Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 21.08.2004, Blaðsíða 6
ÓL Í AÞENU 2004 6 B LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT Ólympíuleikarnir í Aþenu HANDKNATTLEIKUR A-riðill karla: Suður-Kórea – Ísland 34:30 Faliro, Aþenu, riðlakeppni Ólympíuleik- anna, mánudaginn 20. ágúst 2004. Gangur leiksins: 2:0, 2:3, 3:5, 5:6, 7:8, 9:8, 11:9, 11:11, 15:11, 15:13, 16:13, 17:13, 17:16, 18:17, 20:17, 21:19, 22:21, 25:21, 25:23, 26:24, 30:24, 30:26, 32:27, 34:30. Mörk Suður-Kóreu: Kyung-Shin Yoon 12/5, Kyung-Min Yoon 6, Min-Chul Park 5, Jae-Woo Lee 4, Tea-Young Lee 3, Won- Chul Paek 3, Sung Heon Kim 1. Utan vallar: 8 mínútur. Mörk Íslands: Ólafur Stefánsson 10/4, Jal- iesky Garcia 6, Sigfús Sigurðsson 5, Gylfi Gylfason 3, Guðjón Valur Sigurðsson 3, Dagur Sigurðsson 1, Snorri Steinn Guð- jónsson 1, Rúnar Sigtryggsson 1. Utan vallar: 6 mínútur. (Sigfús rautt spjald á 56. mín. vegna þriggja brottvísana) Dómarar: Dragan Nachevski og Marjan Nachevski frá Makedóníu. Áhorfendur: Um 500. Spánn - Slóvenía ....................................41:28 Rússland - Króatía ................................25:26 Staðan: Spánn 4 4 0 0 132:107 8 Króatía 4 4 0 0 116:106 8 S-Kórea 4 2 0 2 125:122 4 Rússland 4 1 0 3 111:115 2 Ísland 4 1 0 3 113:124 2 Slóvenía 4 0 0 4 104:126 0 B-riðill karla: Brasilía - Grikkland...............................22:26 Ungverjaland - Þýskaland ...................30:29 Frakkland - Egyptaland.......................22:21 Staðan: Frakkland 4 4 0 0 108:86 8 Ungverjaland 4 3 0 1 106:102 6 Þýskaland 4 3 0 1 117:83 6 Grikkland 4 2 0 2 95:100 2 Egyptaland 4 0 0 4 88:106 0 Brasilía 4 0 0 4 79:111 0 KÖRFUKNATTLEIKUR A-riðill kvenna: Rússland - Japan ...................................94:71 Ástralía - Grikkland ..............................77:40 Nígería - Brasilía...................................63:82 Staðan: Ástralía 4 4 0 334:250 8 Rússland 4 3 1 296:275 7 Brasilía 4 3 1 364:277 7 Japan 4 1 3 290:392 5 Grikkland 4 1 3 260:301 5 Nígería 4 0 4 277:329 4 B-riðill kvenna: Nýja Sjáland - Kína...............................79:77 Bandaríkin - Spánn ...............................71:58 Tékkland - Kórea ..................................97:75 Staðan: Bandaríkin 4 4 0 330:217 8 Spánn 4 3 1 304:273 7 Nýja-Sjáland 4 2 2 264:340 6 Tékkland 4 2 2 334:318 6 Kína 4 1 3 293:306 5 Suður-Kórea 4 0 4 259:329 4 BLAK A-riðill kvenna: Kórea - Japan ............................................3:0 Grikkland - Brasilía ..................................0:3 Kenýa - Ítalía .............................................0:3 Staðan: Brasilía 4 4 0 12:2 8 Ítalía 4 3 1 11:3 7 Suður-Kórea 4 3 1 9:4 7 Grikkland 4 1 3 5:9 5 Japan 4 1 3 3:10 5 Kenýa 4 0 4 0:12 4 B-riðill kvenna: Dóminíkanska - Kúba ...............................0:3 Kína - Þýskaland .......................................3:0 Bandaríkin- Rússland...............................2:3 Staðan: Kína 4 3 1 11:4 7 Kúba 4 3 1 11:7 7 Rússland 4 3 1 11:5 7 Þýskaland 4 1 3 4:11 5 Bandaríkin 4 1 3 8:10 5 Dóm. Lýðveldið 4 1 3 3:11 5 KNATTSPYRNA 8-liða úrslit kvenna: Mexíkó - Brasilía .......................................0:5 Þýskaland - Nígería ..................................2:1 