NT - 03.12.1985, Page 20
Þriðjudagur 3. desember 1985 20
■ Bjarni H. Þórarinsson við eitt
Nýr sýningarstaður:
„Gallery
Einiberjarunnur“
■ Laugardaginn 30. nóv., hóf
göngu sína „Gallery Einiberja-
runnur“ í Árrnúla 19 í Reykja-
vík. Talsmenn sýningarstaðar-
verka sinna.
ins eru myndlistamennirnir
Birgir Andrésson og Bjarni H.
Þórarinsson.
Fyrstur til að sýna verk sín í
„Gallery Einiberjarunn1' er
Bjarni H. Þórarinsson og sýnir
hann 23 olíumálverk. Sýningin
var opnuð kl. 14.00 á laugardag
og stendur út árið ’85.
Fundur á Hótel Borg:
„Lífskjarasáttmáli
-sáttum hvað?“
■ Málfundafélag félags-
hyggjufólks gengst fyrir fundi
um efnið „Lífskjarasáttmáli -
sátt um hvað?“ á Hótel Borg í
dag, þriðjudaginn 3. des. kl.
20.30.
Kjarasamningar verða lausir
um næstu áramót og senn hefj-
ast samningaviðræður launþega
og vinnuveitenda. Margir for-
mæla gömlu vísitölubótunum en
benda jafnframt á nauðsyn
kauptryggingar. Bryddað hefur
verið upp á nýjum hugmyndum
við gerð kjarasamninga. Rætt
er um lífskjarasáttmála sem
ríkisvaldið ábyrgðist. Vakna þá
spurningar um hvort þetta sé
vænleg leið til að bæta kjör
launafólks eða hvort nú sé búið
að færa gömlu „félagsmála--
pakkana" í nýjan búning.
Þeir sem munu hafa framsögu
á fundinum verða: Ólafur
Davíðsson, framkv.stj. Félags
ísl. iðnrekenda, Þröstur Ólafs-
son, framkv.stj. Dagsbrúnar,
Birgir Árnason, hagfræðingur
og Þorlákur Helgason hag-
fræðingur.
Að framsöguerindunum
loknum gefst tækifæri til fyrir- .
spurna. Fundurinn er öllum
opinn. Málfundafélag
félagshyggjufólks.
Söngskólinn:
Tónleikar í
Norræna húsinu
■ í kvöld, þriðjud., kl. 20.30
heldur Söngskólinn tónleika í
’Norræna húsinu. Nemendur
sem syngja eru Matthildur
Matthíasdóttir altsöngkona,
Þorgeir J. Andrésson tenór og
Ingibjörg Marteinsdóttir
sópran. Miðar fást við inngang-
inn.
Fundur um starf-
semi Siglinga-
málastofnunar
ríkisins
■ Fræðafundur verður hald-
inn í Hinu íslenska sjóréttarfé-
lagi í dag þriðjudaginn 3. des-
ember og hefst hann kl. 17.00 í
stofu 102 í Lögbergi, húsi Laga-
deildar Háskóla íslands.
Fundarefni: Magnús Jóhann-
esson siglingamálastjóri flytur
erindi er hann nefnir „Starfsemi
Siglingamálastofnunar ríkis-
ins“.
Að erindinu loknu er gert ráð
fyrir fyrirspurnum og umræðu.
Fyrirlesturinn er öllum opinn
og eru félagsmenn og aðrir
áhugamenn um sjórétt og sigl-
ingamálefni hvattir til að fjöl-
menna.
