NT - 17.12.1985, Side 15
Ll
Listiðkun
í náttúrunni
■ Komin er út nýbók eftir Magn-
eu frá Kleifum um Tobías, sem
nefnist TOBÍAS TRÍTILLINN
MINN og er hún sjálfstætt fram-
hald bókanna TOBÍAS OG
TINNA og TOBÍAS OG VINIR
HANS. Bækurnar lýsa samskipt-
um Tobíasar viö Sighvat málara og
Tinnu dóttur hans. Þegar hér er
komið sögu eru mæöur Tobíasar
og Tinnu báðar erlendis, en þau fara
ásamt Sighvati og kettinum Snjáldu
í útilegu á bílnum Blánef. Útilegan
er skemmtilegt ævintýri og börnin
óska þess að hún taki aldrei enda.
Sighvatur málar og segir sögur og
litli, halti Tobías lærir að leika á
flautu með hafinu. Snjálda er
ósköp þung á sér og einn daginn
bætast fjögur kríli í hópinn. Ekkert
skyggir á gleðina fyrr en bréf með
slæmum fréttum berst utan úr
heimi. Þá reynir á vináttu Sighvats
og barnanna.
í TOBÍAS TRÍTILLINN
MINN er dregin upp nærfærin lýs-
ing á sálarlífi og högum ' ungs
drengs á viðkvæmu aldursskeiði.
Þetta er lífleg og falleg saga enda
hefur Magnea frá Kleifum áður
sýnt hve henni lætur vel að skrifa
fyrir börn.
Bókin er prýdd skemmtilegum
teikningum eftir Sigrúnu Eldjárn.
Bókaútgáfan Iðunn gefur út. Oddi
hf. prentaði.
ÓLAFUR H. KRISTJÁNSSON
HÉRAÐSSKÓLINN
AÐ REYKIUM
1931 - 1981
Saga skölans
kenpara- og nemendata!
Saga Reykjaskóla
■ Bókaútgáfan Örn og Örlygur
hefur gefið út bókina Héraðsskól-
inn að Reykjum 1931-1981 eftir
Ólaf H. Kristjánsson fyrrum skóla-
stjóra. Á bókarkápu segir: Þessi
saga Héraðsskólans að Reykjum
er skrifuð í tilefni af því, að árið
1981 voru fimmtíu ár liðin frá því
að skólinn tók til starfa í janúar
1931.
Ólafur H. Kristjánsson, sem var
nemandi í skólanum tvö fyrstu
starfsár hansogsíöarskólastjóri frá
1956-1981, rekur hér aðdragand-
ann að stofnun skólans, sögu hans
og starfshætti í fimmtíu ár.
Einnig eru æviskrár skólastjóra
og kennara og nemendatal.
Auk höfundar skrifa tveir aðrir
jiemendur minningar frá námsár-
um sínum í Reykjaskóla.
( bókinni eru um 190 myndir og
skipulagsuppdráttur af skólastaðn-
um gerður á teiknistofu Reynis
Vilhjálmssonar af Sigríði Jóhanns-
dóttur tækniteiknara.
Bókin er sett og prentuð í Prent-
stofuG. Benediktssonaren bundin
hjá Arnarfelli. Á kápu cr mvnd frá
Reykjaskóla eftir Björn Rúriksson
en kápuna hannaði Sigurþór
Jakobsson.
Þriðjudagur 17. desember 1985 15
Söguleg skáldsaga
■ Bókaklúbbur Arnar og Örlygs
hefur sent á almennan bókamark-
að bókina ELD VÍGSLAN eftir dr.
Jónas Kristjánsson forstöðumann
Stofnunar Árna Magnússonar.
Sagan er frumraun Jónasar á sviði
skáldsagnagerðar. Hinn kunni
bókmenntagagnrýnandi, Andrés
Kristjánsson , komst m.a. svo að
orði um söguna: „Þetta er söguleg
skáldsaga í bestu merkingu þess
gamla orðs. Hún er í senn byggð á
mikilli söguþekkingu, fræðilegri
trúmennsku og mannlegum skiln-
ingi. Hún opnar almennum les-
anda víkingasöguna með nýjum
hætti, lýsir undir brynjuna."
Þór Magnússon þjóðminjavörð-
ur sagði um Eldvígsluna: „Jónasi
Kristjánssyni hefur tekist snilldar-
lega að smíða úr brotafrásögnum
og skapa skemmtilega og heil-
steypta frásögn í sögunni Eldvígsl-
unni. Ragnar konungur loðbrók og
fólk hans, einkum þó sonurinn
Ubbi, sem hér segir frá ævi sinni,
stígur er Ijóslifandi fram úr hálf-
rökkri sögunnar. Lýsingar á hátt-
um fólks og umhverfi. athöfnum,
búskaparsýsli, sæförum og hern-
aði, allt er hér af miklum hagleik
gert og heldur sá á penna, sem er
bæði margfróður um sögusvið sitt
og menningarsögu þess tíma. Frá-
sögninni er líkt og brugðið upp á
tjald, hrífandi og æsilegar svip-
myndir, og er þá ekki minnst um
vert, að sagan er rituð á fáguðu
ntáli og þeirri eitilhörðu íslensku,
sem höfundur er kunnur fyrir,
þannig að unun er aö lesa.
Bókin Eldvígslan er sett og
prentuð í prenstofu G. Bencdikts-
sonar og bundin í Arnarfelli. Sig-
urþór Jakobsson gerði kápuna.
Hesfurinnfrá
nýju sjónarhorni
■ Út er komin bókin „Hestar".
Hún hefur verið í undirbúningi um
nokkurra ára bil og samanstendur
að mestu af Ijósmyndum Sigurgeirs
Sigurjónssonar.
