NT - 03.12.1985, Page 19
Heimsbikarkeppnin á skíðum:
Tvöfaldursigur
■ Júgóslavar unnu tvöfaldan
sigur í fyrstu keppni Heimsbik-
arkeppninnar á skíðum. Þetta
var keppni í svigi og fór hún
fram í Sestriere á Ítalíu. Rok
Petrovic frá Júgóslavíu sigraði
en landi hans Bojan Krizaj varð
annar. Þriðji varð svo ítalinn
Edalini.
Petrovic er aðeins 19 ára og
var þetta fyrsti sigur hans á
heimsbikarmóti. Hann fékk
samanlagðan tíma 1:40,79 mín.
en Krizaj var með tímann
1:40,05.
Þeir sem fyrirfram voru taldir
sigurstranglegastir, Marc Girar-
delli frá Lúxemborg og Pirmin
Zurbriggen frá Sviss féllu báðir
úr keppni. Sá fyrrnefndi strax í
fyrstu umferð en hinn í seinni.
Svíinn Ingemar Stenmark
varð sjötti í sviginu og gæti
orðið skeinuhættur hverjum
sem er í vetur. Petrovic fékk
næstbesta tímann í báðum um-
...Landslið Suður-Kóreumanna
í knattspyrnu mun halda í mikla
æfinga- og keppnisferð nú á
næstu dögum. Ferðin mun taka
um fjörutíu daga og verður fyrst
komið við í Mexíkó. Þar verður
keppt við heimamenn, Ung-
verja og Alsírbúa í vináttumóti.
Leiðin liggur síðan til Brasilíu
og Paraguay þar sem æft verður
af krafti fyrir úrslitin í Mexíkó á
næsta ári...
...Sjónvarpið er sá fjölmiðill
sem mest áhríf hefur haft á
íþróttir. Þessi áhrif eru ýmiss
konar, á næsta árí munu t.d. í
fyrsta sinn verðanotaðir guUr
ferðunum en Burgler frá Sviss
fékk besta tímann í keppninni.
Það var í fyrri umferðinni.
tennisboltar á Wimbiedon tenn-
ismótinu enska. Þeir kunnu
sjást mun betur á skerminum en
hvítUtuðu boltarnir...
...Reiðir aðdáendur liðs Shand-
onghéraðs í Kína voru ekki
ánægðir með frammistöðu dóm-
arans Li Zhifú í leik Shandong
gegn Uði hersins og ætluðu að
fara um hann óvinsamlegum
höndum að leik loknum segir í
kínversku dagblaði. Smygla
þurfti dómaranum út af vellin-
um gegnum einhvers konar
jarðgöng. Blaðið segir að nauð-
synlegt sé að kynna áhorfendum
jafnt sem leikmönnum sósilísk-
an íþróttaanda...
MOLAR... MOLAR
Þriðjudagur 3. desember 1985 19
íþróttir«
Berserkjasöngur
■ íslenska handknattleiks-
landsliðið hefur gefið út hljóm-
plötu til fjáröflunar fyrir HM í
Sviss. Á plötunni eru tvö lög
eftir Jón Ölafsson, rásara með
meiru en textana samdi Helgi
Már Barðason. Lögin heita
Söngur íslensku berserkjanna
og Allt að verða vitlaust, en í
því lagi njóta landsliðsmennirn-
ir aðstoðar Péturs Hjálmarsson-
ar fyrrum Galdrakarls.
Hljómplatan er hin fjörugasta
og ekki spillir að verðið er
aðeins 350 krónur. Með plöt-
unni er mynd af landsliðinu og
textablað. Þá eru upplýsingar
um undirbúning landsliðsins
fyrir HM í Sviss á næsta ári.
Ferðalagið til Sviss og þátt-
takan þar krefst mikils undir-
búnings og er dýrt. Því treysta
landsliðsmenn á velvilja
landsmanna og vona að þeir sjái
sér fært að kaupa skífuna. Hún
verður til sölu á bensínstöðvum
OLÍS, í sportvöruverslunum og
í hliómplötuverslunum.