Helstu vextir banka og sparisjóða
(Allir vextir merktir X eru breyttir frá síðustu skrá og gilda frá og með dagsetningu þessarar skrár)
I. Vextir ákveðnir af Seðlabanka sem gilda fyrir allar innlánsstofnanir:
Dagsetning síðustu breytingar: 2/9 1985
Sparisjóðsbækur 22.0
Afurða- og rekstrarlán v/ framleiðslu fyrir innlendan markað 27.5
Afurðalán, tengd SDR 9.5
Verðtryggð lán m.v. lánskjaravísitölu, allt að 2,5 ár 4.0
Verðtryggð lán m.v. lánskjaravísitölu, minnst 2,5 ár 5.0
Óverðtryggð skuldabréf, útgefin fyrir 11/8 1984 32.0 (þ.a. grunnvextir 9.0)
Dagvextir vanskila, ársvextir 45.0
Vanskilavextir (dráttarvextir) á mánuði, fyrir hvern byrjaðan mánuð 3.75
II Aðrir vextir ákveðnir af bönkum og sparisjóðum að fengnu samþykki Seðlabanka:
Lands- Útvegs- Búnaðar- Iðnaðar- Verzl- Samvinnu- Alþýðu- Spari- Dansetninn banki banki banki banki banki banki banki sióðir
Síðustubrevt. 1/9 21/7 1/11 1/9 21/7 11/8 1/9 11/11
Innlánsvextir: Óbundiðsoarifé 7-34.0 22.-34.6 734.0 22.-31.0 22.-31.6 27.-33.0 3.01)
Hlaupareikninqar 10.0 8.0 8.0 8.0 10.0 8.0 10.0 10.0
Ávísanareikn. 10.0 8.0 8.0 8.0 10.0 8.0 17.0 10.0
Uppsaqnarr. 3 mán. 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0 25.0 25.0 25.0
Uppsagnarr. 6 mán. 29.0 28.0 28.0 31.0 30.0 30.0 28.02)
Uppsaqnarr. 12 mán. 31.0 32.0 32.0
Uppsagnar. 18mán. 36.0 36.03)
Safnreikn. 5. mán. 23.0 23.0 23.0 25.0 23.0 25.0
Safnreikn. 6. mán. 23.0 29.0 26.0 28.0
Innlánsskírteini. 28.0 28.0
Verðtr. reikn. 3 mán. 1.0 1.0 1.0 1.0 2.0 1.0 1.5 1.0
Verðtr. reikn.6mán. 3.0 3.0 3.5 3.5 3.5 3.0 3.5 3.0
Stjörnureikn I, II og III Sérstakar verðb.ámán 1.83 1.83 2.0 2.0 2.0 2.0 8-9.0 2.0 1.83
Innlendir gjaldeyrisr. Bandaríkiadollar 7.5 7.5 7.5 7.0 7.5 7.5 8.0 8.0
Sterlinqspund 11.5 11.0 11.5 11.0 11.5 11.5 11.5 11.5
V-þýskmörk 4.5 4.5 4.5 4.0 5.0 4.5 4.5 4.5
Danskar krónur 9.0 9.0 8.00 8.0 10.0 9.0 9.5 9.0
Útlánsvextir: Víxlar (forvextir) 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0 30.0
Viðsk. víxlar (forvextir) 32.5 ...4| 32.5 ...4) ...4) ...4) ...4) 34
Hlaupareikninqar 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5 31.5
Þ.a. qrunnvextir 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0 14.0
Almenn skuldabréf 32.05) 32.05) 32.051 32.051 32.0 32.05) 32.0 32.05)
Þ.a. qrunnvextir 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0 9.0
Viðskiptaskuldabréf 33.5 ...4| 33.5 ..4) ...4) ...4) 35/031
1) Trompreikn. sparisj. er verðtryggður og ber 3.0% grunnvexti. 2) Sp. Hafnarfjarðar er með 32.0% vexti. 3)
Eingöngu hjá Sp. Hafnarfj. 4) Útvegs-, Iðnaðar-, Verzlunar-, Samvinnu- og Alþýðubanka, Sp. Hafnarfj.,
Kópavogs, Reykjavíkur, Vélstjóra og í Keflavík eru viðsk.víxlar og skuldabréf keypt m.v. ákveðið kaupgengi. 5)
Vaxtaálag á skuldabréf til uppgjörs vanskilaláns er 2% á ári og á það einnig við um verðtryggð skuldabréf.
