans. Gæti stundum virst svo sem menn keppist
helst við að finna sem sterkust lýsingarorð, í stað þess að fjalla um bækurnar.
Er bókmenntagagnrýni af því tagi að því er virðist viðurkennd í þeim löndum,
þar sem flestar spennusögur eru skrifaðar og þykja sjálfsögð grein á
skáldsagnameiðinum.
Og vissulega má ekki draga allar spennusögur og alla spennusagnahöfunda í
einn dilk. Hér skal ekki veist að neinum höfundi slíkra sagna, en í mínum huga
er þó Hammond Innes í hópi þeirra skástu, bækur hans eru yfirleitt skrifaðar á
þokkalegu máli og efnismeiri en bækur margra spennusagnahöfunda.
í þessari bók segir frá því að ung hjón hafa tekið sér bústað í kofa á
Cornwallskaga á Englandi. Óveðursnótt eina rekur olíuskip stjórnlaust upp að
ströndinni. Pað strandar, olían lekur út og spillir fuglalífi, en þau hjónin eru
miklir náttúrulífsunnendur. Konan grípur það til bragðs í örvæntingu sinni að
fara um borð í skipsflakið og sprengir það í loft upp og sjálfa sig um leið. Þá
taka óvæntir hlutir að gerast og bóndi hennar fær grun um að skipsstrandið hafi
ekki borið að með þeim hætti sem virtist í fyrstu. Hann kemst á slóð alþjóðlegs
glæpahrings, sem hefur það að atvinnu sinni að ræna skipum og svíkja fé út úr
tryggingarfélögum. Hefst þá hinn mesti eltingaleikur, sem berst um hálfan
heiminn og gerast þar margir óvæntir og spennandi atburðir.
Söguþráðurinn verður nú ekki rakinn nánar, en í bókinni, sem er
þrælspennandi, er lesandanum leyft að skyggnast inn í veröld alþjóðlegra
glæpasamtaka, þar sem öll meðul eru notuð til þess eins að komast yfir nokkra
aura. Myndir og mannlýsingar eru vissulega ýktar, eins og oft vill verða í sögum
af þessu tagi, en hitt er haft fyrir satt, að höfundur hafi sótt drjúgan efnivið í
skýrslur um raunverulega atburði.
Fyrir þá, sem á annað borð hafa gaman af spennusögum, er óhætt að mæla
með þessari, og ekki sakar að þýðing Álfheiðar Kjartansdóttur er mjög
þokkalega gerð.
Jón Þ. Þór.
hátt að öllum leið vel í návist þeirra
hjóna. I gestabókunum þeirra má
finna fjölda nafna, seni alþjóö þekkir
við hlið Jóns Jónssonar. en að Sigga
gerði upp á milli manna var henni eins
andstætt og norðrið er suðrinu. Hún
hreinlega „fílósóferaði" stundum við
mig um þá sem það gera. Titlar og
titlatog voru henni mjög á móti skapi
og varð henni oft heitt í hamsi þegar
þessi mál voru rædd.
Einar og Sigga eignuðust tvo syni,
Vilhjálm, sem er skólameistari
menntaskólans á Egilsstöðum. Hann
er giftur Gerði Unndórsdóttur og
eiga þau sex syni. Stefán, sem er
verkfræðingur og býr í Svíþjóð. Hann
kvæntist sænskri konu, Birgittu Ein-
arsson og eiga þau þrjá syni. Stefán
hafði verið heima á íslandi í við-
skiptaerindum, en daginn sem hann
kom til Svíþjóðar aftur, fékk hann
símhringingu frá Vilhjálmi bróður
sínum, sem tilkynnti honum andlát
móður þeirra. Áuk þessara tveggja
sona sinna, ólu þau upp til margra
ára, son undirritaðrar, Baldur
Kristjánsson, sem er sálfræðingur og
búsettur í Keflavík. Hann er giftur
Svölu Björgvinsdóttur og eiga þau
tvö börn. Baldur fór ekki varhluta af
elskusemi Siggu og Einars, enda leit
Baldur ætíð á þau sem foreldra sína.
Þegar litið er yfir farinn veg hrann-
ast minningarnar upp. Samskipti okk-
^ j
1
ar Siggu urðu vissulega með öðrum
hætti en hjá öllum liinum náfrænkum
hennar. Hún var meö barnið mitt hjá
sér. Það hlýtur oft að hafa verið erfitt
fyrir hana. engu síður en mig, vegna
þess að hún gaf honuni alla þá ást,
sem hún gaf sínum eigin sonum, án
þess þó að taka hann frá mér. Hún
vildi engan særa.
