Morgunblaðið - 18.08.2004, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.08.2004, Blaðsíða 3
ÓL Í AÞENU 2004 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2004 B 3 ENGINN bandarískur sundmaður verður með í úrslitum 100 m skrið- sunds karla í dag vegna rangrar „hernaðaráætlunar“ í undan- keppni. Að bandarískur sundmaður verði ekki með í úrslitum grein- arinnar þykir sæta allmiklum tíð- indum því það hefur aðeins átt sér stað tvisvar sinnum áður í sögu nú- tíma Ólympíuleika, árið 1896 og 1980 þegar Bandaríkin sniðgengu leikana. Keppni í 100 m skriðsundi karla þykir hápunktur sundkeppni hverra leika og hafa bandarískir sundmenn unnið gullverðlaun í greininni í tólf skipti af þeim 24 sem keppt hefur verið í henni á ÓL. Ástæðan fyrir því að Bandaríkja- menn eru ekki með er sú að Ian Crocker og Jason Lezak höfnuðu í 17. og 21. sæti í undankeppninni þrátt fyrir að báðir væru fyrirfram taldir öruggir um sæti í úrslitum hið minnsta. Lezak er sá sem á besta tíma ársins í greininni af öll- um sundmönnum í heiminum. Einn þjálfara bandaríska sund- liðsins segir sökina liggja hjá sér. Hann hafi lagt upp keppnisáætl- unina fyrir þá Lezak og Crocker. Þeir hafi átt að synda hægt, spara sig fyrir átökin í úrslitunum en því miður hafi hann misreiknað sig og því hafi tími þeirra ekki nægt til þess að komast lengra. Ekki þarf að taka fram að þessi staðreynd er bandaríska sundliðinu á Ólympíu- leikunum mikil vonbrigði. Bandaríkjamenn ekki með í skriðsundi BANDARÍKIN fögnuðu sigri í 4x200 skriðsundi eftir ævin- týralega keppni við áströlsku sveit- ina í gær en aðeins munaði 13/100 úr sekúndu á þeim þegar upp var staðið. Ian Thorpe synti síðasta sprettinn fyrir áströlsku sveitina en náði ekki að vinna upp þriggja metra forskot sem bandaríska sveitin hafði þegar lokaspretturinn hófst. Ítalska sveitin varð þriðja á 7.11,83. Michael Phelps synti fyrsta sprettinn fyrir Bandaríkin sem kom talsvert á óvart þar sem hann er sterkasti sundmaður landsins um þessar mundir en sterkasti sund- maðurinn er yfirleitt látinn synda síðasta sprettinn. Hann skilaði inn góðri forystu sem félögum hans, Ryan Lochte, Peter Vanderkaay og Klete Keller tókst að halda. „Þetta sund verður skráð í sögubækurnar sem eitt besta sund í sögu ÓL,“ sagði Phelps. Klochkova varði titilinn Yana Klochkova varði ólympíu- meistaratitilinn í 200 m fjórsundi kvenna í gær en hún vann einnig til gullverðlauna í greininni á leikun- um fyrir fjórum árum. Klochkova synti vegalengdina á 2.11,14 mín- útum. Amanda Beard frá Banda- ríkjunum varð önnur á 2.11,70 og Kirsty Coventry frá Zimbabve kom þriðja í mark á 2.12,72. Bandaríkin komu á óvart Jakob synti á fjórðu braut í 3. riðliþar sem hann var skráður með besta tímann en kom þriðji í mark. Jakob var ævareiður út í sjálfan sig að loknu sundinu en hann hefði ekki þurft að bæta Íslandsmet sitt nema um 0,52 sekúndur til að komast áfram og á góðum degi hefði honum átt að takast það en Bretinn Christopher Cook náði síðasta und- anúrslitasætinu með því að synda á tímanum 2.14,68 mín. „Þetta var bara algjör aumingja- skapur og ferlega lélegt. Mér leið ekki vel, fór ekki hratt og ég er meira en óánægður út í sjálfan mig. Ég veit hreinlega ekki hvað fór úrskeiðis hjá mér. Mér leið vel í upphituninni og vel á fyrstu 50 metrunum en svo var eins og ég kæmist ekki hraðar. Þetta er einn lélegasti tími sem ég hef farið á og ég get gleymt þessum Ólympíu- leikum sem allra fyrst. Ég hef ekki farið svona hægt á stórmóti í tvö ár. Ég hef verið í undanúrslitum á öllum sumarstórmótum frá síðustu Ólymp- íuleikum en tímabilið í ár hefur verið það versta hjá mér frá upphafi. Ég hef samt aldrei æft betur,“ sagði Jakob Jóhann Sveinsson við Morg- unblaðið skömmu eftir 200 metra bringusundið. Hvað tekur nú við hjá þér? „Ég veit það ekki en það er ljóst að ég þarf að hugsa minn gang og fara í rækilega naflaskoðun. Ég klára stúdentinn um næstu áramót og síð- an hef ég tekið stefnuna á að fara ut- an. Næstu dagar fara hins vegar að svekkja sig á þessum árangri. Ég er mikill keppnismaður og svona aum- ingjaskapur fer óskaplega í taugarn- ar