Bandaríkin - Japan....................................2:1 Svíþjóð - Ástralía.......................................2:1 SUND Konur: 200 m baksund: Kirsty Coventry, Zimbabve ..............2.09,19 Stanisla Komarova, Rússland ...........2.09,72 Reiko Nakamura, Japan....................2.09,88 800 m skriðsund kvenna: Ai Shibati, Japan ................................8.24,54 Laure Manaudou, Frakkland............8.24,96 Diana Munz, Bandaríkin....................8.26,61 Karlar: 100 m flugsund karla: Michael Phelps, Bandaríkin .................51,25 Ian Crocker, Bandaríkin ......................51,29 Andriy Serdinov, Úkraínu....................51,36 50 m skriðsund karla: Gary Hall, Bandaríkin ..........................21,93 Duje Draguna, Króatía .........................21,94 Mark Roland Schoeman, S-Afríku ......22,02 FRJÁLSÍÞRÓTTIR 10.000 m hlaup karla: Kenesina Bekele, Eþíópíu ...............27.05,10  Ólympíumet. Silhesi Sihine, Eþíópíu .....................27.09,39 Zersenay Tadesse, Erítrea..............27.22,57 UNGVERJAR unnu Þjóð- verja, 30:29, í B-riðli handknattleikskeppni karla á Ólympíuleikunum í Aþenu. Þjóðverjar voru einu marki yfir í hálfleik, 15:14. Þetta var fyrsta tap Þýskalands í keppn- inni en Ungverjar höfðu fyrr í mótinu tapað einni viðureign. Frakkar eiga möguleika á að komast upp í efsta sæti riðilsins leggi þeir Egypta á eftir. „Ég er óánægður með sóknarleik okkar og hversu illa við fórum með mörg upplögð marktækifæri. Þrátt fyrir tapið þá eigum við enn mögu- leika á að verða í efsta sæti riðils- ins,“ sagði Heiner Brand, landsliðsþjálfari Þýska- lands. Örvhenta skyttan Laslo Nagy var marka- hæstur Ungverja, skor- aði 11 mörk og Carlos Peres kom næstur með 5 mörk. Stefan Kretzschm- ar gerði 8 mörk fyrir þýska liðið og Florian Kehrmann kom næstur með 7 mörk. Nandor Fazekas, markvörður Ungverja, reyndist leikmönnum þýska liðsins óþægur ljár í þúfu, hann varði 17 skot. Þá komust Grikkir í 8-liða úrslit þegar þeir lögðu Brasilíu, 26:22, en áður höfðu þeir unnið Egypta. Ungverjar bitu frá sér gegn Þjóðverjum í Aþenu KNATTSPYRNA Laugardagur: Efsta deild karla, Landsbankadeild: Akureyri: KA - Fram .................................15 1. deild karla: Húsavík: Völsungur - HK..........................14 Stjörnuvöllur: Stjarnan - Þór A. ...............16 2. deild karla: Varmá: Afturelding - Tindastóll ...............16 Siglufjörður: KS - ÍR .................................16 Helgafellsvöllur: KFS - Leiftur/Dalvík....16 Garður: Víðir - Víkingur Ó. .......................16 3. deild karla, úrslitakeppni: Ásvellir: ÍH - Skallagrímur .......................14 Grenivík: Magni - Reynir S. ......................14 Seyðisfjörður: Huginn - Hvöt ...................14 : Númi - Fjarðabyggð......................14 1. deild kvenna, úrslitakeppni: Sindravellir: Sindri - ÍA.............................12 Valbjarnarvöllur: Þróttur R. - Keflavík ...14 Sunnudagur: Evrópukeppni landsliða: Laugardalsvöllur: Ísland - Rússland........14 Efsta deild karla, Landsbankadeild: Kaplakriki: FH - ÍA ...................................17 Keflavík: Keflavík - ÍBV ............................18 Víkin: Víkingur R. - Fylkir ........................18 