Morgunblaðið - 18.08.2004, Qupperneq 8
ÞJÁLFARI norska úrvalsdeild-
arliðsins Fredrikstad, Knut Thor-
bjørn Eggen, hefur áhuga á að fá
Tryggva Guðmundsson að láni til
liðsins fyrir lokasprettinn í deild-
arkeppninni. Eggen segir í viðtali
Fredrikstadsbladet að hann hafi sett
sig í samband við forsvarsmenn
sænska liðsins Örgryte þess efnis að
fá Tryggva til liðsins. Tryggvi lék
með Stabæk og Tromsö í Noregi áð-
ur en hann samdi við Örgryte sl. vor.
„Við vitum hvernig leikmaður
Tryggvi er, hann er hættulegur fyr-
ir framan markið, fjölhæfur, enda
getur hann leikið sem framherji og
einnig á báðum köntunum ef svo ber
undir,“ segir Eggen en hann leitar
að framherja. Í fyrra fékk liðið Rík-
harð Daðason, sem skoraði 5 mörk í
9 leikjum og hjálpaði liðinu að
tryggja sér sæti í efstu deild.
Fredrikstad hefur
áhuga á að fá Tryggva ÞÓREY Edda Elísdóttir stangar-stökkvari kom til Aþenu í gær-
kvöld, síðust íslensku ólympíu-
faranna. Frjálsíþróttakeppni
leikanna hefst á föstudag og er
undankeppnin í stangarstökkinu á
laugardaginn. Hinn fulltrúi ís-
lenska frjálsíþróttafólksins, Jón
Arnar Magnússon, kom á sunnu-
daginn en hann keppir í tugþraut-
inni á mánudag og þriðjudag.
Guðmundur Karlsson, landsliðs-
þjálfari í frjálsum íþróttum, sagði
við Morgunblaðið að Jón Arnar
hefði æft af kappi í Ólympíu-
þorpinu síðan hann kom en þar
væri mjög góð aðstaða fyrir kepp-
endur. Ekkert væri hins vegar æft
á Ólympíuleikvanginum sjálfum
þar sem frjálsíþróttakeppnin fer
fram.
Þórey Edda Elísdóttir
Þórey komin til Aþenu
FÓLK
CRYSTAL Palace gekk í gær frá
kaupunum á Ivan Kaviedes frá Ekva-
dor. Kaviedes kemur frá Barcelona
de Guayaquil í Ekvador en hann var
áður á mála hjá spænska félaginu
Celta. Hann er 26 ára framherji og
hefur spilað með landsliði Ekvador.
KIERON Dyer, enski landsliðs-
miðjumaðurinn í herbúðum New-
castle, er að öllum líkindum á leið frá
félaginu vegna ósættis við Bobby
Robson, knattspyrnustjóra félagsins.
Dyer var ekki sáttur við að vera á
hægri kantinum gegn Middlesbrough
síðastliðinn laugardag og var þess í
stað tekinn út úr byrjunarliðinu.
Newcastle vill fá rúman milljarð
króna fyrir Dyer og er Manchester
United líklegast til að gera tilboð í
leikmanninn.
JURGEN Macho, austurríski
markvörðurinn sem verið hefur á
mála hjá Chelsea, hefur gengið til liðs
við Rapid Vín í Austurríki á frjálsri
sölu. Macho er annar markvörðurinn
sem yfirgefur Chelsea á stuttum tíma
en Marco Ambrosio var á dögunum
lánaður til Grashopper í Sviss.
TOTTENHAM hefur mikinn áhuga
á að kaupa bakvörðinn Steve Finnan
frá Liverpool, en liðið leitar að eft-
irmanni Stephen Carr sem seldur var
til Newcastle á dögunum. Finnan
gekk til liðs við Liverpool frá Fulham
fyrir 450 milljónir króna í fyrra.
LIVERPOOL hefur gengið frá
kaupum á spænska miðjumanninum
Xabi Alonso frá Real Sociedad.
