Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 1
2004 LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST BLAÐ B
B L A Ð A L L R A L A N D S M A N N A
Þórey Edda keppir í undankeppni stang-
arstökksins í dag í Aþenu /B2
Jón Arnar Magnússon er tilbúinn í slag-
inn skeggjaður eða skegglaus / B7
Helena Ólafsdóttir ætlar íslenska liðinu
að ná árangri gegn Rússum / B8
Bekele ætlar sér að sigra í 5.000metra hlaupi en það hefur eng-
um tekist frá því að Eþíópíumaður-
inn Miruts Yifter sigraði í báðum
greinum á ÓL í Moskvu.
Bekele sem einnig er heimsmeist-
ari í greininni sýndi hvers hann er
megnugur á lokasprettinum er hann
reif sig frá öðrum keppendum með
gríðarlegum endaspretti og kom í
mark á 27.05,11 mínútum. Sileshi
Sihine frá Eþíópíu varð annar og
Zersenay Tadesse frá Erítreu varð
þriðji en þetta er í fyrsta sinn sem
íþróttamaður frá Erítreu vinnur til
verðlauna á Ólympíuleikum.
„Ég er ekki aðeins glaður yfir því
að hafa lagt Gebrselassie að velli, ég
vann alla sem tóku þátt og ég var
staðráðinn í því að fara síðasta hring-
inn á miklum hraða. Og það tókst,“
sagði Bekele í gær.
Gebrselassie bar sig vel eftir
hlaupið og hrósaði tvöföldum sigri
þjóðarinnar en hann hefur verið
meiddur á hásin undanfarnar vikur
og sagðist Gebrselassie einfaldlega
ekki hafa verið í stakk búinn fyrir
átök sem þessi. „Ég fann fyrir
meiðslunum sem hafa verið að hrjá
mig og það kom í ljós að ég hef ekki
æft mikiðundanfarnar vikur. En ég
óska þjóðinni til hamingju með gullið
og silfrið,“ sagði Gebrselassie.
Reuters
Eþíópíumaðurinn Kenenisa Bekele fagnar sigrinum í 10.000 metra hlaupinu í Aþenu.
Bekele vann
Gebrselassie
EÞÍÓPÍUMAÐURINN Kenenisa Bekele rauf sigurgöngu landa síns
síns Haile Gebrselassie í 10.000 metra hlaupi á Ólympíuleikunum í
Aþenu í gær en hinn 22 ára gamli Bekele kom fyrstur í mark á nýju
Ólympíumeti. Gebrselassie sigraði í greininni á ÓL í Atlanta árið
1996 og í Sydney fyrir fjórum árum en hann varð fimmti í hlaupinu.
KIRSTY Coventry tryggði Zimb-
abve sín fyrstu gullverðlaun í sund-
keppni á Ólympíuleikum í gær þeg-
ar hún kom fyrst í mark í 200 metra
baksundi á 2.09,19 mínútum. Fyrr á
leikunum hafði Coventry unnið silf-
ur og bronsverðlaun í sundkeppn-
inni en það voru jafnframt fyrstu
verðlaun Zimbabve í sundi á Ól-
ympíuleikum.
Stanislava Komarova frá Rúss-
landi varð í öðru sæti á 2.09,72 og
síðan voru Reiko Nakamura, Japan,
og Antje Buschschulte, Þýskalandi,
jafnar í þriðja sæti á 2.09,88.
Coventry stundar nám í banda-
rískum háskóla þar sem hún æfir
jafnframt sund með háskólaliði.
Árið 2000 var hún útnefnd íþrótta-
maður ársins í heimalandi sínu.
„Ég er gríðarlega ánægð og vik-
an hefur verið yndislegt. Ég trúi
þessu varla, ég er stolt að hafa
komið fram fyrir þjóð mína með
þessum hætti, enda fékk ég tæki-
færi frá þjóðinni, sem gerði mér
kleift að æfa og búa mig undir
keppnina. Ég vona að íbúar Zim-
babve séu eins spenntir og ég er.
Markmiðið var að ná gulli eftir fína
uppskeru í vikunni. Mér líður eins
og ég sé stödd á tunglinu, þetta er
óraunverulegt, ég á gull, silfur og
brons frá sundkeppninni. Ég stapp-
aði stálinu í sjálfa mig þegar ég
vissi að ég ætti möguleika á að
vinna til gullverðlauna,“ sagði Cov-
entry í gær. Hún vildi ekki ræða
mikið um stjórnmálasambandið í
heimalandi sínu. „Mér finnst að það
eigi ekki að blanda saman stjórn-
málum og íþróttum. Það er erfitt að
fylgjast með öllu því sem gengur á í
heimalandi mínu þar sem ég stunda
nám í Bandaríkjunum. En það eru
mismunandi vanamál sem allar
þjóðir eiga við að glíma,“ sagði
Coventry.
Kirsty Coventry kom
Zimbabve í gullflokkinn
Reuters
Kirsty Coventry kyssir gull-
verðlaunin í Aþenu.
HEIMSMEISTARALIÐ Króatíu í
handknattleik átti í vandræðum
með lið Rússa á Ólympíuleikunum í
Aþenu í dag en Króatía vann leik-
inn, 26:25. Staðan var 14:10 Rússum
í vil og í síðari hálfleik náðu Rússar
mest 5 marka forskoti sem þeir
misstu niður á lokakafla leiksins.
Það virtist sem lykilmenn Rússa
misstu móðinn er líða fór á leikinn á
meðan Króatar söxuðu á forskotið.
Rússar eru þar með í sömu stöðu
og Íslendingar í riðlinum, með 2
stig en liðin eigast við á sunnudag
í hreinum úrslitaleik um hvort
liðið kemst áfram úr riðlinum
ásamt Króatíu, Spáni og S-
Kóreu. Rússum nægir jafntefli
gegn Íslendingum á sunnudag.
„Leikurinn var gríðarlega erfið-
ur en niðurstaðan er mikil von-
brigði. Við áttum möguleika á sigri
en vorum óþolinmóðir í sóknar-
leiknum. Við verðum að vinna
næsta leik gegn Íslendingum á
sunnudag. Ég hef trú á því að okkur
takist að leggja þá að velli og kom-
ast áfram. Það er markmiðið hjá
okkur að komast áfram,“ sagði
Rúsinn Krivoshly-
kov.
Rússum dugir jafntefli
gegn Íslendingum
HEIÐAR Davíð Bragason úr GKj
lék þriðja hringinn á 70 höggum
eða tveimur höggum undir pari á
Evrópumóti einstaklinga í
Skövde í Svíþjóð og komst hann í
gegnum niðurskurðinn.
Hinir þrír íslensku keppend-
urnir á mótinu; Örn Ævar Hjart-
arson, Magnús Lárusson og Stef-
án Már Stefánsson komust ekki í
gegnum niðurskurðinn og eru úr
leik.
Heiðar Davíð var á parinu eft-
ir fyrstu tvo hringina, en var
kominn tvo yfir eftir fyrri níu
holurnar í dag. Hann lék hins
vegar vel á seinni níu, eða 34
höggum og er því samtals á
tveimur höggum undir pari á 214
höggum, en 70 efstu kylfingarnir
eftir þrjá hringi halda áfram og
leika lokahringinn í dag.
Rigning í Noregi
Birgir Leifur Hafþórsson lék
ekki í gær á áskorendmótinu sem
fram fer í Noregi en keppni var
frestað í gær vegna veðurs. Birg-
ir er á 2 höggum yfir pari í 62.-
85. sæti af alls 153 keppendum.
Heiðar Davíð komst
áfram í Svíþjóð