NT - 17.12.1985, Page 1

NT - 17.12.1985, Page 1
Utilokað að VSI tryggi kaupmátt ■ „Það cr útilokað fyrir at- vinnuvegina að tryggja kaup- máttinn," sagði Magnús Gunnarsson, framkvæmda- stjóri VSÍ, við NT, þegar hann var spurður um álit sitt á samningsgrundvelli þeim sem ASÍ lagði fyrir VSÍ í gær. í þeim samningsdrögum er far- ið fram á 8% kaupmáttar- aukningu og að sú aukning verði tryggð út samningstím- ann. Magnús sagði að gagnstætt því sem oft áður hefði verið, þá væri það ckki bara barlónt- ur hjá fyrirtækjunum þegar sagt er að þau beri ekki slíkar hækkanir, þvf fjöldi fyrir- tækja hefur orðið gjaldþrota að undanförnu. Þá benti Magnús á að það þyrfti að semja á ákveðnum grundvelli um þróunina í at- vinnu- og efnahagsmálum þjóðarinnar og væri þjóð- hagsáætlun þar lögð til grund- vallar, en sú áætlun Itefur breyst mikið að undanförnu, t.d. vegna gengisþróunar. Viðskiptakjör hafa einnig versnað og niðurstaðan í ríkisfjármálum er mun verri en búist var við. Allt þetta og meira til gerir stöðuna fyrir samninga mjög erfiða nú. Magnús sagðist samt von- ast til að samningar næðust án þess að farið yrði í hart. Það næsta sent gerist er að VSÍ mun fara yfir hugmyndir ASÍ og ráðgert er að þessir aðilar hittist svo aftur strax upp úr áramótum. Þrotabú Hafskips: Ýmsir sýna skipunum áhuga ■ Fresturinn til að bjóða' í eignir þrotabús Hafskips rennur út kl. 17 í dag. Þegar NT hafði samband við Mark- ús Sigurbjörnsson, skiptaráð- anda í gær, haföi ekkert til- boð borist, fyrir utantilboð Eimskipafélagsins. Markús sagðist hafa rætt við Stefán Árnason í síma á föstudaginn, en Stefán hafði sýnt því áhuga að láta meta skipin með það í huga að ætla að bjóða í þau. Síðan hefur ekkert heyrst frá Stefáni fyrr en í gær að hann bað um að fresturinn yrði framlengdur til 15. jan. Þá barst skipta- 7dagar til jóla ráðanda fyrirspurn frá dönsk- um skipamiðlara um hvort skipin væru til sölu. Þá hefur norskur aðili einnig haft samband. Sagði Markús að það kæmi til greina að bjóða í hvert skip fyrir sig, slíkt yrði síðan mctið, hvort hag þrota- búsins væri betur borgið með að taka slíku tilboði og reyna að selja restina síðar, eða taka pakkatilboði eins og Eimskipafélagið hefur boðið. Skiptaráðcndur hafa enn ekkert byrjað að rannsaka mál þrotabúsins, því mikil- vægast er að koma eigunum í verð, en strax og gengiö hefur verið frá sölunni verður farið að huga að rannsókninni. Sagði Markús að því væri erfitt að svara hversu langan tímaslík rannsókn tæki, en þó ætti hún ekki að taka neinn óratíma, í mesta lagi nokkra mánuði. Fær málið svipaða afgreiðslu og önnur gjald- þrotamál, en eftir því sem gjaldþrotið er stærra verður rannsóknin viðameiri. Ragnar Hall, skiptaráð- andi er í Bandaríkjunum að kanna Hafskip USÁ. NEWS SUMMARYIN ENGLISH SEEP. 6 Ágreinmgur um kvótann: Matthías andvígur stjórnarfrumvarpi ■ „Ég tel ekkert ósamrænti í því að sitja sem ráðherra í þessari ríkisstjórn og að greiða atkvæði gegn þessu stjórnarfrumvarpi. Ég skuld- batt ntig aldrei í ríkisstjórn- inni þar sem þetta mál er ann- ars