Lesbók Morgunblaðsins - 25.09.2004, Side 6
6 | Lesbók Morgunblaðsins ˜ 25. september 2004
J
azzhátíð Reykjavíkur verður sett í
Ráðhúsi Reykjavíkur á miðviku-
daginn kemur. Þetta er í fjórtánda
skipti sem hátíðin er haldin og er
hún nú um margt frábrugðin þeim
fyrri, því nú verða Íslendingar í
öndvegi, bæði Íslendingar sem búsettir eru er-
lendis og koma með erlendum djasssveitum
hingað og heimamenn sem fá til liðs við sig er-
lenda djassmeistara. Eina hljómsveit hátíðar-
innar þar sem enginn íslenskur hljóðfæraleik-
ari er innanborðs er sveit
Van Morrisons, sem einnig
er eina sveitin sem ekki er
djasssveit; heldur sig á slóð-
um rýþmablúsins og er löngu uppselt á þá tón-
leika.
Árni Egilsson lék hér síðast djass með Út-
lendingahersveitinni. Hann hélt ungur utan og
eftir dvöl í Þýskalandi settist hann að í Banda-
ríkjunum og komst í kynni við menn á borð við
André Previn, sem stjórnaði honum í sinfóníu-
hljómsveit á kvöldin og djammaði djass með
honum þegar færi gafst. Árni settist að í Kali-
forníu þar sem hann vann mest í hljóðverum,
en lék djass þegar tækifærin gáfust og skrifaði
tónlist jafnframt. Hann lék inn á plötu með
bassasnillingnum Ray Brown og nú verður
hann á djasshátíðinni í kompaníi við tvo aðra
bassasnillinga, sjálfan Niels-Henning Ørsted
Pedersen og Bandaríkjamanninn Wayne Darl-
ing, en Bass Encounters – Bassarnir mætast,
er hugarfóstur Darlings, sem búsettur er í
Austurríki. Þaðan kemur píanisti hljómsveit-
arinnar, Fritz Pauer, einn sá fremsti í Evrópu,
en trommari er John Hollenbeck, sem þekktur
er fyrir spilamennsku með mönnum á borð við
Kenny Wheeler og Bob Brookmeyer. Bassa-
leikararnir komu fyrst saman í Austurríki árið
2001 og er engum blöðum um það að fletta að
íslenskir djassunnendur bíða með öndina í
hálsinum eftir að heyra þá leiða saman hesta
sína. Þetta verður þó enginn bassabardagi
heldur tónlistin, hrein og tær, í öndvegi og á
efnisskránni verk eftir þremenningana í bland
við klassísk djasslög og söngdansa. Þeir spila á
Hótel Sögu á föstudagskvöld, en kvöldið áður
verða á sama stað Rodriquez-bræður, þeir Ro-
bert píanóleikari og Michel trompetleikari,
Hans Glawischnig leikur á bassann en á slag-
verk hinn magnaði kólumbíski Samuel Torres
og síðast en ekki síst slær Einar Valur Schev-
ing trommusettið. Tónlistin er funheitt latínu-
skotið bopp, sem vinsælt er hérlendis eftir að
Tómas R. Einarsson spilaði latíndjassinn inn í
hvers manns djasshjarta á Íslandi. Einar Val
hef ég ekki heyrt spila í Reykjavík síðan 1999,
er hann fór á kostum með fiðlaranum Finn
Ziegler. Einar Valur hefur búið um árabil í
Miami og leikið þar með mörgum heimsfræg-
um djassleikurum auk þess að stunda kennslu.
Hann er frábær trommari og löngu kominn
tími til þess að hann láti landa sína njóta hryn-
hita síns að nýju.
Gulli Guðmundsson bassaleikari hefur lengi
búið í Hollandi og getið sér gott orð ytra, leikið
og hljóðritað með fjölda hljómsveita. Nýjasta
skífan er með hljómsveit konu hans, söngkon-
unnar Natöszu Kurek, en hún hefur sungið
með honum hér heima. Gulli kemur á djasshá-
tíðina með tríó sitt Binary Orchid þar sem
Hollendingarnir Harmen Fraanje píanisti og
Lieven Venken trommari leika með honum.
