Morgunblaðið - 18.08.2004, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 18.08.2004, Qupperneq 7
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 18. ÁGÚST 2004 B 7 ALESSANDRO Nesta, leikmaður AC Milan og ítalska landsliðsins, sagði í viðtali við ítalska fjölmiðla í gær að leikurinn gegn Íslandi væri mjög mikilvægt skref í átt til þess að gleyma óförunum á EM í Portúgal. „Ítalía verður að endurbyggja samheldni og keppnisanda, eink- um eftir slakt gengi í síðustu tveimur stórmót- um. Leikurinn gegn Íslandi er mjög mik- ilvægur þar sem hann gefur okkur tækifæri til að byggja upp hið fræga Azzurri-andrúms- loft.“ Leikurinn er fyrsti leikur Marcelo Lippi með ítalska liðið og hlakkar Nesta til að spila undir hans stjórn. „Lippi er svo sannarlega frábær þjálfari, annars hefði hann ekki þjálfað Juv- entus í svo langan tíma. Það er það eina sem ég get sagt um hann. Ég veit ekki hvaða leik- aðferð við spilum enda er það undir þjálf- aranum komið,“ sagði Nesta. Íslandsleikurinn mikilvægur Alessandro Nesta JÓN Arnór Stefánsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, er með tilboð í höndunum frá rússneskum, ítölskum og spænsk- um körfuknattleiksliðum en hann er samningsbundinn banda- ríska NBA-liðinu Dallas Mavericks. Jón sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að hann ætlaði sér að skoða málin á næstu dögum ásamt umboðsmanni sínum sem er í Bandaríkj- unum. „Þetta er allt á frumstigi og ég er samningsbundinn Dallas Mavericks eins og er. Ég þarf að fá mig lausan frá þeim til þess að geta tekið næstu skref í þessum efnum. Ég hef nú þegar fengið tilboð frá rússnesku liði frá Pétursborg en hef ekki svarað því. Að auki eru lið frá Spáni og Ítalíu inni í myndinni eins og er. Það er margt í gangi,“ sagði Jón Arnór sem lék með Dallas í sumardeildinni vestanhafs og þótti standa sig vel í þeim leikjum. Jón Arnór lék ekkert með Dallas á síðustu leiktíð og þarf að komast á ný í 12 manna hóp liðsins að loknu undirbúnings- tímabilinu í haust. Hann gerði samning til fimm ára við Dall- as, með því ákvæði að hann þyrfti að komast í leikmannahóp liðsins á hverju hausti á samningstímanum. Jón Arnór með tilboð frá liðum í Evrópu Jón Arnór Stefánsson FÓLK  REAL Madrid er sagt eiga í við- ræðum við ítalska liðið Inter Míl- anó um kaup á ítalska varnarmann- inum og landsliðsmanninum Fabio Cannavaro. Madrídarliðið vinnur hörðum höndum að því að styrkja vörnina hjá sér og eftir að liðið missti af Patrick Vieira sneri það sér til Cannavaro, en fyrr í sumar keypti liðið Walter Samuel frá Roma. Cannavaro hefur mikinn áhuga á að fara til Spánar þrátt fyrir að Manchester United hafi sýnt honum mikinn áhuga að und- anförnu.  ÍTALSKA liðið Roma hefur í hyggju að fá sænska framherjann Zlatan Ibrahimovic, sem leikur með Ajax í Hollandi, til liðs við sig. Ibrahimovic, sem er 22 ára, sló í gegn í sænska landsliðinu á EM í Portúgal í sumar. Hann skoraði meðal annars mark Svía gegn Ítöl- um á EM, en leiknum lauk með 1:1 jafntefli. Viðræður hafa átt sér stað milli félaganna, en Ajax vill ekki sleppa hendinni af leikmanninum nema fyrir 1,3 milljarða króna.  ÍTALSKIR fjölmiðlar sögðu frá því í gær að Juventus væri að ganga frá kaupum á Miguel frá Benfica og ætlaði að greiða 10 milljónir evra fyrir kappann. Áður hafði Benfica hafnað fimm milljóna boði í kantmanninn snjalla.  