NT


NT - 17.12.1985, Side 4

NT - 17.12.1985, Side 4
Fiskvinnslan: Tillögur um bætt rekstrarskilyrði ■ Svo sem fram hcfur komið að undanförnu stendur fiskvinnslan í landinu nú mjög höllum fæti, og áætlað er að um 8-9% tap sé nú á frystingu og tap hefur einnig verið á söltun á þessu ári. Samtök fiskvinnsl- unnar telja að þessi vandi sé nú orð- inn svo brýnn að þegar í stað verði að hefjast handa um að bæta rekstrar- skilyrði greinarinnar og í því augna- miði kynntu fulltrúar fiskvinnslunn- ar ríkisstjórninni ákveðnar tillögur til úrbóta. Tillögur þessar eru í tíu aðalliðum og fjalla bæði um aðgerðir sem gera þarf strax eða fljótlega og tillögur um lengri tíma markmið. í fyrsta liö tillagnanna, sem fjallar um almcnna efnahagsstjórn, er megináherslan lögð á aðhald í láns- fjár- og peningamálum og hallalaus utanríkisviðskipti. Um gengismál segir þar ennfremur: „Nú þegar verði hafinn undirbúningur við að koma á markaðsskráningu á gengi, þannig að verð á erlendum gjald- miðlum miðist við að jafna það magn sem boðið er fram og spurt er eftir. Tryggja þarf að framboð af erlend- um gjaldeyri sé sem næst því, sem út- flutningsgreinarnar framleiða fyrir erlendan markað. Með hliðsjón af því þarf að endurskipuleggja hlut- vcrk Seðlabankans. Skipaður verði starfshópur aðila atvinnulífsins og ríkisins er móti reglur um fram- kvæmd málsins. Starfshópurinn hefji störf fyrir áramót og skili frumdrög- um fyrir 15. janúar 1986.“ Annar liður tillagna fiskvinnsl- unnar fjallar um fjármögnun grein- arinnar og er þar meðal annars lagt til að sett verði lög sem heimili fisk- vinnslunni að taka afurðalán beint frá erlendum bönkum. Einnig er lögö til brcyting á samskiptareglum milli fiskvinnslunnar og viðskipta- bankanna, einkum í þeim tilfellum þegar breytingar verða á útlána- stefnu bankanna. Þá er lagt til að út- lánastefnu fjárfestingasjóðanna verði breytt, þannig að heimilt verði að ráðast í fjárfestingu á vélum og tækjum í formi leigukaupasamnings. í tillögum fiskvinnslunnar er lagt til að verðmyndun á sjávarafla verði gerð frjálsari. Lýsir fiskvinnslan sig reiðubúna til að taka þátt í útfærslu hugmynda um uppboðsmarkað í samvinnu við stjórnvöld og aðra hagsmunaaðila. Sjóðakerfi sjávarútvegsins á ekki upp á pallborðið hjá fiskvinnslunni og leggur hún til að það verði annað hvort lagt niður eða stórlega dregið saman. Sérstök áhersla er lögð á að verðjöfnunarsjóður verði lagður niður, en þess í stað komi sérstakar heimildir í skattalögum fyrir hvert fyrirtæki fyrir sig að leggja fjármagn í sérstakan sveiflujöfnunarsjóð. Þá mótmælir fiskvinnslan útflutnings- og gengismunargjöldum á skreið. Málefni fiskvinnslufólks ber nokk- uð á góma í þessum tillögum og er þar vakin athygli á starfi sem verið er að vinna af aðilum vinnumarkaðar- ins varðandi ráðningarfyrirkomulag starfsfólk í fiskvinnslu. Þar er gert ráð fyrir því að fiskvinnslan standi sjálf straum af launakostnaði á tím- um vinnslustöðvunar gegn mótfram- lagi úr Atvinnuleysistryggingasjóði. „Þess er vænst að breytingin auki ekki útgjöld Atvinnuleysistrygginga- sjóðs og að stjórnvöld greiði fyrir framgangi málsins," segir í tillögun- um. Þá er í tillögunum gert ráð fyrir því, að mögulegt sé að koma á vakta- vinnu í frystihúsum eða annars kon- ar sveigjanlegu vinnufyrirkomulagi, sem miðaðist við að ná fram betri nýtingu á vélum og tækjum um leið og meðferð hráefnis yrði bætt. Fisk- vinnslan leggur til að fiskvinnslufólk sem vinnur fullan vinnutíma eða um- fram 1700 klst. á ári hafi skattfrjálsar tekjur. Þetta plagg með tillögum fisk- vinnslunnar hefur þegar komið inn á borð hjá ríkisstjórninni og ýmis atr- iði þess hafa þegar verið tekin til at- hugunar og undirbúnings. Síldarvertíð lokið: Lang mest veiddist af stórri síld ■ Síldarvertíðinni er nú svo gott sem lokið og nú fyrir helgina voru aðeins tveir nótabátar enn á veiðum. Brúttóveiðin er orðin rúm 48 þúsund tonn (þ.e. síld + ís) en nettó aflinn er rétt tæp 46 þúsund tonn. í reknet veidd- ust rúm fjögur þúsund tonn en í nót rúm 44 þúsund tonn. Þessi afli hefur fengist