Morgunblaðið - 18.08.2004, Page 4

Morgunblaðið - 18.08.2004, Page 4
ÓL Í AÞENU 2004 4 B MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ KÚLUVARPSKEPPNI karla og kvenna á Ólympíu- leikunum verður haldin á allsérstökum stað í dag eða á ólympíuvellinum hinum forna í Olympíu sem er í um 300 kílómetra fjarlægð frá Aþenu. Völlurinn var byggður árið 776 fyrir Krist og þegar kúluvarpskeppnin fer fram í dag verður það í fyrsta sinn sem hann er notaður síðan 393 eft- ir Krist. Þá verður þetta í fyrsta skipti sem konur ganga inn á völlinn, bæði sem keppendur og áhorfendur. Vésteinn Hafsteinsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari Ís- lands og keppandi á fernum Ólympíuleikum fyrir Íslands hönd, verður viðstaddur kúluvarpskeppnina en hann er landsliðsþjálfari Dana í kastgreinum og tekur lærisveinn hans, Joachim Olsen, þátt í undankeppninni. Völlurinn er, eins og gefur að skilja, fornaldarlegur og til að mynda verða ekki neinar rafmagnsstigatöflur held- ur verður notast við standa sem tölur eru færðar hand- virkt á. Skipuleggjendur leikanna lögðu ríka áherslu á að einhverjar keppnisgreinar færu fram á hinum forna leik- vangi og það var samþykkt. Vésteinn á ólympíu- vellinum til forna EINAR Þorvarðarson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins í handknattleik, sagði við Morgun- blaðið að leikurinn við Slóveníu í dag væri upp á líf og dauða. Hann hefst klukkan hálf níu að morgni að íslenskum tíma í Sports Pavillion- íþróttahöllinni í Faliro, hafnarhverfi Aþenu, þar sem allir leikir í riðlakeppni Ólympíuleikanna fara fram. „Við vissum þegar við komum hingað að það yrði á brattann að sækja í hverjum einasta leik. Bæði liðin eru án stiga eftir tvo fyrstu leikina og þetta er því lykilleikur ef við ætlum okkur að kom- ast í átta liða úrslitin. En þó Slóvenar hafi tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í keppninni eru þeir mjög öflugir og ég tel að þeir séu sterkari núna en þeir voru þegar við töpuðum fyrir þeim í fyrsta leik á Evrópumótinu í Slóveníu í janúar. Sú keppni fleytti þeim ansi langt, það fer ekkert á milli mála að þeir eru komnir í fremstu röð,“ sagði Einar. Slóvenar sterkari en á EM STEFÁN Arnaldsson og Gunnar Viðarsson verða í hlutverki vara- dómara í handknattleik í keppni karla í dag. Þeir verða varadóm- arar á leik Grikkja og Egypta í B-riðli en báðar þjóðirnar hafa tap- að báðum leikjum sínum. Þeir Stef- án og Gunnar hafa dæmt tvo leiki en sum dómarapörin aðeins einn og það er ástæða þess að þeir dæma ekki í dag. Þeir fengu aðra af tveimur hæstu einkunnunum fyrir frammistöðu sína þegar þeir dæmdu leik Frakka og Bras- ilíumanna en einkunn þeirra var ekki eins góð í fyrrakvöld þegar þeir dæmdu leik Þjóðverja og Egypta. Stefán og Gunnar vara- dómarar UMDEILT atvik átti sér stað í leik Íslands og Spánar í handknatt- leikskeppni Ólympíuleikanna í fyrradag. Þegar staðan var 19:19, og Ísland átti möguleika á að kom- ast yfir í fyrsta skipti, varði Jose Hombrados, markvörður Spán- verja, naumlega frá Ólafi Stef- ánssyni en boltinn virtist hafa farið inn fyrir marklínuna. Eftir að hafa skoðað atvikið á myndbandi, segja forráðamenn íslenska liðsins að