Á mynd Sverris hér til hliðar
má sjá Jón Ólafsson, Þorgils
Óttar, Þorbjörn Jensson, Guð-
jón Guðmundsson og Jón
Hjaltalín með gripinn góða.
Evrópuknattspyrnan:
Hetjan Paolo Rossi
- Hann skoraði bæði mörk AC-Mílanó í „Derbyleik“ gegn Inter - Alsírmaðurinn Madjer skoraði
þrennu fyrir Porto - Schuster hjálpaði Barcelona í stórsigur - Paris SG tapaði ekki leik - Ajax
gerði átta og PSV burstaði Feyenoord - Austria Vín tapaði
Milanó-Inter................... 2-2
Pisa-Lecce..................... 3-0
Sampdoria-Roma................. 1-0
Udinese-Verona................. 5-1
Staða efstu liða:
Juventus.........12 10 1 1 21 6 21
Napoli ......... 12 5 6 1 16 8 16
Inter........... 12 5 5 2 18 14 15
Milan........... 12 6 3 3 12 8 15
Torino ......... 12 5 4 3 12 9 14
Fiorentina..... 12 4 5 3 13 8 13
Roma............ 12 6 1 5 14 14 13
Frakkland:
Paris St. Germain heldur
áfram að leika leiki án þess að
tapa. Liðið fór til Bordeaux um
helgina og endaði sá leikur 0-0.
Þetta gerir það að verkum að
Paris hefur nú leikið 21 leik í
röð án taps.
Bordeaux er nú sex stigum á
eftir þeim en Nantes náði að
skjótast í annað sætið með sigri
á Bastia.
Þrátt fyrir mikla pressu þá
tókst Bordeaux ekki að skora
hjá Paris. Liðið átti skot í slá og
Joel Bats varði oft frábærlega
í marki Paris.
Nantes sigraði Bastia 3-2 með
marki frá Halilhodzic á loka-
mínútum leiksins.
Úrslit:
Bordeaux-Paris................. 0-0
Laval-Nancy.................... 2-0
Le Havre-Sochaux............... 1-0
Lille-Strasbourg............... 2-0
Marseilles-Brest............... 3-0
Monaco-Rennes.................. 1-0
Toulouse-Lens ................. 1-1
Metz-Toulon.................... 0-2
Bastia-Nantes.................. 2-3
Auxerre-Nice .................. 1-2
Staða efstu liða:
Paris S-G...... 21 15 6 0 42 16 36
Nantes......... 22 12 7 3 30 14 31
Bordeaux....... 22 12 6 4 34 20 30
Lens............ 22 9 8 5 35 24 26
Monaco ......... 22 6 13 3 25 22 25
Nice............ 22 8 8 6 22 23 24
Metz............ 22 8 7 7 33 21 23
Nancy .......... 22 10 3 9 32 29 23
Laval .......... 22 7 9 6 27 24 23
Auxerre........ 22 8 7 7 24 21 23
Toulouse....... 22 9 3 10 34 31 21
Spánn:
Real Madrid og Barcelona
halda sig á toppnum í spænsku
deildinni og bæði unnu afar
sannfærandi sigra um helgina.
Real sigraði Las Palmas 5-1 á
heimavelli sínum og er þetta því
tíu marka sveifla hjá Real á
einni viku því liðið tapaði 1-5
fyrir „Gladbach“ í UEFA-
keppninni á miðvikudaginn síð-
asta. Fyrir Real skoruðu
Sanchez (2), Gonzalez, Butrag-
ueno, og Gordillo.
Bern Schuster kom Barce-
lona á bragðið í San Sebastian
með föstu skoti eftir mikinn
einleik. Síðan bættu Alonso og
Alexanco við tveimur mörkum
hvor. Þessi sigur undirstrikar
mjög gott gengi Barcelona að
undanförnu.