Alonso, sem er 22 ára landsliðsmaður,
mun fljúga til Liverpool í vikunni til
að undirgangast læknisskoðun og
ganga frá persónulegum málum. Liv-
erpool er talið borga 1,4 milljarða
króna fyrir leikmanninn.
EMILE Heskey, leikmaður Birm-
ingham, hefur dregið sig út úr enska
landsliðshópnum vegna meiðsla, en
enska liðið mætir Úkraínu í æfinga-
leik í kvöld. Meiðsli hans eru ekki al-
varleg en ekki gefst tími til að kalla
nýjan mann í hans stað.
JOSE Mourinho, knattspyrnustjóri
Chelsea, segir að írski miðjumaður-
inn Damien Duff, sé ekki tilbúinn að
hefja leik að nýju í ensku úrvalsdeild-
inni. Duff hefur jafnað sig af axlar-
meiðslum sem hann lenti í, en var ekki
valinn í lið Chelsea gegn Manchester
United síðastliðna helgi. Mourinho
sagði að Duff væri ekki andlega tilbú-
inn og skorti sjálfstraust.
MARTIN O’Neill, knattspyrnu-
stjóri Celtic, hefur fengið grænt ljós
frá stjórnendum félagsins til þess að
gera tilboð í Brasilíumanninn Jun-
inho sem er í herbúðum Middles-
brough. Juninho virðist ekki eiga
mikla framtíðarmöguleika á River-
side eftir mikil innkaup í sumar.
BOSTON Celtic hefur samið við
NBA-leikmanninn Tom Gugliotta
sem er 34 ára gamall og hefur komið
víða við. Hann hefur átt við þrálát
meiðsli að stríða í hné á undanförnum
árum en hann var aðalmaðurinn í liði
Washington Wizards á árum áður og
skoraði þá yfir 20 stig að meðaltali í
leik.
ÓLYMPÍUMEISTARINN í 200
metra hlaupi karla, Grikkinn Kost-
adinos Kenteris, hefur verið í kast-
ljósi fjölmiðla að undanförnu þar
sem hann mætti ekki í lyfjapróf sem
hann var boðaður í. Kostadinos seg-
ir í viðtali við gríska fjölmiðla í gær
að hann sé ekki með óhreint mjöl í
pokahorninu. „Ég hef mátt þola
mikið óréttlæti á undanförnum
dögum. Ég hef aldrei notað ólögleg
efni á mínum ferli,“ sagði Kostad-
inos í gær er hann var á leið af
sjúkrahúsinu sem hann hefur dval-
ið á undanfarna daga eftir að hafa
lent í umferðarslysi á vélhjóli sem
hann og Ekaterini Thanou voru
saman á. Thanou er silfurhafi frá
100 metra hlaupinu í Sydney árið
2000 og er hún í sömu sporum og
Kostadinos, en hún mætti heldur
ekki í lyfjapróf sem hún var boðuð
í. Umferðarslysið hefur vakið mikla
athygli þar sem engin vitni hafa
gefið sig fram sem sáu slysið né
ökumaður bifreiðarinnar sem á að
hafa ekið á vélhjólið. Slysið átti sér
stað aðeins nokkrum klukkustund-
um eftir að þau áttu að mæta í lyfja-
prófið.
Aganefnd Alþjóðaólympíu-
sambandsins mun taka málið fyrir á
fundi sínum í dag.
Kenteris hefur ekki gefið það út
hvort hann muni taka þátt í 200
metra hlaupinu ef IOC gefur hon-
um leyfi til þess að keppa. „Þeir að-
ilar sem hafa krossfest mig í sjón-
varpsviðtölum á undanförnum
dögum eru þeir sömu sem hafa
staðið fyrir aftan mig í myndatök-
um eftir glæsta sigra mína,“ sagði
Kenteris.
