NT - 03.12.1985, Qupperneq 4
T « V . . ? . . S * X • • • Þriðjudagur 3. desember 1985 4
s i íðan
if /TKítJRík MCLRBSSOi
■ Sfldarvertíð er nú að Ijúka víðast hvar. Myndin sýnir sfldarlöndun úr Friðrik Sigurðssyni ÁR, á Reyðarfirði þegar vertíðin var í fullum gangi.
Grindavík hæst
■ Óðum líður að lokum síldarver-
tíðar, en í síðustu viku var þó landað
á 27 höfnum. Vikuaflinn var samtals
1.850 tonn. Mestu var landað í Vest-
mannaeyjum eða rúmum 707
tonnum. Alls er búið að landa 47.394
tonnum það sem af er vertíðar brúttó
þ.e. síldin vigtuð með ís. Nettó nemur
þessi tala rúmum 44 þús. tonnum og
eru þá óveidd um 700 tonn á vertíð-
inni. í frystingu hafa farið samtals
13.707 tonn og mest af því í Vest-
mannaeyjum eða tæp 4.200 tonn. Það
sem af er vertíðinni hefur þó mestri
síld verið landað í Grindavík, eða
tæpum 6.900 tonnum.
Nokkrar af laf réttir
■ Þokkalegur afli hefur verið hjá togurum og stærri bátum í síðustu viku.
Talsvert hefur verið siglt með afla eða hann settur í gáma og reikna menn
nú með að verð fari lækkandi á Bretlandsmarkaði. Enn er landað sfld á
nokkrum stöðum og loðnu er landað víða um land. NT hringdi á nokkra
staði í gær og kannaði hljóðið í mönnum.
Vestfirðir
■ Togarinn Gyllir á Flateyri land-
aði hluta af 100 tonna afla á Bíldudal
á laugardagskvöld, afgangnum af'
aflanum var landað á Flateyri í gær,
þar af fóru um 24 tonn í gáma.
Línubáturinn Jónína á Flateyri
landaði 16 tonnum í vikunni eftir 3
róðra en línubáturinn Byr landaði 3
]h tonni eftir einn róður.
Á Þingeyri landaði togarinn
Sléttanes 104 tonnum á þriðjudag-
inn var og um 80 tonnum daginn
eftir, miðvikudag. í gær landaði
Sléttanesið svo 100 tonnum, mest
þorski. Hinn togari Þingeyringa,
Framnesið, hefur verið í slipp
undanfarið.
Togarinn Dagrún á Bolungarvík
landaði 17 tonnum á síðasta föstu-
dag, Heiðrún landaði í gær 35-37.
tonnum af ýsu og þorski þar af fóru
12 tonn í einn gám. Rækjutogarinn
Hugrún landaði rúmlega 9 tonnum
af úthafsrækju sl. föstudag, en Sól-
rún er á veiðum.
Tveir loðnubátar lönduðu saman-
lagt 13-1400 tonnum af loðnu á
Bolungarvík um helgina. Afli línu-
báta var nokkuð góður þessa viku,
þeir voru með 4 Vi-9 tonn í róðri.
í Hnífsdal landaði togarinn Páll
Pálsson tæpum 100 tonnum af
blönduðum afla í gær og fóru um 45
tonn í gáma.
Togarinn Guðbjörg á ísafirði afl-
aði vel í síðustu ferð eða um 200
tonn á fimm sólarhringum, sem
landað var í gær.
Togarinn Guðbjartur landaði
einnig á ísafirði í gær, um 90
tonnum af blönduðum afla og fóru
25 tonn í gáma.
Rækjubátar á ísafirði fengu
þokkalegan afla vikuna sem leið
voru samanlagt með rúmlega 15
tonn, þrír bátar.
í Súðavík landaði togarinn Bersi
40 tonnum í gær, þaraf fóru 12 tonn
í einn gám. Rækjubátar í Súðavík
veiddu vel síðustu viku.
Línubáturinn Ásbjörg á Hólma-
vík, landaði 16 tonnum í síðustu
viku eftir 3 róðra. Á Hólmavík var
landað 60 tonnum af rækju og
skelfiski samanlagt í síðustu viku.
Norðurland
Á Norðurlandi var tíðarfar allgott
víðast í síðustu viku og á flestum
stöðum gaf á sjó en það fór að
hvessa undir helgina og nú er bræla
á miðunum og margir bátar og
togarar eru á leið í land.
Á Hvammstanga var landað 29
og 'h tonni af rækju frá 5 bátum sem
allir fóru í 3 róðra.
Á Blönduósi lönduðu rækjubát-
arnir Nökkvi og Jón Pétur rúmlega
7,8 tonnum hvor af rækju, Dagrún
landaði rúmlega 3,6 tonnum af
rækju og Sæborgin landaði rúmlega
24 og ]h tonni af hörpudiski.
