Morgunblaðið - 21.08.2004, Side 2

Morgunblaðið - 21.08.2004, Side 2
ÓL Í AÞENU 2004 2 B LAUGARDAGUR 21. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ BANDARÍKJAMAÐURINN Michael Phelps bætti í gær fimmtu gullverð- launum sínum á Ólympíuleikunum í safn sitt þegar hann kom fyrstur í mark í 100 m flugsundi á 51,25 sek- úndum sem er Ólympíumet. Gamla metið var 51,61. Þegar 25 metrar voru eftir af sundinu virtist Phelps ekki eiga möguleika á sigrinum, var í þriðja sæti, en lokasprettur hans var frábær. Landi Phelps, Ian Crocker, var annar á 51,29 sekúndum eftir að hafa verið í forystu nær allt sundið. Úkraínumaðurinn Andriy Serdinov varð þriðji á 51,36. Phelps á möguleika að vinna sjöttu gullverðlaun sín á leikunum á morgun í 4x100 m boðsundi. Hann hefur þegar unnið fern gullverðlaun í einstaklingsgreinum og hafa að- eins fjórir sundmenn náð á Ólymp- íuleikum til þessa, Alex Popov frá Rússlandi, Roland Matthes, Austur- Þýskalandi, Tamas Darnyi, Ung- verjalandi að ógleymdum Marks Spitz sem vann fimm gull í ein- staklingssundum í München 1972. „Það sem ég er að gera og upplifa þessa dagan er eitthvað sem ég hef verið að bíða eftir alla mína ævi,“ sagði Phelps eftir sundið í gær. „Ég á eftir eitt sund og þetta er besta vika sem ég hef upplifað á mínum ferli. Crocker var með yfirhöndina þegar skammt var eftir en ég náði honum og ég elska endaspretti sem skila mér gulli,“ sagði Phelps. Michael Phelps krækti í fimmtu gullverðlaunin GARY Hall, frá Bandaríkjunum, kom fyrstur í mark og tryggði þjóð sinni enn ein gullverðlaunin í sund- keppni Ólympíuleikanna þegar hann kom fyrstur í mark í 50 m skriðsundi. Króatinn Duje Drag- anja varð í öðru sæti og Roland Mark Schoeman, Suður-Afríku, hreppti bronsið. Þar með varði Hall tign sína í greininni en hann varð einnig Ól- ympíumeistari í 50 m skriðsundi á leikunum í Sydney fyrir fjórum ár- um. Sigur Hall stóð glöggt því hann var aðeins 1/100 úr sekúndu á und- an Draganja, kom í mark á 21,93 sek. Schoeman synti á 22,02. Svíinn Stefan Nystrand varð í fjórða sæti á 22,08 og bætti sitt eigið Norður- landamet. Það var ekki mikill mun- ur á fyrsta og áttunda sæti í úr- slitasundinu en Salim Iles frá Alsír varð áttundi á 22,37 sekúndum. Shibata kom á óvart Ai Shibata, frá Japan, vann gull- verðlaun í 800 m skriðsundi kvenna eftir æsilega keppni við Frakkann Laure Manaudou. Shibata synti á 8.24,54 en Frakkinn var 32/100 úr sekúndu á eftir. Manaudou var fyrirfram talinn sigurstranglegri og hafði ætlað sér að vinna sín önn- ur gullverðlaun á leikunum í sund- inu en hún vann 400 m skriðsundið. Diana Munz frá Bandaríkjunum hafnaði í þriðja sæti. Gary Hall varði titilinn frá því á ÓL í Sydney ÞÓREY Edda Elísdóttir á 16. hæsta stangarstökkið í heiminum á þessu ári, 4,60 metrar sem hún vippaði sér yfir á móti í Madríd um miðjan júlí. Sjö konur hafa hins vegar stokkið hærra en Þórey Edda í ár en þær Jelena Isinbayeva og Svetlana Feof- anva hafa hvað eftir annað skipst á að setja nýtt heimsmet í greininni. Isinbayeva bætti heimsmet sitt um 1 sentímetra í lok júlí þegar hún fór yfir 4,90 metra á móti í London en áður hafði Feofanova sett heims- met, 4,88, á móti í Herraklion í Grikklandi í byrjun júlí. Besti heimsárangurinnn í ár er eftirfarandi: 4,90 Jelena Isinbayeva 4,89 Jelena Isinbayeva 4,88 Svetlana Feofanova 4,87 Jelena Isinbayeva 4,83 Stacy Dragila 4,80 Svetlana Feofanova 4,80 Svetlana Feofanova 4,75 Stacy Dragila 4,71 Anna Rogowska 4,67 Kellie Shuttle 4,66 Caroline Hingst 4,62 Tatyana Polinova 4,60 Andrea Dutoit 4,60 Þórey Edda Elísdóttir 4,60 Jilian Schwartz 4,60 Monika Pyrek  KEPPANDI í kúluvarpi kvenna frá Úsbekistan, Olga Shchukina, féll á lyfjaprófi á Ólympíuleikunum í gær og hefur verið vísað úr Ólympíuþorp- inu í Aþenu. IOC greindi frá þessu í gær en hún reyndist hafa notað vaxt- arhormón í lyfjaprófi sem hún fór í hinn 14. ágúst sl.  