Úrslit:
Real Madrid-Las Palmas......... 5-1
Celta-Valladolid............... 3-2
Sporting-Cadiz................. 2-2
Sociedad-Barcelona............. 1-5
Real Betis-Hercules............ 1-0
Valencia-Sevilla............... 0-1
Espanol-At. Bilbao............. 1-0
Racing-Osasuna................. 1-0
Zaragoza-Madrid................ 0-0
Staða efstu liða:
Real Madrid ..... 14 9 3 2 32 14 21
Barcelona ....... 14 8 4 2 25 11 20
Sporting ........ 14 6 7 1 16 9 19
Budd sigraði
■ Zola Budd náði að sigra í 10
kílómetra hlaupi sem fram fór á
götum San Diego-borgar í
Bandaríkjunum um helgina.
Budd kom í mark á 33,12 mínút-
um og setti nýtt brautarmet í
þessu hlaupi. Önnur í keppninni
varð Lynn Nelson frá Banda-
ríkjunum. Hún sótti nokkuð að
Budd í lok hlaupsins en eins og
Budd sagði: „Þó hún hafi sótt
að mér í lokin þá hafði ég
forystu alla leiðina og var alltaf
sigurvegari.“
í karlahlaupinu sigraði Steve
Scott frá Bandaríkjunum á
29,20 mín. Annar varð Thom
Hunt frá Bandaríkjunum.
UMSK-mót í karate:
Stjarnan vann
■ Það varðhnífjafntogspenn-
andi UMSK-mótið í karate sem
fram fór í Ásgarði í Garðabæ í
síðustu viku. Svo fór að Stjarn-
an sigraði eftir harða keppni við
hin félögin Gerplu og Breiða-
blik. Keppt var bæði í kata og
kumite. Þegarstiginhöfðuverið
talin þá hafði Stjarnan fengið 8
stig í kata og 8 í kumite. Gerpla
halaði inn 9 stig í kata en 4 í
kumite. Breiðablik fékk aðeins
1 stig í kata en 12 í kumite og
fór þar fremstur Ævar Þor-
steinsson sem ekki hefur tapað
glímu hér innanlands í nærri tvö
ár.
Úrslitin i mótinu urðu annars þessi:
Kata unglinga:
2. Gísli Holgason...... Stjarnan 15,2
3. Kristbjörn Ðúason .... Stjarnan 14,8
Kata kvenna:
1. Kristín Einarsdóttir..Gerpla 16,0
2. Fanney Asgeirsdóttir . Stjarnan 15,4
3. Katrin Gunnarsdóttir . Breiðablik 14,8
Kata karla:
1. Stefén Alfreðsson .... Stjaman 16,3
2. Karl Gauti Hjaltason .... Gerpla 16,0
3. Grímur Pálsson........Gerpla 15,9
Kumite einstakiingsflokkur:
1. Ævar Þorsteinsson,....Breiðablik
2. Stefán Alfreösson..........Stjarnan
3. Grímur Pálsson,..........Gerpla
Sveitakeppni
félagannaikumite: Vinn: Skor:
l.SveitBrsiðabiiks 2.stifl(4-2) (21-15)
2. Sveit StjömuÐnar l.stig|3-3) (16-21)
3.SveitGerplu 0.stig(2-4) (16-17)
■ Paolo Rossi var hetjan á
Ítalíu um helgina. Hann skoraði
tvívegis í viðureign nágrannalið-
anna AC Mflanó og Inter
Mflanó. Leiknum lauk með
jafntefli 2-2. Þetta er í fyrsta
sinn í langan tíma sem Rossi er
í góðu leikformi en hann er
búinn að vera meiddur mestan
hluta keppnistímabilsins. Hann
sýndi að hann hefur engu gleymt
síðan á HM á Spáni ’82 en þá
skoraði hann 6 mörk fyrir ítali.
Rossi skoraði eftir fjórar mínút-
ur og hann jafnaði síðan leikinn
eftir að Brady hafði skorað úr
víti sem Rummenigge fiskaði.