Öryggismál
sjómanna
1 ■ Slysavarnafélag íslands
gengst fyrir námskeiði, ætlað
sjómönnum dagana 2.-6. des.
n.k. Fjallað verður um helstu
þætti öryggis- og björgunar-
mála,svo sem: Lífgun úrdauða-
dái, meðferð gúmmíbáta og-
annarra björgunartækja, einnig
að halda lífi við -erfiðar aðstæð-
ur, flutning með þyrlum, lög og
reglur um búnað skipa, bruna-
varnir, slökkvistörf og reyk-
köfun.
Námskeið þessi eru öllum
opin, en fjöldi nema sem kom-
ast að hverju sinni takmarkað-
ur. Þátttökugjald er ekkert.
Fyrri námskeið hafa verið full-
setin og færri komist að en vildu.
Flugleiðir veita þátttakend-
um utan af landi verulegan af-
slátt af fargjöldum, gistingu og
bifreiðum ef menn óska.
Leiðbeinendur verða frá
S.V.F.Í., Landssambandi
slökkviliðsmanna, Landhelgis-
gæslunni, Líffræðistofnun Há-
skólans og Siglingamálastofnun
ríkisins.
Menningarvika
Samtakanna 78
■ Fullveldisdaginn 1. desem-
ber hófst Menningarvika Sam-
takanna ’78, félags lesbía og
homma á íslandi, í félagsheimili
Samtakanna, Brautarholti 18, 4.
hæð. Húsið er opið almenningi
alla vikuna, frá sunnudegi til
föstudags frá kl. 20.00 og á
dagskránni er kynningar- og
menningarefni sem á erindi til
allra, sem vilja telja sig upplýsta
um menningar- og félagsmál í
lýðveldinu. Sýndar verða kvik-
myndir um hlutskipti samkyn-
hneigðra og kynnt starf Samtak-
anna ’78.
í kvöld og næstu kvöld verður
ýmiss konar dagskrá frá kl.
20.30, en á föstudagskvöldið er
svo lokahóf kl. 21.00. Þar verð-
ur m.a. tískusýning o.fl.
Minningarkort
Landssamtaka
hjartasjúklinga
■ Minningarkort Landssam-
taka hjartasjúklinga fást á eftir-
töldum stöðum: Reykjavík:
Skrifstofa Landssamtakanna,
Hafnarhúsinu, Bókabúð ísa-
foldar, Versl. Framtíðin, Reyn-
isbúð, Bókabúð Vesturbæjar.
Seltjarnarnes: Margrét Sigurð-
ardóttir, Nesbala 7. Kópavogur:
Bókaverslunin Veda. Hafnar-
fjörður: Bókabúð Böðvars.
Grindavík: Sigurður Ólafsson,
Hvassahrauni 2. Keflavík:
Bókabúð Keflavíkur. Sand-
gerði: Pósthúsið. Selfoss: Apót-
ekið. Hvolsvöllur: Stella Ottós-
dóttir, Norðurgarði 5. Ólafsvík:
Ingibjörg Pétursdóttir, Hjarð-
artúni 36. Grundarfjörður:
Halldór Finnsson, Hrannarstíg
5. ísafjörður: Urður Ólafsdótt-
ir, versl. Gullauga, versl. Legg-
ur og skel. Vestmannaeyjar:
Skóbúð Axels Ó. Akureyri:
Gísli J. Eyland, Víðimýri 8,
Blönduós: Helga A. Ólafsdótt-
ir, Holtabraut 12. Sauðárkrók-
ur: Margrét Sigurðardóttir,
Raftahlíð 14.
Jóladagatal SUF
Þessir vinningar hafa verið
dregnir út.
1. desember 7285
2. desember 6100
3. desember 3999
Kvennaathvarf
■ Opið er allan sólarhringinn,
; síminn er 21205. Húsaskjól og
aðstoð við konur sem beittar
hafa verið ofbeldi í heimahúsum
eða orðið fyrir nauðgun.