KEPPNI í frjálsum íþróttum hófst á Ólympíuleikunum í Aþenu í gær- morgun. Christine Arron, frá Frakk- landi, og Latasha Colander, frá Bandaríkjunum, komust auðveldlega í aðra umferð í 100 metra hlaupi kvenna, en þær eru taldar líklegar til þess að hampa sigri í greininni. Þá komust Merlene Ottey, frá Jamaíku, og Gail Devers, frá Bandaríkjunum, einnig áfram úr undanrásum, en þær hafa oft keppt um sigur á stórmótum áður. Devers, sem er 37 ára, og Ot- tey, sem er 44 ára, eru hins vegar ekki taldar eiga möguleika á sigri nú. Devers hefur tvívegis borið sigur úr býtum í 100 metra hlaupi kvenna á Ólympíuleikum.  KIM Dong-Moon og Ha Tae- Kwon, frá S-Kóreu, sigruðu í tvíliða- leik karla í badminton á ÓL í Aþenu en þeir áttu í höggi við landa sína Lee Dong-Soo og Yoo Yong-Sung í úr- slitaleiknum. Moon og Kwon unnu tvær lotur, 15:11 og 15:4, en þeir fengu bronsverðlaun á leikunum í Sydney fyrir fjórum árum. Eng Hian og Flandy Limpele, frá Indónesíu, fengu brons í greininni en þeir unnu danska parið Jens Eriksen og Marti Lundgaard, 15:13 og 15:7.  BANDARÍKJAMAÐURINN Melv- in Lister náði ekki að tryggja sér sæti í úrslitum í þrístökki karla í gær en hann stökk aðeins 16,64 metra en keppendur þurftu að stökkva yfir 17 metra til þess að komast í úrslit.  CHRISTIAN Olsson frá Svíþjóð stökk lengst allra í undankeppninni, 17,68 metra, en hann notaði aðeins eitt stökk líkt og Marian Oprea frá Rúmeníu sem stökk 17,44 metra. Yoandri Betanzos, frá Kúbu, stökk 17,53 metra í fyrstu tilraun líkt og Bretinn Phillips Idowu sem stökk 17,33 metra. „Það hvarflaði ekki að mér að stökkva á ný er ég sá að 17 metrarnir voru í höfn. En keppnin í úrslitunum verður gríðarlega jöfn miðað við ástandið á keppendum í undankeppninni,“ sagði Olsson.  VALENTINA Popova, frá Rúss- landi, setti heimsmet í snörun í 75 kg flokki kvenna á ÓL í gær en Popova snaraði 120,5 kg. Þetta eru aðrir Ólympíuleikarnirsem Þórey Edda keppir á. Hún var meðal keppenda í Sydney fyrir fjórum árum þar sem hún sá Völu Flosa- dóttur vinna til bronsverðlauna með 4,50 metra stökki en sjálf fór Þórey Edda yfir 4,00 metra og komst ekki í úrslitin. Nú hefur dæmið snúist við hjá íslensku stang- arstökkskonunum. Völu tókst ekki að vinna sér keppnisréttinn á Ólympíu- leikunum í Aþenu en Þórey Edda hef- ur bætt sig jafnt og þétt í greininni og miðað við formið sem hún er í þá er vel hægt að gera sér góðar vonir um að hún keppi til úrslita. „Undirbúningurinn fyrir Ólympíu- leika hefur nánast gengið eins og ég vildi hafa hann og ég er búinn að gera allt sem ég get til að vera í sem bestu formi fyrir þá,“ sagði Þórey Edda við Morgunblaðið. Þórey segir að fyrsta takmarkið sem hún hafi sett sér sé að komast í úrslitin. „Ég tel mig eiga góða mögu- leika á að komast áfram. Ef það tekst verð ég mjög ánægð en að sama skapi mjög óhress ef það tekst ekki. Það er búið að ganga vel hjá mér á árinu og ég hef öðlast mikla og góða keppn- isreynslu sem ég á að geta nýtt mér.