MÓNAKÓ íhugar að kaupa Nicholas Anelka frá Mancester City. Raunar vill Mónakó annað- hvort fá Anelka eða Javier Saviola frá Barcelona og er líklegra að hann fari því Börsungar segjast til- búnir að lána hann í eitt ár.  LIVERPOOL hefur gengið frá þriggja ára samningi við Antonio Nunez. Nunez er 25 ára miðjumað- ur og kemur til liðsins í skiptum fyrir Michael Owen sem fór til Real Madrid.  FIORENTINA hefur blandað sér í baráttuna um Senegalann El Hadji Diouf hjá Liverpool en nán- ast var frágengið að hann færi til Bolton að láni út tímabilið. Fyrirliði íslenska landsliðsins, Eið-ur Smári Guðjohnsen, býst við hörkuleik í kvöld og hann telur að ís- lenska liðið gæti varla mætt erfiðari mótherja. „Ítalir hafa á að skipa frábæru liði og eru með eitt af allra sterkustu liðum í heimi. Þó að það vanti nokkra sterka leikmenn í ítalska liðið hafa Ítalir það marga góða leikmenn að þeir geta vel stillt upp tveimur mjög góðum liðum,“ seg- ir Eiður Smári en hann telur að það verði sérstakt fyrir íslensku leik- mennina að hlaupa inn á völlinn í kvöld. „Það er útlit fyrir að það verði um 18.000–20.000 áhorfendur á leikn- um og það verður örugglega dálítið sérstakt að leika fyrir svona marga áhorfendur á Laugardalsvelli. Það verður frábært að spila fyrir framan svona marga Íslendinga og vonandi sýnum við í hvað okkur býr og full- komum daginn fyrir Íslendinga.“ Hefur þessi leikur meira gildi en aðrir vináttulandsleikir? „Þetta er mikilvægur leikur þó úr- slitin hafa ekkert stigagildi. Ef við náum góðum úrslitum verður það mikilvægt fyrir sjálfstraustið hjá okk- ur og myndi veita okkur meðbyr fyrir leikina í september í undankeppni HM, en þar erum við í mjög erfiðum riðli. Á morgun (í kvöld) þurfum við að rísa aftur upp eftir rothöggið í Bretlandi þegar við töpuðum stórt fyrir Englandi.“ Hvað þurfum við helst að leggja áherslu á gegn Ítölum? „Við þurfum alltaf að leggja mikið upp úr varnarleiknum og beita hröð- um skyndisóknum þegar tækifæri gefst. Við þurfum að vera vel skipu- lagðir í varnarleiknum og nýta föstu leikatriðin vel. Það fer svo alveg eftir því hvernig leikurinn þróast hvort við pressum þá framarlega eða aftar- lega,“ sagði Eiður Smári. Þurfum að sanna okkur Varnarmaðurinn Hermann Hreið- arsson segir að íslenska liðið þurfi að sýna sig og sanna gegn Ítölum eftir stórtapið gegn Englendingum í júní. „Síðasti landsleikur hjá okkur, sem var gegn Englendingum, fór ekki vel og við þurfum að sýna það og sanna að við séum verðugir andstæðingar fyrir Ítali. Þessi leikur er mikilvægur í undirbúningi okkar fyrir undan- keppni HM og við viljum koma okkur á beinu brautina áður en undan- keppnin hefst,“ segir Hermann. „Við þurfum að nota leikinn gegn Ítölum til að sýna öðrum þjóðum að við erum erfiðir heim að sækja. Við munum leggja áherslu á góðan og skipulagðan varnarleik. Baráttan þarf að vera til staðar og við verðum að vera tilbúnir að vinna hver fyrir annan en það þýðir ekki að liggja bara í vörn. Þegar tækifæri gefst verðum við að vera tilbúnir að sækja að marki Ítala því eins fólk veit er miklu skemmtilegra að spila til sigurs,“ seg- ir Hermann. Er liðið betur í stakk búið fyrir leik- inn gegn Ítölum en gegn Englandi? „Liðið er í betra ástandi núna en í Englandi en þá voru margir leikmenn