UM HELGINA Jón Arnar sagði við Morgunblaðiðsem heimsótti hann í Ólympíu- þorpið að hann væri mjög vel und- irbúinn fyrir leik- ana, „hrikalega vel“, eins og hann komst að orði. „Ég hef æft og keppt á mínum forsendum undanfarin 2–3 ár þó ég hafi fengið aðstoð eins og hefur þurft frá Guðmundi landsliðsþjálf- ara. Ég hef oft á mínum ferli verið óheppinn með meiðsli en núna er ekkert að trufla mig, smá hnykkur sem ég fékk á bakið í Götsiz í vor en það er ekkert til að tala um.“ Þann hnykk fékk Jón Arnar í sinni einu tugþrautarkeppni til þessa á árinu. Hann hætti þá keppni fyrir lokagreinina, 1.500 metra hlaupið, en segir að það hafi bara verið til vonar og vara. „Ég sleppti 1.500 metrunum af öryggisástæð- um, ég þurfti ekkert sérstaklega á því að halda að ljúka þrautinni og tók ekki áhættuna á að verða verri. Þetta var smá slynkur, hryggjarlið- ur skekktist aðeins og það komu ein- hverjar bólgur, en þetta fylgir bara aldrinum og háir mér ekkert.“ En þó hann hafi ekki lokið tug- þraut á þessu ári hefur verið nóg að gera. „Já, ég hef verið á fullri ferð í hinum og þessum mótum, keppt í einstökum greinum og gengið mjög vel. Ég hef verið í öllum greinunum nema 1.500 metrunum, og þær eru allar meira og minna að ganga upp. Ég er ánægður með stangarstökkið, langstökkið hefur verið mjög gott, kringlukastið er komið upp aftur hjá mér, eins kúluvarpið og spjótkastið, þá er hástökkið að koma, svo þetta er allt að smella saman. Svona er þrautin, og málið er síðan að vera ekki óheppinn, vera með hausinn á réttum stað þegar í keppnina er komið og hafa létt gaman af þessu öllu saman.“ Áttunda til tíunda sæti er raunhæft markmið Íslandsmet Jóns Arnars er orðið sex ára gamalt en það er 8.573 stig og hann setti það í Götsiz í Aust- urríki árið 1998. Hann hefur reynd- ar náð 8.583 stigum en þá var of mikill meðvindur í grindahlaupinu til að það teldist gilt. Á Ólympíu- leikunum í Atlanta var Jón Arnar tólfti með 8.248 stig, og sá árangur sem tryggði honum sæti á þessum leikum, á síðasta ári, er 8.222 stig. Það er tíundi besti árangurinn í ár og í fyrra hjá þeim 43 keppendum sem skráðir eru til leiks í tugþraut- inni, en hinsvegar hafa aðeins sex af þeim sem nú eru mættir til Aþenu náð betri árangri frá upphafi en Jón Arnar. Hann metur út frá öllum forsend- um að 8.–10. sætið sé raunhæft markmið hjá sér. „Fyrst er að sjálf- sögðu að komast í gegn, ljúka þraut- inni, sem hefur ekki alltaf tekist, og svo er að ná þessu markmiði. Fari ég enn lengra er það mjög mikill plús. Ég tel að til að ná þessu þurfi ég að fá 8.200 til 8.300 stig. En ef allt heppnast, veit maður ekki hvað get- ur gerst. Íslandsmetið? Ja, það er orðið dálítið gamalt og tími til kom- inn að ná því. Nú ef það tekst ekki, þá kemur bara einhver annar og slær það einhvern tíma. Til þess er það.