vegar," sagði Matthías Bjarnason samgöngu- og við- skiptaráðherra í samtali við NT í gær. Þá var nýlokið at- kvæðagreiðslu í neðri deild Alþingis um hið svokallaða kvótafrumvarp en Matthías var meðal þeirra stjórnarliða seni greiddu atkvæði gegn fruntvarpinu. „Ég hef tvisvar sinnum samþykkt að reyna þetta fyrirkontulag um stundarsak- ir, en þegar á að festa þetta svona þá leggst ég gegn því. í Ijósi þess hversu slænt reynsla hefur verið af kvótanum tel ég þctta slæma ákvörðun," sagði Matthías. Þess má geta að þingmenn Vestfjarðakjör- dæmis voru meðal helstu andstæðinga frumvarpsins en samgöngu- og viðskiptaráð- herra er einmitt einn þeirra. Það hefur áður gerst hér- lendis að ráðherrar Itafa opin- berlega lagst gegn stjórnar- frumvörpum án þess að stjórnarkreppa fylgdi í kjöl- farið. í lýðræðisríkjum er- lendis er það algengt að mál- efnaágreiningur innan ríkis- stjórnar valdi afsögn þess ráðherra sem ekki getur sætt sig við stjórnarstefnuna í einstöku máli. Aðflugstæki Luxemborgarflugvallar í ólestri: GEIR HALLGRIMSSON SEXTUGUR ■ Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra varð sextugur í gær. Af því tilefni tók hann á móti vinum og vandaniónnum á Hótel Sögu. Forseti Islands heiðraði Geir með nærveru sinni. Og það eru líka ófá skiptin sem þau hafa ræðst við þegar um stjórnarmyndunarvið- ræður hefurverið að ræða frá því að Vigdís tók við embætti sínu árið 1980 og á meðan Geir gegndi enn formennsku í Sjálfstæðis- flokknuin. N'l -mynd: Árni Ujurnn Milljónakostnaður fyrir Flugleiðir Miklar truflanir á Atlantshafsf luginu ■ Truflanir og seinkanir ltafa orðið á flugi Flugleiða til og frá Luxemborg frá því fimmtudag- inn 12. desember. Að sögn Sæ- mundar Guðvinssonar blaða- fulltrúa Flugleiða voru aðflugs- tæki flugvallarins sprengd í loft upp í haust en án þeirra væri ekki hægt að lenda flugvélum við slærn véðurskilyrði og snjó- komu, eins og verið hefur á síð- ustu dögum. Sæmundur sagðist vona að tækin yrðu komin í lag um ára- mótin því þessar truflanir á flug- inu hefðu haft milljónakostnað í för með sér. Flugleiðir hefðu þurft að lenda vélum sínum á Kölnarflugvelli, vista fleiri hundruð farþega á hótelum og flytja þá með bílum frá Lux- emborg til Kölnar, þaðan sem líka hefði verið farið í loftið áleiðis til íslands. Ekki hefði síðan bætt úr skák fyrir félagið að síðastliðinn laugardagsmorg- un hefði Flugleiðavél sem var að koma frá New York ekki getað lent í Keflavík vegna snjókomu og kraps og þurft hefði að snúa vélinni til Glasgow því ekki hefði reynst unnt að lenda í Lux- emborg. Milljónakostnaðurinn sem þessu væri samfara legðist síðan ofan á 80 milljóna króna tap fé- lagsins í ár en Sæmundur sagði að svona ástand yrðu öll flugfé- lög að þola og gera ráð fyrir. Ekki hefði enn náðst í þann eða þá sem sprengdu aðflugs- tækin á Luxemborgarflugvelli í loft upp, einn maður væri að vísu grunaður en engar játning- ar komið fram í því máli ennþá. Sprengingar eins og þessi gerð- ust alltaf af og til á Luxemborg- arflugvelli.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.