NT - 03.12.1985, Blaðsíða 2

NT - 03.12.1985, Blaðsíða 2
 Bakarar vilja skatt- leggja sjálfa sig til að auka brauðneyslu í landinu: ■ Það eru sjálfsagt ekki margar starfsstéttir á íslandi sem eru tilbúnar til að skattleggja sjálfar sig til að bæta ástand hollustumála í landinu. Bakar- ar eru þó tilbúnir til að grípa til þessa ráðs ef það mætti verða til að auka neyslu á kornbrauði um helming. „Það hefur t.d. verið rætt um að setja sérstakan skatt á hveiti í þrjú til fimm ár og nota féð til að halda uppi stífum áróðri fyrir aukinni korn- neyslu,“ sagði Jóhannes Björnsson, formaður Landssambands bakara- meistara. „Marga sjúkdóma má rekja til þess að fólk hafi borðað of mikið af óhollri Þriðjudagur 3. desember 1985 ■ Jóhanncs Björnsson, bakari: „Öll brauð eru holl, bara misjafnlega holl.“ NT-mynd: Róberl Minni líkur á hjartasjúkdómum -segir Jóhannes Björnsson, formað- ur Landssambands bakarameistara fæðu, en það hefur verið sýnt fram á það að líkur á hjartasjúkdómum minnka ef mikið er borðað af brauði í Svíþjóð og Frakklandi hafa bakarar verið styrktir til að fá fólk til að borða meira brauð, en við höfum ekki viljað vera á kostnað ríkisins. t Svíþjóð er efni sem á að koma í veg fyrir tannskemmdir blandað út í deigið og hefur það gefið góða raun. Frakkar hafa farið aðra leið. Þar hefur hið opinbera styrkt bakara beint með niðurgreiðslum. íslenska ríkisstjórn- in mundi eflaust starfa betur ef hún borðaði meira af trefjaefnum." Breyttar brauðvenjur „Ekki þar fyrir að íslendingar hafi ekki breytt um brauðvenjur. Fyrir um 15 árum var hlutfall hvítra brauða á móti grófum 10 á móti þrem. Nú mun láta nærri að hlutföllin hafi alveg snúist við. Að hluta til má rekja þessa þróun til mikilla áróðursherferða sem farnar hafa verið fyrir aukinni neyslu á grófu brauði. Árið 1975 gekk bak- arameistarafélagið fyrir nerferð í samvinnu við Osta og smjörsöluna og skilaði sú góðum árangri. Pá stóðu bakarar á Norðurlöndum fyrir her- ferð fyrir um fimm árum. Almenning- ur er einnig orðinn meðvitaðri um nauðsyn þess að borða hollan mat. En það er ekki nóg að hinir full- orðnu viti sínu viti, þeir verða einnig að hafa vit fyrir yngri kynslóðum. Það er alveg hneyksli hversu mikið er flutt inn af svona gervimorgunmat í pökkum, sem sagður er vera voða- lega hollur. Krakkarnir eru alveg vitlausir í þennan mat og það er erfitt fyrir foreldra að standa á móti þeim. Það er mikið atriði að fá gott í magann áður en haldið er í skólann og brauð er hollasti morgunmatur sem krakkar geta fengið. Þótt bakarar leggi megináherslu á aukna neyslu grófra brauða eru þeir ekki þar með að segja að hvít brauð „Þótt bakarar leggi megináherslu á aukna neyslu grófra brauða eru þeir ekki þar með að segja að hvít brauð séu óholl. Öll brauð eru holl, baramisjafnlega.Hér á íslandi er ekki sett rotvarnarefniíbrauð* in eins og gert er í löndum sunnar í álf- unni. íslensku brauð- in eru því hollari." séu óholl. Öll brauð eru holl, bara misjafnlega. Hér á íslandi er ekki sett rotvarnarefni í brauðin, eins og gert er í löndum sunnar í álfunni. íslensku brauðin eru því hollari.