Tónlist þeirra er í frjálsari kantinum og ýmis
rafhljóð með í för. Tónleikar þeirra verða á
Kaffi Reykjavík á fimmtudagskvöld. Fjórði Ís-
lendingurinn er hingað kemur í fylgd útlendra
er básúnuleikarinn Helgi Hrafn Jónsson, sem
margir muna eftir sem básúnuundrabarninu í
Bossanóvabandinu á Seltjarnarnesi eða bás-
únueinleikaranum með Sinfóníunni við Haga-
torg. Hann leikur nú og syngur með austur-
rísku hljómsveitinni Beefólk, sem er þrusugóð
heimsdjasssveit þar sem tónlist úr öllum átt-
um blandast saman; balkantónlist og indversk
tónlist, ekta djass og klassík með fönkhrifum.
Þeir hafa einu sinni heimsótt Ísland og léku á
Jómfrúartónleikum og gerðu allt vitlaust með
sterkri heimssveiflu. Að þessu sinni er góður
gestur í fylgd með þeim, austurríski gítarleik-
arinn Wolfgang Muthspiel, sem er einstakur
tónlistarmaður. Um hann hafa leikið alþjóð-
legir vindar og honum tekst á undursamlegan
hátt að blanda í djasstónlist sína jafnt klassík
sem teknó á þann hátt að unnendur þessara
tónlistarstefna hlusta dolfallnir. Hljómplötur
hans hafa verið ótrúlega fjölbreyttar og
skemmtilegar áheyrnar og efa ég að margir
tónlistarmenn leiki eftir þá stílblöndun sem
hann stundar – þar að auki er hann frábær
gítarleikari. Beefólk gaf nýlega út geislaplötu,
Place dramatique, sem fá má í 12 tónum við
Skólavörðustíg og er hún hin fjölbreyttasta.
Balkansveiflan er oft sterk, en stundum er
skipt í fönkrýþma og er þá dálítið skrítið og
skemmtilegt að heyra Helga Hrafn syngja á
íslensku með þessari austurrísku sveit. Þeir
félagar hans, Grantzer saxisti, Bittmann fiðl-
ari, Bakanic nikkari, Wendt trommari og
Habler bassaleikari, eru allir þrusuhljóðfæra-
leikarar og fínir sólistar svo ekki er að efa að
heitt verður í kolunum á Broadway á lokatón-
leikum Jazzhátíðar Reykjavíkur á sunnudags-
kvöldið þarnæsta.
En það eru ekki bara Íslendingar sem koma
með erlendum djassleikurum til Íslands sem
eru í sviðsljósinu. Okkar menn á Fróni kalla á
liðsauka að utan. Björn Thoroddsen hefur um
langt árabil verið í fremstu röð íslenskra
djassleikara. Hann hefur gert garðinn frægan
erlendis allt frá því hann hljóðritaði með Alex
Riel og fleiri dönskum köppum í Kaupmanna-
höfn 1988. Hingað hafa komið frábærir erlend-
ir djassleikarar til að leika með honum s.s.
Philip Catherine, Doug Raney og Dieter
Lockwood og hann hefur farið víða að leika
með útlenskum. Síðast á mikla djasshátíð í
Frans þar sem hann lék með Givone-tríóinu
sem endurgalt heimsókn Björns með tón-
leikum í NASA nýlega. Í dómum í frönskum
blöðum eftir þá hátíð var Björn m.a. kallaður
Paganini gítarsins. Hann hefur leikið mikið í
Kanada með trompetleikaranum Richard
Gilles, sem er af íslenskum ættum, og stofnuðu
þeir tríóið Cold Front þar sem bandaríski
bassaleikarinn Steve Kirby leikur með þeim,
en hann er einna þekktastur fyrir leik sinn
með Elvin Jones og lék m.a. með Ellington-
sveitinni undir stjórn Merchers. Þeir félagar
hafa vakið mikla hrifningu vestanhafs og er
ekki að efa að það sama verður upp á teningn-
um hér. Tónleikar þeirra eru á miðvikudags-
kvöld á Kaffi Reykjavík og í kjölfarið leikur
þar kvartett skipaður Einari Vali og Gulla
Guðmunds ásamt Jóeli Pálssyni og Agnari Má
Magnússyni. Agnar er prímus mótor í tríóinu
B3 þar sem leika með honum Ásgeir Ásgeirs-
son og Eric Qvick. Þeir bjóða til sín banda-
ríska saxófónleikaranum Seamus Blake, sem
hefur verið einn helsti einleikari í Mingusar-
stórsveitinni. Þess er skemmt að minnast að í
fyrra lék kanadíski trompetleikarinn Ingrid
Jensen með þeim félögum listavel. Það verður
gaman að heyra Blake trylla með hammond-
tríói í stað stórsveitar.