það sé augljóst að um mark hafi verið að ræða. Þetta var á örlagaríkum tímapunkti í leiknum því að í stað þess að Ísland næði forystunni á kafla þar sem leikur Spánverja virt- ist vera að riðlast, skoruðu þeir þrjú mörk á skömmum tíma og gerðu síðan endanlega út um leik- inn. Áttu að komast yfir gegn Spáni MERLENE Ottey spretthlaupari segist stefna ótrauð á að komast í úrslit í 100 m hlaupi kvenna í frjáls- íþróttakeppni Ólympíuleikanna þrátt fyrir að vera orðin 44 ára gömul. Ottey, sem tekur nú þátt í Ólympíuleikum í sjöunda sinn og keppir í fyrsta sinn undir fána Slóv- eníu, segist ala með sér þann draum að verða fyrsti verðlaunahafi Slóv- eníu í frjálsíþróttakeppni á Ólymp- íuleikum. Ottey er fædd á Jamaíka og keppti fyrir þá þjóð á sex ólymp- íuleikum og vann átta verðlauna- peninga en eftir að hafa búið árum saman í Slóveníu ákvað hún fyrir tveimur árum að sækja um slóv- enskt ríkisfang og segist ekki sjá eftir því. Ottey setti slóvenskt met í 100 m hlaupi í sumar, hljóp á 11,09 sek- úndum. Hún segir nær ómögulegt að spá fyrir um hver vinni 100 m hlaupið, margir komi til greina þar sem Marion Jones verði ekki með. Ottey stefnir á úrslitin Þau geta orðið þung skrefin frá handknattleikshöllinni að lan inni eftir leiki – þegar illa hefur gengið. Guðmundur Þórður landsliðsþjálfari og Ólafur Stefánsson yfirgefa höllina í hita GUÐJÓN Valur Sigurðsson er í úrvalsliði mánudagsins hjá Bengt Johansson, fyrrum landsliðsþjálfara Svía í handknattleik og sér fræðingi IHF í keppninni á Ólympíuleikunu Bengt segir í yfirliti sínu yfir aðra umferðin karlaflokki að Guðjón Valur hafi verið besti vinstri hornamaðurinn í leikjunum sex. Aðrir í úrvalsliði dagsins hjá Bengt eru vinstri skyttan Hyung-Min Yoon frá Suður- Kóreu, miðjumaðurin Guillaume Gille frá Frakklandi, örvhenta skyttan Petar Metlicic frá Króatíu, hægri hornamaðurinn Karypid frá Grikklandi, línumaðurinn Igor Vori frá Króatíu og brasilíski markvörðurinn Vascon elos. Guðmundur Hrafnkelsson fær hrós Svíinn hrósar mörgum markvörðum fyrir frammistöðu sína, og telur upp nokkra sem hafi staðið sig sérstaklega vel. Þar nefnir ha þó ekki Guðmund Hrafnkelsson sem átti mjö góðan leik gegn Spánverjum. Bengt segir ennfremur að bestu dómarar dagsins hafi verið landar hans frá Svíþjóð, þ Hansson og Olsson. Leikur dagsins að hans mati var viðureign Suður-Kóreu og Rússlan sem Kóreubúarnir unnu óvænt en verðskuld Guðjón Valur í úrvalslið Bengts KJARTAN Steinbach var eft- irlitsmaður á leik Grikkja og Frakka í handknattleikskeppni karla í Aþenu í fyrradag. Grikkir komu verulega á óvart og veittu Frökkum harða keppni, voru lengst af yfir, en héldu ekki út og Frakkar sigruðu að lokum, 29:25. Kjartan þurfti að grípa inn í leikinn á örlagaríku augnabliki. Grikkir voru þá tveimur mönn- um færri og Frakkarnir höfðu nýtt sér það til að vinna upp for- skot þeirra. Mistök á vara- mannabekk Grikkja leiddu til þess að leikmaður, sem var rek- inn af velli, fór alltof snemma inn á, 38 sekúndum áður en hans brottvísun átti að ljúka. Enginn tók eftir þessu á ritaraborðinu en Kjartan var snöggur að bregðast við, greip flautu og stöðvaði leik- inn. Grikkir misstu þar með þriðja