í 866 veiðiferðum og var honum landáð á 25 höfnum víðs veg- ar um land. Aflahæsta ver- stöðin var Grindavík með tæp 7 þúsund tonn og þar hefur einnig verið fryst mest af síld eða tæp 4.400 tonn. Síldin á vertíðinni hefur verið góð, en hún skiptist þannig eftir stærðarflokkum: Af 25-27 cm síld veiddist tæp 295 tonn; af 27-30 cm síld veiddust tæp 2.200 tonn; af 30-33 cm síld veiddust rúm 16 þúsund tonn; og af sfld stærri en 33 cm veiddist langmest eða rétt rúm 26 þúsund tonn. í meðfylgjandi töflu má sjá yfirlit yfir landanir á hinum ýmsu verstöðvum, en tölurn- ar sýna brúttó afla. magn (kg) magn (kg) magn (kg) Verstöö 1.-11.des allslandaö. þar af í frost Vopnafjörður - 1.146.634 - Borgarfjörður Eystri - 55.880 Seyðisfjörður 29.290 2.365.758 172.406 Norðfjörður - 2.518.466 559.255 Eskifjörður “ 4.871.520 227.070 Reyðarfjörður 45.400 2.597.137 Fáskrúðsfjörður - 2.983.134 468.235 Stöðvarfjörður “ 1.434.465 208.540 Breiðdalsvík - 1.400.730 232.240 Djúpivogur 230.298 3.666.545 808.778 Hornafjörður 101.880 4.200.659 2.758.449 Vestmannaeyjar 190.465 5.661.549 4.386.339 Þorlákshöfn 90.480 4.677.180 1.883.400 Grindavík 114.440 6.974.442 2.269.540 Sandgerði - 654.520 273.124 Keflavík - 805.040 85.800 Hafnarfjörður - 295.570 138.770 Akrancs - 1.124.450 - Aðrarhafnir - 763.829 279.612 Samtals 802.753 48.197.508 14.753.558 ■ Mímir RE-3 kemur til Reykjavíkur. NT-mynd Árni Bjama Rannsókna- og kennslubátur afhentur ■ Fiskifélagíslands.Hafrannsókn- arstofnunin, og Líffræðistofnun Há- skólans hafa fengið til afnota 15 tonna plastbát sem hlotið hefurnafn- ið Mímir RE 3. Báturinn er ætlaður til kennslu og rannsókna á vegum þessara þriggja stofnana. Fiskifélag- ið mun nota bátinn til sjóvinnu- kennslu fyrir grunnskólanemendur og verður farið í dagróðra með u.þ.b. 10 nemendur í hvert sinn og þeim kennd vinnubrögð til sjós og helstu atriði í siglingafræði. Haf- rannsóknarstofnunin mun nota bát- inn til rannsókna á grunnsævi á skel- fiski, krabba, þörungi og hrognkelsi, en báturinn er heppilegur til rann- sókna á því tagi. Líffræðistofnunin mun nota bátinn til kennslu í sjávar- líffræðigreinum og til rannsókna sérfræðinga stofnunarinnar. Það var skipasmíðastöðin Mána- vör á Skagaströnd sem smíðaði bátinn, sem er 11 metra langurogbú- inn öllum helstu siglingar- og fiski- leitartækjum, auk útbúnaðar til línu-, neta-, og handfæraveiða. í bátnum eru tog- og linuspil. Með kaupum sínum á þessum bát hefur ríkissjóð- ur, sem er eigandi hans, bætt úr brýnni þörf áðurtalinna stofnana fyrir bát af þessari stærðargráðu. Félag íslenskra járniðnaðarmanna: Breytið togurum innanlands Áhyggjur af þróun Hafskipsmálsins ■ Félag íslenskra járniðnað- armanna hefur áhyggjur af at- vinnuástandi félagsmanna. Á fé- lagsfundi voru samþykktar tvær ályktanir, sem Iúta að atvinnuör- yggi þeirra, sem og annarra. Önnur ályktunin er varðandi Hafskipsmálið svokallaða. Þar lýsir félagið áhyggjum sínum vegna óvissu um atvinnu og af- komu hundruða starfsmanna Hafskips. Þá væntir fundurinn þess að við meðferð gjaldþrota- máls Hafskips verði leitast við að tryggja starfsmönnum fyrirtækis- ins áframhaldandi atvinnu. Seinni ályktunin varðar at- vinnu félaga í Félagi járniðnað- armanna. Þar lýsir fundurinn furðu sinni á að stjórnvöld skuli samþykkja að einnlapanstogar- anna sé sendur utan til stækkun- ar. breytinga og endurbóta á vél- um og tækjaútbúnaði og að hinir 9 skuttogararnir, sem smíðaðir voru í Japan verði sendir í sams- konar breytingu og endurbætur á næstu mánuðum. Járniðnaðar- menn telja að auðvelt sé að leysá þessi verk af hendi innanlands og skilur ekki hversvegna verið er að kaupa þessa vinnu erlendis á sama tíma og skipasmíðastöðvar og járniðnaðarfyrirtæki innan- la.nds skortir verkefni. Fundurinn skorar á stjórnvöld að beita sér fyrir því að þessi verkefni verði leyst af hendi hér á landi. Þannig sparast gjaldeyrir og stuðlað er að aukinni atvinnu. Þá eru stjórnendur fyrirtækja í járniðnaði og skipasmíðum hvattir til að reyna að fá þessi verkefni.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.