Hjá Hólanesi á Skagaströnd land-
aði togarinn Arnar tæplega 52 tonn-
um mest af þorski og svo lönduðu
tveir bátar um 30 tonnum af hörpu-
diski.
Togarinn Drangey kom inn til
Sauðárkróks með um 34 tonn af.
þorski þann 27. nóv. sl. og togarinn
Skafti landaði einnig á Sauðárkróki
um 56 tonnum af þorski þann 29.
nóv.
Hjá Þormóði Ramma á Siglufirði
landaði línubáturinn Núpur frá
Grenivík um 32 tonnum af þorski
og hjá ísafold landaði Skjöldur 47
tonnum af þorski.
Á Akureyri voru 3 landanir í
síðustu viku, togarinn Sléttbakur
kom inn þann 25. nóv. með 105
tonn, mest af karfa og þorski,
Kaldbakur kom inn þann 27. nóv.
með 192 tonn af ufsa, karfa og
grálúðu og svo korri togarinn
Hrímbakurþann29. nóvembermeð ■
123 tonn af þorski.
Til Dalvíkur kom togarinn Dal-
borg með 115 tonn mest kola og 6
rækjubátar lönduðu samtals 54,8
tonnum af rækju á Dalvík.
Á Grenivík var aðeins ein löndun
og landað var 585 kg af þorski.
í Grímsey hefur ekki verið róið
síðan á fimmtudag en þar var landað
22 tonnum frá 3 bátum mest af ufsa.
Til Hríseyjar kom togarinn Snæ-
fellið með 98 tonn af blönduðum
fiski og netabáturinn Eyborg land-
aði 10 tonnum.
Á Ólafsfirði hefur ekkert verið
landað í síðustu viku því allir bátar
eru í siglingu til Englands og eru
ekki væntanlegir fyrr en seint í
desember.
Á Húsavík var landað rúmlega 5
tonnum af bolfiski, mest af þorski
og rúmlega 55 tonnum af rækju frá
4 bátum sem allir fóru í 2 róðra í
síðustu viku.
Á Raufarhöfn hefur ekkert verið
landað nýlega þar eð togarinn
Rauðinúpur fór í siglingu og seldi
þann 27. nóv. í Englandi. Hann er
væntanlegur inn til Raufarhafnar
10.-12. desember nk.
Á Þórshöfn lönduðu 4 bátar sam-
tals 23,5 tonnum mest af þorski eftir
2-4 róðra. Togarinn Gullver frá
Seyðisfirði landaði tæplega 93 tonn-
um af þorski og togarinn Stakfell
kom með 110 tonn af þorski og fór
um 71 tonn af því til Bakkafjarðar.
Austurland
Þrátt fyrir misjafna tíð var tölu-
vert landað af loðnu á Austfjarðar-
höfnum síðastliðna viku en síldar-
söltun er víðast langt komin eða að
fullu lokið
Eyvindur vopni frá Vopnafirði
landaði 51 tonni aðallega þorski og
Brettingur 94 tonnum og var uppi-
staðan í aflanum þorskur og grá-
lúða. Skelveiðibátar hafa aflað vel
og séð skelfiskvinnslunni fyrir því
hráefni er hún annar að vinna, en
það er um 50 tonn af skel á viku.
Lítill sem enginn afli barst á land
á Seyðisfirði nema loðna, en verk-
smiðjurnar tvær tóku á móti tæpum
6.900 tonnum í vikunni.
í Neskaupstað landaði Bjartur
NK 167 tonnum aðallega ufsa og
þorski eftir 8 daga veiðiferð. Tekið
var á móti 6.300 tonnum af loðnu og
rúmum 80 tonnum af síld í frystingu.
Alls var landað á Eskifirði rúmum
11.800 tonnum af loðnu í vikunni
og var Eldborg GK með
mestan afla eða 1.459 tonn. Síld til
frystingar var um 36 tonn og bol-
fiskafli um 90 tonn af þremur
bátum.
Ljósafell frá Fáskrúðsfirði seldi í
Englandi um 113 tonn og fékk
sæmilegt verð fyrir aflann en Guð-
mundur selur nú í vikunni rúm 50
tonn einnig í Englandi.
Kambaröst frá Stöðvarfirði seldi
í síðustu viku 125 tonn og fékk
rúmar sjö milljónir sem teljast verð-
ur góð sala, en búist er við því að
verð fari lækkandi á mörkuðum í
Englandi nú á næstunni. Sólborg
SU landaði afla sínum heima en þar
var um rúm 26 tonn að ræða.