Samkvæmt heimildum AFP-
fréttastofunnar er haft eftir starfs-
manni grísku ólympíunefndarinnar
að Kenteris og Thanou hafi ekki átt
von á því að vera boðuð í lyfjapróf í
Ólympíuþorpinu þar sem þau voru
stödd. Viðbrögð þeirra hafi verið
að láta sig hverfa en þeir kepp-
endur sem ekki mæta í lyfjapróf
geta átt yfir höfði sér tveggja ára
keppnisbann líkt og þeir sem falla á
slíkum prófum.
Kenteris
heldur fram
sakleysi
Reuters
Costas Kenteris á ferðinni í
Aþenu í gær.
Ég veit hver Eiður Smári Guð-johnsen er en aðra leikmenn
liðsins þekki ég lítið sem ekkert,“
segir Lippi. „Leikmenn íslenska liðs-
ins eru líkamlega sterkir en við höf-
um ekki náð nema þremur æfingum
áður en við mætum íslenska liðinu.
Undirbúningurinn er því ekki eins
og best verður á kosið,“ segir Lippi.
Það vakti mikla athygli þegar
Lippi valdi ekki Alexandro Del
Piero, fyrirliða Juventus oog fyrr-
verandi lærisvein hans hjá liðinu, í
landsliðshóp sinn. Lippi svaraði því
til að Del Piero verði að bæta lík-
amlegt ástand sitt áður en hann
verði valinn í ítalska landsliðið á ný.
„Ég hef rætt við leikmanninn og
hann veit um hvað er að ræða. Ég er
ekki að senda leikmönnum skilaboð
um að þeir eigi ekki möguleika á að
vera valdir. Enginn á öruggt sæti í
liðinu og ég tel að allir sem standa
sig vel með sínum liðum komi til
greina í landsliðið. Það eru margir
leikmenn sem ég hefði viljað taka
með til Íslands meiddir, og að auki er
nokkrir leikmenn að taka þátt á
Ólympíuleikunum. Ég fæ því tæki-
færi til þess að velja aðra leikmenn
sem ég get skoðað í leiknum gegn Ís-
lendingum,“ segir Lippi, en Ítalía
mætir Norðmönnum í fyrsta leik sín-
um í undankeppni heimsmeistara-
mótsins í byrjun september. „Við
munum leika 4-3-1-2 gegn Íslending-
um og ég krefst þess að leikmenn
liðsins gefi allt sem þeir eiga í leik-
inn. Þeir fá tækifæri til þess að sýna
hvað í þeim býr, og ef þeim tekst það
þá verða þeir eflaust valdir á ný í lið-
ið. Þetta er hópurinn sem mér stend-
ur til boða í dag og þessir leikmenn
eru ítalska landsliðið.
Leikmenn liðsins eru vanir ýms-
um mismunandi leikaðferðum með
sínum félagsliðum en leikaðferð
landsliðsins á ekki að koma þeim í
opna skjöldu.“
Lippi hefur rætt við markvörðinn
Francesco Toldo um að hann verði
til taks á ný, en Toldo sagði eftir
Evrópumót landsliða í sumar að
hann væri hættur með landsliðinu.
„Hann er tilbúinn að koma á ný ef
liðið þarf á honum að halda,“ segir
Lippi.
Morgunblaðið/Ómar
Marcello Lippi stjórnar leikmönnum sínum á æfingu í gær á Laugardalsvellinum.
Lippi vill fá
hörkuleik
MARCELLO Lippi, þjálfari ítalska landsliðsins í knattspyrnu, segir
að hann þekki lítið til íslenska landsliðsins, en liðin mætast í vin-
áttulandsleik á Laugardal í kvöld. Lippi tók við stjórn ítalska liðsins
eftir Evrópukeppni landsliða í Portúgal í sumar er Giovanni Trapp-
atoni hætti störfum. Ítalía komst ekki áfram úr riðlakeppninni eftir
harða baráttu við Svía og Dani. Leikurinn gegn Íslandi verður fyrsti
landsleikur Ítala frá því á EM.
■ Leikurinn/B7