Mílanó-liðin verða þó að
horfa á Napólí og Juventus fyrir
ofan sig á töflunni. Napóli er í
öðru sæti og sannaði það að
liðið getur unnið án Maradona.
Hann er í leikbanni en Napólí
sigraði Bari 2-1 og gerði Gior-
dano bæði mörk liðsins.
Juventus nægði eitt mark
gegn Fiorentina. Brio skoraði
það og fagnaði Platini sigri í
sínum 100. leik fyrir Juve.
Meistararnir á Ítalíu frá í
fyrra, Verona, hlutu alvarlegan
skell gegn Udinese. Leikurinn
endaði 5-1 eftir að Verona
hafði náð forystu. Meðal
markaskorara Udinese var Perú-
búinn Barbadillo sem er í hlut-
verki Zico hjá liðinu.
Sporting sigraði Setubal 1-0
og skoraði Manuel Fernandes
sigurmarkið. Hann er nú
markahæstur í Portúgal með 13
mörk.
Úrslit:
Academica-Benfica................ 0-1
Chaves-Penafiel.................. 1-0
Aves-Portimonense................ 0-0
Belenenses-Colvilha.............. 3-0
Braga-Salgueiros................. 0-1
Sporting-Setubal ................ 1-0
Porto-Maritimo................... 4-2
Boavista-Guimaraes .............. 3-2
Staða efstu liða:
Porto ............. 12 9 2 1 25 10 20
Benfica ........... 12 9 1 2 29 6 19
Sporting .......... 12 9 1 2 27 8 19
Guimaraes ......... 12 6 4 2 16 10 16
í Hollandi bar það helst til
tíðinda að efsta liðið PSV Eind-
hoven sigraði Feyenoord, sem
er í öðru sæti, illa eða 5-0. Þá
vann Ajax góðan sigur á útivelli
gegn Twente 8-1. Þessi lið virð-
ast vera í algjörum sérflokki í
Hollandi og benda mörg úrslit
þeirra til þess.
í Belgíu hristi Anderlecht af
sér slenið og sigraði Charleroi
6-2 á útivelli. Club Brugge held-
ur þó enn forystu í Belgíu.
Liðið vann Beerschot 2-0 á úti-
velli og er með 26 stig í deildinni
en Anderlecht hefur 23.
í Austurríki gerðist það
óvænta að Austria Vín tapaði
fyrir Austria Klagenfurt 0-2.
Liðið heldur þó efsta sætinu
með 35 stig en Rapid Vín, sem
vann SAK 4-0 er í öðru sæti
með 33 stig. Þessi lið eru í
algjörum sérflokki í Austurríki.
■ Medjer skoraði þrennu fyrír Porto og liðið er nú efst í Portúgal
Úrslit:
Avellino-Atlanta ................. 1-0
Bari-Napólf....................... 1-2
Como-Torino....................... 1-1
Juventus-Fiorentina............... 1-0
At. Madrid......... 14 7 4 3 27 17 18
Valladolid......... 14 6 4 4 25 19 16
Sevilla............ 14 6 4 4 15 12 16
At. Bilbao ........ 14 6 4 4 19 16 16
Zaragoza........... 14 5 6 3 17 16 16
Portúgal:
Porto vann sigur á Maritimo
4-2 um helgina og einn leikmað-
ur Portó gerði þrennu. Nei, það
var ekki Gomes heldur alsírski
leikmaðurinn Rabh Madjer.
Gomes kom Portó reyndar yfir
■ Rossi byrjaður að skora
1-0 en Maritimo jafnaði. Þá
skoraði Madjer þrennu á augna-
bliki og leikurinn var úti.
Benfica heldur sig á hæla
Portó í deildinni. Gamli leik-
maðurinn Nene skoraði sigur-
mark Benfica aðra helgina í
röð. Hann er nú 36 ára en hefur
sjaldan leikið betur.