Skrifstofan er að Hallveigar-
stöðum og er opin virka daga kl.
10.00-12.00, sími á skrifstofu er
23720. Pósthólf 1486 121
Reykjavík. Póstgírónúmer
samtakanna er 44442-1
Spilakvöld
í Kópavogi
■ Kvenfélag Kópavogs heldur
spilakvöld í dag, þriðjudaginn
3. des. kl. 20.30 í Félagsheimili
Kópavogs.
Jólafundur
Kvenfélags
Langholtssóknar
i ■ Kvenfélag Langholtssóknar
boðar jólafund þriðjudaginn 3.
desember kl. 20.30 í Safnaðar-
heimilinu. Efni fundarins helg-
að nálægð jóla. Heitt súkkulaði
ogsmákökur. Munið lítinnjóla-
pakka. Stjórnin.
Heilsugæsla
Blóm eftir Gunnlaug
Blöndal.
Jólakort
Listasafns islands
■ Undanfarna áratugi hefur
Listasafn íslands látið gera eftir-
prentanir af verkum íslenskra
myndlistarmanna í eigu safnsins
og eru þau tilvalin sem jólakort.
Nú eru nýkomin út þrjú litprent-
uð kort á tvöfaldan karton af
eftirtöldum verkum: Mosi og
hraun (1939) eftir Jóhannes S.
Kjarval, Blóm (1959) eftir
Gunnlaug Blöndal, Kiðá í
Húsafellsskógi (1953) eftir Ás-
grím Jónsson.
Kortin, sem eru mjög vönduð
að allri gerð, eru til sölu í
safninu.
Jólakort meö Sveitabæ eftir
Gunnlaug Blöndal.
Listaverkakort
Háskólasjóðs
■ Háskólasjóður Háskóla ís-
lans hefur gefið út tvö lista-
verkakort eftir verkum í eigu
Listasafns Háskóla íslands.
Verkin eru: Sveitabær eftir
Gunnlaug Blöndal (1943) og
Bátar og segl (1951) eftir Jó-
hannes Jóhannesson.
Alls hefur því Háskólasjóður
gefið út 6 listaverkakort á
undanförnum þrem árum: Stóð-
hestar eftir Þorvald Skúlason,
Við höfnina eftir Þorvald Skúla-
son, Við vindaugað eftir Hring
Jóhannesson, 1 róðri eftir
Gunnlaug Scheving, Sveitabær
eftir Gunnlaug Blöndal, og Bát-
ar og segl eftir Jóhannes Jó-
hannesson.
Öll þessi kort eru til sölu í
Aðalskrifstofu Háskólans og
Norræna húsinu, auk þess sem
þau eru seld beint til stofnana
og fyrirtækja. Kortin eru gefin
út í takmörkuðu upplagi.
Kvöld-, nætur- og helgídaga
varsla apóteka í Reykjavík vik-
una 29. nóvember tll 5. desem-
ber er í Lyfjabúðlnni Iðunni
Einnig er Garðs apótek opið til
kl. 22 öll kvöld vikunnar nema
sunnudagskvöld.
-Hafnarfjörður: Hafnarfjarðar apó-
tek og Norðurbæjar apótek eru
opin á virkum dögum frá kl. 9 til kl.
T9 og á laugardögum frá kl. 10 til
14.
Apótekin eru opin til skiptis ann-
an hvern sunnudag frá kl. 11-15.
’Akureyri: Akureyrar apótek og
Stjörnu apótek eru opin virka daga
.á opnunartima búða. Apótekin
skiptast á sina vikuna hvort að
sinna kvöld-, nætur og helgidaga-
vörslu. Á kvöldin er opið i því
'apóteki sem sér um þessa vprslu,
:til kl. 19. Á helgidögum er opið frá
kl. 11 -12, og 20-21. Á öðrum tímum
• er lyfjafræðingur ab akvakt. Upp-
lýsingar eru gefnar í sima 22445.