þreyttir eftir langt og erfitt tímabil. Núna erum til dæmis við leikmenn- irnir, sem spilum á Englandi, allir mjög hungraðir í að spila þar sem tímabilið er nýhafið. Það er líka stutt í að undankeppni HM hefjist og það er mikilvægt að við slípum okkur vel saman. Þó að við séum í mjög erfiðum riðli í undankeppninni viljum við vera með í toppbaráttunni. Til þess að það geti gerst verðum við að vera mjög sterkir á heimavelli og það er mik- ilvægt að byrja vel í september því það eru aðeins 10 leikir í undankeppn- inni og hver leikur því mjög mikil- vægur.“ Megum ekki misnota þetta tækifæri Logi Ólafsson landsliðsþjálfari seg- ir að allir 20 íslensku leikmennirnir séu í góðu ástandi og tilbúnir í leikinn gegn Ítölum. „Ástandið á okkar leik- mönnum er mjög gott og það eru allir tilbúnir í leikinn. Ég og Ásgeir Sig- urvinsson höfum ekki ákveðið hvort við notum marga varamenn, það fer alfarið eftir því hvernig leikurinn þróast. Þó er ljóst að Birkir Kristins- son mun taka þátt í leiknum á ein- hverjum tímapunkti,“ segir Logi. Hvernig verður leiktaktík Íslands? „Megináætlunin verður að liggja aftarlega á vellinum og reyna að fá þá í gildrur sem við búum til. Varnarleik- urinn verður þéttur og við færum okkur fram á völlinn þegar tækifæri gefst. Við höfum alltaf verið sterkir í föstum leikatriðum, bæði í vörn og sókn og við munum áfram reyna að nýta þau,“ segir Logi sem segir að þeir Ásgeir hafi notað sama leikkerfi frá því þeir tóku við landsliðinu. „Allt frá því við Ásgeir tókum við landsliðinu höfum við notað sama leikkerfi með ákveðnum útúrdúrum en grunnskipulagið er alltaf það sama. Við erum með þrjá aftast, fimm á miðjunni og tvo framar á vellinum. Ísland er í mjög erfiðum riðli í und- ankeppni HM og þessi leikur er mik- ilvægur undirbúningur fyrir þá keppni. Ef við ætlum okkur að gera eitthvað af viti í riðlinum er það okkar mat að við getum aldrei leyft okkur að vera með marga leikmenn inni á vall- arhelmingi mótherjanna,“ segir Logi sem telur að verkefnið í kvöld sé mjög spennandi. „Það sem gerir þetta svo spennandi er að við erum að fara að leika gegn einu besta knattspyrnuliði veraldar og einnig verður hugsanlega slegið aðsóknarmet á Laugardalsvellinum. Þetta tvennt gerir það að verkum við getum ekki verið værukærir og við verðum að gera betur en gegn Eng- landi. Við megum ekki misnota þetta tækifæri því við verðum að sýna Ís- lendingum að við erum í þessu til að leggja okkur fram.“ Íslendingar og Ítalir eigast við í vináttulandsleik á Laugardalsvelli ÍSLENSKA karlalandsliðið í knattspyrnu leikur vináttulandsleik gegn Ítalíu á Laugardalsvelli í kvöld. Leikurinn er liður í undirbún- ingi fyrir undankeppni HM en fyrsti leikur Íslands í undankeppninni er gegn Búlgaríu á Laugardalsvelli 4. september. Morgunblaðið ræddi við landsliðsmennina Eið Smára Guðjohnsen og Hermann Hreiðarsson en þeir telja báðir að íslenska liðið þurfi að nota leikinn gegn Ítölum til þess að sýna í hvað því býr. Logi Ólafsson lands- liðþjálfari segir að íslenska liðið muni nota sömu leiktaktík og áður en áhersla verður lögð á að liggja aftarlega á vellinum. Morgunblaðið/Árni Torfason Eiður Smári Guðjohnsen, fyrirliði íslenska landsliðsins. Eftir Atla Sævarsson Ætlum að sýna hvað býr í liðinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.