“ Það hangir þó fleira á spýtunni en umhyggja fyrir hollustu almennings. Með því að fá landsmenn til að borða meira brauð vonast bakarar til að hægt verði að fjölga störfum í greininni verulega. Aldrei hvatt til kökuáts En hafa bakarar ekki slæma sam- visku af því að vera að lokka við- skiptavini inn í bakaríin til að kaupa holl brauð og senda þá svo út með sætar kökur undir arminum? „Við höfum aldrei beinlínis hvatt fólk til að borða kökur og staðreyndin er sú að sala á kökum og vínarbrauð- um hefur dregist mikið saman. Hinu má þó ekki gleyma að við þurfum að borða sykur, þótt magnið megi vera eitthvað minna en þau 50 kg af sykri sem hver íslendingur borðar að með- altali á hverju ári. Við bakarar leggj- um hins vegar megináherslu á að selja brauð," segir Jóhannes. Hvemig standa bakarar á íslandi samanborið við starfsfélaga sína í nágrannalöndunum? „Við erum komnir framar bæði í gæðum og úrvali en bakarar á Norðurlöndunum og margír verða mjög hissa þegar þeir koma hingað og sjá hvað úrvalið er mikið. Við höfum minna að sækja til hinna Norðurland- anna en áður var. Mikið af okkar brauðuppskriftum fáum við í Þýska- landi og Frakklandi og kökuupp- skriftir frá Svisslendingum og Aust- urríkismönnum. Sumir bakarar hafa haldið gagngert til útlanda til að kynna sér allt hið nýjasta í iðninni og Landssamband bakarameistara hefur leitast við að stuðla að endurmenntun í greininni.“ Ár skal rísa Bakarar taka daginn jafnan snemma. í stærri bakaríum er unnið á vöktum allan sólarhringinn. Dag- vaktin er frá kl. 7 til 15. Aðrir mæta klukkan 15 og eru að starfi til mið- nættis og þriðja vaktin mætir kl. 22 og vinnur til klukkan fimm að morgni. Flestir eru við vinnu á tímabilinu fjögur að nóttu til 13. Jóhannes kveðst sjálfur ætíð hafa hafið vinnu- dag sinn við fyrsta hanagal, eða jafnvel áður en haninn galaði. „Ég held að fólk sé ánægðara með líf sitt ef það byrjar daginn snemma og hættir fyrr. Á Norðurlöndum mæt- ir fólk gjarnan til vinnu klukkan sjö að morgni og borðar kvöldmat um hálfsexleytið. Fólk hefur þá nokkra klukkutíma til að sinna hugðarefnum sínum áður en það fer að hátta, sem er yfirleitt mun fyrr en gerist hérlend- is. Afköstin eru líka miklu betri þegar vinna hefst snemma á morgnana. Það er t.d. enginn sími að trufla fólk. Á íslandi er fólk hins vegar ekki al- mennt byrjað að vinna fyrr en um níu.“ Bakaríin opna svo yfirleitt klukkan átta og flest eiga þau sína föstu viðskiptavini, sem mæta jafnskjótt og búið er að aflæsa verslunardyrunum. Stærsta matvælaiðnin Brauðgerð er stærsta almenna matvælaiðnin á landinu og mun láta nærri að ríflega 700 manns vinni við greinina. Fjöldi sveina í bakaraiðn telst vera á milli 60 og 70 og um 90 manns eru nú að læra brauðgerð hjá meisturum. Bakaríin eru rúmlega 60, þar af eru um 30 staðsett á höfuðborg- arsvæðinu. „Bakaríum hefur fjölgað mikið síð- ustu árin í Reykjavík og nágrenni, en úti á landi hefur þeim ekki fjölgað svo mikið, heldur hafa þau stækkað og þjóna mörg hver mjög stóru svæði. Sérstaklega er þessi þróun áberandi á Vest- og Austfjörðum. Það vantar bakarí á marga staði úti á landsbyggð- inni, en það er erfitt að reka brauð- gerð á stað sem ekki telur nema svona 700-800 manns. Þúsund manna byggð er algjört lágmark fyrir bakarí,“ sagði Jóhannes Björnsson.

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.