Apótek Keflavíkur: Opið virka
daga kl. 9-19. Laugardaga, helg-
idagaogalmennafrídaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opiö
virka daga frá kl. 8-18. Lokað i
,hádeginu milli kl. 12.30 og 14.
felfoss: Selfoss apótek er opiö til
kl. 18.30. Opið er á laugardögum
ogsunnudögum kl. 10-12.
Akranes: Apótek bæjarins er opið
'virka daga til kl. 18.30. Opið er á
• laugardögum kl. 10-13 og sunnu-
dögum kl. 13-14.
Garðabær: Apótekið er opið rúm-
helga daga kl. 9-19, en laugardaga
jkl. 11-14.
Læknavakt
'Læknastofur eru lokaðar á laugar-
dögum og helgidögum, en hægt er
að ná sambandi við lækna á
Göngudeild Landspítalans alla'
virka daga kl. 20 til kl. 21 og á
laugardögym frá kl. 14 til kl. 16.
Sími 29000. Göngudeild er lokuð á
helgidögum. Borgarspítalinn:
Vakt frá kl. 08-17 alla virka daga’
j-fyrir fólk sem ekki hefur heimilis-
lækni eða nær ekki til hans (sími
81200) en slysa- og sjúkravakt.
(Slysadeild) sinnir slösuðum og
skyndiveikum allan sólarhringinn
(sími 81200). Eftir kl. 17 virka daga
til klukkan 8 að morgni og frá
I klukkan 17 á föstudögum til klukkan
8 árd. Á mánudögum er læknavakt
i sima 21230. Nánari upplýsingar
um lyfjabúðir og læknaþjónustu
.eru gefnar í símsvara 18888
Ónæmisaðgerðir fyrir fullorðna
igegn mænusótt fara fram í Heilsu-
verndarstöð Reykjavikur á,
.þriðjudögum kl. 16.30-17.30. Fólk
hafi með sér ónæmisskírteini.
Neyðarvakt Tannlæknafélags Is-
lands er í Heilsuverndarstöðinni á
laugardögum og helgidögum kl. 10
til kl. 11 f.h.
Seltjarnarnes: Opið er hjá Heilsu
gæslustöðinni á Seltjarnarnesi
virka daga kl. 08.00-17.00 og
20.00-21.00, laugardaga kl. 10.00-
11.00. sími 27011.
Garðabær: Heilsugæstustöðin
Garðaflöt, sími 45066. Læknavakt
er í síma 51100.
Hafnarfjörður: Heilsugæsla Hafn-
arfjarðar, Strandgötu 8-10 er opin
virka daga kl. 8-17, simi 53722,
Læknavakts. 51100.
Kópavogur: Heilsugæslan er opin
8-18 virka daga. Sími 40400.
Sálræn vandamál. Sálfræðlstöð-
in: Ráðgjöf í sálfræðilegum efnum.
Sími687075.
£
Bílbeltin
hafa bjargað 0::
Gengisskráning - 2. desember 1985 kl. 09.15
Kaup Sala
Bandaríkjadollar.....................41,370 41,490
Sterlingspund........................61,579 61,758
Kanadadollar.........................29,847 29,934
Dönsk króna........................... 4,5444 4,5576
Norsk króna........................... 5,4581 5,4740
Sænskkróna............................ 5,4167 5,4324
Finnskt mark.......................... 7,6139 7,6360
Franskur franki....................... 5,3999 5,4156
Belgískur franki BEC.................. 0,8120 0,8143
Svissneskur franki....................19,9422 20,0000
Hollensk gyllini......................14,6435 14,6859
Vestur-þýskt mark..................... 16,4676 16,5154
ítölsk líra........................... 0,024190 0,024260
Austurrískur sch...................... 2,3426 2,3494
Portúg. escudo........................ 0,2620 0,2609
Spánskur peseti....................... 0,2663 0,2671
Japanskt yen.......................... 0,20404 0,20464
Irskt pund............................50,866 51,014
SDR (Sérstök dráttarréttindi).........45,2678 45.3890