Hér hefur verið rakin samvinna íslenskra og
útlendra á fjórtándu Jazzhátíð Reykjavíkur en
að sjálfsögðu leikur fjöldi alíslenskra hljóm-
sveita á hátíðinni og eru söngkonur þar all-
áberandi: Kristjana Stefáns, Margot Kiis (sem
er að vísu frá Eistlandi en býr og starfar hér-
lendis), Anna Pálína og Þóra Björk. Söng-
flokkurinn Reykjavík 5 verður í Fríkirkjunni
og Hildur Björk syngur með Jazzbandi Eyj-
ólfs Þorleifssonar. Svo verða allt að þrír djass-
klúbbar í gangi er nátta tekur um næstu helgi.
Jazzhátíðir eru margskonar en að þessu
sinni þykir mér hafa tekist einstaklega vel til
um val tónlistarmanna. Það er nú einu sinni
meginhlutverk hvers menningarríkis að efla
eigin listamenn, hvort sem er heima eða á al-
þjóðavettvangi, og er vel þegar þeir aðilar er
að hátíðinni standa, Félag íslenskra hljómlist-
armanna og Reykjavíkurborg, gera það af
slíkum myndarskap. Þá er aðeins eftir hlutur
áheyrenda og efa ég ekki að flestir þessara
tónleika verða fjölsóttir, enda hvergi slegið af
gæðakröfum og í hópi erlendu gestanna
nokkrir af stórsnillingum djassins. Ég bíð
spenntur eftir að hátíðin hefjist og vonandi er
svo um fjölmarga.
Gleðilega hátíð.
Íslendingar í öndvegi á
Jazzhátíð Reykjavíkur
Íslendingar verða í öndvegi á Jazzhátíð
Reykjavíkur sem sett verður í Ráðhúsi borg-
arinnar á miðvikudaginn kemur. Eina hljóm-
sveitin sem ekki hefur Íslending innanborðs
er sveit Van Morrisons sem einnig er eina
sveitin sem ekki leikur djass.
Eftir Vernharð
Linnet
vernh@ismennt.is
Wolfgang Muthspiel leikur í hljómsveit Helga
Hrafns Jónssonar, Beefólk.
Höfundur er djassgagnrýnandi á Morgunblaðinu.
Cold Front Trio Richard Gilles, bandaríski bassaleikarinn
Steve Kirby og Björn Thoroddsen.
Van Morrison kemur með hljómsveit sína á Jazzhátíð Reykjavíkur en löngu er uppselt á tónleikana.
Seamus Blake saxófónleikari frá Bandaríkj-
unum leikur með tríóinu B3 á hátíðinni.
’Hér hefur verið rakin samvinna íslenskra og útlendra á fjórtándu Jazzhátíð Reykjavíkur en að sjálfsögðu leikur fjöldialíslenskra hljómsveita á hátíðinni og eru söngkonur þar alláberandi: Kristjana Stefáns, Margot Kiis (sem er að vísu
frá Eistlandi en býr og starfar hérlendis), Anna Pálína og Þóra Björk. Söngflokkurinn Reykjavík 5 verður í Fríkirkj-
unni og Hildur Björk syngur með Jazzbandi Eyjólfs Þorleifssonar. Svo verða allt að þrír djassklúbbar í gangi …‘