Siggu var fátt mannlegt óviðkom-
andi. Þó held ég að börnin hat'i átt
hug hennar mestan, enda hændust öll
börn að henni. Hún bar einlægan hug
til þeirra yngstu. Ýmislegt hefðu
kennarar, uppeldisfræðingar o.11.,
sem með börn hafa að gera, getað
lært af henni. Hefði hún verið ung
kona nú til dags og mátt kjósa sér
lífsstarf, held ég að félagsmál barna
hefðu orðið ofarlega á blaði hjá
henni. Málefni vangefinna voru henni
mjög kær og lét hún þar margt gott af
sér leiða. Við sem þekktum hana best
eða orðatiltæki.sem ég tæplega skildi
og striddi henni þá á Seyðisfjarðar-
dönsku. Þá var henni skemmt og hló
að mér, en lét rnig hafa það. að við
þessi yngri værum að glopra niður
góðri og gamalli íslensku. Eg átti það
til að leita eftir þessum fáheyrðu
orðunr hennar í orðabókum, en alltaf
skyldi Sigga hafa rétt fyrir sér.
Sigga frænka var búin að vera veik
og ósjálfbjarga síðustu árin. Þá, sem
fyrr, sýndi Vilhjálmur sonur hennar
það sérstaka samband sem á milli
þeirra var. Hann heimsótti móður
sína á hverjum degi og oft tvisvar á
dag. Hann annaðisl hana af elsku og
umhyggju allan hennar veikindatíma.
Stefán kom til hennar eins oft og
honum var unnt, bæði í fríum og
vegna viðskiptaferða hingað heim.
Alltaf hófst ferðin hjá mömmu. Bald-
ur og hans kona fóru austur til hennar
eins oft og þau gátu því við komið. í
sumar sem leið fór Baldur ásamt litlu
Siggu, dóttur sinni, í heimsókn til
mömmu og ömrnu. Hugur Baldurs
leitaði alltaf austur. Ásamt konum
sínum voru bræðurnir þrír saman-
komnir við útför hennar sem fram fór
2. nóvember s.l.
Sigga frænka er dáin. Fari hún í
friði og hafi þökk fyrir allt. Samúðar-
kveðjur til sona hennar, barnabarna,
tengdadætra og systkinanna þriggja
sem eftir lifa.
Guðbjörg Þúrhallsdóttir
Miðbær:
Blóm og myndir • Laugavegi 53
Gleraugnaverslunin • Bankastræti 14
Hamborg • Hafnarstræti og Klapparstlg
Heimilistæki • Hafnarstræti
Herragarðurinn • Aðalstræti 9
Kjötbær • Laugavegi 34 a
Málningarvörur • Ingólfsstræti
Matardeildin — Hafnarstræt!
Vaggan ■ Nýja Laugaveginum
Austurbær:
Austurbæjarapótek • Hátelgsvegi 1
BB byggingavörur
Blómastöfa Friðfinns • Suöurlandsbr. 10
Garðsapótek • Sogavegi 108
Gunnar Ásgeirsson ■ Suðurlandsbraut
Háaleitisapótek
Heimilistæki - Sætöni
Hekla hf. • Laugavegi 170-172
Herjólfur - Skipholti
Hllðabakarf • Skaftahllð 24
Ingþór Haraldsson • Ármúla 1
Kjötmiðstöðin - Laugalæk
Llfeyrissjóður byggingamanna •
Suóurlandsbraut 30
Rafkaup • Suöurlandsbraut 4
Ravðrur • Laugarnesvegi 52
Rangá • Sklpasundi
Skrlfstofa Llons • Sigtúnl 9
Skeljungsbúöin • Slðumúla 33
Sundaval • Kleppsvegl 150
SS ■ Glæsibæ
SS • Háaleltisbraut
SS • Laugavegi 116
Sundlaugin - Laugadal
Sðluturninn Arnarbakka 2-6
Söluturninn Hálogalandi
Tómstundahúsiö • Laugavegi 164
Víöir - Starmýri
Vogaver • Gnoðarvogi 46
Örn og Örlygur • Sföumúla 11
Vesturbær:
Hagabúðin ■ Hjaröarhaga
Ragnarsbúð • Fálkagötu
Skerjaver • Einarsnesi
Skjólakjör • Sörlaskjóli 42
Söluturn I innanlandsflugi
Breiðholt:
Hólagaröur
Straumnes
Verslunin Ásgeir • Tindaseli tam
Lionskiúbbar
víðsvegar um
landið sjá um
dreifingu.
N Allur hagnaður rennur oskiptur
% til ýmissa góðgerarmála.