manninn af velli og Frakk- ar gátu nýtt sér það enn frekar til að innbyrða sigurinn. Kjartan stöðvaði leikinn Nokkrir leikmenn sem léku meðliðinu á EM eru ekki í Ól- ympíuhópnum. Þar munar mest um hinn reynda Roman Pungartnik, markahæsta leik- manninn í sögu slóvenska landsliðs- ins og leikmann Kiel í Þýskalandi. Þá er Zoran Lubej frá París SG í Frakklandi ekki heldur með að þessu sinni. Sá leikmaður, sem vakti mesta athygli með Slóvenum á EM, var ungur, örvhentur hornamaður, Vid Kavticnik, sem varð tvítugur skömmu eftir keppnina. Kavticnik var valinn í úrvalslið keppninnar að henni lokinni. Hann náði sér ekki á strik í fyrsta leik Slóvena hér í Aþenu, skoraði ekki mark gegn Rússum, og var síðan hvíldur í leiknum gegn Króötum. Slóvenar töpuðu fyrir Rússum, 28:25, í fyrstu umferðinni í Aþenu og síðan naumlega fyrir Króötum, 27:26, í annarri umferð. Matjaz Brumen skoraði 10 mörk gegn Króötum og hefur gert 14 mörk í fyrstu tveimur leikjum Slóvena á Ólympíuleikunum. Rut- enka og Andrej Kastelic eru með 8 mörk hvor, Renato Vugrinec 6, Uros Zorman 5, Ales Pajovic 4, Tomaz Tomsic 2, Luka Zvizej 2, Marko Ostir 1 og Zoran Jovicic 1. Beno Lapajne hefur staðið mestan tímann í markinu en hann varði 11 skot gegn Rússum og 13 gegn Króötum. Slóvenar eru nú með á Ólympíu- leikum í annað skipti en þeir höfn- uðu í áttunda sætinu í Sydney fyr- ir fjórum árum. Vegur þeirra í handknattleiknum hefur vaxið geysilega hratt á undanförnum ár- um. Eftir að Júgóslavía leystist upp, voru þeir fljótir að gera vart við sig á stórmótum og komust t.d. í úrslitakeppni EM bæði 1994 og 1996, þótt þeir næðu ekki að kom- ast ofarlega á þeim mótum þar sem þeir enduðu í 10. og 11. sæti. Slóvenar hafa þrisvar náð að kom- ast í lokakeppni HM og náðu þar sínum besta árangri í Portúgal á síðasta ári, tólfta sæti. Silfurverð- launin sem þeir fengu í EM í jan- úar er þeirra langbesta frammi- staða á stórmóti og festi þá í sessi sem eina af fremstu handknatt- leiksþjóðum heims. Þá hefur þeirra besta félagslið, Celje Lasko, verið eitt öflugasta lið Evrópu undanfarin ár og sigraði einmitt í Meistaradeild Evrópu í vor, vann Flensburg samanlagt 62:58 í tveimur úrslitaleikjum. Með Celje leika margir slóvensku landsliðs- mannanna. Íslenska landsliðið í handknatt- leik mætir Slóvenum í Aþenu LIÐ Slóvena, sem mætir Íslendingum á Ólympíuleikunum í Aþenu nú í morgunsárið, er nokkuð breytt frá því í janúar þegar það hreppti silfurverðlaunin á Evrópumótinu á sínum heimavelli. Slóv- enar töpuðu þá , 30:25, fyrir Þjóðverjum í úrslitaleik, eftir að hafa sigrað Króata, 27:25, í undanúrslitum. Slóvenar sigruðu jafnframt Íslendinga á sannfærandi hátt, 34:28, í fyrsta leik keppninnar. Þeir hafa fengið til sín öfluga, rétthenta skyttu frá Hvíta-Rússlandi, Siarhei Rutenka. Hann hefur leikið í Slóveníu undanfarin ár og er nýkominn með slóvenskt ríkisfang. Rutenka hefur skorað 8 mörk í tveimur fyrstu leikjum Slóvena hér í Aþenu, gegn Rússum og Króöt- um, en er reyndar ekki með góða skotnýtingu því 11 skot af 19 hafa geigað hjá honum. Víðir Sigurðsson skrifar frá Aþenu Nokkrar breytingar á silfurlið- inu frá EM

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.