NT - 17.12.1985, Blaðsíða 3

NT - 17.12.1985, Blaðsíða 3
■ Kjörnefnd telur atkvæðaseðla í allsherjaratkvæðagreiðslu Kí um aðildina að BSRB. NT-mynd: Árni Bjarna Úrsögn kennara: Sigur atvinnurekenda - segir Kristján Thorlacius iíi |7 ' Þriðjudagur 17. desember 1985 3 Lí Fréttir Unnið að sam- einingu kennara í eitt félag - segir Valgeir Gestsson, formaður Kl ■ Kennarar niunu ylírgefa BSRB upp úr áraniótum, en |iað var niður- staða atkvæöagreiðslu innan Kenn- arasambandsins. Um 82% félags- inanna tóku þátt i atkvæðagreiðsl- unni og 72% þeirra voru hlvnnt úr- sögniniii. Uni 25% voru andvígir. Valgeir Gestsson, formaður KÍ, sagði við NT að það hefði komiðsérá óvart aðsvona mikill meirihluti hefði verið með úrsögninni, einnig var hann hissa á því hversu mlkil kjör- sóknin var, eða mun betri en í at- kvæðagreiðslunni í maí. í framhaldi af þessu mun K1 eiga viðræður við fjármálaráðhcrra á næstunni. um hver staða kcnnara yrði nú, þar sem þeir hafa ekki leng- ur samningsrétt. Óttaðist Valgeir ekki þá stöðu. því hér er um að ræða hvort hægt er að starfrækja frjáls verkalýðsfélög á íslandi, aö lians sögn. Sagði hann að kennarar myndu berjast fyrir því að ná fullum samnings- og verkfallsrétti í framtíð- in ni. Þá sagði Valgeir að verið væri að vinna að sameiningu kennara í eitt fé lag og væri unnið að því innan Bandalags kennarafélaga. Sagðist hann eiga von á aö þær hugmyndir yrðu kynntar félagsmönnum fljót- lega upp úr áramótum. ■ „Úrslit allsherjaratkvæða- greiðslunnar um aðild Kennarasam- bandins að BSRB, eru að mínum dómi sigur atvinnurekenda í land- inu,“ sagði Kristján Thorlacius, þeg- ar NT spurði hann álits á niður- stöðunum, sem verða til þess að kcnnarar segja sig úr BSRB um ára- mótin. Kristján sagði að þetta væri mun alvarlegra áfall fyrir kennara í KÍ en þeir gerðu sér almennt grein fyrir og að þetta veikti samtök þeirra mikið í kjarabaráttunni. Meðþessu hafi þeir afsalað sér samningsréttinum og þar með verkfallsréttinum, auk atvinnu- leysisbóta og aðild að orlofshúsum BSRB, en þeir hafa haft til umráða 12 af húsum BSRB. Þá sagði Kristján að BSRB stæði veikara eftir þessa niðurstöðu og sama mætti segja unr launþegahreyf- inguna í landinu í heild. Sagði hann að svo virtist sem ný viðhorf væru nú ráðandi meðal launþega, en það er sú skoðun þeirra að betra sé að starfa í minni hópum og jafnvel helst ein- staklingarnir sér. Sagði hann að þetta minnti á þá tíma þegar laun- þegahreyfingin var í burðarliðunum og atvinnurekendur gátu samið við hvern einstakling sér. Því túlkaði hann þessa niðurstöðu sem sigur at- vinnurekenda í landinu. Smjörlíkisgerð KEA Akureyri s:96-21400 ■ Þau Guðlaug Björnsdóttir og maður hennar Holberg Másson eru að von- um ánægð því Guðlaug hreppti stóra vinninginn 2 milljónir í Happdrætti Há- skólans í síðustu viku. NT-mynd: Sverrir. Viðskiptafræðinemi: Tveim milljónum ríkari GALLAR í öllum stærðum. Mjög gott verð, frá kr. 2.273.- Einnig stakarglans-gallabuxur frá kr. 1.027.- SPORTmumSLUN JNGOLFS OSKARSSONAR Á HORNIKLAPPARSJÍGS OG GRETTISGÖTU S:117S3 Heildsala-sími 10-3-30 •S enduntí* PÓSTKRÖFU ■ Guðlaug Björnsdóttir við- manni hennar til hamingju með skiptafræðinemi hreppti stóra vinn- þennan glæsilega „jólaglaðning". inginn, 2 milljónir í Happdrætti Há- skólans í síðustu viku. Guðlaug var að vonum hress og ánægð þegr NT hafði samband við hana og sagðist hún hafa spilað í tvö ár á einn miða og þetta er í fyrsta sinn sem hún fær vinning í happdrættinu. „Mér finnst þetta alveg ótrúlegt og er varla farin að trúa því að þetta sé veruleiki," sagði Guðlaug og þegar hún var spurð hvað hún ætlaði að gera við stóra vinninginn sagðist hún ekki alveg hafa gert það upp við sig. „Ætli ég og maðurinn minn reynum ekki að borga upp íbúðina okkar og svo sjáum við til," sagði Guðlaug og brosti. Hún sagðist ætla að spila áfram í happdrættinu því „miði er svo sann- arlega möguleiki," sagði hún síðan himinlifandi og með það var hún rokin ásamt manni sínum Holberg Mássyni og ætluðu þau að fara að kaupa sér eitthvað verulega gott í kvöldmatinn. NT óskar Guðrúnu og Holberg PUffll' GLANS - HETTU-

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.