Alls var landað 3.800 tonnum af
loðnu til bræðslu á Reyðarfirði í
vikunni og um 45 tonnum af síld til
söltunar.
Alls bárust um 73 tonn af síld til
frystingar og í beitu á Djúpavog og
þar af kom Hafnarey SF 36 með um
56 tonn af síld.
Suðurland
í Vestmannaeyjum hafa bátar og
togarar einkum veitt kola í síðustu
viku en á fimmtudaginn var fóru út
með Fjallfossi 25 gámar á Bret-
landsmarkað. Kemur sá fiskur bæði
úr bátum og togurum, en togarar
hafa sett sumt í gáma en sumt í
frystihúsin. Mjög gott verð hefur
verið fyrir kolann á Bretlandsmark-
aði að undanförnu en í gær var
reiknað með að kílóverðið yrði
komið niður í 40-50 kr. vegna
mikils framboðs. Um 11-13 tonn
eru í hverjum gámi þannig að alls
fóru með Fjallfossi um 260-270 tonn
af fiski. Síldarvertíð er nú rétt að
segja búin í Eyjum en talsvert hefur
borist af loðnu og komu þrír bátar
þangað með fullfermi um helgina.
Á Stokkseyri hefur verið frekar
tregt hjá bátunum en þar og í
Þorlákshöfn var þó tekið á móti
síld. Veur hefur ennfremur hamlað
veiðum á þessum stöðum síðustu
daga.
Mest saltað
af síld
á Eskifirði
■ Söltun suðurlandssfldar er nú víð-
ast hvar lokið og hefur alls verið
saltað í 256 þúsund tunnur. Þetta er
orðið annað mesta söltunarár frá upp-
hafi og aðeins árið 1980 var saltað
meira af suðurlandssfld.
Söltunin eins og hún var þann 16.
nóvember sl. en þá hafði verið saltað
í 250.625 tunnur skiptist á söltunar-
stöðvar og söltunarstaði sem hér
segir:
Ólafsfjörðut
Stígandi h/f 1.680 1.680
Húsavik
Fiskiðj usam. Hv. h/f 177 177
Raufarhöfn
Fiskavík h/f 1.849 1.849
Vopnafjörður
Tangi h/f 8.430 8.430
Borgarfjörður eystri
Söltunarstöðin Borg 1.592 1.592
Seyðisfjörður
Norðursíld h/f 10.555
Strandarsíld s/f 8.011 18.566
Neskaupstaður
Máni 6.975
Síldarvinnslan h/f 6.825 13.800
Eskifjörður
Askjah/f 2.944
Eljanh/f 5.948
Friðþjófur h/f 11.923
JónKjartanssonh/f 8.949
Sæberg h/f 4.566
Þór h/f 3.714 38.044
Reyðarfjörður
Austursíld h/f 3.133
Fiskverkun GSR h/f 4.835
Hraun 237
Kópur s/f 3.174
Verktakarh/f 8.333 19.712
Fáskrúðsfjörður
Arný 20
Pólarsíld h/f 16.920
Sólborg s/f 4.036
Sæbjörg 606 21.582
Stöðvarfjörður
Hraðfr. hús HSS h/f 8.559 8.559
Breiðdalsvík
Hraðfr. hús HBB h/f 9.972 9.972
Djúpivogur
Búlandstindur h/f 16.180 16.180
Hornafjörður
Fiskimj. Hornafj.h/f 14.109
Stemma h/f 5.550 19.659
Vestmannaeyjar Fiskiðjan h/f 2.464
Hraðfrystistöðin h/f 1.823
ísfélagið h/f 1.235
Klifs/f 222
Vinnslustöðin h/f 2.134 7.878
Þorlákshöfn
Auðbjörgh/f 365
Bjargs/f 344
Glettingurh/f 7.568
Hafnarnes h/f 686
Meitiliinn h/f 1.250
Suðurvör h/f 5.709 15.922
Grindavík
Fiskanes h/f 5.838
Gjögurh/f 4.397
Hóp h/f 2.396
Hópsnes h/f 3.600
Hrfli. Þórkötlust. h/f 1.400
Þorbjörn h/f 7.361 24.992
Sandgerði Fiskverkun Arneyjar 1.896 2.507
Miðnes h/f 611
Keílavík
Fiskv. Guðm. Axelss. 1.793
Fiskv. Hilmars & Odds 2.435
Keflavík h/f 1.644
Örn&Þ.Erlingss. 719 6.591
Innri-Njarðvík
Brynjólfurh/f 2.289 2.289
Hafnarfjörður
Hafnfirðingur h/f 1.024 1.024
Reykjavík
Ingimundur h/f 1.419 1.419
Akranes H. Böðvarss. &Coh/f 8.201 8.201