Myndakafli bókarinnar tekur
yfir 99 blaðsíður. Örstutlur ís-
lenskur skýringartexti er á mynda-
síðum. Litmyndir eru 121 talsins
og tvítóna myndir 15, þ.á m.
nokkrar allt að 100 ára gamlar ljós-
mvndir, sem fæstar hafa komið fyr-
ir almenningssjónir áöur.
Bókin Hestar er óður til íslenska
hestsins.
Hún lýsir heimahögum hans,
frjálsri og stórbrotinni náttúru og
fólkinu sem dáir hann og metur.
Ljósmyndir Sigurgeirs Sigur-
jónssonar eru einstæðar.
Þær sýna hestinn frá nýju sjónar-
horni og veita okkur innsýn í ver-
öld hans - landið sjálft og fólkið
sem hefur valið sér samfylgd hans.
Textir Ragnars Tómassonar veitir
gott yfirlit um sögu hestsins, eðli
hans og hlutverk að fornu og nýju.
Jón Sigurðsson. bóndi í Skolla-
gróf, Ijær bókinni og mundum
hennar hugljúfan blæ með fer-
skeytlum sínum, sem urðu til við
skoðun mynda og texta. Bókin
Hestar varðvcitir áhrifamiklar
svipmyndir úr lífi hestamannsins
og náttúruunnandans - augnablik
sent aldrei gleymast.Þetta er falleg
bók undir handleiðslu Kristtnar
Þorkelsdóttur.
Vegna hinna fjölmörgu vina ís-
lenska hestsins erlendis er kunna
að vilja eignast bókina, hafa útgef-
enur bætt við enskum. þýskum og
dönskum hjálpartexta.
Bókin er unnin að öllu leyti i
prentsmiðjunni Odda.
BUND
ÁLFAR
Páll H. Jónsson
Blindálfaleikur
■ Blindálfaleikur heitir hann
leikurinn, sem setur svip sinn á þessa
athyglisverðu og mannlegu sögu Páls
H. Jónssonar, rithöfundar.
Hér er spurt um einmanalcikann,
einangrunina - tómleikann. Og leitað
leiða út úr einangrun mannssálarinn-
ar. Skáldið Ari Jónsson hefur misst
sjónina, en kannski er hann ekki einn
um að vera blindur. Og hugsanlega er
hann blindari að öðru leyti en því sem
sjónina varðar.
I huga lesandans vaknar eflaust
spurningin: Getur haltur leitt
blindan? Og ennfremur: Geta skiln-
ingarvit einnar manneskju komið
annarri að notum?
Páll H. Jónsson er enginn ný-
græðingur á ritvellinum. Hann hefur
sent frá sér ljóðabækur, leikrit, ævi-
sögur og þrjár barnabækur, en fyrir
tvær þeirra hefur hann hlotið verð-
laun Fræðsluráðs Reykjavíkur.
Þetta er fyrsta skáldsaga Páls ætluð
fullorðnunt lesendum og á hún eflaust
eftir að vekja verulega athygli. Blind-
álfar er áhrifamikil skáldsaga um ör-
væntingarfulla leit að lífsfyllingu,
skáldsaga um drauma og leit að
draumum.
Blindálfar er sett, filmuunnin og
prentuð hjá Prentstofu G. Benedikts-
sonar en bundin hjá Bókfelli hf. Út-
gefandi er Vaka-Helgafell.
Hammond Innes
í essinu sínu
■ Nítjánda bók spennuhöf-
undarins Hammond Inncs á ís-
lensku nefnist OLÍUBYLGJAN
BLAKKA. Um etni bókarinnar
stgir m.a. í kynningu forlagsins:
„Hver var maðurinn með mörgu
nöfnin sem fór huldu höfði og hafði
ótal sjóslys á samviskunni? Var
hann kaldrifjaður glæpamaður og
morðingi eða ástríkur faðir sem lét
nota sig til óhæíuverka? Trevor
Rodin lét það sig engu skipta, hann
vissi að þrjóturinn David Price
hafði valdið dauða Karenar. Er
olíuskipið Jupiter strandaði og var
á góðri leið mcð að cyðileggja hans
eigið líf. Hann ásetur sér að finna
Price, en sú leit kostar raunir og
hættur. Vikum saman lifir hann og
hrærist í undirheimum Austur-
Vinnslumöguleikar:
1. Ferskt/frysting
2. Söltun
3. Marningur
Söluaðili KVIKK S.F.
Ingólfsstræti 1 a 101 Reykjavik
Simi91-29177,91-18420,
tlx: 2213 vikur.
Framleiðandi
landa, þar sem mannvíg og misferli
eru daglegt brauð. Það er ekki fyrr
en í þjónustu illmennisins og skip-
stjórans á Aurora að Price kemur í
leitirnar, en hin fagra dóttir Price
er vís til hefnda og ruglar Trevor í
ríminu. Æsispennandi bók eftir
Hammond Innes sem hlotið hefur
mikið lof gagnrýnenda.
Bókaútgáfan Iðunn gefur út.
Álfheiður Kjartansdóttir þýddi.
Oddi hf. prentaði. Kápa er hönnuð
á Auglýsingstofunni Óctavo.
appelsínu
marmelaði
á brauðið
slösuðust
í umferðinni
hérlendis árið
1980
Eigum við ekki að
sýna aukna aðgæslu?
UUMFERÐAR
^______RAD y/
1 28 Reykjavik
BAADERÞJÓNUSTAN HF
KVIKK 205
Hausskurðarvélín
Bylting í nýtingu þorskhausa
Auka má nýtingu á slægðum þorski með
haus um 5 — 13% eftir vinnsluaðferð.
gefur samband við allar deildir