“ Sebrle og Pappas eru bestir Jón Arnar telur að Roman Sebrle, heimsmethafinn frá Tékklandi, og Tom Pappas frá Bandaríkjunum muni berjast um gullverðlaunin í tugþrautinni. „Þeir eru bestir, en auðvitað getur allt gerst. Ein mis- tök, og allt er farið, og í raun er þessi keppni mjög opin. Þetta eru mikið til sömu mennirnir sem hafa verið að slást í þessu um árabil en þó eru þrjú tiltölulega ný andlit í hópn- um, þrír strákar sem eru framtíðar- mennirnir í þrautinni. Þetta eru Brian Clay frá Bandaríkjunum, Aleksandr Pogorelov frá Rússlandi og Dmitriy Karpov frá Kazakhstan. Karpov er hrikalega efnilegur og ég spái því að hann og Clay eigi fljót- lega eftir að bera höfuð og herðar yfir alla sem eru í þessu núna. Þess- ir strákar taka við af Sebrle, Dvor- ak, Nool, Lobodin, mér, þessum gömlu sem höfum verið lengi í þrautinni.“ Skiptumst á ef einhver rífur gaddaskóna Tugþrautarkapparnir hafa orð á sér fyrir að vera meiri félagar en gengur og gerist í öðrum greinum frjálsíþrótta, eða í einstaklings- íþróttum yfirleitt. Jón Arnar tekur undir þetta og segir að félagsskapur og vinátta ríki á vellinum þegar tug- þrautin er í gangi. „Jú, þetta er allt öðruvísi hópur en aðrir í frjálsum. Menn eru boðnir og búnir að hjálpa hver öðrum, ef einhver rífur gadda- skóna sína eða gleymir einhverju, þá kemur annar og lánar honum og segir: Við skiptumst bara á. Ég held að þetta stafi af hinni miklu samveru sem fylgir tugþrautinni. Við erum saman í 12–14 tíma á vellinum í senn og þá þýðir ekkert að vera með ein- hver bölvuð leiðindi eða baknag. Það vita allir hversu erfið þrautin er og Jón Arnar Magnússon er tilbúinn í slaginn á sínum þriðju Ólympíuleikum Þetta er allt að smella saman JÓN Arnar Magnússon tekur þátt í sínum þriðju Ólympíuleikum þegar tugþrautarkeppnin hefst í Aþenu, snemma á mánudags- morguninn. Hann varð í 12. sæti í Atlanta fyrir átta árum en meidd- ist og hætti keppni í Sydney fyrir fjórum árum. Að þessu sinni ætlar hann sér að bæta fyrri árangur og skipa sér í hóp átta til tíu efstu manna. Hann sér enga ástæðu til að hætta strax þó hann sé orðinn 35 ára en telur að hann verði varla með á Ólympíuleikunum í Peking eftir fjögur ár. Víðir Sigurðsson skrifar frá Aþenu Heiner Brand TALSMAÐUR grísku Ólympíu- nefndarinnar sagði í gær að einn keppandi gríska landsliðsins í lyft- ingum hefði fallið á lyfjaprófi. „Við getum ekki sagt frá nafni þess sem um ræðir fyrr en niðurstöður úr B- sýni liggja fyrir,“ sagði Giorgios Gakis, en hann vildi ekki staðfesta frétt grísku sjónvarpsstöðvarinnar MEGA að um væri að ræða lyft- ingamanninn Leonidas Sampanis. „Við höfum ekki fengið upplýs- ingar um hver þetta er og ég get því ekki staðfest hver sé hinn seki,“ sagði Gakis en Sampanis varð þriðji í 62 kg flokki sl. mánudag. Alþjóða ólympíunefndin, IOC, hefur ekki viljað staðfesta frétt grísku sjónvarpsstöðvarinnar en á þriðjudag bárust fréttir af því að sjö lyftingamenn hefðu fallið á lyfjaprófi. Tvær konur höfðu þá þegar lokið keppni en fimm karlar höfðu ekki hafið keppni er niður- staða A-sýnis var ljós. Sampanis er upprunalega frá Albaníu en er með ríkisfang í Grikklandi. Ef frétt grísku sjón- varpsstöðvarinnar er á rökum reist verður Sampanis fyrsti verðlauna- hafinn á leikunum til þess að falla á lyfjaprófi. Grísku spretthlaupar- arnir Kostas Kenteris og Ekaterini Thanou hafa nú þegar dregið sig úr keppni eftir að þau mættu ekki í lyfjapróf og tveir grískir hafna- boltaleikmenn féllu á lyfjaprófi fyr- ir leikana. Grískur harmleikur Reuters Leonidas Sampanis.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.