“ Situr eitthvað eftir í minningunni hjá þér, vonbrigðin í Sydney þegar þér tókst ekki að komast áfram? ,,Ég veit það ekki en þegar ég hugsa til baka þá var ég mjög von- svikin að komast ekki áfram. Ég fékk nett grátkast enda mikið spennufall sem var í gangi hjá mér. Hins vegar hefði verið hálf fáránlegt ef mér hefði tekist að komast áfram. Undirbúning- urinn fyrir Sydney var ekki góður. Ég átti í meiðslum og gat nánast ekkert æft um sumarið og það hefði ekki ver- ið sanngjarnt að fara í úrslit.“ Finnur þú fyrir kröfum og vænt- ingum heiman frá Íslandi eftir árang- ur Völu í Sydney, að þú eigir að gera eitthvað svipað? ,,Ég held að fólk geri sér grein fyrir því að það verður erfitt að toppa ár- angur Völu. Það er bara ekki hægt og það er ekki inni í myndinni,“ segir Þórey Edda og bætir því við að vissu- lega hefði verið gaman ef Völu hefði tekist að vinna sér keppnisréttinn. „Ég hefði viljað hafa Völu hér í Aþenu, hennar vegna og fyrir Ís- land.“ Hvaða sæti ert þú að stefna á að ná hér í Aþenu? ,,Ég yrði himinlifandi ef ég kæmist í hóp átta bestu. Ég hugsa ekki beint um sætið sem slíkt heldur að stökkva vel og að komast í úrslit. Ef mér tekst að komast í úrslitin þá vil ég reyna að stökkva þar alla vega 4,50 metra. Allt yfir það yrði bónus og auðvitað stefni ég á að reyna að stökkva sem hæst.“ Þú settir Íslandsmet í júní þegar þú fórst yfir 4,60 metra. Áttu meira inni? ,,Já, ég tel það og manni finnst allt- af að maður geti gert meira. Það er aldrei að vita hvað gerist hjá mér á þessum leikum. Ég er alla vega klár í slaginn og bíð bara spennt eftir því að fá að byrja.“ Eru fyrstu sætin frátekin? ,,Þau eru það, í það minnsta fyrsta og annað sætið. Isinbayeva vinnur, Feofanova verður önnur og svo er spurning um þriðja sætið, hvað Stacy Dragila gerir.“ Stefni á að vera með í Peking Þetta eru aðrir Ólympíuleikarnir sem þú keppir á. Hefur þú tekið stefn- una á að vera með í þriðja sinn í Pek- ing 2008? „Í dag stefni ég á að vera með í Peking. Ég verð að vísu komin á seinni árin. Ég tel mig ekki geta topp- að þar. Ólympíuleikarnir hér í Aþenu eiga að verða mínir toppleikar. Ég tók alltaf stefnuna á að toppa hér. Leik- arnir í Sydney voru meira til þess að öðlast reynslu og kynnast þessum heimi aðeins betur. Maður fékk hálf- gert sjokk að koma í Ólympíuþorpið í Sydney á sínum tíma og ég tala nú ekki um að ganga inn á Ólympíuleik- vanginn. Nú hef ég kynnst þessu og það hjálpar mér mikið.“ Þórey Edda segist eiga eftir að keppa á í það minnsta fjórum mótum áður en tímabilinu lýkur. Hún segir líklegt að hún taki þátt í gullmóti í Brussel, keppi á tveimur minni mót- um í Þýskalandi og vonandi í úrslita- móti á lokamótið í Grand Prix móta- röðinni sem haldið verður í Mónakó. Þórey Edda keppir í undankeppninni í stangarstökki í dag Verð himinlifandi ef ég kemst í hóp átta bestu ÞÓREY Edda Elísdóttir tekur þátt í undankeppni í stangar- stökki á hinum glæsilega Ól- ympíuleikvangi í Aþenu í dag. Þórey verður í eldlínunni klukk- an 19 á staðartíma, 16 að ís- lenskum, og þarf að stökkva 4,45 metra til að komast í úrslit en 12 bestu í undankeppninni keppa til úrslita á þriðjudag. Ís- landsmet Þóreyjar er 4,60 metr- ar sem hún setti í Madríd á Spáni um miðjan júlí á þessu ári. Guðmundur Hilmarsson skrifar frá Aþenu Morgunblaðið/Golli Þórey Edda er ekki svartsýn, þó að hún sé með sólgleraugu. Sjö hafa stokkið hærra en Þórey í ár

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.