á mér,“ sagði Jakob Jóhann, sem lokið hefur þátttöku á sínum öðrum Ólympíuleikum. Ungverjinn Gyurta Daniel náði besta tíma í undanrásunum, 2.11,29, og heimsmethafinn Brendan Hansen kom fimmti í mark á 2.12.77 mín en heimsmet hans í greininni er 2.09,04, sett í júlí á þessu ári. Íslandsmets- tími Jakobs Jóhanns hefði dugað honum í 18. sæti í undanrásunum í gær. Morgunblaðið/Golli Jakob Jóhann Sveinsson stingur sér til sunds í 200 m bringusundi í ólympíu- sundlauginni í Aþenu í gær. Á myndinni hér til hliðar er hann kominn á ferðina. Jakob Jóhann Sveinsson hund- óánægður út í sjálfan sig eftir 200 metra bringusundið í gær Þarf að hugsa minn gang JAKOB Jóhanni Sveinssyni tókst ekki ætlunarverk sitt í 200 metra bringusundinu á Ólympíuleikunum í Aþenu í gær. Jakob, sem stefndi á að komast í úrslitin, varð að láta sér lynda 21. sætið af 46 keppendum og þar með fór helsta von íslensku sundmannanna til að komast í úrslit á Ólympíuleikunum í vaskinn. Jakob fékk tímann 2.15,60 mínútur en Íslandsmet hans í greininni, sett í Barcelona í fyrra, er 2.15.20 mín. Guðmundur Hilmarsson skrifar frá Aþenu Hjörtur Már setti Íslandsmet í 50metra, 100 metra og 200 metra flugsundi í vor en þá var hann í miklum ham og setti alls fjögur met á rúmum þremur vik- um. Met hans í 100 metra flugsundinu er 55,46 sekúndur en það setti hann á móti í Canet í Frakklandi snemma í júní. Með þeim árangri er hann í 47. sæti af 60 skráðum þátttakendum í 100 metrunum í fyrramálið og það er því ekki raunhæft að reikna með honum í baráttu um sæti í undan- úrslitum. Þangað komast 16 fyrstu og Hjörtur Már þyrfti að bæta sig um hátt í þrjár sekúndur til að ná því. Hann er hins vegar staðráðinn í að bæta Íslandsmet sitt. „Ég hef mjög góða tilfinningu fyrir keppninni hérna og líður eins og ég sé að fara aftur á mitt fyrsta meistaramót. Ég finn fyrir fiðringi sem var löngu hættur að gera vart við sig og það er mjög skemmtilegt að vera hérna, innan um þá bestu,“ sagði Hjörtur Már við Morgunblaðið. „Ég er viss um að ég á eftir að synda mjög hratt hérna í Aþenu, miðað við æfingarnar undanfarið bendir allt til þess. Það er sérstak- lega ánægjulegt að hafa náð að bæta sig svona mikið í ár og náð að komast á Ólympíuleikana því ég er tiltölu- lega nýbyrjaður aftur að æfa og keppa. Ég tók mér frí í hálft annað ár en byrjaði aftur af krafti í janúar og hefur gengið mjög vel. Það er því mjög hvetjandi að fara síðan heim eftir leikana, æfa meira og gera bet- ur, og þátttakan hérna er því mjög gott þrep fyrir mig. Því miður er ekki keppt í minni aðalgrein, 50 metra flugsundi, á leikunum en þar á eftir legg ég mesta áherslu á 100 metr- ana.“ Hjörtur sagði að hitinn í Aþenu hefði engin áhrif á sig. „Nei, alls ekki og ég bjóst í raun við að það yrði heit- ara. Maður var fljótur að venjast þessu og þegar ég hafði verið hér í fimm daga eða svo fannst mér kalt að koma út í 24 stiga hita snemma á morgnana,“ sagði Hjörtur Már Reynisson. Hjörtur Már Reynisson á meðal keppenda í 100 m flugsundi Líður eins og á mínu fyrsta meistaramóti HJÖRTUR Már Reynisson, 21 árs gamall KR-ingur, bíður lengst allra íslensku sundmannanna eftir því að taka þátt í sinni grein á Ólympíuleikunum. Hans tími rennur upp í fyrramálið, um áttaleytið að íslenskum tíma, þegar hann keppir í 100 metra flugsundi. Víðir Sigurðsson skrifar frá Aþenu CAMELIA Potec tryggði Rúmenum fyrstu gullverðlaun sín í sundkeppni Ólympíuleikanna þegar hún kom fyrst í mark í 200 metra skriðsundi kvenna á 1.58,03 mínútum. Sigur Potec kom á óvart, ekki síst henni sjálfri, sem enn hafði ekki áttað sig fullkomlega þegar verðlaunaafhending fór fram um hálf- tíma eftir að sundinu lauk. Potec var á fyrstu braut sýndi gríðarlega keppnis- skap og ákveðni á síðustu 50 metrunum og uppskar samkvæmt því. Ólympíumeistarinn frá því fyrir fjór- um árum, Franzica van Almsick frá Þýskalandi varð að gera sér fimmta sæt- ið að góðu. Federica Pellegrini frá Ítalíu varð önnur á 1.58,22 og Frakkinn Sol- enne Figues hafnaði í þriðja sæti á 1.58,45 mínútum. Rúmenar fengu gull í skriðsundi

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.